Tíminn - 09.02.1971, Síða 14

Tíminn - 09.02.1971, Síða 14
TÍMINN Á víðavangi Framhalo ai bls 3 tölum talið. Þetta tjón tekur einnig til fleiri en þeirra, sem við flóann búa eða þar í nánd. Fiskurinn, sem fær frið og næði til að vaxa upp í Faxaflóa, dreifist, er hann stækkar, um ðll fiskisvæði við strendur landsins. Hér er því mikið í húfi og áríðandi, að því verði ekki lengur á frest skotið að gera þær ráðstafanir, sem einar geta að gagni komið, en það er að banna með öllu þær veiðar, sem hér um ræðir. Oft hefur verið um það rætt, að endurskoða þurfi lögin um dragnótaveiðar og fá álit fiski- fræðinga um þá hættu, sem hér er talin eiga sér stað varðandi fiskistofnana. Það er hins vegar álit flutningsmanna þessa frum- varps, að of seint sé að ljúka þeirri endurskoðun eða fá álit fiskifræðinganna, þegar hver fiskur hefur verið drepinn á grunnmiðum í Faxaflóa.“ TK íþróttir Framhald af bls. 13. víti £ röð, en hitti aðeins úr 1. Valsmenn fengu á sama tíma 8 VÍti og Ihittu úr þeim öllum. Kom ust þeir ytfir skömmu síðar og höfðu yfir til leiksloka. í síðari hálfleik var munurinn aldrei mik- iU, mest 7 stig og minnst 1 stig. Lokatölur urðu 80:72 fyrir Val, sem voru nokkuð sanngjörn úr- slit. Enginn 1. deildardómari fékkst til að fara austur til að daema, oig tók formáður KKÍ, Hólmsteinn Sigurðssoa að sétr að dæma leikinn, ásamt unglings pilti úr Val. Er það fyrir neðan allar hellur að láta ungling dæma í 1. deild — hvað þá heldur ungl ing úr öðru félaginu, sem er að keppa. Leit Framhald af bls. 1 á sunnudagsmorgun voru gerðar fyrirspurnir um bátinn til hafna á Suðurnesjum og á Snæfellsnesei og til báta, sem verið höfðu á ferð á svipuðum slóðum og síðast sást til Ásu og á Faxaflóa. Slysavarnarfélagið fékk fyrst þær upplýsingar að Ása hafi legið í landvari við Garðskaga á sunnu dagsnóttina, en þær upplýsingar reyndust rangar við nánari athug un. í gær sunnudag fór björgunar sveit frá Garðskaga að Reykja nesi á landi til að athuga hvort báturinn lægi i vari, en hann sást hvergi. í gærkvöldi kl. 10 hófst skipulögð leit á stóru svæði. Fiskibátar frá Akranesi, Reykja vík og Keflavik tóku þátt £ lei( inni. Auk fiskifátann'a leituðu varðskipið Óðinn, hjálparskipið Goðnn og þýzka eftirlitsskipið Meerkatze. í nótt var leitaður all- ur Faxafiói, var leitarskipunum raðað þannig að farið var fimm sjómílur í vestur af Garðskaga og að Arnarstapa á Snæfellsnesi í nótt. Strax í birtingu fór leitar flugvél af stað og björgunarsveit ir Slysavarnarfélagsins á Suður- nesjum gengu fjörur austan frá Reykjanesvita og fyrir Garðskaga. Björgunarsveitir úr Staðarsveit, Borgarnesi oig Akranesei gengu á fjörur á sunnanverðu Snæfells- nesi og Mýrar. Þegar leið á nóttina var suð vestan átt, 7 til 8 vindstig. Leit að Ásu verður haldið áfram. „Veiztu svarið“ Framhald af bls. 7. að það sé þér nú ekkert sárs- aukafuil, að víkja fyrir syni þínum. Ó.: — Þetta er á vissan hátt rr.