Tíminn - 14.07.1970, Blaðsíða 12
12
a TIMINN j/bhmm
ÞRIÐJUDAGUR 14. júE 1970.
f síðusfcu viku gerðist sá at-
burður á goifvellinmn í Hafnar-
firði, að íslandsmeistarinn í gqjlfi,
Þorbjörn Kjaerbo frá Keflavík,
sló holu í höggi.
Þorbjörn var ásamt meðspiiur-
um að slá á 7. braut, en par á
henni er 3 högg, er bann sió
þetta draumahögg allra goifleik-
ara.
Þetta er í annað sinn, sem
„hola í höggi“ er slegin á Keil-
isveilinum, og í fyrsta sinn sem
Þorbirni tekst það.
-4r Hinn ungi og bráðsn]afH
goKleikari, Loftur Óiafsson, frá
Golfklúbbntun Ness, sem er að-
eins 16 ára gamall, varð sigurveg
ari í meistaramóti Golfsambands
íslands, sem fram fór í Grafar
holti s.l. laugardag.
Leiknar voru 36 holur, 2x18,
Og kom Loftur inn á 83 og 80
höggum, eða samtals 163 högg-
um.
í öðru og briðja sæti urðu jafn
ir Þorbjörn Kjaerbo, GS og Svan
Friðgeirsson, GR á 164 höggum.
(Þorbjörn 91—73 og Svan 81—83)
í keppninni um annað sætið sigr
aði Þorbjörn á annarri holu.
í fjórða og fimmta sæti urðu
jafnir Jóhann Eyjólfsson, GR og
Ölafur Ágúst Ólafsson, GR á 167
höggum (Jó'hann 84—83 og Ólaf
ur 88—79).
-4- Laugardaginn 4. júlí fór
fram hjá Ness-klúbbnum 18 holu
keppni með forgjöf, hin svonefnda
„Ambassadorkeppni“ en varðlaun
til hennar eru ggfin af Wiskey'
firmanu Ambassador, og eru þau
mjög „Vegleg og stór“ — enda
komu margir keppendur til leiks,
eða um 50 talsins.
Úrslitin urðu þau, að sigurveg
ari varð Einar Snorrason 42:33=
87=22=65. í öðru og þriðja sæti
urðu jafnir Hreinn M. Jóhanns-
són og Sverrir Guðmundsson, með
66 högg nettó. Hreinn sigraði í
keppninni um annað sætið.
Pétur Björnsson varð fjórði í
keppninni, en hann setti vallar-
met í síðari hringnum. Fór völl-
inn á 33 höggum, eða 2 undir
pari'.
Loftur Ólafsson v.ar raunveru-
lega fyrstur, því hann fór á 64
höggum nettó (36—36—3=34) en
hann tók þátt í keppninni sem
gestur, því hann var of ungur til
að taka við verðlaununum!
-4- Um helgina fór fram hjá
Keili í Hafnarfirði hin árlega
sveitastjórakeppni í golfi, en til
þeirrar keppni er boðið öllum
sveitastjórunum i nágrenni við
völlinn.
Leiknar eru 9 holur með þeim
hætti, að sveitarstjórarnir fá að-
stoðarmenn, sem slá annað högg
ið á móti þeim.
Úrslit í keppninni urðu þau, að
sigurvegari varð Garðahreppur á
56 höggum, en fyrir hann keppti
Ólafur Einarsson, en honum til
aðstoðar var Jóhann Eyjólfsson.
í öðru sæti varð Bessastaðahrepp
ur á 57 höggum. Keppandi Eybór
Stefánsson og honum til aðstoðar
var Jóhann Nílsson. í briðja sæti
varð Hafnarfjörður á 58 höggum,
keppandi Kristinn Guðmundsson,
og honum til aðstoðar Pétur Auð
unsson.
í fjórða 6ætj varð Kópavogur
k 61 höggi. keppandi Guttormur
Sigurbjörnsson, og honum til að-
stoðar, Þorvarður Árnason.
f keppninni tók þátt ein „gesta
sveit“ og kom hún inn á bezta
skorinu cða á 51 höggi. Þá sveit
skipuðu þeir Hjálmar Vilhjálms-
son, ráðuneytisstjóri og Sveinn
5norrason, formaður Go-lfsambands
íslands.
*
Nýtt Islandsmet
Bjarkar í langstökki
Kip-Rcykjavík.
Sérstöku hátí'ðarmóti í frjáls-
um íþróttum lauk á Laugardals-
vellinum á laugardaginn, og náð-
ist góður árangur í nokkrum
greinum. .
f langstökki kvenna sigraði
Björk Ingimundardóttir UMSB,
stökk 5,45 m., en í iþvi stökki
reyndist meðvindur of mikill. Hún
átti annað stökk, sem mældist
5,39 metrar ',og reyndist þá með-
vindur löglegur, og stökkið því
nýtt íslandsmet.
