Tíminn - 03.11.1970, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 3. nðvember 1970.
TIMINN
11
Enska knaftspyrnan
Framhald af bls. 8.
Stoke á vi5 að stríða sigraði það i
Huddersfield og skoruðu Conroy.
(2) og Greenhoff mörk Stoke. — j
Markakóngarnir Jeff Astle og
Tony Brown (2), WBA, kí«sigldu j
meistarana Everton með þremur i
mörkum. — Henry Newton lék nú ;
aftur með Everton. — Jimrny
Greaves og Peter Eustace skoruðu
fyrir West Ham. gegn Blackpool,1
en Tony Green skoraði mark
Blackpool. Heildarúrslit í 1. deild,
sjá l-x-2. — kb.
Leeds 15 10 4 1 24:9 24
Arsenal 15 9 4 2 32:14 22
Tottenham 15 8 5 2 23:10 21
M. City 14 7 5 2 19:11 19
Chelsea 15 6 7 2 22:18 19
C. Palace 15 7 4 4 17:12 18
Wolves 15 8 2 5 29:29 18
Liverpool 14 6 5 3 17:7 17
Southampt. 15 5 5 5 19:16 15
Stoke 15 5 5 5 21:20 15
Newcastle 15 5 5 5 17:19 15
Everton 15 5 4 6 21:25 14
Coventry 15 5 3 7 13:16 13
Manch. Utd. 15 4 5 6 15:20 13
West Brom 15 4 5 6 24:32 13
West Ham. 15 2 8 5 18:2,3 12
N. Forest 15 3 6 6 13:19 12
Huddersf. 15 3 6 6 13:20 12
Ipswich T. 15 4 3 8 15:17 11
Derby. C. 15 4 3 8 1-8:24 11
Blackpool 15 2 4 9 14:29 8
Búrnley 15 1 4 10 8:25 6
Velur - ÍR
Framhald af bls. 8.
dór Bragason 8 af mörkum Þrótt-
ar.
Síðari leíkurinn var á milli ÍR
og Vals og var það harður og
kröftugur leikur. Var ekkert gef-
ið eftlr hvorki í vörn né sókn, og
var varnarleikurinn sérstaklega
harður hjá báðum. Það liðu 9 mín.
af leiknum áður en fyrsta mark-
ið var skorað og í hálfleik hafði
Valur 1 rnark yfir, 4:3, f síðari
hálfleik komst Valur í 10:6, en ÍR
minnkaði bilið i 10:8. Þá tóku
Valménn fóðan lokasprett og skor-
uðu 3 síðustu mörkin og sigruðu
í leiknum 13:8 — og er þar með
orðnir efstir í mótinu.
í meistarafiokki kvenna var leik
inn einn leikur um helgina. Valur
og Víkingur gerðu jafntefli, 3:3.
Um tíma hafði tíma hafði Víking-
ur yfir 3:1.
Á VÍOAVANG!
Framhak, af bls 3
hafa ótilneyddur tryggt íhalds-
stjórn völd í melra en áratug
á íslandi. Sannfæring hans er
ekki meiri en svo, að hann er
búinn að gleyma forsendunni,
sem hann sagði þjóðinni að
væri ástæðan til þess að hann
og flokkur hans ætlaði að
halda áfram að tryggja setu
íhaldsstjórnar einn vetur í við-
bót, og höfðaði til ábyrgðartil-
finningar sinnar og flokksins!
