Tíminn - 27.09.1970, Síða 11
i « v»
SCNNUDAGUR 27. september 1970.
TÍMINN
Norræna endurhæfingarþingið:
Sérmenntað fólk í málum
öryrkja vantar hérlendis
10. þing norræna endurhæfing-
arsambandsins (Nordisk Förening
f6r Rehabilitering) var haldið á
íslandi dagana 13. til 16. septem-
ber s.l. Þingið sóttu alls 328 þátt-
takendur og er það meiri þáttta’ka
en búizt hafði verið við. Þetta er
auk þess fjölmennasta þing, sem
haldið hefur verið á vegum þess-
ara sacntaka. Þingfulltrúar áttu
það allir sammerkt að starfa á
einu eða öðru sviði endurhæfingar
mála í landi sínu. Þarna voru pró-
fessorar, læknar, hjúkrunarkon-
ur, sjúkra- oe iðjuþjálfarar, fé-
lagsráðgjafar, sálfræðingar, verk-
stjórar öryggisvinnustofa, kennar-
ar, stjórnarmeðlimir ýmissa ör-
yrkjafélaga á Norðurlöndum,
margir embættismenn, sem um
þessi mál fjalla o. fl.
Margvísle? efni voru tekin til
UMRÆÐUFUNDUR SUF f DAG:
„Skipulagsmál Fram-
sóknarflokksins
- baráttumál ungra
manna“
Stjórn Sambands ungra Framsókn
ammanna heldur opinn umræðu-
fund í dag, sunnudag, í Fram-
sóknarhúsinu við Fríkirkjuveg
(Glaumbæ), uppi, og hefst hann
kl. 3 e. h.
Umræðuefni: Skipulagsmál
Framsóknarflokksins — baráttu-
mál ungra manna.
Stjórn SUF.
Menn og málefni
Framhald af bls. 6.
einhliða réttinum, fært út fisk-
veiðilandhelgina stórlega frá því
sem áður var, t.d. Argentína. Á
áratugnum 1950—60 var fsland
forustuland á þessu sviði. Á ára-
tugnum 1960—70 hefur það hald
ið að sér höndum. Þar sjást af-
leiðingar réttarafsalsins 1960.
Með útfærslu fiskveiðiland-
helginnar 1. sept. 1958 var vissu
lega stigið stórt spor, sem hefur
reynzt sjávarútveginum hið mik
ilvægasta. En reynslan sýnir
samt orðið ótvírætt, að betur má
ef duga skal. Þess vegna þarf
að hefjast kröftuglega handa
om nýja sókn í landhelgismál-
inu og sigrast með einum eða
öðrum hætti á þeirri miklu tor
færu, sem nauðungarsamningur
inn frá 1961 er. Þ.Þ.
Allsherjarþing S.Þ.
Framhald af bls. 7
ir hans, sem er sálfræðingur.
Þeir voru svo líkir í æsku, að
heimilisfólkið gat ekki einu
sinni þekkt þá að og léku þeir
stundum þann leik að skiptast
á í skóla.
Óskasr hinn nýi forseti alls
herjarþingsins þess nokk-
um tíma í dagdraumum sín
um, að hann ætti staðgengil.
sem hann gæti gripið til, þeg
ar hinar þvingandi móttökur
eru annars vegar? Hambro
lætur sér nægja að brosa kurt-
eislega, en svarar ekki.
meðferðar og umræðu á þinginu.
Af þeim má nefna skýrslur frá
öllum fimm löndunum um það,
hversu endurhæfingarmál hafa
þróazt í hverju landi síðustu ár-
ir.. Kenndi þar margra grasa og
ýmsar merkar upplýsingar komu
fram, sem önnur lönd geta nýtt
sér, endurhæfingarstarfinu til
hagsbóta. Frá íslands hálfu var
hægt að benda á ýmsar framfar-
ir hér á landi, en hinS vegar reynd
ist augljóst, að við stöndum öðr-
um Norðurlandaþjóðum nokkuð
að baki á ýmsum sviðum endur-
hæfingarmála. Tilfinnanlegur er
t.d. skortur á nægu sérmenntuðu
fólki hér á landi til að starfi á
ýmsum sviðum endurhæfingar.
