Morgunblaðið - 22.12.2005, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
AÐSTAÐA til vegabréfaeftirlits og
tollskoðunar í Seyðisfjarðarhöfn og á
Egilsstaðaflugvelli er algjörlega ófull-
nægjandi, samkvæmt nýrri skýrslu
sem Ástríður Grímsdóttir, settur
sýslumaður á Seyðisfirði, hefur látið
vinna. Á flugvellinum fá brottfararf-
arþegar farangur sinn í hendur eftir
að vopnaleit hefur farið fram og geta
auðveldlega fært muni úr ferðatösk-
um og sett í handfarangur. Ástríður
segir að þetta sé falskt öryggi og að
flugvöllurinn myndi aldrei standast
skoðun Schengen-nefndarinnar sem
hefur eftirlit með millilandaflugvöll-
um innan Schengen-svæðisins.
Ástríður var sett sem sýslumaður á
Seyðisfirði 15. október sl. til 1. maí nk.
en hún var áður sýslumaður á Ólafs-
firði. Meðal hennar fyrstu verka var
að biðja um fyrrnefnda skýrslu sem
dómsmálaráðherra mun brátt fá í
hendur.
Um ástandið í Seyðisfjarðarhöfn
segir Ástríður að þar séu hvorki
gegnumlýsingartæki fyrir tollskoðun
né tæki til að rannsaka hvort vega-
bréf séu fölsuð. Aðstaða til tollleitar í
farangri sé auk þess afar bágborin og
t.a.m. sé ómögulegt að vísa farþegum
til hliðar meðan leitað er í farangri
þeirra og því þurfi leit að fara fram
fyrir allra augum.
Nýtt hús til tollleitar, m.a. með að-
stöðu til leitar í bifreiðum, var tekið í
notkun árið 2003 en Ástríður segir að
húsið sé of lítið. Í húsinu sé aðeins
hægt að leita í fólksbílum og nánast
óbreyttum jeppum en húsbílar, sem
eru verulegur hluti þeirra bíla sem
koma til Seyðisfjarðar með ferjunni
Norrænu, komist þar ekki fyrir. Því
verði að leita í húsbílum utandyra og
þar með sé slík leit illgerleg enda
þurfi við tollleit að færa farangur út
úr bílunum meðan leitað er í þeim.
Smyglarar vita um ástandið
Norræna siglir reglulega til Seyð-
isfjarðar og í ár hafa 13–14.000 far-
þegar komið með ferjunni frá útlönd-
um, að sögn Ástríðar. Vegna
ferjuumferðarinnar er talin mikil
hætta á smygli um höfnina m.a. vegna
þess að mun auðveldara er fyrir
smyglara að fela hluti og fíkniefni í
farangri og í bifreiðum heldur en að
smygla í vörugámum. Ástríður segir
ekkert vafamál að miklu sé smyglað
um Seyðisfjarðarhöfn og rökstuddur
grunur sé um fíkniefnasmygl. Bendir
hún á að í sumar hafi fundist um 4 kíló
af metafmetamíni sem hafði verið
kirfilega falið í bifreið. Fleiri staðfest
dæmi eru um að fíkniefnum hafi verið
smyglað með þessum hætti. „Þeir
sem ætla sér að smygla inn í landið
þeir kanna möguleikana og þeir vita
nákvæmlega hvernig ástandið er
hér.“
Geta tekið skæri um borð
Varðandi Egilsstaðaflugvöll segir
Ástríður að þar séu hvorki tæki né
fullnægjandi aðstaða til vegabréfa-
skoðunar. Starfsmenn hafi ekki að-
gang að tækjabúnaði til að greina
hvort vegabréf séu fölsuð en falsarar
hafi fyrir löngu náð því að falsa vega-
bréf þannig að ekki sjáist munur með
berum augum. Þurfi að gera líkams-
leit á farþegum fari hún fram á kaffi-
stofu starfsmanna og sé einhver í
kaffi þegar slík leit þurfi að fara fram
sé sá hinn sami rekinn út á meðan.
