Tíminn - 26.11.1970, Qupperneq 2

Tíminn - 26.11.1970, Qupperneq 2
KLIPPIÐ ÚT OG GEYMtB TIMINN FIMMTUDAGUR 26. nóvember 1970 Elínborg Lárusdóttir: r~ Hvert liggur leiöin? Frú Elínborg Lárusdóttir er fyrir löngu landskunn sem rithöf- undur og áhugamaðnr um dulræn mál og málefni sálarrannsóknar- manna. Þessi nýja bók hennar fjallar um samstarf hennar og kynni af þeim fjórum mi'ðlum, sem hún hefur kynnzt bezt og starfaö mest með, þeim Andrési Böðvarssyni, frú Kristínu Krist- jánsson, frú Margréti frá Öxna- felli og Hafsteini Björnssyni. Allt efni bókarinnar er nýtt og áður óprentað. Andrés Böðvarsson var engum miðli líkur hvað flutningafyrir- bæri s'norti. Hann var gæddur skyggnihæfileikum í ríkucn mæii, og sá atburði sem gerðust í fjarska. Hann var sá er sannfærði höfundinn um að takast mætti að hafa samband við framliðna. Frú Kristín Kristjánsson var gædd miklum dulrænum hæfileik um. Hún var frábær sjáandi á atburði, sem gerzt höfðu í fortíð eða nútíð og sá fram í tímann, — sá atburði og örlög fólks fyrir. Forspár voru eitt hið athyglisverð asta í fari hennar. Margrét frá Öxnafelli er lands- kunn sem læknamiðill og hefur sem slíkur lengstan s-tarfsferil að baki hér á landi. Hún er gædd mjög fjölþættum dulargáfum, hefur auk skyggnigáfunnar mikla fjarsýnigáfu og fer iðulega sál- förum út fyrir jarðsviðið og inn í annan heim. Hafsteinn Björnsson á lengstan feri; transmiðla hér á landi og er án efa mestur skyggnilýsinga miðill sem við eigum eða höfum átt, auk þess að vera lækninga- miðill. Hann er meðal sterkustu sannanamiðla sem nú eru uppi, þótt leitað sé vítt um lönd. Auk frásagna frú Elínborgar í þessari bók er þar að finna frásagnir af dulrænni reynslu fjölda nafngreindra manna, víðs- vegar að af landinu. Frú Elínborg Lárusdóttir til- einikar þessa bók sína þeim fjór- um miðlum, sem hún fjallar um að meginhluta. Hvert liggur leiðin? er 220 bls. að stærð, prentuð í Alþýðuprent- smiðjunni og bundin í Bókfelli h.f. Káputeikningu gerði Atli Már en útgefandi er Skuggsjá í Hafnar firði. Snæfellingar! Af óviðráðanlegum ástæðum verður áður auglýst framsóknar- vist á Brciðabliki á föstudags- kvöld 27. nóv., en ekki á laugar- dagskvöld, eins og áður var auglýst. Guömundur G. Hagalín Guðmundur G. Hagalín: STURLA I VOGUM r- ~ “ •Cl* _@6) 7 SMJOli *& 4, SMJÖRHRINGIR 250 g hveltl 250 g smjðr VA dl rjóm! eggjahvíta 8teyttur molasykur. HafiS allt kalt, sem fer í delglS. VlnniS verklS á köldum staS. MylJIS omJðriS saman vlð hveitiS, vætið með •rjómanum og hnoðið delglð varlega. Látið delgið bíða á köldum stað ( nokkrar klukkustundlr eSa tll næsta dags. Fletjið delglð út Vz cm þykkt, mótlð hringl ca. 6 cm I þvermál með litlu gatl í mlðju. Penslið hringina með eggjahvítu og dýfið þeim í steyttan molasykur. Bakið kökumar gulbrún- ar vlð 225° C í 5—8 mínútur. SMJÖRIÐ GERIR GÆÐAMUNINN FB—Reykjavík, miðvikudag. | Sturla í Vogum eftir Guðmund 1 Gíslason Hagalín er komin út í annað sinn. Útgefandinn er Skugg sjá. Á bókarkápu segir: „Hin sígilda, rammíslenzka hetjusaga Hagalíns, Sturla í Vogum, vakti að vonum mikla athygli þegar hún kom fyrst út árið 1938. Fór ekki milli mála, að hér var skapað þrótt- mikið og sterkt skáldverk, sem lýsti vægðarlausri lífsbaráttu ís- lenzkrar alþýðu í afskekktu hér- aði, baráttu við óblíó náttúruöfl og verzlunaráþján, þar sem hinn sterki harðnar enn meir, en mild in og blíðan bugast og deyr.