Rædd voru ýmis félagsleg
vandamál öryrkja 02 þeirra, sem
njóta endurhæfingarþjónustu Um-
ræður voru um mörg sambúðar-
vandamál öryrkja og hvað gert
er til að reyna að leysa þau.
Sérfræðingar ræddu um mennt-
unarmál og skólun þeirra, sem
vinna að endurhæfingu. f ljós
kom, að ekkert landanna getur
ennþá fullnægt þörfum í þessum
efnum, þótt aðstæður séu nokkuð
misjafnar í löndunum. Mikill
áhugi er á því að samstuðla mennt
un á þessum sviðum á Norður-
löndum. Eftirfarandi álit voru:
samþykkt:
Stjórn Norræna endurhæfingar-
sambandsins er falið að mynda
nefnd í hverju aðildarlandi. sem
hefði það aðalhlutverk að leysa
úr menntunarþörf fyrir fólk, sem
vinnur að endurhæfingarmálum
og leitast einkum eftir að skipu-
leggja nægilega framhaldsmennt-
un þess.
10. ráðstefna Norræna endur-
hæfingarsambandsins, samþykkir
meo tilliti til endurhæfingar fatl-
aðra að leggja til við heilbrigðis-
yfirvöld Norðurlandanna:
að koma í framkvæmd sam-
þykkt Evrópuráðs frá 1967 um að
endurbæta meira en áður kennslu
í læknavísindum að þvf er varð-
ar endurhæfingu.
að hinir faglærðu menn í endur
hæfingarmálum fái vel undir-
búaa kennslu áður en þeir taka
við stöðu sinni og að þeir hafi
aðstöðu til að taka sér leyfi frá
störfum við og við til þess að
fylgjast meú og kynna sér nýj-
ungar á starfssviði sínu.
að sjá um að völ sé á framhalds
námi fyrir þá starfshópa, sem eru
i beinu sambandi við endurhæf-
ingarmálin.
að hafa á breiðum grundvelli
samstarf milli heilbrigðismála-
stóma og þeirra, sem fara með
stjórn félagslegrar og atvinnu-
legrar endurhæfingar þannig að
endurhæfing hvers einstaklings
verði unnin í óslitinni eðlilegri
röð.
Tæknileg hjálpargögn fyrir fatl
aðra og lamaða hafa fullkomnast
mjög á síðari árum. Ýmis gögn
voru rædd og sýnd á þinginu.
Áhugi er á að framleiðsla
hjálpargagna verði samræmd á
Norðurlö.ndunum, og líta beri á
þessi lönd sem sameinaðan mark-
að tæknilegra hjálpartækja, svo
að löndi.. öll hafi jafna aðstöðu
til að fá það bezta hvert frá öðru.
Eitt höfuðefni þingsins var til-
raun til að brjóta til mergjar
ástæður fyrir töfum og stöðnun í
endurhæfingarmeðferð. Tafir og
stöðnun í meðferðinai þekkjast"í
öllum Norðurlöndunum. Vitað er
um ýmsar hindranir og reynt að
ryðja þeim úr vegi, en aðrar eru
óljósari, og má þá um kenna göll-
uðu fyrirkomulagi. Var mjög fróð
legt að heyra sérfræðinga á ýms-
um sviðum bera saman bækur sin
ar um þessi mál, og komu fram
gagnlegar upplýsingar um, hversu
beri að snúast við vandanum.
Rædd voru vandamál fatlaðra
Orr lamaðra í umferðinui, bæði
hvað viðkemur almenningsfarar-
tækjum, hindrunum utan húss og
innan, og um útbúnað og stjérn-
tæki bifreiða, sem gera fötluð-
um og lömuðum fært að aka bif-
reið.
