Morgunblaðið - 22.12.2005, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2005 37
UMRÆÐAN
HINN 9. desember sl. birtist í
Morgunblaðinu grein eftir Stefán
Guðmundsson, stjórnarmann í Fé-
lagi ábyrgra feðra, og víkur hann
þar í annað sinn að störfum um-
boðsmanns barna. Í grein minni
sem birtist hinn 28. nóvember var
gerð grein fyrir því
hvert hlutverk um-
boðsmanns barna er í
forsjár- og umgengn-
ismálum. Ég ætla ekki
að endurtaka það sem
þar kom fram né það
sem þar sagði um
fund minn með þrem-
ur stjórnarmönnum í
FÁF í mars sl. Ég læt
duga að árétta að þeir
voru ekki tilbúnir til
að ræða málin á öðr-
um forsendum en sín-
um eigin. Það er of
langt mál fyrir stutta blaðagrein að
rekja skoðanaskipti okkar. En það
er rangt hjá Stefáni að þær til-
lögur þeirra sem ég var ekki
reiðubúin að taka undir í einu og
öllu hafi síðan verið meginmálið í
tillögum þeim sem fram komu í
lokaskýrslu svokallaðrar for-
sjárnefndar.
Í grein sinni leggur Stefán fyrir
mig níu spurningar og biður um
stutt og hnitmiðuð svör. Spurning-
arnar sjálfar eru hins vegar flestar
margþættar og sumar geta gefið
tilefni til langrar umfjöllunar. Ég
ætla því aðeins að fjalla í einni
heild um þau efnisatriði sem
spurningarnar gefa tilefni til.
Börn eiga rétt á forsjá og
umönnun beggja foreldra sinna
hvort sem þeir búa samvistum eða
ekki. Sem betur fer bera foreldrar
oftast gæfu til þess að komast að
samkomulagi um hvernig þessu
verði best fyrir komið þegar þeir
slíta samvistum. En því er ekki
alltaf að heilsa.
Í samskiptum barna og foreldra
er staðan sú að börnin eiga réttinn
en foreldrarnir bera skyldurnar. Ef
hagsmunir barns og
foreldris rekast á
verða hagsmunir for-
eldrisins að víkja. For-
eldrar eiga sinn rétt
en hann beinist þá
fyrst og fremst að
hinu foreldrinu eða
stjórnvöldum. Íslensk
löggjöf og þeir al-
þjóðlegu samningar
sem Ísland hefur full-
gilt á sviði mannrétt-
inda byggjast á þess-
um grundvallar-
sjónarmiðum.
Það er tvímælalaust mikilvægast
fyrir börn að sem mest sátt ríki
um málefni þeirra við og eftir
skilnað foreldra og að þau fái að
njóta samvista við báða foreldra
sína í sem ríkustum mæli. Fyr-
irkomulag samvista barns og for-
eldra verður ávallt að byggjast á
því sem barninu er fyrir bestu í
hverju einstöku tilviki. Sjónarmið
um jafnrétti á milli foreldra mega
ekki ráða för ef það stríðir gegn
þörfum barns fyrir öryggi og stöð-
ugleika. Í einhverjum tilvikum
kann að henta barni að vera nær
til jafns hjá foreldrum komist þau
að samkomulagi um slíkt en ég tel
óraunhæft að setja um það ákvæði
í lög enda hefur það hvergi verið
gert á Norðurlöndum. Það er ekki
rétt sem skilja má af grein Stefáns
að forsjárnefnd hafi gert tillögu um
breytingu á barnalögum í þá veru.
Nýlega lagði dómsmálaráðherra
fram frumvarp á Alþingi um að
foreldrar fari áfram með sameig-
inlega forsjá barns við skilnað og
sambúðarslit nema annað sé ákveð-
ið, þ.e. með samningi foreldra eða
dómi. Foreldrar þurfa að komast
að samkomulagi um hjá hvoru
þeirra barnið eigi lögheimili. Í um-
sögn minni til allsherjarnefndar Al-
þingis er tekið undir þessa tillögu
en bent á nokkur atriði sem huga
þarf að samhliða slíkri breytingu.
