Morgunblaðið - 22.12.2005, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2005 15
FRÉTTIR
fiEIR SEM TAKA
KB ÍBÚ‹ALÁN Í DAG
GREI‹A SÖMU VEXTI
NÆSTU 40 ÁRIN
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
– kraftur til flín!
Kynntu flér máli› í næsta útibúi, á kbbanki.is e›a í síma 444 7000.
MAGNÚS Kristinsson, sem er nýr
eigandi Toyota- og Lexus-
umboðsins á Íslandi, afhenti kl.
13.44 í gær 4.544. nýja Toyota-
bílinn sem seldur er á þessu ári.
Talan 44 hefur verið sérstök
happatala Magnúsar Krist-
inssonar og fjölskyldu hans. Ekki
spillti fyrir að Björgvin Njáll Ing-
ólfsson, deildarstjóri hjá P. Sam-
úelssyni hf., sem var Magnúsi
Kristinssyni til fulltingis við af-
hendinguna, fagnaði 44 ára af-
mæli í gær.
Um var að ræða bíl af gerðinni
Toyota Avensis Sedan sem hjónin
Björn Jóhannsson og Guðrún F.
Heiðarsdóttir keyptu. Af þessu
tilefni fengu þau blómvönd og
gjafabréf upp á flugferð fyrir tvo
til Evrópu.
Talan 44 hefur lengi fært
Magnúsi og fjölskyldu hans gæfu
og má geta þess að bátur föður
hans, Bergur, bar skráning-
arnúmerið VE 44. Magnús sagði
að þegar hann kom til starfa hjá
fyrirtæki föður síns um 1970 hafi
fyrirrennari hans þar verið byrj-
aður að „44-væða“ félagið. „Fyr-
irrennari minn, sem var móð-
urbróðir minn og vann á
skrifstofu fjölskyldufyrirtækisins,
reyndi að koma tölunni 44 fyrir
alls staðar þar sem hægt var að
velja. Forsaga þessa er kannski
sú að langafi minn gerði út skútu
frá Hafnarfirði, Surprise GK 4,
og þaðan kemur talan fjórir inn í
fjölskylduna. Ég hef haldið þessu
merki hátt á loft síðan,“ sagði
Magnús. Hann sagði einnig að
ætti hann val yrði talan 44 fyrir
valinu. Þannig birtist talan 44 í
nöfnum og númerum á borð við
símanúmer fyrirtækja hans. Eitt
fyrirtækja hans heitir t.d. MK44.
Magnús kvaðst vera stoltur af
því að fá að taka þátt í að af-
henda 4.544. nýja Toyota-bílinn
kl. 13.44 á fyrsta heila deginum
sem Toyota-umboðið, P. Sam-
úelsson, var í eigu hans. Honum
þótti ekki verra að Björgvin Njáll
skyldi eiga 44 ára afmæli sama
dag.
Toyota-bíll nr. 4.544 afhentur kl. 13.44
Morgunblaðið/Kristinn
4.544. Toyota-bíll ársins var afhentur kl. 13.44 í gær. F.v.: Björgvin Njáll
Ingólfsson, deildarstjóri hjá P. Samúelssyni hf., Björn Jóhannsson og Guð-
rún F. Heiðarsdóttir, og Magnús Kristinsson, nýr eigandi umboðsins.
Talan
44 er
happatala
♦♦♦
SÓLVEIG Pálsdóttir, framhalds-
skólakennari og leikkona, gefur kost
á sér í annað sæti á lista Sjálfstæð-
isflokksins á Seltjarnarnesi fyrir
bæjarstjórnar-
kosningarnar
næsta vor. Próf-
kjörið fer fram 4.
febrúar næst-
komandi.
Í fréttatilkynn-
ingu kemur fram
að helstu áherslu-
atriði hennar séu
áframhaldandi
sterk fjármálastjórnun án skatta-
hækkana, hvatapeningar til eflingar
íþrótta- og æskulýðsmála og list-
rænnar þátttöku barna frá 6–16 ára,
mótun heildstæðrar menningar- og
safnastefnu, bætt aðstaða fyrir fé-
lagsstarf unglinga og fyrir almennt
tómstundastarf eldri jafnt sem
yngri íbúa Seltjarnarness ásamt
frekari eflingu miðbæjarkjarnans á
Eiðistorgi. Sólveig hefur verið for-
maður menningarnefndar Seltjarn-
arness og varabæjarfulltrúi frá
árinu 2002.
Sólveig Páls-
dóttir gefur
kost á sér í
annað sæti