Tíminn - 18.09.1970, Side 2
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 18. sepember 1970
Myndin var tckm við ondirskrift samningsins um sein ni neðansjávarleiðsluna, á henni eru m.a. annar trá
bægri Sigurgeir Kristjánsson og síðan Guðlaugur Gísla son og Magnús ‘Magnússon.
SAMID UM SiDARI
NEÐANSJÁ VARLEIÐSLUNA
KJ—Reykjavík, fimmtudag.
í júlí á naesta ári er ráðgert
að Jeggja nýja neðansjávarvatns-
leiðslu milli Vestmannaeyja og
lands, og verður nýja leiðslan
sverari, og á að flytja 4500 rúm-
metra af vatni á sólarhring i stað
1850 eins og gamla leiðslan gerir
LEIÐRÉTTING
í frétt Tímans í gær um hús
Búnaðarbanka íslands við Rauðar-
árstíg var viilandi orðaiag í upp-
hafi, þar setn sagði að byggingar-
nefnd borgarinnar hefði sam-
þykkt stækkun hússins. Þetta er
ekki rétt, eins og reyndar kom
frarn síðar í fréttinni, heldur
stendur ákvörðun nefndarinnar
«an, þótt ráðuneytið hafi ógilt þá
ákvörðun.
Samningar milli Vestmanna-
eyjakaupstaðar og Nordisk Kabel
og traadfabriken (NKT) um þessa
nýju leiðslu, voru undirritað-
ir í Kaupmannahöfn 4. sept-
ember s- 1., og er áætlað
verð á leiðslunni með fluta-
ingi til landsins og lagningu um
55 milljónir ísl. króna. Leiðslan
verður 13 km. löng og á að þola
55 fcg. þrýsting. Hugsanlegt er
einnig að leggja tvennskonar
leiðslu 3.3 km. sem þola 55 kg.
þrýsting og 9.6 km sem þola eiga
35 kg. þrýsting, en slík leiðsla
yrði nokkuð dýrari. Fyrir h'önd
Vestmannaeyjakaupstaðar undrrit-
uðu samninginn um nýju vatns-
leiðsluna þeir Sigurgeir Kristjáns-
son forseti bæjarstjórnar, Magnús
Magnússon bæjarstjóri og bæjar-
fulltrúarnir Gúðlaugur Gíslason,
Garðar Sigurðsson og Gísli Gísla-
son.
Fyrri neðansjávarleiðslan var
algjört brautryðiendastarf, og eiga
Vestmannaeyingar heiður skilið
fyrir að hafa lagt út í þetta verk
á sínum tíma. Eftir að Vestmanna-
eyingar létu leggja fyrri leiðsl-
una, hefur danska fyrirtækið
NKT lagt þrjár hliðstæðar leiðsl-
ur í Júgóslaviu.
Náttúruverndarsam-
tök stofnuð á Austurí
Náttúruverndarsamtök Austur-
lands voru formlega stofnuð á
fundi á Egilsstöðum sunnudaginn
13. september sl. Sóttu stofnfund-
inn um 50 manms, en á annað
hundraið einstaklingar höfðu þá
skráð sig í samtökin.
Á fundinum var gengið frá lög
um samtakanna, en í þeim er
kveðið á um stefnumið þeirra og
starfshætti. Hyggjast samtökin
vinna alhliða að náttúruvernd á
félagsvæðinu í samræmi við lög
um náttúruvernd og í samvinnu við
alta þá aðila, sem fáta sig náttúru-
vernd varða. Er sérstaklega fram
tekið, að samtökin muni leitast
við að hafa vinsatnleg samskipti
við þá aðila, er kunna að hafa
hagsmuna að gæta, sem andstæð-
ir eru náttúruverndarsjónarmið-
um.
Að markmiði sínu ætla samtök-
in m.a. að vinna með fraeðslu um
náttúruvernd meðal afmennings,
heimildasöfnun og rannsóknum,
svo og með athugun og upplýs-
ingum varðandi hugsanlegar hætt-
ur af mannvirkjagerð eða vegna
annarra inngripa mannsins. Einn-
ig munu samtökin beita sér fyrir
friðlýsingu sérstæðra staða og nátt-
úrufyrirbæra og bættri aðstöðu
fyrir almenning til aið ferðast og
fræðast um landið, án þess að
valda á því spjölfum. Á stefnuskrá
er einnig verndun atvinnu- og
menningarsögulegra minja, þótt
ekki teljist það til náttúruvemd-
ar.
Aðild að samtökunum er tvenns
konar, bein aðild og styrktaraðild.
Beinir aðilar geta alfir þeir ein-
staklingar orðið, sem vinna vilja
að markmiði samtakanna. Styíkt-
araðilar geta orðið einstaklingar,
sveitarfélög, klúbbar, félög, fé-
lagasambönd, hlutafélög, fyrir-
tæki og stofnanir.
Stjórnina skipa 5 menn, og fer
hún með málefni samtakanna milli
aðalfunda, sem halda skal að sum
arlagi ár hvert. Gert er ráð fyrir,
að samtökin hefji innan tíðar út-
gáfu fréttabréfa til kynningar á
starfsemi sinni.
