Morgunblaðið - 22.12.2005, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2005 53
DAGBÓK
Sólrún Bragadóttir söngkona og Kári Þormar organisti halda tónleika í Frí-kirkjunni í Reykjavík í kvöld, sem hefj-ast kl. 18. Tónleikarnir verða stuttir, um
klukkustund án hlés, og verða þar flutt Maríu-
kvæði frá ýmsum tímabilum.
Hver er hugmyndin að baki þessum tónleikum,
Sólrún?
„Það hefur blundað með mér lengi að halda
tónleika af þessu tagi, með kirkjulegu efni. Ég
hef mikið velt fyrir mér sambandinu við áheyr-
endur á tónleikum með tónlist af þessu tagi. Ég
lít nánast á tónlist sem heilun, og mér finnst að á
þessum tíma árs þegar fólk er undir miklu álagi,
hafi það þörf fyrir hvíld af slíku tagi; að geta sest
niður og fengið heilun gegn um tóna, fyllst orku,
hreinsað hugann og nærst.“
Hefur þú unnið frekar með þessar hugmyndir?
„Já, ég hef gert það. Undanfarin ár hef ég
unnið að því að ná fram ákveðnum tærleika í
röddinni, sem getur gert það að verkum að tónn-
inn nái að heila fólk. Ég hef upplifað að fólk með
verki hafi farið verkjalaust útaf tónleikum hjá
mér, fólk hafi fyllst af orku og jafnvel séð sýnir.
Ég er engin kraftaverkakona, en þetta finnst
mér spennandi; að nota röddina og tónlistina í
þessum tilgangi. Mér finnst fólk hafa mikla þörf
fyrir slíkt í dag, þegar áherslan er svo mikil á
glamúr og afþreyingu. Það vantar mótvægi við
það.“
Hvað ætlið þið Kári Þormar að flytja?
„Alls konar Ave Maríur. Það er úr miklu efni
að moða og því var erfitt að velja – við þurftum
að setja margt til hliðar sem ég hefði líka viljað
syngja. En ég held að þetta sé mjög falleg efnis-
skrá sem við erum með.“
Geturðu nefnt dæmi um verk á efnisskránni?
„Við flytjum til dæmis tvær Ave Maríur eftir
Verdi, aðra úr óperunni Óþelló og hina sem köll-
uð er Ave María í D-dúr og er yndisleg. Viljandi
tókum við út þessar allra frægustu eins og þær
eftir Schubert og Kaldalóns, en flytjum reyndar
Bach/Gounoud Ave Maríuna. Síðan flytjum við
skemmtileg verk eftir Saint-Saëns, César
Franck, Hans Nyberg og fleiri, sem er ekki alltaf
verið að syngja, og svo flytjum við eitthvað ís-
lenskt líka.“
Þú átt heima í danskri sveit; finnst þér mikið
jólastress hér í Reykjavík?
„Já, það er mikill munur að koma úr sveitinni
og hingað til Íslands. Ég er samt svolítil sveita-
pía sem kem til borgarinnar og uppveðrast – mér
finnst gaman að sjá ljósin og fylgjast með öllu.
Málið er bara að smitast ekki af stressinu – það
er það mikilvægasta.“
Tónlist | Sólrún Bragadóttir og Kári Þormar með tónleika í Fríkirkjunni í kvöld
Tónlistin hreinsar og nærir
Sólrún Bragadóttir
er fædd árið 1959. Hún
hóf söngnám í Reykja-
vík, en hélt þaðan til
náms við Indiana-
háskóla í Bloomington í
Bandaríkjunum og lauk
þaðan bachelors- og
mastersgráðu í tónlist.
Að námi loknu var hún
fastráðin við Pfalz-
theater í Kaiserslaut-
ern í Þýskalandi í þrjú
ár, því næst við Staatstheater í Hannover í
fjögur ár og hefur síðan sungið í óperuhúsum
víða um heim; þar á meðal í München, Bremen,
Kiel, Kassel, Heidelberg, Karlsruhe, Mann-
heim, Bern, Avignon, Belfast, Reykjavík og
Liége.