í 100 m. grindahlaupi kvenna
sigraði hin bráðefnilega stúlka
frá Akureyri, Ingunn Einarsdóttir
á nýju íslandsmeti 15,6, sem er
Selfoss vann á Húsavík
- þrjú lið efst og jöfn í 2. deild
Um helgina
leikur í 2. d
var leikinn cinn
knattspyrnu. Á Ilúsavík lék Völs- 0:1. Selfoss — Þróttur 1:1.
nngur við Selfoss, og lank þeim
leik með slgri Selfoss 4:3. Staðan í 2. deild er nú þessi:
Allt útlit er fyrir að sama virð Breiðablik 4 3 10 11:2 7
ingarleysi fyrir 2. deildarkeppn- Þróttur 5 3 11 17:7 7
inni ráði ríkjum áfram, því í þetta Selfoss 5 2 3 0 12:7 7
sinn mætti enginn dómari eða ÍBÍ 2 110 4:2 3
línuvörður til leiks, og varð loks Haukar 5 113 4:11 3
að fá heimamenn til að taka leik- Ármann 3 10 2 5:9 2
inn að sér eftir að búið var a@ FH 4 10 3 4:13 2
bíða í rúman einn tíma eftir dóm Völsungur 4 0 13 5:11 1
aranum og línuvörðunum frá Ak-
ureyri.
Fyrir íþróttahátíðina voru leikn
ir þrír leikir í 2. deild og urðu úr-
slit þeirra ]>cssi: Breiðablik —
Ármann 1:0. Völsungur—Haukar
Markhæstu menn:
Kjartan Kjartansson, Þrótti 7
Sumarliði Guðbjartsson, Self. 4
Guðm. Þórðarson, Breiðabl. 4
ogg|
Keflvíkingar sigruðu
Klp-Reykjavík,
í sambandi við íþróttahátíðina
var efnt til niikils knattspyrnu-
móts með þátttöku úrvalsliða ungl
inga víðsvegar að af landinu.
Leikið var í tveim riðlum, og
léku síðan sigurvcgararnir úr riðl
ununi til úrslita. Og fóru þeir leik
ir fram á laugardag.
2. flokkur: Þar léku til úrslita
úrval úr Reykjavík, KRR og úrval
úr Keflavík, ÍBK. Eftír venjulegan
leiktíma var staðan jöfn 2:2 og
var því framlengt um ,2x10 mín.
Hvorugu liðinu tókst að skora
mark í framlengingunni og var
því varpað hlutkesti. og kom upp
hlutur ÍBK.
3. flokkur: Þar lék úrval sömu
aðila til úrslita, og sigraði KRR í
þeim leik 2:0.
4. flokkur: í þessum flokki
léku til úrslita KRR og úrval frá
Vestmannaeyjum og lauk þeim
leik með sigri KRR, 5:0-
5. flokkur: Til úrslita í þessum
flokki léku ÍBK og UMBK, eða úr-
val úr Breiðablik, Gróttu og öðr-
um liðum úr nágrenni Reykjavík
ur. Lauk þeim leik með sigri ÍBK
3:1.
tími, sem jafnvel karlmenn gætu
verið ánægðir með að ná.
Hún sigraði einnig í 200 m.
hlaupi á 26,8, sem einnig er nokk
uð góður tími.
, í karlagreinunum sigraði Val-
björn Þorláksson í stangarstökki,
stökk 4,25 m., sem er með hans
bezta afreki í langan tíma, ef frá
er talið stökkið í landskeppninni
á dögunum.
Valbjörn sigraði einnig í 110
m. grindahlaupi á 15,2 sek., og var
þar á undan landsliðsmanninum
í greininni, Borgþór Magnússyni,
sem hljóp á 15,3.
í þrístökki setti Friðrik Þór
Ragnarsson nýtt drengjamet,
stökk 14,29 m„ en hann átti etöSJk,
sem mældist 14,52 m., en þá var
meðvindur of mikill.
Bjarni Stefánsson sigraði í 400
m. hlaupi á 49,9 sek., sem er
bezti tími, sem náðst hefur í þess
ari grein í ár hér á landi. Hamn
Björk Ingimundardóttir
sigraðj einnig í 100 m. Maupi,
hljóp á 10,6 sek., en meðviitdur
reyndist of mikill.
í sleggjukasti sigraði Erlendur
Valdimarsson, kastaði 53,62 m„
sem er bezti árangur í þeirri
grein í ár.
Valsstúlkurnar
hefndu fyrir sig
sigruðu Fram í úrslitaleik í Íslandsmóiífiii
kip—Reyk.javík.
Valsstúlkurnar í handknattleik
hefndu fyrir ósigurinn í úrslita-
leiknum í meistaraflokki kvenna
innanhúss í Vétur á móti Fram,
með því að sigra Framstúlkurnar
í úrslitaleiknum í útimótinu 8—7.
Þetta er í 7. sinn í röð, sem
Valur verður íslandsmeistari
kvenna utanhúss, en í þetta sinn
var sigurinn naumur, því að Fram
veitti harða keppni.