Formaður undirbúningsnefndar,
Hjörleifur Guttormsson, fíffræð-
ingur í Neskaupstað, setti fundkm
með ávarpi og greindi frá tildrög-
um að stofnun samtakanna. Til
fundar voru komnir sem gestir
Arni Reynisson, framkvæmda-
stjóri Landverndar, og Helgi
Hallgrimsson formaður Samtaka
um náttúruvernd á NorðurlandL
Fluttu þeir ávörp og óskuðu sam-
tökum Austfirðinga heilla í starfi.
Fundarstjóri á stofnfundinum var
Sigfús Kristinsson, bifreiðarstjóri
á Reyðarfirði og fundarritari Ingv
ar Ingvarsson, bóndi á Desjarmýri.
Ili’mar Bjarnason, skipstjóri á
Eskifirði, kynnti drög að lögum
fyrir samtökin, og voru þau rædd
og samþykkt með nokkrum breyt-
ingum.
Þá voru flutt fræðsluerindi um
náttúruverndarmál. Sigurður Blön-
dal, skógarvörður á Hallormsstað,
talaði um umhverfisrannsóknir og
náttúruvemd, en hann var nýkom
inn af ráðstefnu í Noregi, þar sem
Framhald á bls. 10
Flytja inn rafmagnstæki með flugvélum:
FRÁ FRAMLEIBANDA TIL
NEYTANDA INNAN VIKU
EB—Reykjavík, fimmtudag.
— Með flutningum sem þessum,
er reynt að brúa sem mest bilið
milli framleiðandans og neytand-
Unnið við affermingu flugvélarinnar síðdegis í gær. Þessi heimilistæki komu frá verksmiðju á miðvikudaginn,
og eftir tæpa viku geta þau verið komin í eldhús neytendans. (Tímamynd — Gunnar
ans, sagði FáU Stefánsson einn
stjórnenda Rafiðjunnar h.f. frétta-
manni Tímans í dag, en Rafiðjan
ásamt Raftorgi, eru nú byrjuð að
flytja inn rafmagnstæki með flug
vélum beint frá Ignisverksmiðjun-
um á Ítalíu.
Lenti fyrsta flugvélin á Reykja-
vfkurflugvelli síðdegis í gær með
177 stykki af kæli- og frystiskáp-
um, sem fyrrgreind fyrirtæki
flytja inn. Flugvélin mun fara í
tvær aðrar flutningaferðir á þess-
um mánuði fyrir sömu fyrir-
tæki.
— Flutningar þessir gera það
að verkum, að tækin geta verið
komin frá fram.’eiðenda og í eld-
húsið til neytanda innan vikutíma
Flutningskostnaður er mjög svip-
aður og með skipum. — Þessir
f.utningar leiða eðlilega til nán-
ari samskipta milli okkar og Ign-
isverksmiðjanna, sagði Pál?
Stefánsson.
Það er Flugfragt h.f., sem á
TF-OAB-flugvélina, er annast
þessa flutninga fyrir Rafiðjuna og
Raftorg. Flugstjóri í ferðinni var
Ragnar Kvaran, en Páll var einnig
með í ferðinni. Sagði hann að
Ignisverksmiðjurnar, hefðu tekið
þessum flutningum mjög vel. En
verksmiðjurnar eru fjórar ta?s-
ins, þar á Ítalíu, en varningur-
inn var allur fluttur frá flugvell-
inum í Mílano, sem er aðeins 20
km frá aðalverksmiðjunni. Flug-
véfin var fermd þar á vellinum og
unnu verkamenn frá útflutnings-
deild verksmiðjanna við að koma
tækjunum fyrir í vélinni, og tók
það þrjá tíma. Flugvélin tekur
13V2 tonn, en alls var þessi flutn-
ingur 10 tonn.
Flugvélin var affermd á tveim
tímum siðdegis í dag, og tækirn
ffutt á fdmm vörubifreiðum í toll-
vörugeymsluna í Laugarnesinu, og
‘fá innflytjendurnir þau væntan-
lega um helgina.
22. september verður næsta
ferð farin, og þá verða fluttar
þvottavélar og frystiskápar. Þriðja
ferðin verður farin þann 29. — og
þá fluttir frystiskápar, frystikist-
ur, eldavélar og þvottavélar. —
Það er sem sagt áformað hjá okk-
ur að hafda þessum flutaingum á-
fram, sagði Páll að síðustu.
Merkjasala Menningar
og minningarsjóðsins
FB-Reykjavík, fimmtudag.
Merkjasala Menningar og mitm-
ingarstjóðs kvenna verður 27.
september næstkomandi á af-
mælisdegi frumherja íslenzkra
kvearéttindabaráttu, Bríetar
Bjarnhéðinsdóttur. Merkjasalan
er til þess ætluð að afla fé í sjóð-
inn, en frá því fyrst var úthlutað
úr honum árið 1946 hafa milli
200 og 300 konur fengið aðstoð
til framhaldsmennianar við æðri.
menntastofnanir. Formaður sjóðs-
ins er Auður Auðuns, dóms- og
kirkjumálaráðherra.