Morgunblaðið - 22.12.2005, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2005 29
DAGLEGT LÍF
Síðumúla 3, sími 553 7355.
Opið virka daga frá kl. 10-21, Þorláksmessu frá kl. 10-23 og aðfangadag frá kl. 10-13.
Gjöfin
hennar
• Undirföt
• Náttföt
• Náttkjólar
• Sloppar
• Gjafakort
Omega 3-6-9
FRÁ
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nr. 1 í Ameríku
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
Fjölómettaðar
fitusýrur
XE
IN
N
-S
N
05
12
00
2
Þú sérð öll jólatilboð
Smith & Norland
á heimasíðu okkar,
www.sminor.is.
Smelltu þar á
bæklinginn
Fyrir jólin
og skoðaðu 16
glæsilegar síður
sem eru fullar af
eigulegum hlutum
á góðu verði.
Um jólin er ljósagleði lands-manna í hámarki. Aldrei er sú
vísa of oft kveðin að varkárni skuli
viðhöfð þegar svo mikið er um alls
kyns ljós og kveikt er á kertum sem
aldrei fyrr.
Á vef Neytendastofu eru nokkur
góð ráð sem vert er að hafa í huga
þegar líður að jólum og er stiklað á
þeim helstu.
Látum aldrei loga á jólatrénu
yfir nótt eða þegar við erum að
heiman.
Hendum gömlum jólaljósum sem
eru úr sér gengin.
Notum ætíð ljósaperur af réttri
gerð, stærð og styrkleika.
Inniljós má aldrei nota utan-
dyra.
Látum logandi kerti aldrei
standa ofan á raftæki.
Góður siður er að skipta um
rafhlöður í reykskynjurum fyrir
hver jól.
JÓLALJÓS
Morgunblaðið/Jim Smart
Frekari leiðbeiningar hjá
Neytendastofu á www.neyt-
endastofa.is
Góð ráð fyrir jólin
Á Bretlandi er haldið upp ásjálf jólin hinn 25. desem-ber en margir fara í mið-
næturmessu að kvöldi þess 24. Þá
er búið að skreyta allt húsið með
jólavið, mistiltein, blómum og
grenikrönsum og að sjálfsögðu
setja upp jólatréð. Jóladagurinn
hefst með því að fólk tekur upp
pakkana og kíkir í sokkana sem
hanga við arininn eða á öðrum
góðum stað. Eftir það er farið að
huga að jólamatnum sem er oftast
boðið upp á milli tvö og fjögur.
Jólaknöllin fastur siður
Bretar setja alltaf jólaknöll á
hvern disk og þegar sest er að
borðum tekur hver einstaklingur í
endann á tveimur knöllum með
krosslagða handleggi fyrir framan
sig og togar í. Alls lags skemmti-
legheit eru inni í knöllunum, þar á
meðal mottó og hattar sem allir
setja á sig og hafa á kollinum með-
an snætt er. Jólamaturinn í Bret-
landi hefur verið fuglakjöt; kjúk-
lingur, gæs en þó aðallega
kalkúnn. Fylltur kalkúnn með ofn-
bökuðum kartöflum, rósakáli eða
öðru grænmeti og svo sósu fyrir
kjötið. Annar matur sem borðaður
er í kringum jólin í Bretlandi eru
„mince pies“ e.k. ávaxtabökur og
koníaks-, púrtvíns- eða viskílegar
jólakökur með ávöxtum í. En að-
almálið er jólabúðingurinn í eft-
irrétt.
Allir hræra í búðingnum
Það er mikil hefð í kring-
um jólabúðinginn og hafa
þeir meira að segja dag
sem heitir
„hrært-upp-
sunnudag-
ur“ sem
er síðasti
sunnudag-
urinn fyrir
aðventuna.
Þá koma allir í
fjölskyldunni saman
og hræra upp í búðingnum.
120 g sykraður ávaxtabörkur
120 g hveiti
120 g fersk hvít brauðmylsna
60 g möndluflögur
2 tsk sítrónusafi
rifinn börkur af 1 sítrónu
rifinn börkur af 1 appelsínu
5 egg, hrærð
1 tsk kanill
1 tsk sætt krydd (blanda af kanil,
kóríander, engifer, negul
og múskati)
1 tsk múskat
smásalt
150 ml koníak
Blandið saman öllum þurrefnum
í stóra skál og bætið svo við
koníakinu og eggjunum. Deigið
sett í hátt smurt kökumót (jafnvel
tvö) og bökunarpappír eða álpapp-
ír settur yfir og þétt vandlega að
mótinu með snæri.
Lykkja búin til á snærið svo
auðvelt sé að ná mótinu upp. Mótið
sett í stóran pott og sjóðandi vatni
hellt í 2⁄3 af pottinum. Lok sett yfir
og soðið í 5–6 klukkustundir og
vatni bætt í eftir þörfum. Þá er
mótið tekið upp úr og nýr bök-
unarpappír eða álpappír settur yf-
ir og bundið vel fyrir. Geymt í
kældum eldhússkáp fram
til jóladags.
Á jóladag er hægt að
skreyta búðinginn
með jólavið og rifs-
berjum og er búð-
ingurinn borinn
fram með rjóma,
hnetusósu, van-
illusósu eða kon-
íakssmjöri.
JÓLAHEFÐ
Breskur jólabúðingur
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
Stærðfræðileikur
fyrir börn
Tívolí Tölur er nýr
stærðfræðileikur
sem www. kennslu-
forrit.is gefur út.
Leikurinn er fyrir
börn á aldrinum fimm til átta ára
sem geta lært stærðfræði með því að
spila hann. Hægt er velja þyngd og
tegund verkefna í leiknum. Allur
texti og talað mál er á íslensku.
NÝTT
Húðvörur fyrir ungbörn
Cetus ehf. vill vekja at-
hygli á að Baby Naturals
ungbarnalína fæst nú aft-
ur á Íslandi. Þessar húð-
vörur innihalda verulegt
magn af kamilluolíu og
Aloe Vera og henta vel fyrir börn og
fullorðna. Vörurnar eru án litarefna,
eru ekki prófaðar á dýrum og henta
vel fyrir viðkvæma húð. Baby Nat-
urals línan samanstendur af átta
vörutegundum: Sérstaklega ber að
kynna höfuðolíuna sem segir í
fréttatilkynningu frá Cetus ehf. að
vinni vel gegn skán á höfði barna.
Hver einstaklingur verður að
hræra þar sem það á að boða
lukku og þegar þeir hræra óska
þeir sér um leið. Nauðsynlegt er
að hræra í búðingnum frá austri til
vesturs í minningu vitringanna og
samkvæmt hefðinni er búðingurinn
gerður úr 13 hráefnum sem tákn
fyrir Jesú og lærisveina hans. Oft
á tíðum er settur peningur í að
auki og merkir hann auðæfi fyrir
þann sem hlýtur hann.
Margar nútímafjölskyldur kaupa
búðinginn tilbúinn þar sem þeim
finnst of mikið mál að búa hann til
frá grunni. Það er þó gaman að
halda í hefðir og kannski vilja ein-
hverjir Íslendingar prófa nýja siði
því hér kemur því uppskrift að
breskum jólabúðingi.
Jólabúðingur
225 g hrásykur
225 g sykraðir ávextir
340 g ljósar rúsínur (sultanas)
340 g rúsínur
225 g rifsber
ein áskrift...
...mörg blöð