Tíminn - 05.09.1970, Side 13
LAKGARDAÍJUIt 5. september 1970.
ÞROTTiR
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
13
Óli B. Jónsson
hættir þjálfun
Hefur staðið í eldlínunni í um 40 ár
þar af 25 ár, sem þjálfari
klp—Reykjavík.
Íþróttasíðan fregnaði í gaer að
hinn kunni knattspyrnuþj álfari,
Óii B. Jónsson, sem nú þjálfar
meistaraflokk KR muni ætla að
hætta þjálfun með öllu í haust.
Óli staðfestí þetta í viðtali við
blaðið í gær, ®g sagðl hann ástæð
una vera fyrst og fremst þreyta.
Ég finn það sjálfnr að ábuginn
er fari'nn að minnfca, óg þá er
ekkert um annað að gera en að
hætta þessu.
Ég er búinn að vera þjálfari í
25 ár, og þar áður leikmaður í
13 ár og ekkj misst úr eitt ein-
asta sumar síðan ég var 13 ára
gamall. Samtals eru þetta um 40
ár, og ég læt mér það nægja.“
Aðspurður sagði Óli að hann
myndi vera eitthvað áfram, sem
þjálfari Loftleiða í knattspyrnu,
en slík þjálfun ætti ekkert skylt
við að þjálfa meistaraflokk félag-
anna, og hefði hann bara gaman
af því að dunda við það.
íslenzk knattspyrna verður svo
sannarlega fyrir miklum missi við
að Óli hættir. Það hefur verið
samdóma álit allra sem eittthvað
fylgjast með tonattspyrnu, að hann
hafi borið af öllum öðrum þjálf-
urum, sem við höfum átt.
FUestir ef ekki allir landsliðs-
menn okkar undanfarin ár hafa
Erfið keppni hjá
UL í frjálsum
klp—Keykjavík.
fslenzka unglingalandsliðið í
frjálsnm íþróttum fór utan til
Danmerkur í gær, en þar mun
liðið taka þátt í einni fyrstu lands-
keppni ísl. nnglinga í frjálsum
fþróttum, sem fram fer í Óðins-
véum á morgun.
Þar keppir liðið fyrir hönd ís-
lands vtð unglingalið Danmerkur
og Norður-Þýzkalands.
Keppnin fer fram á morgun og
hefst kl. 14.00 að íslenzkum tíma
og mun standa yfir í um tvo tfma.
Verður það erfið keppni fyrir ís-
lenzku unglíngana, og þá sérstak-
lega hlaupai-ana, Bjarni Jónsson
verður t. d. að toeppa í fjórum
greinum á þessum tveim tímum,
100, 200 og 400 m hlaupi og loks
í boðhlaupinu. Þá verður Sigfús
Jónsson að keppa í 1500 og 3000
m hlaupi, með rúmlega klttkku-
tíma millibili.
fslenzka liðið er skipað eftir-
töldum unglingum:
Borgþór Magnússon, KR.
Friðrik Þ. Óskarsson, ÍR.
Sigfús Jónsson, ÍR.
Ágúst Ásgeirsson, ÍR.
G-uðni Sigfússon, Á.
Marinó Einarsson, HSK.
Sigvaldi Júlíusson, UMSE.
Elías Sveinsson, ÍR.
Bjarni Stefánsson, KR.
(Fyrirliði).
Þeir tveir síðasttöldu mæta
flokknum í Danmörku, en þeir
hafa báðir verið á keppnisferða-
lagi á Norðurlöndunum að undan-
förnu, og sitaðið sig þar með sóma.
Líklegt er að allir unglingarnir
taki þátt í mótum, sem fram fara
í Árósum og Kaupmannahöfn á
þriðjudag og föstudag, en flokk-
urinn er væntanlegur heim um
aðra helgi.
BJARNI STEFÁNSSON, KR
— Hann hefur verið á erfiðu
keppnisferðalagi að undanförnu,
en tekur þátt í fjóriun greinum
á tveim tímum í landskeppninni.
ÍÞRÓTTIR
um helgin
Laugardagur:
Knattspyrna:
Melavöllur fcl. 16.00, 1. deild
Víkingur—ÍBV.
Akranesvöllux tol. 16.00, 1. deild
ÍA — Frasn.
Húsavíkurvollur kl. 16.00, 2.
deild Völsungur—Ármann.
ísafjarðarvödur kl. 16,00 2.
deild ÍBÍ—FH.
Akureyrarvöllur kl. 16.00, 3.
deild KS—Þróttur, Neskaupstað.
Knattspyrnuvellirnir í Reykja-
vík, 20 leikir í yngrj flokkun-
um.
Golf:
Ness-völlur kl. 13.30, Afreks-
keppni FI (18 holur).
Grafarholtsvöllur fcl. 14.00,
fceppni GR og GS.
Sunnudagur:
Knattspyrna:
Akureyrarvöllur tol. 16.00, L
deild ÍBA—Valur.
Melavöllur kl. 14.00, 3. deild
Reynir—UMSB.
Golf:
Golfvöllur Leynis, Akranesi
tol. 10,30, Opin keppni.
18 holur með og án forgjafar.
Mánudagur:
Frjálsar íþróttir:
Laugardalsvöllur kl. 18.00, Meist
aramót Reykjavíbur.
Æfingar
hjá TBR
Starfsemi Tennis- og hadminton
félags Reykjavíkur, TBR, hefst um
miðjan september.
Gengið verður frá útleigu á
tímum í næstu vifcu. Nánari upp-
lýsingar gefur Garðar Alfonsson
í síma 35850, eða á staðnum í
íþróttahöllinni í Laugardal frá
kl. 16,30 til 19,00.
