Tíminn - 11.10.1970, Page 7
• ' ' 1' • ' 1 ' ’ ’’ " ' ' r / M V m r •• ; 7.7 /• rf .7 ,> >rr» 1 »’*» cm m 11 t t r
'I I M I' >’ !
iUNNUDAGUR 11. október 1970.
TÍMINN
Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæm<lastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Tómas
Karisson Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason, Ritstjórnar-
skrifstofur 1 Edduhúsinu, símar 18300 —18306 Skrifstofur
Bankastraeti 7 — Afgreiðslusími 12323. Auglýsingasiml 19523.
ABrar sikrifstofur simi 18300. Áskriftargjald kr. 165,00 á mánuBi,
innaidands — í lausasöiu kr. 10,00 eint. Prentsm Edda hl.
Samstarf
Undanfarið hafa farið fram viðræður milli ríkisstjóm-
arinnar annars vegar og stéttasamtakanna hins vegar,
um leiðir til að draga úr dýrtíð og verðbólgu. Hingað til
mim aðallega hafa verið fjallað um skýrslur, sem starfs-
menn Efnahagsstofnunarinnar og Seðlabankans hafa
unnið að. Það hefur oft verið galli á slíkum skýrsl-
um, að þær hafa reynzt ófullkomnar og villandi, og eru
hinar stórfelldu gengisfellingar 1967 og 1968 til vitnis
um það. Þessum 9kýrslum er því vegna fenginnar reynslu
illa treyst og geta því ekki orðið grundvöllur sam-
komulags.
Það er hins vegar mikilvæg undirstaða allra samn-
inga um þessi efni, að fyrir hendi séu sem beztar upp-
lýsingar um stöðu atvinnuveganna og kjör launþega. Það
var í samræmi við þetta sjónarmið, að þeir Karl Krist-
jánsson og Páll Þorsteinsson fluttu tillögu til þingsálykt-
unar á þinginu 1954, um skipun samvinnunefndar at-
vinnurekenda og verkalýðssamtaka, er hafi það hlut-
verk að afla upplýsinga frá ári til árs um afkomu at-
vinnuveganna og hag almennings, í þeim tilgangi að
leita megi álits nefndarinnar, þegar ágreiningur verður
eða ætlar að verða um kaup og kjör. Tillaga þessi hlaut
einróma stuðning Alþingis og beitti Steingrímur Stéin-
þórsson, sem þá var félagsmálaráðherra, ^ér, fyrir því,
að nefndin var skipuð. Hlu heilli varð aldrei neitt úr
störfum nefndarinnar. Hins vegar mun kjararannsóknar-
nefnd rekja rætur til þessarar hugmyndar, en starfssvið
hennar er miklu þrengra en það, sem framangreindri
nefnd var ætlað að hafa.
Aðstaða til samninga nú, um dýrtíðar- og kaupgjalds-
mál, væri vissulega önnur, ef slík nefnd væri starfandi
og hefði orðið hálfs annars áratugs rejmslu að baki. Nú
skortir flestar haldbærar upplýsingar til að byggja á.
Þetta verður að breytast. Báðir aðilar. vinnuveitendur
og launþegar, þurfa að eignast sínar eigin hagstofnanir
og fulltrúar frá þeim svo stöðugt að bera ráð sín saman.
Þá ætti miklu fremur að geta fengizt raunhæfur og
réttlátur grundvöllur, án verkfalla. Slíkar hagstofnanir
og samstarfsnefnd mun að sjálfsögðu þurfa nokkurt fé,
en þó ekki nema brot af því, sem þær vinnudeilur myndu
kosta, sem hægt ætti að vera að afstýra, ef betur væri
unnið að undirbúningi þessara mála.
Fækkun iðnnema
Blöðin hafa nýlega sagt frá því, að iðnnemum fari
fækkandi, a.m.k. í ýmsum mikilvægum greinum. Vafa-
laust valda því margar mismunandi ástæður, en sú ekki
sízt, að núverandi iðnfræðslukerfi er orðið úrelt.
í þessu sambandi er vert að minna á grein, sem
Bjami Kristjánsson, skólastjóri Tækniskóla íslands, reit
í blöðinu á síðastliðnum vetri, en þar voru bomar fram
tillögur um nýskipan iðnfræðslunnar. Tillögumar era
í höfuðatriðum þær, að hinn almenni hluti menntunar
iðnaðarmanna fari fram innan ramma hins almenna
skólakerfis, iðnskólarnir verði fyrst og fremst verkskólar
og iðnnemar verði aðeins 1 12 mánuði undir handleiðslu
meistara.
