Morgunblaðið - 22.12.2005, Page 44
44 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Arnkell Berg-mann Guð-
mundsson, bók-
bandsmeistari,
fæddist í Reykjavík
7. desember 1924.
Hann lést á Land-
spítalanum fimmtu-
daginn 15. desember
síðastliðinn. Móðir
hans var Sólveig
Bergmann Sigurðar-
dóttir, f. á Munaðar-
hóli á Snæfellsnesi,
og faðir hans var
Guðmundur Gamal-
íelsson, f. í Hækilsdal í Kjós. Hálf-
systkini hans, sammæðra, eru: Jó-
hanna, f. 1913, d. 1996, Ólafur, f.
1917, Alda, f. 1921, og Hólmfríður,
f. 1923.
Hinn 24. október 1959 kvæntist
Arnkell Huldu Guðmundsdóttur, f.
12.12. 1926 á Akureyri. Börn
þeirra eru: 1) Ásdís Jóna Berg-
mann, f. 9.3 1960, gift Róberti V.
Tómassyni, f. 14.11. 1959. Sonur
þeirra er Róbert Bergmann, f.
23.11. 1992. 2) Arnkell Bergmann,
f. 4.5. 1970, í sambúð með Huldu
Nönnu Lúðvíksdóttur, f. 2.12. 1973.
Synir þeirra eru: Lúðvík Thorberg
Bergmann, f. 16.5. 1997, og Aron
Daði Bergmann, f. 26.3. 2003. Fyr-
ir hjónaband eignaðist Arnkell
Gunnar Bergmann,
f. 3.8 1948, Herdísi
Bergmann f. 6.7.
1951, og Hafdísi, f.
17.12. 1954.
Arnkell ólst upp í
Reykjavík. Hann
stundaði nám í bók-
bandi í Ísafold og
fékk meistararétt-
indi 1949. Hann vann
í Ísafold 1942–1946
og 1950–1966, hjá
Petersen og Peder-
sen í Kaupmanna-
höfn 1946–1947, í
Gutenberg 1966–1993, sem verk-
stjóri 1966–1972. Hann tók virkan
þátt í félags- og trúnaðarstörfum.
Var formaður BFÍ 1976–1980, í
trúnaðarráði FBM frá 1980–1994
og í varastjórn Félags bókagerð-
armanna 1980–1992. Hann sat í
stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur
1967–1968. Arnkell varð Reykja-
víkurmeistari í golfi 1961, hlaut
gullmerki GR 1984. Hann varð Ís-
landsmeistari í fluguvigt í hnefa-
leikum 1942, léttvigt 1943–1944,
1947 í millivigt. Hann var í liði ÍR
sem fyrst hóf körfuknattleik á Ís-
landi 1949.
Útför Arnkels verður gerð frá
Áskirkju í Reykjavík í dag og hefst
athöfnin klukkan 11.
Elsku pabbi. Þú varst alltaf ró-
legur og tókst öllu með jafnaðar-
geði.
Síðustu ár voru oft erfið en þú
varst alltaf jafn rólegur og gast
alltaf fundið húmorinn í öllu. Við
vorum nýbúin að fara saman í bæ-
inn og við hlökkuðum til jólanna. Á
afmælidegi þínum 7. desember
fórstu í kaffi heim til mömmu. Ekki
grunaði mig að það væri þín síðasta
heimsókn þangað.
Ég veit að þú ert kominn á góð-
an stað þar sem þú getur spilað
golf og rabbað við fólk frá ólíkum
menningarheimum.
Guð blessi þig, pabbi minn.
Þín
Ásdís.
Ég trúi því varla enn að elsku-
legur pabbi minn sé horfinn yfir á
annað tilverustig.
Því þrátt fyrir að vera nýlega
orðinn 81 árs hafði hann sterka lífs-
löngun og var svo ungur í anda. Í
veikindum sínum sýndi hann ótrú-
legan styrk og seiglu, kvartaði
aldrei og var afar jákvæður. Hann
var glaðsinna, mikill húmoristi og
oftast stutt í hláturinn. Hann hélt
þeim einkennum til hinstu stundar.
Hann var velviljaður og talaði ekki
illa um nokkurn mann, heldur sá
hið góða í samferðamönnum sínum.