Komast Austfirðingar ekki í úrslitaleikinn?
Klp-Reykjavík.
Úrslitakeppninni í 3. deild í
knattspyrnu fer nú senn að ljúka.
Fyrirkomulag hennar var þannig,
að sigurvegararnir í riðlunum
mættust á hlutlausum velli, og
var þeim skipt í tvö svæði.
Á öðru svæðinu léku Reynir,
Sandgerði, Hrönn, Reykjavík,
HVÍ, Vestur-ísafjarðarsýslu og
UMSB. Borgarfirði. Þar er keppn
iani að verða lofcið og er allt
útlit fyrir sigur Reynis. Síðasti
leikurinn fer fram á Melavellinum
á morgun og leika þá Reynir og
UMSB. Nægir Reyni jafntefli til
að komast í úrslit við sigurvegar-
ann af hinu svæðinu.
4 hinu svæðinu áttu þrjú lið
að leika til úrslita, KS, Siglufirði,
Þróttur, Nesekaupstað og Sindri,
Hornafirði, °n þeir síðastnefndu
hættu keppni vegna fjárskorts.
KSÍ tilkynnti hinum tveimar að
þeir ættu a’ð mætast á Akureyrar-
velli í dag, laugardag, og fengu
liðin að vita það á fimmtudags-
kvöldið. Kom þessi naumi tími
félögunum mjög illa, sérlega fyrir
Þrótti, því búið var áð ákveða
mót á Neskaupstað um helgina.
Þaf var þó ekki það versta, því
það tekur þá um 8 tíma að aka
frá Neskaupstað tii Akureyrar. og
þungfært eða ófært er yfir Jökul
Fi-amtiaio a bls. 14.
ÓLI B. JÓNSSON
— eða Óli B., eins og flestir
þekkja hann, hættir með öllu
að þjálfa í haust.
verið undir handarjaðri hans í
lengri eða skemmri tíma, og frá
honum hafa komið flestir okkar
beztu k n attspyrnumc n n.
Árangur hans með þau lið, sem
hann hefur þjálfað verður seint
eða aldrei sleginn. Hann gerði KR
að stórveldi, og einu bezta knatt-
spyrnuliði, sem hér hefur komið
fram á árunum 1959—1964. Hann
gerði Keflvíkinga að fslandsmeist-
urum þegar hann tók við þeim, og
síðan Valsmenn tvö ár í röð.
Þau lið sem hann hefur þjálfað
hafa orðið íslandsmeistarar að
jafnaðj annað hvert ár í þau 25
ár sem hann hefur þjálfað, en þar
fyrir utan hefur hann leitt þau
til sigurs, bæði í bikarkeppninni
og Reykjavíkurmótinu.
KR vann
iBA 5:2
Minaingaleifcur Jakobs Jakobs-
sonar, milli KR og ÍBA á Akur-
eyri í fyixakvöld, fór ekfci ein»
og norðanmenn, sem mættu vel
á völlinn, höfðu vonað, og þá
sérstaklega eftir að þeir sáu KR
liðið sem hljóp inn á. En þar
vantaði fimm menn, sem hafa
leikið með því að undanförnu, þá
Ellert, Þórð, Halldór, Gunnar
Felixson og Hörð Markan. í stað
þeirra létou nýir menn, þar af
einir þrír úr 2. flokki.
Akureyringar sóttu mikið til að
byrja með, en KR-ingar skoruðu
fljótlega. Þeir bættu öðru marki
við fyrir hálfleik, og síðan því
þriðja í byrjun síðari hálfleiks.
Þá skoraði Hermann gullfallegt
mark ,en KR-ingar svöruðu fyrir
sig með góðu marki og bættu
öðru við skömmu síðar.
Þegar 2 mín. voru til leiksloka,
yfirgaf Magnús markvörður KR
markið, og Pétur tók stöðu hans.
Þó tíminn væri lítili sem hann
hafði viðdvöl þar, fékk hann að
sæbja knöttinn einu sinni í netið
eftir gott marb hjá Kára Árna-
syni.
Mörk KR í þessum leik gerðu
Baldvin Baldvinsson 2. Bjami
Bjarnason 2, og Sigþór Sigurjóns
son 1. Akureyringar áttu meira
í leiknum, en það nægði ekki í
þetta sinn.
um skoðun léttra bifhjóla í lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur:
Aðalskoðun léttra bifhjóla fer fram sem hér segir:
Þriðjudaginn 8- sept,
Miðvikudaginn 9. —
Fimmtudaginn 10. —
Föstudaginn 11. —
Mánudaginn 14. —
R- 1 — 300
R- 301 — 600
R- 601 — 900
R- 901 —1100
R-1101 —1350
Skoðunin verður framkvæmd fyrrnefnda daga við
bifreiðaeftirlitið að Borgartúni 7, M. 9.00—16.30.
Ný skráningarnr. verða tekin í notkun við skoðun.
Sýna ber við skoðun, að lögboðin vátrygging sé í
gildi. Tryggingariðgjald ökumanns fyrir árið 1970
og skoðunargjald ber að greiða við skoðun.
Skoðun híóla, sem eru í notkun í borginni, en
skrásett eru í öðrum umdæmum, fer fram fyrr-
nefnda daga.
Vanræki einhver að koma hjóli sínu til skoðunar
umrædda daga, verður hann látinn sæta sektum
samkvæmt umferðarlögum og hjólið tekið úr
umferð, hvar s?m til þess næst.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 3. sept. 1970.
Sigurjón Sigurðsson.
Veljið yður í hag • Úrsmíði er okkar fag
Nivada
OMEGA
©■—
■JUpJlUL
PIERPOm
Wlagnas E. Baldvinsson
LaugiVcgi 12 - Sími 22804