Á flugvellinum eru tæki til vopna-
leitar, bæði leitarhlið og gegnumlýs-
ingartæki fyrir farangur. Ástríður
segir að búnaðurinn veiti falskt ör-
yggi þar sem farþegar fái farangur
sinn aftur í hendur áður en þeir láta
hann af hendi við innritunarborð. Inn-
ritunarsalurinn sé þröngur og því
hægðarleikur fyrir farþega að færa
muni úr farangri sem á að fara í far-
angurslest flugvélarinnar yfir í hand-
farangur. Þeir sem vilji t.d. taka
skæri með sér um borð geti það auð-
veldlega. Þá fylgist engar öryggis-
myndavélar með farþegum.
Egilsstaðaflugvöllur er varaflug-
völlur fyrir Keflavíkurflugvöll, þaðan
er vikulegt flug til Danmerkur og í
febrúar mun hefjast beint flug til Pól-
lands og verður flogið tvisvar í viku.
Ástríður segir brýnt að embættið fái
nauðsynlegan tækjabúnað áður en
Póllandsflugið hefjist og einnig verði
að bæta við búnaði við höfnina áður
en áætlun Norrænu breytist og hún
byrjar að hafa viðkomu á Hjaltlandi.
Ástríður segir að samkvæmt tolla-
lögum beri flutningsfyrirtækjum að
útvega fullnægjandi húsnæði fyrir
tollgæslu. Næsta skref sé að hefja
viðræður við þau um úrbætur á hús-
næðismálum.
Ófullnægjandi aðstaða til tollleitar og vegabréfaskoðunar á Austurlandi
Vopnaleitarbúnaður veitir
aðeins falskt öryggi
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
KNATTSPYRNUSAMBAND Ís-
lands og menntamálaráðuneytið und-
irrituðu í gær samning um 200 millj-
óna króna styrk ríkisins til
uppbyggingar aðstöðu áhorfenda á
Laugardalsvelli. Nýlega hófust fram-
kvæmdir á Laugardalsvelli og hefur
KSÍ þegar undirritað samning við
Reykjavíkurborg þess efnis að borgin
leggi til 398 milljónir króna á næstu
þremur árum til viðhalds og endur-
bóta á eldri mannvirkjum í eigu borg-
arinnar við völlinn. KSÍ mun síðan
leggja til 440 milljónir vegna bygg-
ingar kennslu- og fræðslumiðstöðvar
og skrifstofuhúsnæðis fyrir knatt-
spyrnuhreyfinguna.
Áætlaður heildarkostnaður við
framkvæmdirnar er allt að 1.200
milljónir króna og undirritaði KSÍ
einnig verksamning í gær við Ístak
um framkvæmdirnar en Ístak átti
lægsta tilboð í verkið.
Erlendur stuðningur
mikilvægur
„Þessi samningur við ríkið gerir
það að verkum að við getum hafist
handa við þessar framkvæmdir sem
ég tel mjög brýnar til þess að skapa
knattspyrnunni á Íslandi sambæri-
lega aðstöðu og er í öllum löndum í
kringum okkur,“ sagði Eggert Magn-
ússon, formaður KSÍ, við undirrit-
unina. Eggert sagði að menntamála-
ráðherra hefði beitt sér fyrir því í
ríkisstjórn að settar yrðu 200 millj-
ónir í þessa uppbyggingu þegar ljóst
var að möguleiki væri á fjárstuðningi
frá Knattspyrnusambandi Evrópu,
UEFA, og Alþjóðaknattspyrnusam-
bandinu, FIFA, en þessir aðilar munu
leggja til 3–400 milljónir.
Þakkaði hann ráðherra fyrir að
hafa skilið hvað í húfi væri og fyrir að
hafa beitt sér í þessu máli.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
ráðherra íþróttamála, sagði að ekki
hefði verið hægt annað en fara í þetta
samstarf með KSÍ þegar tækifæri
gafst til að fá töluvert mikla erlenda
fjármuni til framkvæmdanna. „Það
hefur verið ánægjulegt fyrir mig og
mína í ráðuneytinu að eiga í samstarfi
við KSÍ, þið eruð með metnaðarfulla
en markvissa og raunhæfa áætlun um
uppbyggingu knattspyrnunnar hér á
landi og það er ánægjulegt fyrir rík-
isvaldið að eiga þátt í því að reyna að
stuðla að enn frekari eflingu þessarar
skemmtilegu íþróttar,“ sagði Þor-
gerður Katrín.
