Morgunblaðið - 22.12.2005, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
E
lmar Diego, eigandi Fiskbúð-
arinnar Vegamót á Seltjarnar-
nesi, segir skötusöluna hjá sér
hafa verið góða það sem af er og
að hún fari ört vaxandi eftir því
sem nær dregur Þorláksmessu, en þá nær sal-
an hámarki. „Það er hægt að fá nokkrar teg-
undir af skötu. Það er þó aðallega venjulega
stórskatan og tindabikkjan, svo er mikið af
fólki sem kaupir saltfisk fyrir Þorláksmessu,“
segir Elmar.
Það er hægt að fá skötuna miskæsta. Elmar
segir vinsælast að kaupa millikæsta og svo séu
sumir sem vilji fá mjög sterka skötu. Hann
segir mikla aukningu hafa verið undanfarin ár
í skötusölunni og það borði hana alls konar
fólk, ekki bara eldra fólkið. „Vestfirðingarnir
vilja yfirleitt tindabikkjuna, þeir eru vanari
henni. Hún er minni og yfirleitt mjög sterk,“
segir Elmar sem er sjálfur Vestfirðingur.
Elmar verkar skötuna sem hann selur sjálf-
ur. „Flestir sem verka skötu eru að safna henni
yfir allt árið og frysta. Um sex til tíu vikum fyr-
ir Þorláksmessu er hún tekin úr frosti og látin
þiðna, standandi í körum, svo það leki af henni
vökvinn. Hún er látin standa í kerinu þennan
tíma og snúið reglulega. Skatan úldnar ekki
svo lengi sem hún liggur ekki í miklum vökva,
hún kæsist bara. Það eru engin efni notuð við
verkunina,“ segir Elmar og neitar þeim sögu-
sögnum að það sé migið á skötuna við verkun.
Skatan er soðin í tíu til fimmtán mínútur.
„Best er að sjóða vatnið fyrst og setja skötuna
svo ofan í. Yfir suðutímann er gott að fleyta
froðuna, sem kemur á vatnsyfirboðið, af. Sum-
ir vilja skipta um vatn til helminga í miðri suðu
og láta suðuna koma upp aftur.“ Elmar segir
skötuna yfirleitt nætursaltaða, fyrir utan
tindabikkju, svo það þarf ekki að salta í pott-
inn. „Meðlætið er vestfirski hnoðmörinn og
hamsatólg sem er hægt að kaupa hjá mér líka.
Svo eru kartöflur, smjör og rófur gott með.“
Elmar eldar sjálfur skötu á Þorláksmessu
og segir hana lostæti.
Eitt kílógramm af skötu hjá Vegamótum
kostar 895 og 995 kr.
Skatan selst vel á Siglufirði
Hjá Eysteini Aðalsteinssyni hjá Fiskbúð
Siglufjarðar kostar kílógrammið af skötunni
frá 800 til 1.100 kr.
Hann hefur rekið fiskbúðina í tæp þrjátíu ár
og segir skötusöluna ganga ágætlega. „Hún
eykst ár frá ári, yngra fólkið er farið að borða
meira af þessu en var áður fyrr. “
Eysteinn verkar ekki skötuna sjálfur. Hann
er með mjög sterka tindabikkju að vestan, frá
Hnífsdal, og stóra skötu sem er kæst og söltuð
frá Ólafsfirði. „Það er mjög vel látið af þessari
skötu. Ég er búin að smakka hana í ár og hún
er prýðilega góð.“ Eysteinn hefur borðað
skötu frá unglingsárum og þykir hún best vel
kæst og söltuð. „Mér finnst hún full sterk ef
hún er bara kæst. Flestir vilja hafa hana að-
eins saltaða líka, þá tekur hún ekki eins rosa-
lega í.“
Í Hagkaupum í Kringlunni fæst skata í fisk-
borðinu, þar kostar kg. 998 kr. og segja þeir
söluna á henni hafa byrjað vel. Skatan þykir
nokkuð kæst í ár en hún kemur frá Furðu-
fiskum sem fá hana að vestan.
