Morgunblaðið - 22.12.2005, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Munið að slökkva
á kertunum
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Kerti úr sama pakka geta brunnið
mismunandi hratt og á ólíkan hátt
MARGIR hafa gaman af því að
dúlla sér við að pakka inn jólagjöf-
unum. Morgunblaðið fékk snill-
ingana í Blómagalleríi Hagamel til
að koma með nokkrar hugmyndir
að fallegum jólapökkum sem allir
geta búið til.
Berta Heiðarsdóttir, blóma-
skreytir í Blómagalleríi, reyndist
mjög hjálpleg og hugmyndarík.
Hvítur einfaldur
pakki skreyttur
með slaufu. Svona
pakka er hægt að
skreyta á ýmsan
hátt, t.d. með
könglum, já, eða
bara því sem hug-
urinn býður.
Jólagjöfin er sett í fallegan gegn-
sæjan poka sem skreyttur er með
slaufu og lifandi hýasintu.
Utan á svartan pappírinn eru settar
furunálar sem síðan eru festar með
því að vefja vír utan um pakkann.
Glimmer til frekari skreytingar.
Einfalt,
fallegt,
glæsilegt
HUGMYNDIR
DAGLEGT LÍF
TREFJARÍKT mataræði veit-
ir ekki vörn gegn krabbameini í
þörmum, að því er bandarísk
rannsókn gefur til kynna. Í
Svenska Dagbladet er greint
frá rannsókninni sem byggist á
gögnum frá 700 þúsund manns.
Áður hafði fólk mikla trú á að
trefjar í fæðunni minnkuðu lík-
ur á krabbameini en með aukn-
um rannsóknum hefur fjarað
undan þeirri trú og að sögn
Anders Ekbom, prófessors við
Karolinska sjúkrahúsið, stað-
festir þessi rannsókn að ofur-
trú á trefjaríku fæði eigi ekki
við rök að styðjast.
Niðurstöðurnar eru birtar í
Journal of the American Medi-
cal Association og m.a. er
greint frá því að vissulega eigi
þeir sem ekki neyti trefjaríkrar
fæðu frekar á hættu að fá
krabbamein en á sama tíma eru
engar sannanir fyrir því að þeir
sem borði mikið af trefjum séu
síður í áhættuhóp en þeir sem
borða lítið af trefjum. „Þetta
sannar að einfaldar lausnir eru
ekki til, segir Ekbom. Hann
bendir á að forvarnir séu nauð-
synlegar en þegar komi að
krabbameini í þörmum sé því
miður ekkert sem liggi beint
við til forvarnar.
Efasemd-
ir um
gagnsemi
trefja
KRABBAMEIN
KAFFI Viðvík opnaði 23. júní árið
2004 og ber nafn vertshús sem hét
Viðvík og var líka á Skagaströnd.
„Það var seinasta vertshúsið á staðn-
um um miðja 18. öld og við ákváðum
að endurvekja það nafn,“ segir
Dagný sem blaðamaður náði að setj-
ast niður með meðan Sigrún og
Kristín héldu viðskiptunum gang-
andi. „Þetta hús var upphaflega
byggt sem verslunarhúsnæði árið
1912, frá 1922 til 1958 var hér skóli og
eftir það ýmislegt, eins og lög-
reglustöð, sýslumaður, íbúðir og í
kjallaranum á sínum tíma var oft tal-
að um að væri hreppskassinn, þar
bjuggu þeir sem minna máttu sín.
Árið 2000 tekur hreppsnefndin
ákvörðun um að gera húsið upp og
varðveita í sinni upprunalegu mynd.“
Sveitarfélagið vildi að það yrði eitt-
hvað í nýuppgerðu húsinu og bað
íbúana að koma með hugmyndir um
nýtingu þess. Þær þrjár tóku sig
saman og sendu hugmynd sína að
kaffi- og menningarhúsinu. „Sú hug-
mynd var reyndar sú eina sem barst
svo við fengum reksturinn og sjáum
ekki eftir því. Við leigjum húsið en
eigum allt innbúið sjálfar. Þetta er
náttúrúlega heilmikil vinna, því fyrir
utan afgreiðsluna bökum við allt sem
er boðið upp á hér.“
Kaffi Viðvík er bara opið á sumrin
en yfir vetrartímann er það stundum
opið fyrir sérstakar samkomur.