ór til mikils sóma. J.: Já, var hann ekki við nám hjá þér í Flensborg? Ó.: — Jú, jú. J.: — Kristján Bersi, ég óska þér til hamingju með þetta. K-: — Þakka þér fyrir. J. : — Hvernig þótti þér að taka þátt í svona keppni? K. : — Nú, ég hafði gaman af þessu og ég átti satt að segja ekki von á þessu. J. : — Faðir þinn segir, að þetta sé sér til sóma. Nú, þú verður þá að halda uppi fána fjölskyldunnar og mæta hér aftur. K. : — Já, ég verð að reyna það. Nú bíða hlustendur vafalaust næsta sunnudagskvölds til að vita, hvemig Kristján Bersi stendur sig. Faðir hans, Ólafur Þ. Kristjánsson var búinn að vera allra manna lengst í þætt inum, kom í 6 þáttum, þar til Kristján Bersi „sló hann út“. Það verður liklega ekki heigl- um hent að eiga við Kristján Bersa, en bezt er að sjá til. Ef þessum þáttum verður haldið nógu lengi áfram, má búast við, að fram komi maður eða kona, sem má með sanni kalla „gáf- uðustu manneskju á íslandi" — eða hvað? — SB. DDT Framhald af bls. 1 inn úr fiskbúðum eða fiskverk unarstöðvum. Það lýsi, sem rannsakað var, hafði verið til frekari rannsóknar á stofnun inni fyrir utan ufsalýsið, sem fékkst í lyfjabúð. DDT-innihaldið er mælt í p.p.m. (parts per million) og þar sem það reyndist innan við ol p.p.rn. í holdi allra þeirra fisktegunda, sem prófaðar Systir okkar Sigurborg Kristjánsdóttir frá Múla, andaðist aS Hrafnlstu 7. febrúar. Minnlngarathöfn fer fram í Dóm- kirkjunni föstudaginn 12. febrúar kl. 2 e. h. Guðrún Kristjánsdóttir Magnús Kristjánsson Maðurinn mlnn og faSir okkar, Jón Pálsson, Hrífunesl, andaSist 7. fobrúar 1971. Elln Á. Árnadóttir Þórunn Jónsdóttir SigríSur Jónsdóttir Árni Þ. Jónsson Kjarfan Jónsson voru, þótti stofnuninni ekki ástæða til að halda tilraunum þessum áfram. Hins vegar reyndist eins og áður segir, DDT-innih. í ufsalýsi 1,5 p.p.m., í þorskalýsi 1.0 p.p.m. og 1,5 p.p.m. misjafnt eftir því úr hvaða verksmiðju það var), þorsklifur 0,9 p.p.m., í löngulif ur 1,2 ppm. Þykir þess vegna ástæða til þess að fylgjast áfram með DDT-inni haldi i lifur og lýsi. Þess er getið í grieininni, að Food and Drug Administration í Bandaríkjunum hefur sett ákvæði um, hve mikið DDT-magnið má vera í kjöti og eru mörkin sett við 7 p.p.m., en hér á landi eru engin slík ákvæði. Fram kemur, að á síðustu 10 árum var notkun á hreinu DDT hér á landi ea. 1645 kíló. Ilins vegar er bent á að mikið magn af DDT er notað í ávaxtahéruðum Banda rikjanna, t. d. í Florida, og þykja líkur benda til, að það berist hingað með Golfstraumnum. Laxárhátíðin Framhald af bls. 16. Fundurinn harmar, að Þingey ingum skuli nú, með fógetaúr- skurði, gert að setja 135 milljóna króna tryggingu, áður en þeir nái þeim lögbannsrétti, sem Hæsti réttur hefur úrskurðað þeim. Von ar fundurinn, að önnur og betri mynd en umræddur fógetaúrskurð ur eigi eftir að koma fram á ís- lenzku réttarfari í máli þessu, og það verði ekki háð ríkidæmi eða fátækt Þingeyinga, hvort tekst að vernda þá náttúruparadís, sem landsmönnum er svo dýrmæt.