ÞORLÁKSMESSA | Margir borða skötuna með kartöflum, rúgbrauði og hnoðmör eða hamsatólg
Skötusala hefur
aukist undanfarin ár
Á morgun munu mörg heimili landsmanna vera undirlögð af
skötulykt. Sumum þykir skatan hið mesta lostæti á meðan öðr-
um finnst hún argasta óæti. Skötusalan hefur gengið ljómandi
vel undanfarna daga að sögn fisksala.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Elmar, eigandi Vegamóta, skellir nokkrum
vel völdum skötubitum á vigtina.
Steingrímur, starfsmaður Vegamóta, sker
skötuna í hæfilega stóra bita.
Ég frétti nú af Reykvíkingi semvar í sakleysi sínu að takabensín hérna niður frá, í
Bjarnabúð, og hann skildi ekkert í því
hvaða fnykur þetta var sem lá í loft-
inu,“ segir Guðfinna Jóhannsdóttir
sem á og rekur veitingastaðinn Klett-
inn í Reykholti í Biskupstungum.
Með þessum orðum lýsir hún lyktinni
á staðnum þegar skatan er elduð af
miklum móð á Klettinum á Þorláks-
messu. „Við erum með skötustöppu
sem er mjög vinsæl. Í stöppunni er
mikill hvítlaukur, smjör og kartöflur.
Þetta er allt stappað og sett inn í ofn.
Við erum með tindabikkju, venjulega
skötu, saltfisk og þetta er borið fram
með rófum og kartöflum og heima-
löguðu rúgbrauði sem við bökum í
hvernum hérna í Reykholti. Út á
þetta eru svo settir hamsar, smjör
eða venjuleg tólg.“
Það kemur margt fólk til Guðfinnu
á Þorláksmessu. „Sveitungarnir
koma frá 12 á hádegi og fram eftir
degi. Í fyrra komu yfir hundrað
manns.“ Guðfinna segir að skötu-
veislan sé orðin að hefð í sveitinni og
sífellt fleiri komi með hverju árinu, en
hún hefur verið með veitingastaðinn í
fimm ár.
„Sumir vilja bara saltfisk og eru að
kafna úr lyktinni, hún er ekkert geðs-
leg. Starfsfólkið geymir líka fötin sín
úti í bíl, úlpurnar og svoleiðis. Lyktin
festist náttúrlega svo rosalega í föt-
unum.“
Guðrún Hárlaugsdóttir sér um að
elda skötuna á Klettinum og gengur
hún almennt undir nafninu Gunna
skötustjóri.
Við fáum að lokum uppskriftina að
skötunni vinsælu. Tekið er fram í
upphafi að þegar fólk eldar skötu þarf
að hafa tilfinningarnar með í spilinu.
Tungnaskata
2 kg soðin og kæld skata
11⁄2 kg soðnar kartöflur
½ stk. brætt smjörstykki
2–3 pressuð hvítlauksrif
Allt þetta er stappað saman og á að
vera löðrandi í smjöri. Síðan er það
sett í eldfast mót og hitað í ofni.
Ágætt er að gera stöppuna daginn
áður svo að hún nái að „brjóta sig“.
REYKHOLT | Gunna skötustjóri sér um að Tungnamenn fái skötu
Hvítlaukur með skötunni
Það er jólalegt um að litast í sveitinni. Í veitingahúsinu Klettinum í Bisk-
upstungum er boðið upp á ærlega skötuveislu á Þorláksmessu.
Skatan getur orðið mjög stórog stærstu sköturnar sem
veiðst hafa eru yfir tveir metr-
ar á breidd, og um 3 metrar á
lengd. Gaddar skötunnar eru
nær eingöngu á hala hennar og
þeir stærstu eru í beinni röð
eftir miðju efra borði halans.
Skatan er breið og flatvaxin.
Eyruggarnir sem nefnast börð
eru mjög stórir og þess vegna
er hún svona breið. Utan um
egg skötunnar er hulstur sem
nefnist pétursskip.
Morgunblaðið/Ómar
Skatan