Viðráeðurnar við vinstri
flokka eiga sjálfsagt að vera
með svipuðu sniði osr viðræð-
urnar við verkaiýðshreyfing-
una. Þær eiga að ver'ða ný
„forsenda“ handa þjóðinni —
og ábyrgð Alþýðuflokksins skal
mikil. Síðar verða þær kannski
einnig dæmdar með alþýðu-
flokksbrosi á vör sem „HINIR
NYTSAMLEGUSTU TÍL
FRÓÐLEIKS" og þótt ekki hafi
gengið saman sé „EKKERT
VIÐ ÞVÍ AÐ SEGJA“, því
„TIL ÞESS VAR AÐ SJÁLF-
SÖGÐU ALDREI ÆTLAZT“,
svo notuð séu ummæli Gylfa
Þ. Gíslasonar um stóru forsend-
una og fyrri umræðurnar. TK
ji«cs3gsgrein
Framhald af bls 7
einnig af öðrum ástæðum, —
sldlyrði til að skapa fyrirmynd
arþjcðfélag, sem vekti athygli
annarra þjóða og þær gætu lært
af. Þetta getum við áreiðanlega
ef við viljum, og ef kynstofn-
inn er eins og við hyggjum
hann vera. Slíkt þjóðfélag er
ekki á íslandi nú. Enn sem kom
ið er höfum við naumast efni á
að ámæla öðrum þjóðum fyrir
misjafnt stjórnarfar, yfirgang
og erjur, því að allt viðgengst
þetta í okkar eigin landi í rík-
ara mæli en góðu hófi gegnir.
En skilyrðin til að koma upp
fyrirmyndarþjóðfélagi eru
sennilega betri hér en í nokkru
landi ö'ðru, ef þjóðin heldur
sjálfstæði sínu og komandi
kynslóðir vilja. Takist það, get-
ur ísland orðið stórveldi á sinn
liátt--------.
(Úr ræðu, sem ekki var flutt).
G. G.
Bskarkeppnin
Framhald af bls. 8.
til og fram hjá Ellert og sendi í
netið.
Eftir markið átti KR meir í
leiknum, og var mikið kapp í
þeim, en Framarar vörðust vel.
Litlu munaði að KR jafnaði er
Ellert íkallaði að marki, en Herði
tókst að slá knöttinn yfir þverslá
á síðasta augnabliki. Vítaspyrnan
á síðustu mín. var þó bezta tæki-
færið til að jafna, en hún endaði
í höndum Harðar eins og fyrr
segir.
Framhald af bls. 3
Nelson Rockefeller leitar end-
urkjörs í fjórða sinn secn ríkis-
stjóri. Á móti honum berst að
þessu sinni Arthur Goldberg,
sem um nokkurra ára skeið var
fastafulltrúi Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum. Baráttan
hefur verið mjög hörð, en samt.
er talið sennilegt að Rocke-
feller verði enn einu sinni kjör
inn.
Það hefur ýmislegt óvenju-
legt gerzt í þessari baráttu, m.
a. það, að John Lindsey, borg-
arstjóri í New York, sem er
repúblikani, lýsti yfir stuðn-
ingi við Goldberg. Með þessu
var hann reyndar að svara vel
fyrir sig, því Rockefeller lýsti
á sí.num tíma yfir stuðningi við
einn af andstæðingum Lind-
says, er hann leitaði endur-
kjörs sem borgarstjóri í New
York.
Glæsilegur sigur
Ronald Reagans?
í Kaliforníu leitar Ronald
Reagan endurkjörs sem ríkis-
stjóri, og á móti honum berst
Jess Unruh, frambjóðandi
demókrata. Er talið fullvíst, að
Reagan muni vinna glæsilegan
sigur, enda er Unruh fjárvana
og getur t.d. ekki keypt sér
sjónvarpstíma.
Það er reyndar einkennandi
fyrir þessa kosningabaráttu, að
það eru repúblikanar sem hafa
peningana. Það er v.itað, að
republikanar hafa eytt fimm
sinnuim meira fé í kosningabar
áttunni en demókratar.
Og þá er að vita, hvort Ric-
hard Nixon og ótakmarkað-
ur peningaaustur nægir til þess
að vinna sigur eða alla vega
koma í veg fyrir það tap, sem
venjulega á sér stað í þessum
„aukakosningum," ef svo mætti
kalla þær. — ej.
