Tíminn - 29.12.1970, Síða 13
. * f f I f
' J !
X»ItIÐJUI>AGUR 29. desember 1970.
ÍÞRÓTTiR
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
13
KSI (fllert) segir ÍBfi
•; ...
i iit
(Uffarí) stríð á hendur
KSÍ krefur ÍBR um endurgreiðslu á vallarleigu
Upphæðin nemur hálfri annarri milljón króna
Alf—Reykjavík, mánudag.
Enda þótt rólegt hafi verið S
íþróttaheiminum yfir jólahátfðina,
hafa íþróttaforustumenn ekki set
ið auðum höndum. Mikið deilu
mál hefur risið milli KSÍ og ÍBR
út af vaUarleigumáli og hefur
stjóm KSÍ nú sagt ÍBR hálfgert
stríð á hendur vegna þess. Hef
ur lögfræðingur KSÍ krafið ÍBR
um endurgreiðslu á vallarleigu,
sem KSÍ hefur innt af hendi til
ÍBR, s. 1. 10 ár og nemur upphæð
in hálfri annarri milljón króna.
framvindu þessa máls, sem er
allsérstætt. Vinni stjórn KSÍ
málið fyrir dómstólum, mun
hrikta í mör.gum stoðum, því að
þá er eins víst, að aðrir aðilar
en K9Í muni krefja ÍBR um
endurgreiðplu og myndu upphæð
irnar þá skfnta mörgum milljón
um króna, því að 9% gjaldiB hef
ur veirið innheimt í 'öðrum íþrótta
greinum, 1. d. í handknattleik.
Einnig yrðu héraðssambönd úti
á landshyggðinni, sem innheimt
hafa svipaðan „toll“ að endur-
greiða stórar fúlgur.
Eins og kunnugt er, þá er Al-
ALBERT ULFAR
— vill fá hálfa aSra milljón króna. — verður stjórn hans við kröfum
KSÍ?
bert Guðmundsson formaður Knatt I ar Þórðarson formaður
spyrnusambands fslands og Úlf-1 bandalags Reykjavíkur.
fþrótta-
Verði ÍÍBR ekki við þessari
kröfu KSÍ, er líklegt, að KSÍ
höffíi mál gegn ÍBR fyrir opin
berum dómstólum, en hingág til
hafa öll deilumál innan íþrótta
hreyfingarinnar verið útkljáð fyr-
ir dómstólum innan hreyfingarinn
ar sjálfrar.
í kröfubréfi því; sem lögfræð
ingur KSÍ sendi ÍBR rétt fyrir
jólin kemur fram, að stjórn KSI
álítur ÍBR ekki hafa neina laga
lega heimild til að innheimta
9% igjald af _ tekjum knattspyrnu
leikja, sem ÍBR hefur innheimt
á undanförnum árum. Segir í bréf
inu, að engir aðrir en eigendur
íþróttavallanna — í þessu til-
felli Reykjavíkurborg — hafi
heimild til að innheimta leigu-
gjöld, en gjald það, sem Reykja
víkurborg innheimtir, er 20% af
brúttótekjum.
Gjaldið, sem ÍBR innheimtir,
skiptist þannig, að 4% renna í
slysatryggimgasjióð íþróttamanna,
3% renna til knattspyrnufélaganna
í Reykjavík og 2% renna í fram
kvæmdasjóo1 ÍBR, samtals 9%.
Fróðlegt verður að fylgjast með
Nýir menn valdir til
æfinga með landsliðinu
Þrír menn settir út úr hópnum, en níu menn valdir í staðinn. Landsliðið æfir á hverjum degi
klp—Rej'kjavík.
Karlalandslið í handknattleik
æfir nú af fullum krafti fyrir
næstu landsleiki, en þeir verða
í lok janúar, er fsland mætir
silfurliðinu frá síðustu HM-
keppni, Austur-Þýzkalandi í
Laugardalshöllinni.
Æfingar lljðsins hófust á laug
ardaginn, en síðan vora tvær
æfingar á sunnudag þar af önn-
ur æfingaleikur við Val, sem
landsliðið sigraði með 9 mörk-
um. í þessari viku verður æft
á hverjum degi, nema á nýárs-
dag, og í janúarmánuði verða
1 til 2 æfingar í viku hverri.
Mikil breyting hefur orðið á
landsliðshópnum síðan í „frægð
arförinni" til Rússlands. Hafa
þrír menn úr hópnum, sem
þangað fór, verðið látnir hætta
að æfa með landsliðinu. Það
eru þeir Einar Magnússon, Vík
ing, Sturla Haraldsson, Hauk-
uim og Brynjólfur Markússon,
ÍR.
Af hinum 16 manna hóp, sem
þátt tók í leikjunum í Rúss-
landi, eru því eftir 13, en 9
mönnum hefur verið bætt við,
svo hópinn skipa nú 22 menn.
Þeir9, sem valdir hafa verið
til æfinga með landsliðinu, eru
þessir:
Ingólfur Óskarsson, Fram
Sigurður Einarsson, Fram
Ólafur Jónsson, Val
Sigurður Jóakimsson, Haukum
Stefán Sanholt, Val
Ólafur Benediktsson, Val
Sigurgeir Sigurðsson, Haukum
Hermann Gunnarsson, Val
Gsli Blöndal, KA.
Valið á hópnum er athyglis-
vert, sérstaklega þó valið á
þeim Ólafi Benediktssyni og
Sigurgeir Sigurðssyni, en þeir
eru báðir markverðir, ungir
menn með mikla markmanns-
hæfileika. Þá er ekki síður at-
hyglisvert valið á þeim Her-
manni Gunnarssyni og Gísla
Blöndal ,en þeir eru afburða-
menn í handknattleik — hvor
á sínu sviði.
Um hina er ekki miklð að
segja, nema að sjálfsagt er aS
þeir séu í hópnum, og gaman
er að vita af Sigurður Einars-
syni þar aftur.
Ekld vitum við ástæðuna
fyrir því að þeim Einari, Sturlu
og Brynjólfi var „fórnað“, en
eftir því sem við höfum fréit
af þessari umtöluðu Rússlands-
ferð, hefði eins mátt „fóma“
öðrum, og þar á meðal mörg-
um þekktum mönnum.
Fyrir utan þá menn, sem á
undan eru nefndir, eru þessir
í landsliðshópnum: Geir Hall-
steinsson, Öm Hallsteinsson,
Birgir Finnbogason, Hjalti Ein-
arsson, Jón Hjaltalín, Sigur-
bergur Sigsteinsson, Bjarni
Jónsson, Gunnsteinu Skúlason,
Ágúst Svavarsson, Emil Karls-
son, Viðar Símonarson, Stefán
Jónsson og Hörður Kristinsson.
Skúlagötu 61, sírhi 16770.
ENSK SÍRENNUBLYS — SÓLIR — HVELLELDAR ® STÓR OG LÍTIL STJÖRNULJÓS
o
iy
★ FLUGELDAR
Vönduð vara
★ SÖLIR
O
o
Bæjarins bezta úrval ^ BLYS Næg bílastæði
Skipaflugeldar * Skrautflugeldar * Neyðarblys * Vaxblys, sem loga í IV2 tíma * Næg bílastæði
.rmte-