Skemma ekki stefnumót
Dagný segir aðallega íslenska
ferðamenn koma til þeirra og fólkið í
nágrenninu. „Við vinnum hérna þrjár
og svo er ein sem leysir okkur af þeg-
ar við þurfum frí. Við erum ekki að
þessu til þess að verða ríkar heldur
er þetta til menningarauka.“
Þær segjast sækjast eftir mann-
legu samneyti með rekstrinum og
auka ánægju sína og gestanna.
„Markmið okkar er að gestunum sem
koma hingað líði eins og gestum, ekki
eins og viðskiptavinum. Að þeir finni
að þeir séu velkomnir og við vonumst
til að þeir fari út með þær minningar
að þeir hafi komið hingað í heimsókn.
Við höfum alla þjónustu mjög per-
sónulega og ræðum við gestina, en að
sjálfsögðu erum við ekki ofan í hverj-
um gesti og fólk fær að vera út af fyr-
ir sig. Við skemmum ekki rómantísk
stefnumót með forvitni.“
Í kjallara hússins eru þær með lítið
gallerí til skemmtunar og fróðleiks,
seinasta sumar var þar sýningin
Strandmenning í samvinnu við
Byggðasafnið á Reykjum. Á kaffi-
húsinu sjálfu var svo sýning á göml-
um mannlífsmyndum frá Skaga-
strönd. „Við erum líka með aðrar
menningaruppákomur, eins og fyrir
jólin, og svo höfum við fengið til
okkar tónlistarmenn, upplesara og
grínista.“ Núna í vetur hélt hljóm-
sveitin Hundur í óskilum tónleika hjá
þeim. Og svo hefur verið jóla- og
handverksmarkaður á neðri hæðinni
í desember.
Almenn fróðleiksmiðstöð
Þær eru líka með upplýsinga-
miðstöð fyrir ferðamenn og almenna
fróðleiksmiðstöð eins og þær kalla
það. „Það kemur oft ferðafólk hingað
sem segir að skyldmenni þess hafi
búið í húsinu og þá er Sigrún oft ansi
góð að rekja ættir og finna tengingu.
Við spjöllum oft mikið við gestina um
staðinn og fleira.“
Kaffi Viðvík er innréttað á gam-
aldags hátt og er mjög rúmgott og
notalegt kaffihús. „Það er svo góður
andi í þessu húsi að þótt við séum
ekki að vinna endum við oft hérna
samt í kaffi,“ segja þær.
Þær sjá ekki að heilsárs-
afgreiðslutími muni ganga, segja
ekki grundvöll fyrir því, en stefna þó
að því að hafa alltaf eitthvað opið yfir
vetrartímann.
Framundan hjá þeim er síld-
arhlaðborð og bókaupplestur fyrir
jólin og trúlega verður eitthvað um
að vera á milli jóla og nýárs segir
Dagný. Þær hafa klætt húsið í jóla-
búninginn og bjóða upp á jólabakk-
elsi og kakó þá daga sem kaffihúsið
er opið nú fyrir jólin. Svo verður aft-
ur dagleg opnun frá júní 2006.
KAFFIHÚS | Á Kaffi Viðvík á Skagaströnd er boðið upp á heimabakað bakkelsi
Skemma ekki rómantík með forvitni
Á Skagaströnd er ekki
aðeins kúrekamenning
því þar reka þrjár
hressar konur Kaffi Við-
vík. Þær Sigrún Lár-
usdóttir, Dagný Marín
Sigmarsdóttir og Krist-
ín Kristmundsdóttir búa
allar á Skagaströnd og
ákváðu að opna kaffihús
til menningarauka fyrir
staðinn.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Morgunblaðið/Ingveldur Geirsdóttir
Þær Sigrún, Dagný og Kristín á Kaffi Viðvík bjóða upp á síldarhlaðborð,
tónleika og bókaupplestur fyrir jólin.