Bjarni Kristjánsson telur, að með þessu móti megi
gera ráð fyrir, að þjóðin eignist nægilega marga og vel
menntaða iðnaðarmenn, til þess að við getum, áður en
margir áratugir líða, mælt okkur við þær iðnaðarþjóðir,
sem næstar okkur búa. Þ.Þ.
BILLY GRAHAM:
Hvenær er Kristur væntan-
legur aftur til jarðarinnar?
Framtíðin tilheyrir hvorki kommúnismanum né auðvaldinu
BiJly Graham, hinn kunni am-
eríski prédikari, hefur sjald-
an. notið meirí vinsæ]da en
nm þessar mundir. Má vera
að það reki að einhverju leyti
rætur til náins kunningsskap-
ar hans og Nixons forseta.
Eftirfarandj grein hans birtist
nýlega í New Tork Times og
þyldr rétt að endurprenta
hana hér til að kynna lesend-
um boðskap þessa umtalaða
nredikara, sem befur nú mikil
áhrif í Bandaríkjunum.
MHXJÓtNER manna í Banda-
ríkjunum reyna af fremsta
megni að komast að einhverju
um framtfðina. Sala hefir auk-
izt alveg gífurlega f kristals-
fcúlum og öðrum slíkum tækj-
um, sem eiga að gera mönn-
um fcleift að sjá fyrir óorðna
hluti, og er það sýnilegur vott-
ur um hina áköfu viðleitni til
að grafast fyrir um framtíð-
ina.
Ég borðaði eitt sinn morg-
unverð með Walter Reuther
fyrir tveimur árum eða svo.
Hann sagði þá.
„Vísindin gætu komið því
tií.leiðai:, að ,hér á, jörðu yerði
samjkö]lluðJUparadís 4$jð 2000“.
Ég svaraði:
„A þessu er einn galli. Eng-
inn hefur matað tölvurnar á
vitneskju um siðferðilegan
vanmátt mannsins, hneigð
hans til haturs, grimmdar,
kynþáttafordóma, glæpa,
styrjalda og þúsund annarra
lasta.“
SPÁDÓMAR um framtíðar-
athurði fylla um það bil fiórð-
ung af Biblíunni. Um endur-
komu Jesú Krists er fjalað á
eitthvað 1800 stöðum í Biblí-
unni, þar af eru 318 staðir i
Nýja testamentinu.
Spádómar í Biblíunni skýra
ekfcj frá heimi hægfara þró-
unar unz orðið sé efnaleg para-
dís á jörðu. Þeir segja frá
heimi, sem er að farast úr
lögleysum, styrjöldum, sulti
og plágum í það rfkum mæli,
að Guð einn fær ráðið og getur
komið I veg fydr að mann-
kynið farist.
í Biblíunni koma sífellt fyrir
orðin „efsti dagur“, „dag-
urinn“ eða „dagur Drottins".
Þar er tíðast átt við ótiltefcinn
tíma, þegar örlagaríkir at-
burðir gerast. Atburðarásin
nær hámarki, þegar Guð tekur
í taumana og Jesús Kristur
kemur sjálfur til jarðar öðru
sinni.
BIBLÍAN boðar ekki, að
jörðin eða mannkynið farist.
Hún boðar, að heimurinn
endurnýjist í eldi. Þessi eldur
eyðir öllu hinu illa og býr
jöa'ðina undir Guðsríki.
f því riki verður hinni nýju
„félagslegu skipan“ komið á.
Þar verður félagslegu órétt-
lœti, sryrjöldum, fátækt, sjúk-
dómum og kynþáttamisrétti út-
skúfáð.
Og þá vaknar hin óhjá-
kvæmilega spurning:
„Hvenær kemur Kristur?
Haídið þér að skammt sé til
endurkomu hans?“
BILLY GRAHAM
Árið 1860 sagði franski efna-
fræðingurinn Marcellin Berthe-
lot:
„Framfarir í vísindum verða
það miklar, að áður en öld er
liðin veit. maðurinn hvað aþ
ómið er. Ég trúi þvi, að þegar
vísindin verði komin á þetta
stig komi Guð niður til jai'ð-
arinnar með sína miklu lykla-
kippu og segi við mannkynið:
Jæja, herrar mínix. Nú er
fcomið að lokunartíma“.
