Morgunblaðið - 22.12.2005, Qupperneq 24
24 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
HJALTI Jón Sveinsson skólameistari Verk-
menntaskólans á Akureyri hefur ákveðið að
gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
fyrir bæjarstjórnarkosningar á Akureyri næsta
vor, en prófkjörið verður í febrúar á næsta ári.
Hjalti Jón telur að nú sé tækifæri til að taka
þátt í stjórnmálum á vettvangi bæjarstjórnar.
Hann telur mikilvægt að styrkja Akureyri
sem skólabæ í víðasta skilningi þess orðs, þ.e.
öll skólastig frá leikskóla upp í háskóla. Búa
megi betur að skólunum og nauðsynlegt sé nú
að styðja betur við bakið á ungu fólki. Þá þurfi
að gera Akureyri að eftirsóknarverðum valkosti
varðandi búsetu fyrir ungt fólk, gera hann
meira aðlaðandi fyrir ungt
fólk sem læra vill í bænum,
búa þar og ala upp sín börn.
Þá verði jafnframt grund-
völlur tryggður fyrir fjölgun
íbúa og eflingu fjölbreytts
atvinnulífs.
Hjalti Jón sækist eftir ein-
hverju af fjórum fyrstu sæt-
um listans og er reiðubúinn
að styðja Kristján Þór Júl-
íusson bæjarstjóra, fari hann
fram á ný við bæjarstjórnarkosningar næsta
vor.
Hjalti Jón hefur metnað fyrir hönd skólanna í
bænum og unga fólksins sem stundar í þeim
nám og telur sig hafa talsvert til málanna að
leggja í þeim efnum. Efla þarf forvarnir og
herða eftirlit varðandi áfengis- og vímuefna-
neyslu ungmenna.
Þá telur Hjalti Jón að skynsamlegt sé að
koma á öflugum almenningssamgöngum í Eyja-
firði, slíkt sé ekki fullreynt, en þannig gætu
ungmenni á því svæði sótt skóla til Akureyrar
að morgni og komist heim að kvöldi.
Þá vill hann að gerð Vaðlaheiðaganga verði
flýtt sem kostur og er sáttur við að stóriðja rísi
við Skjálfanda.
Hjalti Jón Sveinsson
Hjalti Jón Sveinsson skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri
Tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokks
VEGNA gríðarlegrar eftirspurnar
eftir miðum á Fullkomið brúðkaup
og fjölda áskorana hefur seinni
hluti leikársins 2005–2006 hjá LA
verið endurskipulagður og stokk-
aður upp. Ákveðið hefur verið að
halda áfram sýningum á Fullkomnu
brúðkaupi í janúar og febrúar. Til
að gera þessa breytingu mögulega
þarf að fresta frumsýningu á söng-
leiknum Litla hryllingsbúðin en
hún verður frumsýnd 23. mars.
Frumsýningu á Maríubjöllunni er á
hinn bóginn flýtt til 17. febrúar en
sú sýning verður frumsýnd í nýju
leikrými sem LA tekur í notkun og
getur því gengið samhliða sýn-
ingum á Fullkomnu brúðkaupi.
Sýningum á Fullkomnu brúð-
kaupi átti að ljúka um áramótin en
troðfullt hefur verið á allar sýn-
ingar og aukasýningar sem bætt
hefur verið við hafa allar selst upp
jafnóðum. Sýningin hefur verið
sýnd allt að fimm sinnum í viku
hverri en ekkert lát er á aðsókn.
Aukasýningarnar á Fullkomið
brúðkaup í janúar og febrúar voru
settar í sölu í gær. Forsala á Mar-
íubjölluna hefst 25. janúar en for-
sala á Litlu hryllingsbúðina hefst
20. febrúar. Miðasala er opin alla
virka daga frá kl. 13–17 og allan
sólarhringinn á netinu.
Áfram sýn-
ingar á Full-
komnu
brúðkaupi
SKIPVERJAR á fjölveiðiskipinu
Þorsteini ÞH frá Þórshöfn hafa
verið í loðnufrystingu um borð í
skipi sínu á Eyjafirði síðustu daga.