Til umræðu voru aðgerðir til
að koma í veg fyrir örorku síðar
í lífinu. Bent var á og undirstrik-
að, að hverju landi væri mikill
fjárhagslegur hagnaður að því að
gera sitt ýtrasta til þess að koma
í veg fyrir örkuml barna, en séu
þau til staðar að beita öllum hugs-
anlegum aðgerðum til að draga úr
áhrifum þeirra strax, á meðan
barnið er á ungum aldri, og ekk-
ert til þess sparað. Þjóðfélaginu
eru heill í þvf, að þörnin fái full-
komna þjónustu á þessu sviði og
kennslu snemma.
Á öllum Norðurlöndum vex nú
upp hópur barna, sem fædd hafa
verið með ágalla á mænu (spina
bifida). Áður fyrr urðu þessi
böm ekki langlíf, en bætt tækni
í skurðlækningum og annarri með-
ferð gerir það að verkum, að uú
lifa þessi börn og hafa alla mögu-
leika á að ná fullorðinsaldri. Þetta
krefst sórhæfðrar meðhöndlunar
þeim til handa, svo að þessi börn
fái, er þau vaxa upp, jafna að-
stöðu á .'ið aðra í þjóðfélaginu.
Þingið heimsótti Reykjalund og
skoðuðu fulltrúar staðinn. Hald-
inn var umræðufundur um sam-
ræmda endurhæfingu fyrir marg-
ar tegundir sjúklinga samtímis og
á sama stað. íslendingar gátu miðl
SB—Rp' kjavík, laugax-dag.
40 af forstjórnm og stjórnar-
mönnum risafyrirtækisins General
Foods víðsvegar að úr heiminum,
eru þessa dagana að koma til ís-
lands, til að sitja ráðstefnu fyrir-
tækisins, scm stendur næstu viku
á Hótel Loftleiðum. General
Foods hefur aðalstöðvar sínar í
New York, en hefur starfsemi í
25 löndum úti um allan heim.
Fulltrúarnir á ráðstefnunni eru
m. a. frá Japan, Brasilíu, Ástr-
alíu. Ítalíu, Spáni og Austurlönd-
um. ísland var valið sem ráð-
stenfuland að þessu sinni, vegna
þess. að það liggur miðsvæðis og
styttir flugferðir flestra fulltrú-
anna, og svo af hinu, að bessir
menn sem sífellt eru á ferðalög-
um. eru orðnir heimavanir í flest-
um iöndum og langar nú að sjá
eittlhvað nýtt og skemmtilegt. Það
er regla hjá General Foods. að
aldrei megi íJeiri en fjórir af
að nágrannaþjóðunum af langri
reynslu Reykjalundar á þessu
sviði. Jafnframt her að geta þess,
að íslendingar lögðu fram skerf
í flestum dagskráratriðum þings-
ins.
Þinginu stjórnaði Oddur Ölafs-
son, yfirlæknir, og sleit hann þvi
á þriðjudags’kvöldið 15. septem-
ber, en næsta dag fóru erlendir
þáttta-kendur í kynnisferðir um
landið.
Það er álit allra, setn þingið
sátu, að það hafi orðið þátttakend-
um til hins mesta gagns og lyfti-
stöng samræmdum aðgerðum í
endurhæfingarmálum á Norður-
löndu.
Þingið var haldið á Hótel Loft-
leiðum og vill undirbúningsnefnd
in þakka stjórnendum þess og
starfsliði fyrir frábæra þjónustu
og fyrirgreiðslu, sem og öðrum,
sem greiddu götu þingsins á marg
víslegan hátt og veittu ómetan-
lega aðstoð á mörgum sviðum.
Flugslys
Framhald af bls. 1
frá slysinu. Af þeim fréttum, sem
blaðinu tókst að afla sér í dag,
var fullyrt, að enginn hefði látið
lífið, þegar vélin hrapaði, en 15
voru lítið, sem ekki slasaðir. Um
meiðsl hinna 19 var ekki vitað
nánar um kl. 17.
Fallhlífahjúkrunarsveit fór frá
Keflavíkurflugvelli upp úr hádeg-
inu, en á Mykjunesi eru aðstæður
mjög erfiðar, eyjan er klettótt og
ill yfirferðar. Allir íbúar eyjunnar
voru komnir á slysstaðinn, þegar
síðast fréttist.