“ Er samkomugestir voru að koma á samkomuna, komust þeir varla inn í húsið fyrir einhverj um ungmennum, sem vildu endi lega troða upp á fólk boðskap Vietnamhreyfingarinnar, og var þetta hreyfingunni til lítils sóma, að troða sér svona inn á annarra samkomu. Á samkomunni var Hermóði Guðmundssyni bónda í Árnesi, af- hent ávísun, sem var ágóði af samkomunni, en brúttóinnkoma af inngangseyri og almennum sam skotum í lokin, nam rúmlega þrjú þundruð þúsund krónum. Alþingi Framhald at ’ 8. þessum orðum Bjartmars. Þá beindi hann m. a. þeirri fyrir- spurn til landbúnaðarráðherra þess efnis hvar það yrði fengið, sem nauðsynlegt væri til þess að sinna verkefnum þeim, er gert væri ráð fyrir í athugasemdum við frv. ætti þessi athugasemd ekki að vera marklaust mas. Ingólfur Jónsson svaraði fyrir- spurninni þannig, að hann myndi eiga viðræður við sláturhúsanefnd ina og færi því ekki nánar út í það atriði að þessu sinni. Tæki hann undir það sem sagt væri í athugasemdinni við frv. — hins vegar þyrfti ætíð að meta það hver mi'kill stuðnirigurinn yrði. Stefán Valgeirsson tók síðastur \ til máls í umræðunni og gat ó- ! samræmis þess, er væri milli lagagreinar frv. annars vegar og athugasemdar þess hins vegar. Sagði hann síðan, að það hefði ekki verið fyrr en óþurrkatíð og kal varð á Suðurlandi, sem ráð- stafanir til úrbóta hefðu verið gerð í þeim efnum, þrátt fyrir það, að bændur á Norður- og Aust urlandi hefðu ár eftir ár þar á undan orðið fyrlr miklu tjóni vegna þess sama, án þess að nokk uð hefði verið gert fyrir þá af ríkisvaldsins hálfu. Framhahi af bls. 1 fjögurra ára, dveljast hér í nokkra da-ga eftir að sýningum lýkur. Marlene var einnig dansm'ey, en hætti að dansa ári eftir að sonur þeirra fædd- ist. Hel'gi Tómasson er nú einn af aðaldönsuruim í Borgarball- ettinum í New York, New York City Ballett í Lincoln Center, en hann er nú einn af fjóiru beztu baUettum heims. Helgi Tómasson hóf nám í Listdansgkóla Þjóðleikhússins 1952, árið seim skól'inn var stofn- aður. Kennarar haos þar voru Erik Bidsted og Lisa kona hans, og strax eftir fyrsta veturinn buðu þau honum út til Danmeirkur. Þar var hann síðan við nám á sumrin Bidsted er nú einnig komiinn hing að og verður viðstaddur og starf ar að listdanssýningum Þjóðleik- hússins að þessp sirnni. Hauistið 1959 kom USA ballett- inn hér við í Evrópuferð sinni og hafi hér sýningar. Heligi fékk að æfa með ballettflofcknum og að il'Okioai heimsókn bandaríska lista fólfcsinis hér bauð stjórnandinn, Jerome Robbins, Helga að koma til Band'aríkjaninia. Það varð úr og dansaði Hel'gi síðan með Harifcn ess ballettfliofcknum og ferðaðiist mieð hocium urn víða veröld. Elizalbeth Carrol diansaði einniig með þeim flofcfci og hafa þau Helgi diansað saman. Eflizabeth