Tíminn - 06.11.1970, Síða 3
FÖSTUDRAUR 6. nóvember 1970.
15
kannske vanhugsaSar og koma
sjaldnast að varanlegu haldi. Við
viljum með okkar till. hér í þessu
frv. leggja áherzlu á, að unnið
sé skipulega að því að try.ggja var
anlega atvinnugrundvöllinn í öll
um þyggðarlögum landsins og við
teljum raunar, að það sé ákaf
lega mikil nauðsyn á því, að við
reynum að gera okkur sem
gleggsta grein fyrir því, hvaða
atvinnurekstur á í framtíðinni að
verða stundaður í einstökum
byggðarlögum landsins. Ég geri
ráð fyrir því, að fleiri en ég
hafi orðið varir við'^ann vanda,
sem arkitektar okkar og skipulags
fræðingar komast í, þegar þeim
hefur verið falið að skipuleggja
eitthvert þorp eða þéttbýlisstað
og þeir spyrja, hvaða atvinnurekst
ur eigum við nú að gera ráð fyr-
ir, að verði hér, þá hefur þeim
sjaldnast tekizt að fá skynsamleg
svör við því, enda ekki von, því
að áætlanir um þau efni liggja
yfirleitt ekki íyrir.
Fjárfestingunni verði stjórnað
Nú er það ljóst, að við verðum
í vaxandi mæli að leggja áherzlu
á bætt skipulag í landinu, skipu
lagslöggjöf okkar nær aðeins til
kaupstaða og þéttbýlisstaða, en
það er auðvitað óviðunandi annað
en skipulagsstarfsemi nái til
landsins alls, en hún verður að
byggjast á atvinnupólitík og þess
vegna verður að vera til mörkuð
Jólafötin
Matrósaföt
2—7 ára, rauð — blá,
matrósakragar — flautu-
bönd.
Drengjajakkaföt
5—16 ára, terelyn og ull,
margir litir, frá kr.
1.985.00.
Stakir drengjajakkar
og buxur,
4—12 ára.
Molskinnsjakkar
frá Ungverjalandi frá
kr. 560.00.
Blátt, svart og rautt buxna-
terelyn.
Drengjaskyrtur
kr. 150.00.
Kuldaúlpur
Dúnsængur
Æðadúnssængur, gæsa-
dúnssængur, vöggusæng-
ur.
Sængurfatnaður og kodd-
ar, fiður, Dralonsængur og
koddar.
Dúnhelt og fiðurhelt
léreft.
Gæsadúnn — Æðadúnn —
Hálfdúnn.
Patons-ullargarnið
nýkomið.
100 litir — 5 grófleikar,
litekta — hleypur ekki.
Prjónar og hring-
prjónar.
Vesturgötu 12, Sími 13570.
stefna í atvinnumálum þjóðarinn
ar. Við leggjum þvi til, að í
þessum efnum verði tekin upp ný
vinnubrögð, skipuleg áætlunar-
gerð til langs tíma eða fram-
kvæmdaáætlanir til skemmri tíma.
Við leggjum mikia áherzlu á áætl
anagerð. En til hvers ætlum við
að gera áætlanir? Ætlum við að
gera þær okkur til skemmtunar,
eins og þegar verið er að spá í
spil, til þess að finna út, hvað
framtíðin ber í skauti sér? Það
er ekki. Við lítum ekki á þetta
sem einhvers konar upplýsinga-
þjónustu um umhverfi framtíðar-
innar, eins og veðurspá eða eitt-
hvað því um líkt, heldur er hér
á ferðinni að okkar dómi skil-
greining þeirra markmiða, sem við
stefnum að i atvinnumálunum og
vörðun þeirra leiða, sem við ætl-
um að fara tiT þess að ná þeim
markmiðum. Okkar skilningur er
sá, að það sé nauðsynlegt að
stýra þjóðfélagsmálunum eftir
þeim áætlunum, sem gerðar eru.
Þess vegna teljum við nauðsynlegt
að fjárfestingunni sé stjórnað og
raunar er það ekki orðið eins al-
mennt vefengt og áður var
samanber þá tilvitnun, sem ég
gerði hér í upphafi máls míns í
nefndarálit meirihluta fjárhags-
nefndar frá því í hitteðfyrra. En
við teljum, að sú fjárfestingar-
stjórn eigi að fara fram með tölu
vert öðrum hætti heldur en gert
var hér á árunum 1947—‘50, þeg
ar Alþýðuflokkurinn og SjáTfstæð
isflokkuirinn höfðu forustu í ríkis
stjórn og fjárhagsráði, sem þá
var komið á fót. Þá urðu þjóðfé-
lagsþegnarnir að mæta með um-
sóknir og beiðnir til þess að fá
að gera sína hluti. Við ætlumst
tn, að það séu settar almennar
reglur í samræmi við þær áætlan
ir, sem gerðar hafa verið. Þannig
er í frumvarpinu gert ráð fyrir
því, að það sé hægt að banna al-
gerlega tiltekna tegund fjárfest-
ingar um takmarkaðan tíma eins
og t. d. Svíar hafa gert og hefur
reynzt þar vel. Ég geri ráð fyrir
því, að þegar menn athuga, að
á undanföirnum 5 árum frá 1965
—1969 hefur fjárfesting í verzlun
arbyggingum verið töluvert mik
ið meiri en [ öllum fiskiðnaði, þá
kynnu menn að getá sætzt á, að
það væri ekki nein goðgá, ef nauð
syn bæri til, að dregið yrði úr
þeim tegundum bygginga, enda
nokkuð af þeim nú, sem standa
tómar hér og þar.