“ „Sturia í Vogum á enn sem fyrr erindi við okkur. Tímarnir eru að vísu breyttir frá því sem var, þegar bókin var rituð, en enn sem fynr ganga meðal okkar persónur eins og Vindingur fakt- or, Haimragníarinn Brynjólfur, hugsjónamaðurinn Gunnlaugur Austfirðingur, það Neshólkahyski og sjálf höfuðkempan Sturla í Vogum.“ Jakobína Sigurðardóttir: Sjö vindur gráar FB—Reykjavík, miðvikudag. Skuggsjá sendir nú frá sér bók ina Sjö vindur gráar eftir Jakob- ínu Sigurðardóttur, en um höfund- inn segir á bókarkápu: Jakobína Sigurðardóttir er þegar orðin þjóðkunn og mikils metin skáld- kona. Mestar og almcnnastar vin- sældir hefur hún hlotið fyrir skáld söguna Dægurvísu, sem út kom árið 1965, en sú saga var árið OStfí-ct/ S/n/öiéa/a/i >./ Jakobína SigurSardóftir eftir valin, sem fulltrúi íslands í keppni um hin háu og mikið um- ræddu Norðurlandaverðlaun. . . Skáldsagan Snaran og smásagna- safnið Punktur á skökkum stað eru þær aðrar bækur Jakobínu, sem mest hafa aukið á frægð henn ar sem skáldkonu. Sjö vindur gráar er bók, sem vekja mun verðskuldaða athygli gócb-a bókaimanna, og enn auka á frægð Jakobínu sem skáldkonu, segir ennfr. á bókarkápu: „Bók- in ber öll beztu einkenni höfund- arins: ríka frásagnargleði, næmt skopskyn, glöggskyggni á mannleg- ar veilur og raunar einnig kosti. Allt kemur þetta ljóslega fram snjöllustu sögum hennar, hún er hvarvetna bersögul óhlífir. og hirspurslaus, og leiðir óhikað hrjúfar og jafnvel svaðalegar per- sónur til dyranna eins og þær eru klæddar. í hennar augum er allt betra en hræsni og lífslygi. Sögur eins og Elías Elíasson og Mammon í gættinni spegla þetta viðhorf hennar og munu báðar þessar sögur verða lesendum ærið minnisstæðar.“ Tvær bækur frá Rökkur-útgáfunni: Lear konungur og Gamtar glæður Bókaútgáfan Rökkur (Axel Thorsteinsson), gefur í ár út tvær bækur. Eftirfarandi upp lýsingar hefur A. Th. láti'ð blaðinu í té: Önnur bókin er Lear kon- ungur, eftir William Shake- speare, í þýðingu Steingríms Thorsteinssonar, en hún kom út 1878, og hefur verið harla torgæt — að segja tná ófáanleg um áratuga skeið. Fyrir þýðingu sína var Steia- grímur Thorsteinsson kjörinn heiðursfélagi í New Shake- speare Society í Lundúnum (í febrúar 1880). Þýðingarinnar hefur oft og víða verið getið, og verður það ekki rakið, en eftir atvifcum þykir mér rétt að benda á, að í Rökkri (Nýr flokkur II, Rvk 1969), birtist grein eftir Snæ- björn Jónsson, Sérstæðar þýð- ingar“, eða þýðingar Matthías- ar á Manfreð Byron’s og Stein- gríms á Lear konungi. Getur Sn. J. þar m.a. ummæla Sir Williams