Tíminn - 05.11.1970, Blaðsíða 5

Tíminn - 05.11.1970, Blaðsíða 5
TIMINN 5 ■MMMTUDAGUK 5. nóvember 1970. I MEÐ MORGUN KAFFINU — Það er sagt, að hann sé af- skaplega nízkur. — Já, það er áreiðanlegt. Þó hann ætti allt Atlantshafið, myndi hann ekki bjóða þér að baða þig. — Nei ég erfði aðeins kímni gáfu föður míns, skyldutilfinn- ingu hans og svo auðvitað mill- jónirnar. Svo var það presturinn, sem tilkynnti úr ræðustólnum: — Það er óþarfi fyrir ykkur að setja fleiri hnappa í samskota- baukinn, því englarnir eru farn- ir að nota rennilása. Kennslukonan sat og spjallaði ' " ; 'Tið bötnin um heimili þeirra og systkini. — Hvað'átt þú mörg systkini, Sonja? — Tólf. — Almáttugur, það hlýtur að vera dýrt fyrir foreldra þína. — Nei, ekki svo mjög. Þau kaupa okkur ekki, heldur búa okkur bara til heima. — Ég verð að skilja við mann inn minn. Áhugi hans á heimil- inu og mér fer alltaf minnkandi. Hann er ekki einu sinni faðir yngsta barnsins okkar. Pétur bókhaldari hringdi til forstjórans: — Því miður get ég ekki komið í vinnuna í dag. Konan mín braut fótinn. — Nú, þér ættuð að geta kom ið þess vegna. — Nei, það var nefnilega fót urinn á mér. Aðvörun til allra ungra stúlkna: Ef karlmaður býður yður heim til sín upp á viský og sóda, er næstum öruggt, að hann meinar viský og sófa. — Elskan, hvað hefurðu þekkt marga á undan mér? — Þögn. Löng þögn. — Elskan ég er enn að bíða eftir svari. — Já, ég er enn að telja. — Segðu svo pabba, hvar þú fanst þetta. — Hann er svo latur, að hann notar bara aðra höndina. þegar hann klappar. — Herra forsíjóri! Mamma bað mig að spyrja, hvort konan yðar leyfi, að ég giftist dóttur yðar. : DENNI DÆMALAUSI — Ekki setja mig I vatnið, inanuna. Það uiengast! Kvikmyndin ,,Candy“ sem aargt og mikið hefur verið rætt um og ritað undanfarið, verður sýnd í Noregi á næst- unni. Fjölmargir frægir leikar- ir koma fram í myndinni, þeirra á meðal Charles Aznavour, Marlon Brando. Richard Bur- ton, James Coburn, John Huston Sugar Ray Robinson og Elsa Martinelli. Titilhlutverkið vakti þó hvað mesta athygli, en Candy er leikin af hinni sænsku Ewu Aulin, sem var algjörlega reynslulaus sem leikkona, þegar hún tók að. sér þetta verkefni. Svo brá við, að Ewa var orðin fræg löngu áður en töku kvik- myndarinnar var lokið. A með- fylgjandi mynd sjáum við Ewu ásamt Ringo Starr, en hann Ieikur líka svolítið í Candy. I fyrri viku bar það til i Belgrad. að ljón í dýragarði tættu sundur og átu lítinn dreng og rifu fótinn af 14 ára stúlku, sem reyndi að bjarga drengnum. Drengurinn var 18 mánaða ,.g þau '5u framan við ljónabúrið, sem í voru 3 ljón, þegar sá litli lagðist á fjóra fætur og skreið gegnum grindverk, sem er umhverfis búrið. Eitt ljónið krækti í drenginn og gat dregið hann inn milli rimlanna í búrinu og það liðu ekki nema nokkrar sekúnd ur þar til ljónin voru búin að éta hann upp til agna. Stúlkan stökk á eftir drengnum að búr- inu, en ljónin náðu í kjól henn- ar og náðu að bíta af henni fótinn við mjöðm. áður en gæzlumaður kom að. Stúlkan er enn ekki sögð úr lífshættu. * Frakkar hafa löngum verið sagðir drekka anzi mikið og nú er nýlega komin út skýrsla, sem segir nákvæmlega frá áfengis- Irykkju þeirra. I ljós kemur að hver Frakki drekkur nú 8 lítra af sterku áfengi, en fyrir 10 árum voru lítrarnir 5 og hálfur. Með í þessu er ekki tal- ið allt það rau'ð- og hvítvín. sem Frakkar innbvrða að jafnaði neð mat. ★ „Þegar ég sá myndina af þér í Aktuelt, langaði mig svo afskaplega til að mála þig“. Þannig skrifar lífstíðarfangi úr dkisfangelsi í Danmörku til 22 ára stúlku. Marion Studinski Bréfið, sem hinn 33 ára lífstíð- arfangi skrifaði Maríon, var ’"ip á margar síður g hann sagði henni m.a. ýmislegt um sjálfan iig. „Eg hef svo gaman af að mála fallegar stúlkur í frístund um mínum“, segir hann og bið ur síðan um leyfi til a'ð fá að- mála liana. Maríon svaraði, að hún hefði ekkert á móti því og síðan fékk hún annað bréf, þar sem fanginn bað hana að senda sér góða litmynd. Næstu daga ætlar svo Maríon að fara og láta mynda sig, og senda myndina í ríkisfangelsið. Ástæðan til þess, að Maríon hitti Yoko Ono- skildi hann Cynthiu konu sína eftir eina með soninn, Julian. Einvera frúar- innar fyrrverandi varð þó ekki löng, þvi að Cyathia er ung og falleg og var fljót að eignast ★ var mynduð í Aktuelt, var sú, að hún tók upp á því, að hekla og prjóna föt fyrir kunningja sína til að drýgja tekjur sínar og þessar flíkur þóttu mjög smart og sérstakar og einhver fór með það í blöðin. t>ess má geta, að sami fangi skrifa'ði söngkonunni Eartha Kitt, og það varð til þess, að hún kom og söng fyrir fangana í Ríkisfangelsinu. aftur, ítölskum hótelkóngssyni. Myndin er tekin rétt eftir brúð- kaupið og það er Júlian Jóns- son, em situr í fangi hótel- prinsins, stjúpföður síns. ★ Þegar John Lennon í Beatles vini. Nú er hún búin að gifta sig

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.