Mun rúma 10.000 manns í sæti
Stúkan verður lengd til norðurs og
suðurs auk þess sem hún verður
byggð fram niður að hlaupabraut og
nýtt þak verður byggt yfir alla stúk-
una. Fullgerð mun stúkan rúma um
6.500 sæti og völlurinn alls um 10.000
manns í sæti. Við stúkuna, til vesturs,
mun rísa ný bygging sem hýsir skrif-
stofur KSÍ og fræðslusetur. Þessi
bygging verður einnig þjónustubygg-
ing fyrir stúkuna og leikvanginn í
heild.
Stefnt er að því að klára stækkun
stúkunnar fyrir fyrsta leik að vori en
öllum framkvæmdum á að vera lokið í
ágúst eða september á næsta ári.
Endurbættur Laugardalsvöllur mun líta svona út. Aðkoma verður að framanverðu en hún var áður til hægri.
Styrkur upp á 200 millj-
ónir til uppbyggingar
Morgunblaðið/Kristinn
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Eggert Magn-
ússon, formaður Knattspyrnusambands Íslands, undirrita samning sín á
milli. Loftur Árnason, framkvæmdastjóri Ístaks, fylgist með.
Eftir Sigurhönnu Kristinsdóttur
sigurhanna@mbl.is
GAT kom á heitavatnsæð við
dælustöð í Stekkjarbakka í
Reykjavík í fyrradag vegna vatns-
tæringar úr umhverfinu. Vart
varð við bilunina síðdegis á þriðju-
dag og var unnið að viðgerð að-
faranótt miðvikudags. Sökum
þessa voru rúmlega þrjátíu þúsund
íbúar á svæðinu frá Vesturbergi
að Stekkjarbakka án heitavatns í
samtals níu klukkustundir í fyrri-
nótt.
Samkvæmt upplýsingum frá
Orkuveitu Reykjavíkur tók við-
gerðin sjálf tiltölulega skamman
tíma, en mestur tíminn fór í að
tæma vatnslögnina. Loka þurfti
fyrir vatn frá Vesturbergi að
Stekkjarbakka og losa vel á annað
hundruð tonn af vatni úr lögninni
áður en hægt var að komast að
pípunni til viðgerða. Lögnin er 40
sentimetra breið og hluti af um 2
þúsund kílómetra lagnakerfi hita-
veitunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Gat kom á
heitavatnsæð
RÚMLEGA tvítugur karlmaður var
í gær dæmdur í fjögurra mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir að
stinga annan mann með hnífi ofar-
lega í utanvert læri þar sem þeir voru
staddir á skemmtistað í miðbæ
Reykjavíkur. Einnig var hann
dæmdur til að greiða 150.000 krónur
í miskabætur.
Maðurinn játaði sakargiftir en
sagðist hafa dregið upp hnífinn eftir
að hafa fengið höfuðhögg og hann
hafi því verið að verjast árás. Þessu
hafnaði dómurinn og benti á að hann
var á leið út af staðnum í fylgd dyra-
varða og að engin rök stæðu til þess
að líta á hnífaárásina sem neyðar-
vörn.
Við ákvörðun refsingar var litið til
þess að maðurinn hafði ekki áður
brotið gegn hegningarlögum og að
áverkinn sem hann veitti var grunn-
ur. Á hinn bóginn var litið til þess að
hnífurinn hafði 11 sentimetra langt
blað og að við beitingu slíkra vopna
getur verið tilviljunum háð hvaða
áverkar hljótast af. Haldi maðurinn
skilorð í þrjú ár fellur refsingin niður.
Ingveldur Einarsdóttir kvað upp
dóminn. Katrín Hilmarsdóttir sótti
málið af hálfu ákæruvalds en Hilmar
Ingimundarson hrl. var til varnar.
Skilorðsbundið fangelsi
fyrir hnífstungu
LAUNAVÍSITALA nóvembermán-
aðar hækkaði um 0,6% milli mán-
aða og hefur síðustu tólf mánuði
hækkað um 7,3%. Þessi tólf mánaða
hækkun er tvöfalt meiri en í mán-
uðunum þar á undan þegar hækk-
unin milli mánaða var 0,3%. Tólf
mánaða hækkun vísitölunnar hefur
verið yfir 6% allt þetta ár.
Launavísitala
hækkaði um 7,3%