Craigie’s, um þýðing- una á Lear. Sn. J. segir í grein sinni frá því, að han hafi heyrt, að hluti upplagsins hafi farizt í eldsvoða. „Um sönnur á þeirri sögu veit ég ekki, en sé hún rétt, er torgæti bókarinn- ar auðskilið, því að smátt hlýt- ur upplag erlends sjónleiks að hafa verið á þeim dögum“. — Ennfremur segir Sn. J.: „Svo langt sem ég man aftur í tím- ann, eða frá aldamótum, skul- um við segja, hefur bókin ver- ið harla torgæt, og því fáir átt kost á að lesa hana“. Ennfremur leyfi ég mér að benda á það, sem Hannes Pét- ursson, skáld, segir í bók sinni „Steingrímur Thorsteinsson, líf hans og list, Rvfc 1964“, bls. 196—197, Ég vil geta þess, að ég hefi lengi haft í huga, að gefa þýð- inguna út Ijósprentaða, þótt efcki gæti ég ráðizt í það fyrr en nú. Hún er lögð í hendur þeirra, sem vilja eignast hana, óbreytt, nema að hún er prent- uð á betri pappír og er í vönd uðu bandi, og um 3 liti að velja. Offsetprent h.f. annað- ist ijósprentunina, en bókband var unnið í Prenthúsi Hafsteins Guðmundssonar. Hin bókin er Gamlar glæður eftir Jack London, og aðrar sögur. Enskar og írskar sögur. Snotur bók, prentuð og bundin í Leiftri. Um þá bók vísast til þess, sem segir á baksíðu hlífðar- kápu. Verð bókanna er: Lear 350 kr. án söluskatts, og skal þess getið, að upplag er tak- tnarkað, en Gamlar glæður 225 kr. án söluskatts. Bækum ar fást hjá bóksölum og að sjálfsögðu einnig heint frá for- laginu. Hilmar Jónsson, bókavörður í Keflavík: KANNSKIVERDUR ÞÚ.. FB—Reykjavík, miðvikudag. Kannski verður þú. . . nefnist bók, sem komin er út hjá Grágás í Keflavík. í>ar ræðir Hilmar Jóns- son bókavörður við frænda sinn Runólf Pétursson, lífs og liðinn. Hilmar Jónsson, bókavörður í Keflavík, hefur skrifað þrjár rit- gerðabækur og eina skáldsögu. Um eina þeirra skrifaði Guðmundur G. Hagalín: „Oft er mál hans þrungið réttlátri reiði og auðfund ið, að hann skortir ekki djörfung eða er að hugsa um að gera þess- um ec/a hinum til hæfis“, segir á bókarkápu. Þar segir ennfremur: „Er ekki hver einstaklingur heimur út af fyrir sig? Hér segir frá ungum manni, leit hans að tilgangi í líf- inu og kynnum af öðrum. Er í því sambandi einkum dregin upp mynd af frænda hans, Runólfi. Frásögnin er mjög fiörleaa skráð Er jöfnuim höndum fjallað um pólitík, bókmenntir og spíritisma. Þetta er bók, sem mun verða les- in og rædd.“ Áður útkomnar bækur Hilmars eru Nýjar hugvekjur 1955, Ris- mál 1964, ísraelsmenn og íslend- ingar 1965 og Foringjar falla 1967. KÓPAVOGUR Aðalfundur full trúarácís Fram- sóknarfélaganna í Kópavogi verð ur haldinn föstu daginn 4. des. n.k. að Neðstu- tröð 4. Fundur- inn hefst kl. 20.30. Jón Skafta son alþm. mætir á fundinum og ræðir viðhorfin fram að kosning- um. I Ath.: Breyttan fundardag. Hilmar Jónsson JÖLA- BINGÖ Hið árlega jólabingó Fram- sóknarfélags Reykjavíkur verð- ur að Hótel Sögu sunnudaginn 29. þessa mánaðar. Nánar verð- ur sagt frá bingóinu næstu daga.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.