Morgunblaðið - 22.12.2005, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
ARNALDUR Indriðason heldur toppsæt-
inu á Bóksölulista Morgunblaðsins en
glæpasaga hans Vetrarborgin var sölu-
hæsta bókin á landinu
dagana 13.–19. desem-
ber samkvæmt sam-
antekt Félagsvís-
indastofnunar HÍ. Í
öðru sæti listans er bók
Jóhanns Inga Gunn-
arssonar og Sæmundar
Hafsteinssonar, Með líf-
ið að láni – Njóttu þess
og bók Guðmundar
Magnússonar um Thorsarana er í þriðja
sæti.
Fjórða mest selda bókin á tímabilinu er
Landsliðsréttir Hagkaupa og Harry Pott-
er og Blendingsprinsinn eftir J.K. Rowling
verður að gera sér fimmta sætið að góðu
en sú bók hefur fram að þessu verið í öðru
af tveimur efstu sætunum. | 35
Arnaldur
söluhæstur
ELDUR logaði út um glugga í rúmlega fimm
metra hæð þegar slökkvilið kom að húsnæði
veiðarfærasölunnar Ísfells við Óseyrarbraut 4 í
Hafnarfirði rétt fyrir klukkan 19 í gærkvöldi.
Húsið var mannlaust og engan sakaði í brun-
anum.
Mikill eldur var í netadræsum inni í húsinu,
og barst hann í lyftara sem þar var áður en
tókst að hemja logana, segir Sigurður A. Jóns-
son, stöðvarstjóri slökkviliðs höfuðborgarsvæð-
isins (SHS) í Hafnarfirði.
Allt tiltækt lið SHS var kallað út þegar ör-
yggisvörður tilkynnti um eldinn, enda húsið
stórt og óvíst hversu mikill eldur leyndist þar
inni. Slökkviliðsmenn úr Hafnarfirði voru fyrst-
ir á vettvang, og tókst þeim að ráða niðurlögum
eldsins á um 20 mínútum. Í kjölfarið var ósk um
frekari aðstoð afturkölluð, en þá höfðu slökkvi-
liðsmenn sem voru á frívakt verið kallaðir út.
Ekki var vitað með vissu hvort fólk væri inni í
húsinu þegar að var komið, og voru sendir inn
fjórir reykkafarar til þess að ganga úr skugga
um að það væri mannlaust. Lítil starfsemi mun
hafa verið í húsinu, sem er nýbyggt, en inni
voru netadræsur og eitthvað af fiskkörum úr
plasti, en eldurinn náði ekki í þau. Húsið er
nokkuð skemmt eftir eld og reyk.
Morgunblaðið/Júlíus
Eldur logaði út um gluggana
STARFSMENN færeysku Sjóbjörgunarmið-
stöðvarinnar brugðust ekki við á réttan hátt eftir
að þeim barst sjálfvirkt neyðarkall frá M/S Jök-
ulfelli, leiguskipi Samskipa, sem sökk um 60 sjó-
mílur norðaustur af Færeyjum 7. febrúar sl.
Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar
sjóslysa á eynni Mön, þar sem skipið var skráð.
Með skipinu fórust sex skipverjar, en fimm var
bjargað úr sjónum með þyrlu danska varðskips-
ins Vædderen eftir tvær og hálfa klukkustund í
sjónum. Allir í ellefu manna áhöfn skipsins voru
búsettir í Eistlandi, en þrír voru með rússneskan
ríkisborgararétt.
Hæg viðbrögð færeysku Sjóbjörgunarmið-
stöðvarinnar við sjálfvirka neyðarkallinu eru
gagnrýnd í skýrslunni, og er talið að þyrla hefði
getað verið komin á vettvang um klukkustund
fyrr en raunin varð ef rétt hefði verið brugðist
við. Ekki er þó fullyrt neitt um að það hefði
breytt einhverju fyrir þá skipverja sem létust, en
þess getið að það hefði getað stytt þann tíma sem
þeir sem lifðu af þurftu að bíða í sjónum.
Í skýrslunni segir að skiljanlegt sé að ekki hafi
verið kallað út allt tiltækt lið þegar sjálfvirka
neyðarkallið barst, enda eitthvað um að slík
neyðarköll séu send út fyrir mistök. Hins vegar
segir að þegar staðfest hafði verið að Jökulfellið
var á svæðinu og ekki náðist samband við skipið
hefði þegar í stað átt að senda þyrlu af stað, í stað
þess að senda færeyskt varðskip á staðinn eins og
gert var, en það var nokkuð frá slysstað.
Breytingar hafa verið gerðar á starfsreglum
björgunarmiðstöðvarinnar til að tryggja að slíkar
tafir verði ekki í framtíðinni.
Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar kemur
fram að farmur skipsins, tæp 1.800 tonn af
steypustyrktarstáli, hafi færst til í lestum skips-
ins þegar það fékk á sig brot, með þeim afleið-
ingum að skipið lagðist á hliðina og sökk. Skipið
var á leið frá Kaupmannahöfn til Reyðarfjarðar
þegar slysið varð, en farminn tók skipið í Lett-
landi.