Carroll er fædd í París. Hún stundaði balilettnám í Monte Carlo hjá rúissnesifcum kennurum. Helgi kvað balliettdiansara illa launaða, þótt kjör þeinra hefðu heldur baitraað að undanförnu. I -i'Wf Framhald af bls. 1 Minh-stíginn, um 32 kílómetra firá landamærum Víetnam. Innrásinni var stjórraað frá ban'darísku herstöðinrai Kbe Sarah, sém er nyrzt 4 Suðuir-Víetnam og upi 10 kílómieitra frá landamærum Daos. Undanfarwa d'aga hafa banda risfcir heinmenn gert gífurlegar stórskotaliðsárásir yfi.r landamær in frá Khe Sarah aufc þess sem loft árásir bafa verið gerðar frá Thai landi. Um 20 þúsund suður-víet- niamskiir henmenn og um 10 þús- und bairadarískir h'ea'menn hafa nú safnazt saman við Khe Sanih og raá- grennd. Pullyrt er, að bandarískir her- rnenn muni ekki sendir yfir landa mærin til Laos. Þátttaka Barada- ríkjamainraa felist í því, að flytja hiermenn Saigoin-stjórnariranar inn yfir landiamæriin í þyrlum og filytja til þeirra liðstyrk og vistir. Staðfest hefur verið ,að innrás- inn hefur verið mætt með mikilli skothríð frá h'ermönnum N.-Víet- na,m og skæruliðum, en eragir blaðamenn fengu að far,a með inn rásarliðirau og eru því allar frétt- ir af bardögunum komnar frá opin berum aðilum. •» a ■ □ ■ ©HUTTQJJ Hvor sér meira, eineygður að- ur eða maður, sem hefur tvö augu? Ráðning á síðustu gátu: Grænland. ÞRIÐJUDAGUR 9. febrúar 1971 WÓÐLEIKHÚSIÐ ÉG VIL, ÉG VIL Sýning miðvikudag kl. 20. FÁST Sýning fimmtudag kl. 20. LISTDANSSÝNING gestir og ðaldansarar: Helgi Tómasson og Elisabeth Carroll Sinfóniuhljómsveit Islands leikur. Stjórnandi: Bohdan Wodiczko Frumsýning föstudag 12. fe- brúar kl. 20. — Uppselt. Önnur sýning laugardag 13. febrúar kl. 20. — Uppselt. Þriðja sýning 14. febrúar kl. 15. — Uppselt. Síðasta sýning 15. febrúar kl. 20. — Uppselt. Aðgöngumiðasa.’an opin frá kl. 13,15 til 20. Sími 1-1200. Kristnihaldið í kvöld. Uppselt. Hitabylgja miðvikudag. Hannibal fimmtudag. Kristnihaldið föstudag. Uppselt. Jörundur laugardag. Aðgöngumiðasa.’an 1 Iðnó er opin frá kl. 14. Sími 13191. Mát í þremur leikjum. Þessi þraut er nákvæmiega 100 ára gömul og þarna þýðir ekki í stöðunni að leika Dg4. Lausnar- leikurinn er 1. Dg8! — Hdl 2. Dg4 — Hd4 3. Dc8 mát eða 1. Dg8! — Kd4 2. Dg4t — Ke3 3. Bh6 mát. RIDG Nýlega sáum við spil, þar sem íslenzku spilararnir á EM í Poœtó- gal sögðu pass, þegar game varanst á hinu borðinu. Hér er spil, sem frönsku Evrópumeistarairnir pöss- uðu gegn Svíþjóð, þegar hægt vaff að vinna slemmu. S Á82 H 2 T 10987 » L ÁK975 S K5 H D1075 T KG652 L D3 S G86 H AKG98 T 4 L 8642 Eins og sést á spilum Norðurs/ Suðurs má vinna sex lauf á spilið — hverju sem spilað er út. Sex slagir eru á lauf, fjórir á hjarta með svíningu, og spaða ás. Þrátt fyrir passið græddu Frakkar þrjú stig á spil’nu, því að Svíar töpuðu 100 á hinu borðinu. S D10943 H 643 T ÁD3 L G10

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.