Þótt barn eigi lögheimili hjá
öðru foreldri sínu og þar með að
jafnaði fasta búsetu eins og segir í
barnalögum, þá er barnið auðvitað
jafnframt heimilismaður hjá hinu
foreldrinu þegar það dvelur hjá
viðkomandi.
Samvistaslit foreldra eru börnum
mjög erfið og oft áfall og for-
eldrum ber skylda til að gera þeim
þá breytingu eins bærilega og unnt
er. Að eiga barn felur í sér skuld-
bindingu til langs tíma og þótt for-
eldrar geti ekki búið saman verða
þeir að geta átt góða samvinnu um
málefni barna sinna. Því miður
tekst ekki alltaf að leysa mál í sátt
og þá þurfa stjórnvöld og dóm-
stólar að kveða uppúr um ágrein-
ing aðila. Samkvæmt barnalögum
ber að hraða meðferð síkra mála.
Ákvæði barnalaga um umgengni og
úrræði til að knýja hana fram eru
samskonar hér og á hinum Norð-
urlöndunum. Það á einnig við um
þær viðmiðunar- og verklagsreglur
sem gilda um hvernig umgengni
skuli háttað. Það atriði sem helst
hefur sætt gagnrýni hér er máls-
hraðinn en fyrrnefndu frumvarpi
dómsmálaráðherra er m.a. ætlað að
bæta þar úr.
Við endurskoðun barnalaga 2003
fjallaði sifjalaganefnd m.a. um
hvort veita ætti dómstólum heimild
til að kveða á um sameiginlega
forsjá með dómi gegn vilja for-
eldra. Nefndin taldi ekki rétt að
leggja það til. Ég tel rétt að fara
varlega í þessu efni, slíka breyt-
ingu eigi ekki að gera nema að vel
athuguðu máli. Danir hafa ekki tal-
ið rétt að stíga þetta skref. Á hin-
um Norðurlöndunum hefur slík
heimild hins vegar verið í lögum. Í
Svíþjóð hefur reynslan verið á
þann veg að umboðsmaður barna
þar í landi hefur vakið máls á því
að gengið hafi verið of langt í því
að dæma sameiginlega forsjá. Í
skýrslu nefndar sem unnið hefur
að endurskoðun sænskra laga og
lögð var fram sl. vor kemur fram
að hún telur að sameiginleg forsjá
sé í flestum tilvikum barni fyrir
bestu en grundvallarforsenda
hennar sé að foreldrar geti unnið
saman um málefni barns og sýnt
hvort öðru virðingu. Sameiginleg
forsjá fari í bága við hagsmuni
barns þegar samstarfserfiðleikar
eru fyrir hendi milli foreldra. Í
nýju frumvarpi er því lagt til að
þrengja heimildir dómstóla þannig
að þeir geti því aðeins dæmt sam-
eiginlega forsjá ef líkur eru til þess
að foreldrar geti unnið saman um
málefni barnsins.
Ég tel mun brýnna að koma á
lögbundinni sáttameðferð fyrir
dómstólum eins og nágrannaþjóð-
irnar hafa gert. Sáttaumleitan hjá
sýslumönnum var tekin upp árið
2001 og hefur gefist mjög vel. Eng-
um vafa er undirorpið að nið-
urstaða sem fæst með sam-
komulagi aðila er vænlegust til
árangurs og í mestu samræmi við
hagsmuni og þarfir þeirra barna
sem í hlut eiga.
Réttur barna – skyldur foreldra
Ingibjörg Rafnar svarar grein
Stefáns Guðmundssonar um
störf umboðsmanns barna ’Samvistaslit foreldraeru börnum mjög erfið
og oft áfall og foreldrum
ber skylda til að gera
þeim þá breytingu eins
bærilega og unnt er. ‘
Ingibjörg Rafnar
Höfundur er umboðsmaður barna.
Föt fyrir
allar konur
á öllum aldri
Nýbýlavegi 12,
Kópavogi,
sími 554 4433
Opið virka daga kl. 10-18,
laugardaga kl. 10-16