GULLBRÚÐKAUP | Í dag, 22. desem-
ber, eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjón-
in Jarmila Hermannsdóttir og Gunn-
laugur Björnsson, Hraunteigi 13,
Reykjavík.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Hlutavelta | Þessar duglegu stúlkur, Elísa Margrét Pálmadóttir, Júlía Rut
Ágústsdóttir, Auður Guðlaugsdóttir, Birta Sif Kristmannsdóttir og Freyja Björt
Björnsdóttir Árdal, sungu lög við 10-11 í Laugalæk og söfnuðu þær kr. 9.141 til
styrktar Rauða krossi Íslands.
Morgunblaðið/Golli
Marimekko flytur um áramót úr
IÐU húsinu að Laugarvegi 7.
30-40%
afsláttur af öllum fatnaði til jóla.
Vönduð jólagjöf á góðu verði.
STÓRÚTSALA V/FLUTNINGA
Opið til kl. 22 öll kvöld til jóla
Tröllafell
Barna- og
unglingabókin í ár
„Grípandi saga um spennandi tröll,
hugaða krakka og skemmtilega
illkvittna þrjóta.“
The Guardian
www.stilbrot.com/trollafell
Við í bókabúðinni IÐU
óskum landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
ANGELUS er titill ljósmyndasýningar
sem nú stendur yfir í gallery Augafyr-
irauga, Hverfisgötu 35, Reykjavík.
Myndirnar sem eru verk Ingu Sólveigar
Friðjónsdóttur eru teknar í kirkjugörð-
um víðs vegar um heiminn. Inga hefur
fengist við að mynda í kirkjugörðum síð-
an 1987 og sér ekki fyrir endann á þeirri
áráttu enda eru slíkir garðar endalaus
uppspretta myndefnis, að hennar sögn.
Inga Sólveig hefur haldið yfir 30 einka-
sýningar auk samsýninga bæði hér á
landi og erlendis.
Ljósmynda-
sýningin
Angelus
ELLEN Bjarnadóttir myndlistar-
maður sýnir nú í Menningarsalnum
á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Ellen er fædd 1919 í Reykjavík.
Hún hefur alla tíð haft ánægju af að
mála. Á síðustu árum hefur hún
sótt málaranámskeið og er þetta
þriðja einkasýning Ellenar, auk
þess hefur hún tekið þátt í samsýn-
ingum.
Ellen sýnir á Hrafnistu
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Glatað tækifæri.
Norður
♠ÁD10875
♥– S/NS
♦KD982
♣Á9
Suður
♠4
♥G76
♦ÁG74
♣KDG54
Vestur Norður Austur Suður
– – – 2 lauf *
2 hjörtu 2 spaðar 4 hjörtu Pass
Pass 6 lauf Allir pass
* Precision: 11–15 punktar og
minnst fimmlitur í laufi.
Alslemma í tígli er líkleg til vinn-
ings og því verður það að teljast held-
ur slök niðurstaða að enda í sex lauf-
um á 5–2 samlegu. En ekki þar fyrir,
sú slemma virðist standa fyrir sínu.
Vestur spilar út hjartaás, sem
sagnhafi trompar með níu blinds,
leggur niður laufásinn og svo spaðaás
með því hugarfari að stinga spaða
heim og taka trompin:
Norður
♠ÁD10875
♥–
♦KD982
♣Á9
Vestur Austur
♠K62 ♠G93
♥ÁKD1053 ♥9842
♦– ♦10653
♣8732 ♣106
Suður
♠4
♥G76
♦ÁG74
♣KDG54
Allt gengur að óskum, trompin
skila sér í KDG og vörnin fær aðeins
einn slag á hjarta í lokin.
Þegar spilið er skoðað virðast NS
geta vel við unað, því ekki mátti sagn-
hafi reyna að spila tígli heim í þriðja
slag.
En vestur var ekki ánægur með
eigin frammistöðu: „Ég var klaufi að
láta ekki spaðakónginn undir ásinn.“
Sem er rétt athugað. Sagnhafi
hefði þá skipt um hest í miðri á – spil-
að tígli, sem vestur hefði trompað og
tekið tvo slagi á hjarta!
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is