Pabbi átti marga vini og kunn-
ingja og þegar ég var lítill strákur
og fékk að fara með honum í bæinn
heilsaði hann öðrum hverjum borg-
arbúa svo mér fannst að hann hlyti
að vera frægur maður. Sem smá-
gutti sat ég oft í fanginu á honum
fyrir framan sjónvarpið og hann út-
skýrði fyrir mér og þýddi mynd-
irnar af mikilli þolinmæði. Og sama
átti við þegar við fórum saman í
bíó. Mér leið alltaf vel í návist hans.
Pabbi var mikill tungumálamað-
ur og hafði gaman af að ferðast og
vera innan um fólk. Hann var með
þeim fyrstu sem spiluðu golf á Ís-
landi og vann til margra verðlauna.
Ég fékk stundum að fara með hon-
um til að draga golfkerruna og
skynjaði sterkt hversu vel hann
naut útiverunnar. Hann og félagar
hans göntuðust mikið og mér
fannst gaman að fá að vera með.
Hann auðgaði líf mitt og það er
mér dýrmætt veganesti.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Arnkell Bergmann Arnkelsson.
Mín fyrstu kynni af tengdaföður
mínum Arnkeli B. Guðmundssyni
áttu sér stað vorið 1981, þegar ég
var gestkomandi á heimili hans og
Huldu í Stórholtinu.
Ég man hvað mér fannst hann
formlegur í fasi. Hann átti það til
að hafa við mig alls konar athuga-
semdir í fyrstu, eins og að ég ætti
að bjóða góðan daginn þegar ég
kæmi í heimsókn og að mér bæri
að kynna mig í síma þegar ég
hringdi til dóttur hans. Þegar ég
kom á sunnudögum spurði hann
mig hvort ég ætti ekkert annað en
gallabuxur til að vera í. Ég tók
þessar athugasemdir alvarlega því
að ég vildi að honum líkaði vel við
mig. Síðar áttaði ég mig á því að
hann var bara að leika sér að mér
og hafði gaman af. Arnkell var
mikill húmoristi og einstakt ljúf-
menni sem sýndi manni ávallt vel-
vild í einu og öllu.
Áður en hann veiktist átti ég
þess oft kost að spila með honum
golf bæði hér á landi og erlendis en
hann var mikill áhugamaður um
golfið enda búinn að stunda þá
íþrótt lengi. Hann var mikill
keppnismaður og var það hrein un-
un að fá að spila með honum og
Geira vini hans en þar var hvergi
gefið eftir og keppt fram á síðustu
holu.
Arnkell var mikill fagmaður í iðn
sinni og tók lífstíðarstarfi sínu sem
bókbandsgerðarmeistari með fullri
alvöru og áhuga. Hann sýndi mér
oft muninn á illa og vel bundinni
bók. Síðustu árin starfaði hann hjá
Gutenberg og var hann þá í alls
kyns verkefnum við viðgerðir á
gömlum bókum og handgyllingum
sem vélar nútímans gátu ekki unn-
ið en Arnkell hafði lært þessa iðn
hér heima og svo seinna úti í
Kaupmannahöfn á sínum yngri ár-
um.
Arnkell hafði gaman af því að
ferðast og fór víða bæði sem al-
mennur ferðamaður og einnig á
vegum Bókbindarafélagsins. Þegar
við bjuggum í Bandaríkjunum
komu þau hjónin í heimsókn til
okkar og spilaði Arnkell þá golf
með mér. Honum fannst gaman að
bera saman hina ólíku menningar-
heima og hafði gaman af að spjalla
við aðra golfara og segja þeim sög-
ur af Íslandi og spyrja þá um
þeirra heimaslóðir.
Ég kveð þig, Arnkell, með sökn-
uði.
Hvíl þú í friði.
Þinn tengdasonur
Róbert.
Arnkell tengdafaðir minn hafði
góða nærveru og líflega framkomu.