Hjúkrunarsveitir frá Vogey eru
ýpiist komnar á slysstaðinn, eða á
leiðinni og fyrsta hjálparsveitin
sem kom að flugvé'inni, var frá
færeysku varðskipi. Mjög erfitt
hefur verið í dag að ná sam-
Ibandi við hjálparsveitirnar og
eru fregnir því nokkuð óljósar
Eyjan Mykjunes er vestasta eyj-
an í Færeyjaklasanum og þar er
radíóvitinn fyrir flugvöllinn á
Vogey og því jafnan flogið yfir í
aðflugi.
Slysið mun hafa orðið með
þeim hætti, að flugvélin rakst ut-
an í hlíð fjallsins Knúkur, sem
er hæsta fjallið á Mykjunesi.
Fólk á Mykjunesi vissi fyrst um
slysið, er þrír farþegar úr flug-
vélinni sem voru gönguf ærir, komu
til byggða og sögðu frá. Þá fóru
íbúar eyjarinnar á stúfa og flykkt
hinum fjölmörgu forstiórum
þess vera í sömu flugvél og þeg-
ar þeir ferðast akandi, mega þeir
ekki vera nema tveir. Eftir þessu
að dæma, telja þeir flugvélina
helmingi öruggara farartæki en
bifreiðina.
Ráðstefnugestirnir munu búa
allan tímann á Hótel Loftleiðum
og halda þar alla fundi sína. Sér-
stakar ræður verða haldnar á
hverjum fundi og rætt um ýmis
stjórnunaratriði í rekstri fyrir-
tækisins. svo sem fjármál, fram-
leiðsluna, stjórnunarhætti og þró-
un í alþjóðafélagsskap sem þess-
um bar sem ýmis vandamál, svo
sem tungumál og samgöngur eru
daglegt brauð.
General Foods framleiðir næst-
um hvers konar matvöru og ,auk
þess snyrtivörur og sitthvað fleira.
Einna kunnastir af framleiðsluvör-
unum hérlendis mun líklega vera
Jellobúðingairnir.
ust á slysstaðinn. Fyrsta björgun-
arsveitin komst hins vegar ekki
á slysstað fyrr en um kl. 4 síð-
degis, og var það ekki fyrr en
eftir það að áreiðanlegar fréttir
bárust af ástandi fól'ksins í flug-
vélinni en ssmkvæmt þeim eru
sem áður segi.r, allir á lífi, en 19
éitíhvað slasaðir.
Af farþegunum 30 eru tveir
fslendingar, annar búsettur í
Kaupmannahöfn, en hinn sem er
Færeyingur, býr i Reykjavík.
Ekki mun hægt að gefa upp nöfn
áhafnarinnar, fyrr en frekari upp-
lýsingar fást.
5 á sjúkrahúsi eftir
bílveltu
SB—Reykjavík, laugardag.
Moskvits-bifreið úr Reykjavík,
fór út af veginum á Hvalfjarðar-
ströndinni laust upp úr hádeginu
í dag. Finim manns voru f bifreið
inni og mun flest hafa meiðzt eitt
hvað. Ökumaður skarst nokkuð á
höfði. Fólkið var flutt í sjúkra-
húsið á Akranesi.
Bifreiðin var á suðurleið og
slysið varð af þeim orsökum að
sprakk á afturhjóli og ökumaður
missti vald á bifreiðinni, sem fór
út af veginum. vinstra megin, fór
nokkrar veltur og staðnæmdist á
hvolfi. Meiðsli fólksins munu ekki
talin alvarlegs eðlis.
TIL SÖLU
ilíukynditæki 9 ferm. ásamt
brennara, dælu og þrýstir.
dunk. Hentugt fyrir fjöl-
býlishús eða verkstæði. —
Símar 82214 eða 81506,
eftir kl. 19.
STIMPLAGERD
FÉLAGSPRENTSMIDJUNNAR
Auglýsið í Tímanum
40 forstjórar og stjórnarmenn komnir hingað:
Ráðstefna General
Foods eftir helgi