Atvinnumálastofnun
Framhald af bls. 1
ræmi við gildandi áætlanir, þar
sem verkefnum er raðað og þau
látin ganga fyrir, sem þýðingar
mest eru. Til gireina kemur að
banna tilteknar tegundir fjárfest
ingar um tiltekinn tíma, eins og
sumar þjóðir háfa gert, ef ekki
virðist brýn þörf fyrir þæir og
ekki verður með öðrum hætti
tryggt, að aðrar nauðsynlegri
framkvæmdiir geti komizt áfram.
Eðlilegt má telja, að það sé í
einstökum atriðum að verulegu
leyti á valdi Atvinnumálastofnun
arinnar sjálfrar, með hvaða aðferð
um hún framkvæmir það hlutverk,
sem henni er falið. Gert er ráð
fyrir, að hún beiti valdi sínu eink
um til útgáfu á almennum regl
um og fyrirmælum, sem bankar
og aðrar lánastofnanir svo og aðr
ir aðilair, sem hlut eiga að máli,
fari eftir, enda veitir frv., ef að
lögum verður, þeim mikið aðhald
í því efni. En í frv. felast heimild
ir til frekari ráðstafana, ef At-
vinnumáiastofnunin teilur þeiirra
þörf.
f frumvarpinu er lagt til að
stj órn Atvinnumálastofnunarinnar
skuli skipuð níu mönnum. Þrír
þeirra skuli kosnir hlutfallskosn-
ingu í sameinuðu Alþingi til
tveggja ára í senn, en forsætis
ráðherra skipi hina sex, einnig til
tveggja ára í senn, samkvæmt til-
nefningu sem hér segir:
Alþýðusamband íslands, Banda
lag starfsmanna ríkis og bæja,
Farmanna- og fiskimannasamband
íslands, Landssamband íslenzkra
útvegsmanna og Stéttarsamband
bænda tilnefna einn mann hvert.
Félag íslenzkra iðnirekenda og
Samband íslenzkra samvinnufélaga
tilnefna sameiginlega einn mann.
Fprsætisráðherra skipar formann
úr hóþi nefndarmanna.
ífegreiaaísðprð Írumvarpsins, seg
ir að varðandi skipan stjórnar At-
vinhumálastofnunarinnar sé að
sjálfsögðu nokkur vandi á hönd-
um, og komi þar fleiri aðferðir
til greina en sú, sem gert sé
ráð fyrir í frumvarpinu.
Frv. gerir ekki ráð fyrir því, að
komið verði upp sérstökum nýj-
um skrifstofum fyrir stofnunina,
heldur verði starfandi ríkisstofn
un á sviði efnahagsmála, sem hef
ur sérfróðu og þjálfuðu starfsliði
á að skipa, látin annast skýrsilu-
og áætlanagerð og skrifstofustörf
fyrir hana og leggja henni þau
gögn f hendur, sem hún þarf á
að halda og óskar eftir. Ekki er
þó að svo stöddu gerð grein fyrir
því frekar, hvaða stofnun það
skul'i gera, enda telja flm. mikla
nauðsyn á gagngerri endurskipu
lagningu, sameiningu og samræm
ingar þeirra mörgu opinberu að-
ila og stofnana, sem annast verk
efni þessu skyld, og hafa þeir í
undirbúningi tillögur í þvl efni.
Alþingi
Framhald af bls. 6.
og nú væri komið, þar sem aug-
ljóst væri, að hún hefði legið á
þessu máli árum saman og tafið
allar nauðsynlegar aðgerðir i mál-
inu.
Að síðustu minntist Ingvar á
fruimvarp Guðlaugs Gíslasonar (3)
um stofnun úkiðnskóla í Vest-
mannaeyjum, og sagði, að við fljót-
an yfirlestpr frumvarpsins, bæri
lítið á milli um höfuðatriði máls-
ins.