Hann var orðheppinn og mikill
húmoristi og sagði gjarnan
skemmtilegar sögur af mönnum og
málefnum. Hann var tungumála-
maður og sló um sig með frösum á
hinum og þessum málum, þegar
það átti við. Hann naut sín vel þar
sem fólk kom saman í veislum og
gleðskap, enda vanur að vera hrók-
ur alls fagnaðar. Það var honum
mikilvægt að vera vel til fara og
flottur í tauinu. Skömmu eftir að
ég kynntist fjölskyldunni fékk
hann blóðtappa í höfuðið í annað
sinn um ævina og missti þá að
nokkru leyti hæfileikann til að tjá
sig þó hann væri fullkomlega með
á nótunum að öðru leyti. Til að
gera sig skiljanlegan notaði hann
oft svipbrigði eða brá fyrir sig
ensku, sem virtist auðveldara fyrir
hann, þegar mér gekk illa að ná því
hvað hann vildi segja. Þegar bróðir
minn kom heim eftir ársdvöl í Dan-
mörku hittust þeir og „Addi pabbi“
spurði hann auðvitað á dönsku
hvernig hefði verið. Ég fór til hans
í byrjun desember eftir að einhver
tími hafði liðið frá síðustu heim-
sókn vegna flutninga og anna. Þá
glotti hann til mín og sagði sposkur
„Long time no see“. Hann naut
þess að hlusta á hvað á daga okkar
Adda hefði drifið, vildi vita hvort
það væri mikið að gera í vinnunni
og hvernig strákarnir okkar hefðu
það. Hann minnti mig alltaf á það í
tíma, þegar líða tók á haust, að nú
kæmi senn að afmælisdögunum
okkar og Huldu tengdamóður, því
við erum öll fædd í desember.
„Addi pabbi“ var fluttur á Land-
spítalann að kvöldi 13. desember.
Heilsu hans hrakaði hratt en hann
fylgdist samt með því sem fram fór
í kringum hann til hinstu stundar.
Sjálfum sér líkur, þegar hann varð
þess áskynja að ég þurfti að skjót-
ast ögn frá, opnaði hann vel augun
og blikkaði mig í kveðjuskyni. Ég
kveð hann með söknuði og minn-
ingin um hann mun lifa áfram í
hjarta mínu. Ég bið algóðan Guð
að styrkja Huldu, Adda, Ásdísi og
aðra aðstandendur.
Hulda Nanna Lúðvíksdóttir.
Elsku afi. Ég man hvað það var
gaman þegar þú og amma komuð
að heimsækja okkur þegar við
bjuggum í Boston. Við bjuggum til
golfvöll í garðinum okkar og við
spiluðum þar golf.
Þú varst alltaf svo góður maður.
Ég á eftir að sakna þín.
Róbert Bergmann.
Elsku besti Addi afi okkar er dá-
inn. Þegar hann sá okkur koma í
heimsókn lyftist hann allur upp í
ARNKELL
BERGMANN
GUÐMUNDSSON
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Minningar-
greinar
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KATRÍN MARÍA ÞÓRÐARDÓTTIR,
Holtsbúð 103,
Garðabæ,
áður Stangarholti 24,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 20. desem-
ber.
Jarðarförin fer fram frá Háteigskirkju fimmtu-
daginn 29. desember kl. 13.00.
Björg Haraldsdóttir, Jóhann Petersen,
Halldór Þórður Haraldsson, Ingibjörg Barðadóttir,
Ástbjörg Guðrún Haraldsdóttir, Hreiðar Einarsson,
Friðrk Haraldsson, Kristrún Zakaríasdóttir,
barnabörn og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn,
DAVÍÐ STEFÁNSSON
bóndi á Fossum í Landbroti,
andaðist á Borgarspítalanum þriðjudaginn
20. desember.
Fyrir hönd aðstandenda,
Karítas Pétursdóttir.
Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
KRISTRÚN SIGFRÍÐUR GUÐFINNSDÓTTIR,
Gerðavöllum 1,
Grindavík,
andaðist á Landspítala Hringbraut miðvikudaginn
21. desember.
Útförin verður auglýst síðar.
Guðmundur Agnarsson,
Sigríður J. Guðmundsdóttir, Hallgrímur Ó. Helgason,
Þuríður Guðmundsdóttir,
Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Hafþór Halldórsson,
Agnar Á. Guðmundsson,
Friðrik B. Guðmundsson, Karen Ragnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
STEINGRÍMUR BERNHARÐSSON
fv. bankaútibússtjóri,
síðast til heimilis
á Dalbæ,
Dalvík,
lést þriðjudaginn 20. desember.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 29. desember nk.
kl. 13.30.
Synir, tengdadætur, barnabörn
og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
EINAR GUÐMUNDSSON,
Kirkjulundi 6,
Garðabæ,
lést á Landspítalanum Landakoti þriðjudaginn
20. desember.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ
fimmtudaginn 29. desember kl. 13.00.
Jóhanna Pétursdóttir,
Elísabet Einarsdóttir, Sigurður Hansson,
Róbert G. Einarsson, Steinunn Gunnarsdóttir,
Erna Einarsdóttir,
Edda Einarsdóttir, Jan Hansen,
Pétur Einarsson, Katrín Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.