Stjórn Atvinnumálastofnun-
arinnar samstarf ríkisvalds
og atvinnuveganna
Ég skal svo koma að því að
gera grein fyrir, hvernig við hugs
um okkur stjórn þessarar stofn
unar. Að vísu vil ég taka það
fram, að okkur er bað fyrirkomu
lag, sem gerð er till, um, ekki svo
fast í hendi, að við séum ekki
reiðubúnir til þess að ræða um
einhverja aðra tilhögun á því,
ef mönnum þætti betur henta, en
aðalhugmyndin er sú, að í stjórn
þessarar stofnunar yrði vettvang
ur fyrir samstarf milli atvinnuveg
anna og ríkisvaldsins til þess
að marka þá stefnu, sem þarf að
marka í atvinnumálunum. Frv.
gerir þess vegna ráð fyrir þvi, að
í síjórn þessarar stofnunar sé
þriðjungurinn frá rrkisvaldinu
kosinn af Alþingi, þriðjungurinn
frá samtökum atvinnurekenda og
þriðjungurinn frá samtökum
starfsmanna við atvinnureksturinn.
Það hefur víða um lönd, þar
sem stofnanir af þessu tagi hafa
verið settar á fót, verið Tögð
megináherzla á einmitt að skapa
samstarf þessara aðila um stefnu
mörkunina og áætlanagerðina. Ég
hef nú þvj miður ekki haft að-
stöðu til þess að kynna mér eins
vandlega og ég hefði viljað
tilhögun slíkra mála í nágranna
löndum okkar, en það rifjaðist
upp fyrir mér, að fyrir allmörg
um árum kom hér norskur banka
stjóri, sem flutti erindi um sam
TÍMINN
starf ríkisins og atvinnulífs í
sambandi við stefnumörkun í at-
vinnumálum og áætlanagerð og
erindi hans var birt í Fjármála
tíðindum. Það eru Tiðin 6 ár síðan
svo að þetta eru nú ekki nýjar
fréttir, en samt ómaksins vert að
rifja þetta aðeins upp. Ilann
sagði þar frá nefndum og stofn
unum og ráðum í öðrum löndum,
sem settar höfðu verið á stofn
til þess að auka samstarf atvinnu
vega og ríkisvalds í þessu skyni
og sagði m. a. frá athrjganum,
sem norsk stofnun hafði gert um
þetta, þar sem segir m. a. með
leyfi hæstvirts forseta:
„Þessar athuganir sýna, að til
eru í fjölda landa stofnanir. sem
hafa þau verkefni að auka sam-
starf milli ríkis og atvinnulífs.
Þetta á t. d. við um Holland,
Frakkland, England, Austurríki,
Danmörku og það á við um öll
lýðræðisl’önd. að mikill áhugi
er ríkjandi á þeim vandamál-
um, sem hér er um að ræða og
víða áætlanir um að koma á
fót hliðstæðum stofnunum. Síð-
an segir hann frá því, að norska
ríkisstjórnin sé um þær mundir,
sem þessi fyrirlestur var flutt-
ur, að koma á fót nefnd, sem á
að hafa það hlutverk að setja
fram skoðanir um eftirtalin atriði:
1. AðaTstefnuna í fjögurra ára
framkvæmdaáætlunum sérstaklega
að því er varðar noktun hinna bú
skaparlegu gæða og forgang fram
kvæmda. Aðalstefnuna í þjóðfé-
lagsframkvæmdum yfir enn lengri
tíma.
2. Framkvæmd framkvæmdaáæti
ana, þar með taldar nauðsynTeg
ar endurskoðanir á áætlunum.
3. Aðalstefnuna í sérstökum
áætlunum um einstaka þætti
efnahagslífsins.
4. Þýðingarmikil undirstöðuatriði
varðandi framkvæmdir á ákveðn
um svæðum.
5. Framleiðnimál.
6. Stefnuna í efnahagsmálum
og önnur veigamikil atriði við
áætlanagerð til styttri tíma.
Ráðið á að vera ráðgefandi og
álitsgerðir þess eiga að jafnaði
að vera samþykktar einróma. Ráð
ið getur þó með % hluta atkv.
gert samþykktir, sem beint er
til fjármálaráðuneytis. Sé um mis
munandi álit að ræða, skal ráðið
einnig gera grein fyrir minni-
hlutaáliti.“
Hér virðist vera athyglisvert,
hve hlutverk þessa ráðs er líkt
því, sem við höfum gert ráð fyrir
í atvinnumálastofnuninni. Að vísu
virðist mönnum kannski í fljótu
bragði, að það sé nokkur munur
á, þar sem þarna er um að ræða
ráð, sem á að vera ráðgefandi,
en atvinnumálastofnunin í okkar
frv. hefur hins vegar nokkuð víð-
tækt vald. Ég vil þó benda á, að
því valdi eru takmörk sett,
með því að Alþingi fær til stað-
festingar þær áætlanir, sem at-
vinnumálastofnunin hefur gert og
ætlar að vinna eftir. Hið raun
verulega vald er þess vegna
í höndum Alþingis eins og vera
ber.