Allir fimm skipverjarnir sem lifðu af náðu að
komast í flotgalla á þeim nokkrum mínútum sem
liðu frá því að farmurinn færðist til þar til skipið
fór á hliðina. Talið er að flotgallarnir hafa bjargað
lífi þeirra, en sumir af hinum látnu höfðu ekki náð
að renna upp flotgöllum sínum.
Steypustyrktarstálið var ekki skorðað nægi-
lega vel í lestum skipsins, að mati rannsóknar-
nefndarinnar. Það lá á lestarbotninum og var ein-
ungis fest með strekkiböndum (e. webbing
straps), en nefndin segir að rétt hefði verið að
hluta farminn niður og festa hann með vírum til
að koma í veg fyrir að hann ylti um allt lest-
argólfið í miklum sjógangi.
Rannsókn á tildrögum þess að Jökulfellið sökk við Færeyjar lokið
Björgunarmiðstöðin brást
ekki rétt við neyðarkallinu
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Steypustyrktarjárnið um borð í Jökulfellinu
rann til þegar skipið fékk á sig brotsjó.
TENÓRSÖNGVARINN Garðar
Thór Cortes heldur toppsæti Tónlist-
ans en samnefnd plata hans er lang-
mest selda plata
vikunnar. Plata
hans stendur á
bakvið 12,5% af
allri sölu á topp
30. Sæti tvö og
þrjú skipast einnig
eins og í síðustu
viku. Björgvin
Halldórsson er í
öðru sæti með Ár
og öld og í því þriðja sitja Guðrún
Gunnars og Friðrik Ómar með Ég
skemmti mér.
Plötur Garðars Thórs og Björgvins
eru komnar í platínusölu og Guðrún
og Friðrik í gullsölu. Það stefnir allt í
stór íslensk tónlistarjól. | 60
Garðar
Thór enn
á toppnum
BRUNAVARNIR Héraðs unnu í
gærkvöldi við að hreinsa upp elds-
neyti sem lak úr olíuflutningabíl er
valt í hálku í heimreiðinni að bænum
Bót skammt frá Fellabæ. Eldhætta
skapaðist þar til tókst að aftengja
rafkerfi bílsins en hann flutti um tíu
þúsund lítra af eldsneyti skv. upplýs-
ingum lögreglunnar á Egilsstöðum.
Ökumaðurinn slapp með skrekkinn.
Leki í olíu-
flutningabíl
AÐGENGI íslenskra bóka að erlendum
mörkuðum hefur batnað verulega á undan-
förnum árum, ekki síst eftir velgengni ís-
lensku glæpasögunnar og segir Valgerður
Benediktsdóttir, forstöðumaður Réttinda-
stofu Eddu sem sér um sölu og samninga fyr-
ir hönd höfunda forlagsins, að æ betur gangi
að selja útgáfurétt til útlanda. „Frá stofnun
Réttindastofu árið 2000 hefur verið gengið
frá samningum fyrir upphæð sem nemur
hundruðum milljóna króna. Samningarnir
eru á sjötta hundrað, fyrir hátt í fjórða tug
höfunda í tæplega 40 löndum.“ | B6
Samningar
fyrir hundr-
uð milljóna
HJÁ Símanum er verið að kanna
ýmsa möguleika á aukinni þjónustu
við heimilin og fyrirtækin í landinu,
að sögn Brynjólfs Bjarnasonar, for-
stjóra Símans. Meðal þess sem verið
er að kanna er að bjóða upp á ýmiss
konar öryggisbúnað í gegnum
tæknina sem fyrirtækið býr yfir.
„Þróunin í rafrænni heima-
hjúkrun er mjög hröð,“ segir Brynj-
ólfur, „og við erum að vinna í því að
kanna hvernig hægt er að bjóða upp
á ýmsar mælingar og prufur í gegn-
um okkar net, t.d. blóðþrýstings-
mælingar og fleira. Það er mikið
verið að vinna í þessum málum í
heiminum í dag. Augljóslega væri
hægt að spara háar fjárhæðir í heil-
brigðiskerfinu ef sjúklingar þyrftu
ekki að fara eins mikið inn á spít-
alana og nú er í ýmiss konar reglu-
bundið eftirlit. Það er spurningin
um að geta tengt ýmis af þeim mæli-
tækjum, sem eru undir miklu eft-
irliti á spítulunum, inn á heimilin og
nota fjarskiptatæknina til mæl-
inga,“ segir Brynjólfur.
Á hluthafafundi Símans í fyrra-
dag var samþykkt að rýmka tilgang
félagsins þannig að hann taki ekki
eingöngu til þjónustu á sviði fjar-
skipta- og upplýsingatækni eins og
verið hefur til þessa. Eru þetta
dæmi um þjónustu sem Síminn gæti
boðið fram.
Brynjólfur segir í Viðskiptablaði
Morgunblaðsins í dag ekkert úti-
lokað í þeim efnum hvort Síminn
stefni inn á raforkumarkaðinn, þeg-
ar heimilin og fyrirtækin geta keypt
rafmagn af þeim sem þeir kjósa frá
og með næstu áramótum.
Rafræn heimahjúkrun í gegnum net Símans
Síminn færir | B9