Gylfi Þ. Cx. !~son, menntainála-
ráðherra, sagði að fiskiðmfræðslu-
málin hefðu um sl. áramót horfið
úr verkahring sjávarútvegsmála-
ráðuneytisins og yfir til mennta-
málaráðuneytisins. Nefnd um mál-
ið væri nú starfandi, en ekki . æri
það búið að fá nægjanlegam und-
irbúning, þannig að hhnn hafi ekki
séð sér fært a ðflytja frumvarp
þess efnis nú. Nefndin lyki vær.tan-
lega störfum fyrir jól. Gylfi áleit
kki ljóst, hvort heppilegra væri,
að fiskiðnskólinn væri sjálfstæð
stofnun í skólakerfinu eða hvort
fella ætti fiskiðnfræðslu inn í nú-
gildandi skólakerfi, t. d. taka upp
fræðslu í þeim efnum í gagnfræða-
skólúnum, og koma upp nýrri deild
í því skyni innan Tækniskóla ís-
lands.
Jón Skaftason sagði ræðu mennta
málaráðherra sér nokkuð kunna,
þar sem hann hafi flutt nákvæm-
lega sömu ræðu, og þegar þetta
mál hafi verið til umræðu á sið-
asta þingi. Ráðherra hélt þá fram,
eins og raunar nú, að máli® hafi
engan veginn hlotið þá athugun og
rannsókn, sem nauðsynlegt væri
til að unnt væri að leggja það fyrir
Alþipgi. Meentamálaráðherra væri
vafalaust kunnugastur því, að
með þessari yfirlýsingu væri hann
að fella áfellisdóma um samflokks-
| mann sinn, núverandi sjávarútvegs-
málaráðherra, sem haft hefur frum
varpið frá fiskiðnskólanefndinni
undir höndum allt frá árinu 1966,
án þess, að því er virtist, að gera
nokkuð til þess að kynna þalð, hvað
þá að koma því fram á Alþingi.
Þá minntist Jón á þá afsökún
menntamálaráðherra, sem hann
raunar hafði einnig í fyrra, þess
efnis, að ekki væri ljóst, hvort
heppilegt væri, að fiskiðnskóli
væri sjálfstæð stofnun. — Höfðu
þeir menn, er sátu í fiskiðnskóla-
nefndinni verið sammála um, að
svo ætti að vera.
Síðan sagði Jón Skaftason m. a.
„Ég vil halda því fram, þótt
kannski hnígi að því viss rök,
ekki væri óeðlilegt að ýmsir þætt-
ir fiskiðnfræðslunnar færu fram í
Tækniskólanum, þá séu þau rök
þó þyngri á metunum að stofnað-
ur skuli sjálfstæður fiskiðnskóli,
eins og fiskiðnskólanefndin var
sammála um. Þetta leiðir m. a. af
því, að allir kúnnugir þessum mál-
um eru sammála um, að fiskiðnað
arsköía þurfi að reka í sambandi
og samvinnu við starfandi frysti-
hús. Bezt væri að sjálfsögðu, að
það væri gert í sarna húsnæði, ef
einhvers staðar væri slíkt ". rir
hendi, að minnsta kosti í næsta á-
grenni þess. Þá kemur að því, sem
við þingmenn, hvar í flokki sem
við erum, höfum áhyggjur af, en
þaið er sú þróun, að yfirleitt hafa
skólar landsmanna safnazt saman í
Reykjavík. Eins og allir vita, er
Tækniskólinn í Reykjavík, og það
eru engin rök, nema síður sé, að
nauðsyn sé á því, að fiskiðnskóli
eða kennsla í þeim fræðum, þurfi
líka að vera í Reykjavík, til við-
bótar allri þeirri skólastarfsemi,
er þar fer fram. Fiskiðnskólanefnd
in var sammála um, eins og er í
frumvarpinu, að skólinn eigi að
vera á Suðvesturlandi, og ég sem
fleiri í fiskiðnskólanefndinni, hef
látið þá skoðun okkar uppi, að við
teljum, að þessum skóla sé af ýms-
um ástæðum bezt komið fyrir í
Keflavík."