í sambandi við skipua þessa
norska samstarfsráðs, er það að
segja, að það er skipað 21 manni.
Af þeim eiga 5 að vera fulltrúar
stjórnvalda, 5 fulltrúar rannsókn
arstofnana, 11 eiga að vera full
trúar atvinnulífsins. Af þessum
11 eru 5 fulltrúar iðnaðar, verzl
unar, siglinga og lánastofnana í
eigu einkaaðila, tveir eru full-
trúar landhúnaðar og sjávarút-
vegs, 3 frá norska Alþýðusamhand
inu og einn fulltrúi frá norsku
samvinnufélögunum. Það er athygl
isvert, að samstarfsráðið er eins
og í okkar frv. að meiri hluta til
skipað fulltrúum frá atvinnuveg
unum, en einnig fulltrúum stjórn
valda og opinberra aðila. Enda er
lögð megináherzla á þarna eins
og við gerum líka að skapa sam
starfsvettvang fyrir fulltrúa at-
vinnulífsins og ríkisvaldsins.
Endurskipulagning, samræm-
ing og sameining stofnana
og sjóða
Það er skoðun okkar flutnings-
manna, að fram þurfi að fara
endurskipulagning á því kerfi,
sem nú er ætlað að hafa áhrif á
fjárfestingu hér í landinu, þ.e.a.s.
ýmsar stofnanir og þá fjölmörgu
sjóði, sem veita fé til fram-
kvæmda í landinu og árciðanleg
ur maður sagði mér fyrir skömmu,
að mundu vera a.m.k. 18. Við er-
um alveg sammála því, sem fram
kemur í nefndaráliti fjárhags-
nefndar frá þvl í hitteðfyrra, að
það er mikil nauðsyn á því, að
það fari fram nánari samræming
og þessi starfsemi eins og hún
er nú er „ekki svo vel samhæfð
og skipulögð“ eins og þar segir,
„að tryggt sé, að sú fjárfesting,
sem þjóðarbúskapnum rná telja
mikilvægasta hverju sinni, sitji f
fyrirrúmi fyrir öðrum“. Um þetta
þj'kir okkur gott að vita. að meiri
hluti fjárveitinganefndar er okk
ur sarnmála. Við teljum þess
vegna, að þetta flókna kerfi þurfi
að endurskoða með tilliti til þess
að samræma það og sameina það
og þess vegna er ekki j okkar
frv. gert ráð fyrir því, að sett
yrði upp sérstakt, nýtt skrifstofu
bákn fyrir þessa stofnun, heldur
er í frumvarpinu heimild fyrir
stjórn atvinnumálastofnunarinnar
til þess að semja við starfandi
ríkisstofnun um að annast skýrslu-
og áætlanagerð og afgreiðslu mála
f rir stofnunina eftir nánari ákvörð
un stjórnarinnar. Það er hins veg
ar ekki á þessu stigi farið frekar
út í það, hvaða starfandi stofnun
þetta skuli gera, því að við vænt
um þess, að fljótlega verði látin
fara fram gagngerð endurskipu-
lagning á þessu kerfi.
Sú skipulagsstarfsemi, sem gert
er ráð fyrir í þessu frumvarpi,
er þess eðlis, að hún miðar að
aukinni hagkvæmni. Hún miðar
þess vegna að kostnaðarlækkun í
þjóðfélaginu og sá kostnaður, sem
gert er ráð fyrir, að af því leiði
að setja þessa stofnun á fót, er
svo lítill að hann er í því sam-
bandi algert aukaatriði.
Þetta frumvarp er eins og ég
gat um í upphafi, herra forseti,
flutt til þess að varpa Ijósi á
stefnu okkar Framsóknarmanna i
atvinnumálum og fjárfestingarmál
um. Við teljum ekki, að það eigi
að láta kyTfu ráða kasti um fram
tíðarafkomu þjóðarinnar. Ýtar
leg áætlunargerð til' stefnumörk
unar og skipuleg mframkvæmd
þeirra áætlana er mesta nauðsyn
okkar á þessu sviði nú um þessar
rnundir. Breytt stefna er þess
vegna að okkar mati nauðsynleg
tiT þess að tryggja sem beztan
ávöxt af auðlindum landsins og
starfi þjóðarinnar.
Gardisette
Gluggatjalda-
efni
150 - 180 - 210
240 - 270 cm
m/íofnum
blýþræSi.
Vönduð og góð
efni.
Fjölbreytt úrval.
KAUPFELAG EYFIRÐINGA
VEFNAÐARVÖRUDEILD
SÍMI (96)21400