Að sögn Harðar Más Guðmunds-
sonar, skipstjóra á Þorsteini, var
skipið með um 350 tonn af loðnu
sem fékkst í tveimur hölum í flott-
roll um 50 mílur norður af Langa-
nesi. Aðspurður sagði Hörður að
lítið hefði sést af loðnu á svæðinu
en þó hefði gengið vel að ná þess-
um afla. „Þetta er þessi leitarkvóti
sem skipin hafa verið að veiða,“
sagði Hörður en bætti við að óvissa
væri um framhald loðnuveiðanna.
Hann sagði að ef gefinn yrði út
loðnukvóti í byrjun næsta árs yrði
haldið strax til veiða.
Þorsteinn ÞH hélt til veiða þann
17. desember sl. en skipið hafði þá
verið á veiðum frá 8. september
vegna bilunar. Skipið fékk í skrúf-
una í Smugunni með þeim afleið-
ingum að gírinn brotnaði. Viðgerð
fór fram í Slippnum á Akureyri.
„Hér virkar allt vel og aldrei geng-
ið betur.“
Loðnufrysting um borð
Morgunblaðið/Kristján
Loðnufrysting Fjölveiðiskipið Þorsteinn ÞH er hér á siglingu á Eyjafirði í
gær en um borð unnu skipverjar við að frysta loðnu.
Þorsteinn ÞH kominn til veiða á ný
Friðarljós | Friðarljós verða seld úr
bíl sem verður í göngugötunni í
Hafnarstræti á Þorláksmessu frá kl.
11 til 23 og einnig verður tekið við
framlögum til Hjálparstarfs kirkj-
unnar. Friðarljósin verða einnig seld
við Kirkjugarðinn á Akureyri á að-
fangadag.
FORMLEG vígsla
snjóframleiðslukerf-
isins í Hlíðarfjalli fór
fram um síðustu
helgi en fresta varð
vígslunni um viku
vegna óhagstæðs
veðurs. Snjófram-
leiðsla hófst í Hlíð-
arfjalli um miðjan
nóvember og hefur
gengið vel. Það var
Vetraríþrótta-
miðstöð Íslands stóð
að framkvæmdinni
og afhenti Þórarinn
B. Jónsson, formaður stjórnar VMÍ,
þeim Kristjáni Þór Júlíussyni bæj-
arstjóra og Birni Snæbjörnssyni,
formanni íþrótta- og tómstundaráðs,
snjóframleiðslubúnaðinn til afnota
að viðstöddu fjölmenni.
Snjóframleiðslan byggist á að
vatni er dælt undir þrýstingi að
snjóbyssum sem þeyta vatninu upp í
loft þar sem það kristallast og fellur
til jarðar sem snjór. Til að hægt sé
að framleiða snjó þarf lofthiti að
vera undir frostmarki. Í fyrsta
áfanga voru keyptar 7 snjóbyssur til
framleiðslunnar en þær eru færðar á
milli 30 tengistúta í fjallinu með
snjótroðara. Hver byssa getur fram-
leitt úr allt að 600 lítrum af vatni á
mínútu.
Morgunblaðið/Kristján
Vígsla Gestir við vígslu snjóframleiðslukerfisins í
Hlíðarfjalli standa framan við eina snjóvélina.
Snjóframleiðslukerfið
vígt formlega
Álftanes | Fulltrúar íbúasamtakanna
Betri byggðar á Álftanesi afhentu í
gær Guðmundi G. Gunnarssyni bæj-
arstjóra undirskriftir frá um 700 íbú-
um bæjarfélagsins sem mótmæla til-
lögu að deiliskipulagi miðsvæðis sem
bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum
8. nóvember sl.
Í yfirlýsingu frá samtökunum segir
að tillagan uppfylli ekki væntingar
undirritaðra til miðbæjar- og þjón-
ustuhverfis varðandi legu gatna og
göngustíga, stærð og staðsetningu
bygginga. Jafnframt er farið fram á
að skipulagið verði tekið upp að nýju,
efnt verði til hönnunarsamkeppni og
íbúar fái sjálfir að kjósa á milli til-
lagna. Með þessu telja samtökin að
vilji íbúa nái fram að ganga en að öðr-
um kosti verði undirliggjandi
óánægja ríkjandi með starfandi bæj-
aryfirvöld.
Á Álftanesi búa um 2.200 manns og
segja fulltrúar Betri byggðar að íbúar
sætti sig ekki við þá tillögu sem sam-
þykkt hefur verið af meirihluta bæj-
arstjórnar.