Leikurinn var vel leikinn og
spennandi, en nokkuð harður á
köflum. Vaisstúlkurnar höfðu yf-
ir í hálfleik 5—3, og tókst áð
háfa yfirhöndina þar til leiknum
lauk, en þá munaði aðeins einu
marki, 8—7.
í 2. flokki kvenna léku Valur
og Fram einnig til úrslita, en
þar sigraði Fram með tveim
mörkum 5—3.
IÞROTTAHATiÐ SLITIÐ -
FORUSTUMENN HEIÐRAÐIR
Útkoman hjá Val í þessu mð&
er mjög góð. Félagið var með
flokka í úrslitum í ölfnm þrem
mótunum,1 og sigrað i í tvejm
þeirra.
klp—Reykjavík.
Hinni stórglæsilegu íþróttahá-
tíð ÍSÍ, sem hófst sunnudaginn
5. júlí, var formlega slitið í veit-
ingasal Laugardalshallarinnar á
laugardaginn.
Þangað var boðið öllum þeim,
sem unnið höfðu að undirbúningi
ihátí'ðarinnar, sem staðið hefur
yfir í nokkur ár, svo og þeim
sem starfað hafa við hana þessa
daga.
Var margt um manninn. enda
margir lagt hönd á plóginn.
Gísli Halldórsson forseli ÍSÍ
flutti þakkarávarp og þakkaði
þeim niörgu bæði körlum og kon
um sem unnið hafa a* iþrótla-
I hátíðinni, fyrir þeirra fórufúsa
starf, en án þeirra hefði þessi
keppni aldrei getað orðið að veru
leika, eins og han.i sagði.
í þessu hófi voru 3 menn sænid
ii heiðurskrossi ÍSÍ. en það er
æðsta viðurkenning, sem samband-
ið veitir. Það voru þeir Úlfar
Þórðarson, Sveinn Björnsson og
Óskar Ágústsson, I.augum, sem
krossinn hlutu að þessu sinni.
Þá sæmdi Gísli 17 menn, gull-
merki ÍSÍ, en það er næst æðsta
viðurkenning ÍSÍ. Þeir sem það
hlutu voru eflirtaldir menn:
Axel Einarsspn. Björn Vil-
mundarson, Bragi Kiristjánsson,
Garðar Sigurðsson. Ingvar N.
Pálsson, Sigurgeir Guðmannsson.
Jóhannes Sigmundsson, Sigurður
Jóhannsson, Stefán Kristjánsson,
Sveinn Jónsson, UMSE. Sveinn
Snorrason, Þórir Jónsson, Þor-
varður Árnason, Þóroddur Jó-
hannsson, Valdimar Örnólfsson.
Vilhjálmur Einarsson. Örn Eiðs-
son.
Þá var Þorsteinn Einarsson,
íbróttafulltrúi bökkuð sérstak-
lega vel unuiu störf, en hann
var m. a. leikstjóri hátíðarinnar.
Var honum færðar tvær bækur
að gjöf, en hann hefur þegar hlot
ið öll bau heiðursmerki. sem ÍSÍ
veitir.
Hófinu lauk með því að allir
sungu :,fs!and ögrum skorið“ —
og var vel tekið undjr af sam-
komugestum.
Hermann
skoraði 6
mörk I röð
klp—Reykjavík. .
. Aknreyringar og Vestmanna-
eyingar háðu síðari leik sinn í
hinni árlegu bæjaikeppni í knatt
spyrnu á sunnudaiginn, og fór
leikurinn fram á Akureyii.
Leiknum lauk með yfirburða-
gigri Akureyringa 7—1, sem mun
vera einn mesti sigur í leik milli
1. deildarliða undanfarin 3 til
4 ár.
f lið íiBiA vantaði þó þrjá fasta
liðsmenn, þá Magnús Jónataus-
son, og bræðurna Stoúla og EyjóK
Ágústssyni, sem allir eru meiddfe.
Vestmannaeyingar voru með ,
fullt lið í leiknum, og skiptu
mönnum óspart inn á, en eítt-
hvað er að liðinu, sem ekki er
gott að átta si-g á. Það er í góðri
æfingu,- leikur vel, en brotnar
niður blási eitthvað á móti.
Hermann Gunnarsson var svo
sannarlega á skotskónum í þess-
um leik því hann skoraði 6 af
mörkunum, og það í röð, en Kári
Árnason skor-aði það síðasta eftir
sendingu frá Hermanni. Haraldur
„gullskalli“ skoraði mark ÍBV,
og aúðvitað með skalla.
Sum af mörkum Hermanns voru
stórglæsileg að sögn þeirra sem
sáu leikinn, og þá sérstaklega hin
fyrstu þrjú.
Menn voru að velta því fyrir
sér i gær hvórt þetta væri ek-ki
met markaskorun eins manns i
leik milli 1. déildarliða hér á
landi, en svo mun þó ekki vera.
Baldvin Baldvinsson skoraði
einnig 6 mörk í einum leik. en
það var fyrir nokkrum árum,- er
KR sigraði Akranes i undanúr-
slitum bikarkeppninnar 10—0 á
Melavellinum.