MORG-UN elnn, þegar læri-
sveinarnir voru hjá Jesú á
Olíufjailinu, spurðu þeir hann:
„Segðu okfcur hvenær þetta
verður og hvað við eigum að
hafa til marfcs um komu þína
og heimsendi“?
Jesús sagði þeim að minnsta
kosti tvisvar að varast að
reyna að ákveða daginn.
Biblían boðar, að kynslóð í
ótiltekinni framtíð beri með
sér ákveðin einkenni sem gefi
tU kynna, að endirinn sé ná-
lægur. Spámennirnir Jesús og
lærisveinarnir hafa getið að
minnsta kosti tuttugu ákveð-
inna einkenna, sem við eigum
að skyggnast eftir. Hvert ein-
asta þeirra er einmitt nú að
koma í ljós.
Jesús lýsti til dærnis and-
legu ástandi i heiminum rétt
áður em hann kæmi í annað
sinn. Hann sagði, að verða
mundi „á jörðinni angist með-
al þjóðanna í ráöleysi". Ang-
ist táknar þjökun, ráðleysi þýð
ir villu og óvissu. Jesús sagði
með öðrum orðum. að kyn-
slóðin, sem uppi verði áður en
hann kemur til jarðar aftur,
búi við svo mikla þjökun á all
an hátt, að efcki verði komið
auga á neina undankomuleið.
ANNAð dæmi fjailar um sið
ferðisástandið á Jörðinni. Jes-
ús sagði: „Og eins og var á
dögum Nóa, svo mun verða á
dögum manns-sonarins. Menn
átu, drukku, kvæntust og gift-
ust“. Þetta sýnir hrun heimil-
isins og afar lélegt siðferði.
Enn annað dæmi má nefna.
er sýnir fyrirsögn Jesús um
styrjaldir. Hann sagð:j „En
þér munuð heyra un, hernað
og spyrja hernaðartíðindL . .
þvi að þjóð mun rísa gegn
þjóð.
Biblían sýnir fram á, að und
ir lokin verði styrialdir víðar,
, meirg eyðandj og víðar en áð-
ur. Þessar styrjaldii ná há-
markí i' „orrustunni um Arma-
geddon", sem svo hefir verið
nefnd.
ÞÁ má einnig benda á hina
miklu áherzlu, sem lögð er á
orðið „friður". PáU postuli seg
ir:
.JÞegar menn segja: „Friður
og engin hætta“, þá fcemur
snögglega tortíming yfir þá
eins og jóðsótt yfir þungaða
konu, og þeir munu alls ekfci
undan komast“. — Aldrei hef-
ur verið talað iafn mikið um
frið og einmitt nú.
Enn má nefna dœmið, þegar
Jesús sagði:
„Og þessi fagnaðarboðskap
ur um ríkið mun predikaður
verða um alla heimsbyggðina
til vitnisburðar öllum þjóðum,
og þá mun endirinn koma“. —
Nú gerist það einmitt í fyrsta
sinni í sögunni, að fagnaðax-
boðskapurinn er boðaður um
allan heim, bæði í útvarpi,
sjónvarpi og prentuðu máli.
MERKAST af öllu er þó
dæmið, sem er að koma fram
í löndunum fyrir botnj Mið-
jarðarhafsins. Bibdían hefur
boðað í meira en brjú þúsund
ár, að siðustu atburðirnir og
enduifcoma Krists snúist um
ísraelsþjóð. Ekki var um neina
fsraelsþjóð að ræða fyrr en
eftir 14. maí 1948.
í Lúkasarguðspjalli 21. kafla
24. versj segir Jesús að „Jeru-
salem munj verða fótum troð-
in af .heiðmgjum, þangað til
tímar heiðingjannc aru liðn-
ir“.
í Biblíunni er mörg hundr-
uð sinnum gefið til kynna, að
ísrael verðj að nýju miðdepill
heimsviðburðanna.
ÉG veit ekki stundina, dag-
inn, mánuðinn eða árið. Það
er rangt og andsnúið Biblíunni
Framhald á bis. 11