„Það náðist ótrúlega góður árangur
í undirskriftasöfnuninni og 75% að-
spurðra skrifuðu undir áskorunina til
bæjaryfirvalda,“ segir Kristinn Guð-
mundsson hjá íbúasamtökunum Betri
byggð. „Það var greinilegt á máli bæj-
arbúa að þeir treysta ekki núverandi
meirihluta fyrir frekari framkvæmd-
um og þess skal einnig getið að þetta
er í annað skipti á þessu ári sem bæj-
aryfirvöldum eru afhent mótmæli
75% íbúa,“ sagði Kristinn og vísar til
þess að snemma á árinu voru þáver-
andi bæjarstjóra afhentar um 500
undirskriftir ósáttra íbúa.
Engin efnisleg átök
Guðmundur Gunnarsson, bæjar-
stjóri Álftaness, tók við undirskrift-
unum og mun færa skipulagsnefnd
þær á fundi næstkomandi miðviku-
dag. Í samtali við Morgunblaðið sagð-
ist Guðmundur ekki hafa fundið fyrir
almennri óánægju en frekar fengið
hvatningu frá íbúum. Hann segir
vinnuferlið við deiliskipulag miðsvæð-
isins hafa verið heiðarlegt og vel
kynnt en viðurkennir að staðan sem
upp er komin sé vissulega nokkuð
skrítin. Engin efnisleg átök séu um
málið, gagnrýnin sé huglæg og við
það sé erfitt að glíma. „Við fengum
heimild Skipulagsstofnunar til að
auglýsa skipulagið og þar með segja
þeir að ferlið sé gott og í lagi,“ segir
Guðmundur og bætir við að ekki komi
til greina af hans hálfu að taka skipu-
lagið aftur upp og efna til hugmynda-
samkeppni. „Það er allt of mikið í húfi.
Bæjarfélagið hefur eignast stóran
hluta af miðsvæðinu og lóðum fyrir
allt að 80 íbúðum verður úthlutað um
leið og skipulagið verður formlega
staðfest. Einnig fáum við hjúkrunar-
heimilið Eir sem samstarfsaðila í
stórt og skemmtilegt verkefni fyrir
eldri borgara á nesinu og mér dettur
ekki til hugar að leggja það til að
þessum stóru málum íbúa sé offrað.“
Íbúar á Álftanesi óánægðir með skipulag miðbæjarkjarna
Vilja fleiri valkosti og
kosningu milli þeirra
Morgunblaðið/Guðmundur Böðvarsson
Afhent Kristín Bergþórsdóttir, fulltrúi Betri byggðar, afhendir Guðmundi
Gunnarssyni bæjarstjóra undirskriftarlista með nöfnum um 700 íbúa.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
JÓLASKEMMTUN var í Öskjuhlíð-
arskóla sl. þriðjudag. Kertasníkir
kom í heimsókn og gengið var í
kringum jólatréð og sungið. Nem-
endur skólans voru með ýmis
skemmtiatriði m.a. flutti 8. bekkur
helgileik sem fjallaði um jóla-
guðspjallið. Helgileikur hefur verið
sýndur á jólaskemmtuninni á
hverju ári allt frá stofnun skólans
1975 og er yfir 30 ára hefð á því að
sýna helgileikinn.
Jólaskemmtun
í Öskjuhlíðarskóla
Laugardalur | Öldungaráð Frjáls-
íþróttasambands Íslands hefur gert
samkomulag við FÍRR um æfinga-
tíma í Laugardalshöll á miðvikudög-
um og föstudögum frá kl. 18–22. Allir
sem eru 35 ára og eldri, skokkarar,
skokkhópar, núverandi eða fyrrver-
andi iðkendur í frjálsum íþróttum
geta nýtt sér þessa aðstöðu.
Um er að ræða aðgang að hlaupa-
brautum, 200 m. hring, kastaðstöðu
og kastáhöldum, langstökksaðstöðu,
hástökksaðstöðu og stangarstökks-
aðstöðu. Mjög góð lyftingaaðstaða er
nú komin í Höllina og á hún eftir að
batna enn frekar, en aðgangur að
henni er einnig innifalinn í sam-
komulaginu.
Lámarksgjald er tekið fyrir að-
stöðu en ef menn vilja æfa undir til-
sjón þjálfara er mögulegt að semja
um það.
Öldungar æfa frjálsar
íþróttir í Laugardal