Þá áleit Jón, að þetta mál und-
irstriki vel, að ekki einungis á
æðstu stöðum, meðal ráðamanna
þessa máls, heldur og víðast hvar
í þjóðfélaginu þurfi að knýja fram
ijörbyltingu i sambandi við það
hugarfar, sem landsmenn almennt
því miður hafa eða virðast hafa
til fræðslu í sambandi við fisk-
vinnslu. „Við vitum, að kröfur
markaðanna eru sífellt harðnandi
um vöruvöndun, og fiskvinnsia og
fiskiðja í víðtækustu merkingu, er
að verða sérgrein víðast hvar með
bjóðum, sem vilja starfa af skyn-
semi að þessum málefnum. Það
hlýtur að koma að þvi hér, fyrr
eða síðar, að sá hugsunarháttur
lúti í lægra haldi með þjáðinni al-
mennt, að það sé nægjanlegt í
þessum efnum, að t. d. eldri mats-
maður sem starfar við frystihús
kenni yngri manni, sem kemur inn
algerlega ómenntaður. Þessum
málum veúður aldrei kippt í lag,
ef sá hugsuinarháttur á að verða
viðurkenndur í verki, að ekki sé
á annan hátt staðið að þessum
fræðslumálum sjávarútvegsins en
gert hefur verið til þessa.
Þessi Téttúð í sambandi við fram
leiðsluimál okkar í sjávarútvegin-
um speglast víðar í þjóðlífinu. Það
er t. d. eftirtektarvert, að í íslenzku
fræðslulöggjöfinni eru 60 löggilt-
ar iðngreinar. En í allri þessari
löggjöf er ekki viðurkennt, að til
sé iðngrein, sem heitir fiskiðnað-
ur.“
Síðan minnti Jón á, hve margar
fiskvinnslustöðvar væru í landinu,
og að sú starfsemi, sem færi fram
í ölluim þessum fyrirtækjum, væri
undirstaða þeirra lifskjara, sem
við íslendingar njótum, og að sú
stax-fsemi sem fram færi í þessum
mörgu fyrirtækjuim líði önn fyrir ;
það, að skortur er á sérþjálfuðu ,
kunnáttufólki til að vinna að þess-
um framleiðslustörfum. Fiskiðn- í
skóli væri fyrsta og veigamesta j
skrefið, sem við gætum stigið til I
úrbóta í þessum efnum.
Auk fyrrgreindra tók til máls j,
Guðlaugur Gíslason (S). — At-,
kvæðagreiðslu xxm málið var frest-'
að.
Kjördæmisþsng
í Noröurlands-
kjördæmi
eystra
Kjördæmisþing Framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra, verðuir haldið að Hótel
Varðborg, Akureyri, laugardaginn
7. nóvember og hefst kl. 10 ár-
degis. Fulltrúar eru beðnir að
mæta stundvíslega.
Stjómin.
BIBLIAN er BÓkin
handa fefmingarbaminu
Fœs! ið í nfja, foBtgu bantil
i miSlsálí h]i
* * *^ - tim*- -
* uojaCsQ (CIOyuQUni
• CAHastn
KID fSL£NZKA BlEtíUFÉXAG
Öu&öcanÓDofofu
Hdffjffnnmjí - Rtrkjrrflc
Simi17805
JÓN E. RAGNARSSON
LÖGMAÐUR
Lögmannsskrifstofa,
Laugavegi 3. Sími 17200.
ÞORSTEINN SKÖLASON,
HJARÐ.4RHAGA 26
héraSsdómslögmaSur
Viðtalstfmi
kl. 5—7. Sími 12204