Tíminn - 11.03.1971, Blaðsíða 5
FIMiWTUBAGUK 11. marz 1971
TfM IN N
5
f
MEÐMORGUN
KAFFINU
Harm Lalli gamli vair mikið
fjírir að ráfa milli kunning.i-
amna, og halda þeim uppi á
kjaftatörnum og spilla þannig
fyrir þeim tímarruji'i. Dag einn
sá Ólafur frænda hans, hann
koma upp eftir götunni á leið-
ínni í heimsókn. svo að hann
var fljótur að setja i lás, en
beið í ganginum og hiustaði.
Lalli gainli bankaði, tók síðan
í húninn og hristi hurðina.
Þegar enginn opnaði, hrópa'ði
hann:
„Eg veit að þú ert inni, Óli,
því að skóhlífarnar eru fyrir
utan.“
„Ég á tvö pör,“ svaraði Óli
snaggaralega fyrir innan.
Göm-ul kona segir við lítinn
strák á götu: „Hva@ heldurðu
nú, að hún móðir þín mundi
segja, ef hún heyrði þig blóta
svona hræðilega?"
Svo var það náunginn, sem
byrjaði að hamstra frímerki,
þegar hann heyrði að burðar-
gjaldið ætti að hækka.
— Á ég að segja þér leynd-
armál? Ég málaði linúðinn bara
á neðri hliðinni.
Förumaður: Gefið fátækum
förumanni munntóbaksbita.
Kaupmaður: Hvað á hann að
vera langur?
F.: Eins og milli eyrna
minna.
K.: Ekki má það nú minna
vera. Lofið mér að mæla.
F.: Það er nú ekki hlaupið
að því. Hér er hægra eyrað
en hitt var tekið af mér er-
lendis í vetur. En af því ég
býst ekki við, að þið hafið svo
mikið, hér í búðinni, þá læt ég
mér nægja það, sem þið eigið
til í augnablikinu.
— Ég er alltaf með sultar-
dropa.
„Hún mundi segja „Guði sé
lof,“ svaraði strákur.
„Skammastu þín ekki?“
„Nei, hún ea* búin að vera
gersamlega heyrnarlaus í tutt-
ugu ár.“
Kennarinn: — Skammastu
þín ekki Óli, að berja strák
sem er minni en þú sjálfur?
Óli: — Nei, ég hef hugsað
mér að verða kennari þegar ég
er orðinn stór.
DENNI
DÆMALAUSI
— Denni, sælgæti er slæmt
fyrir tennurnar.
— Já, eu tunguuni finnst það
gott.
Flemming Anthony heitir ung-
ur maður, dasiskur, sem er lík-
lega dálítið frábrugðinn öðrum
ungum mönnum nú til dags. Hann
er 23 ára, reykir ekki, drekkur
aðeins vatn og mjólk og kaupir
sér ekki föt, þegar hann á aura.
Hann á líka fallegt einbýlishús,
sem hann segist aðeins hafa eign-
azt vegna sparsemi sinar. Kona
hans, Connie notar sterkara orð,
þegar hann heyrir ekki til.
Flemming hefur verið iþrótta- og
popfréttaritari og sungið inn á
nokkrar plötur þar að auki. Hann
hefur oft neitað að leggja nafn
sitt við tóbaksauglýsingar, þótt
hann hafi þar með orðið af stór-
um fjárhæðum. Hann segist að-
eins vilja auglýsa hættulausa
hluti, eins og til dæmis rakarann
sinn! Honum er hjartanlega sama,
þótt fötin séu ekki í tízku, bara ef
þau eru hrein og heil. Honum hef
ur boðizt að syngja inn á plötur
og koma fram á hljómleikum í
Þýzkalandi, en Connie vill ekki, að
hann fari þangað. Hann gæti lent
í klónum á einhverjum kven-
manni. Flemming segir, að Connie
sé yndisleg eiginkona, en hún sé
bara allt af hrædd um hann. Á
myndinni eru þau hjónakornin.
hún heldur á nokkrum plötum,
sem eiga þátt í, hvað maður henn
ar er vinsæll meðal" kvenþjóðar-
innar.
Tom Jones er nýkominn úr
söngfeiiðalagi frá Bandaríkjun-
um. Þar vann hann hjörtu
hverrar einustu húsmóður, sem
sá hann og heyrði, hann syng-
ur söngva, sem allir skilja, og
þar að auki var hann einu sinni
námaverkamaður og þetta er
svo rómantískt. Sem betur fer
gerir Tom þó mistök annað
slagið og vinsældir hans í
Bandaríkjunum minnkuðu um
nokkur stig, þegar það spurð-
ist að hann væri skemmtana-
sjúkur og hefði platað góða,
gamla Presley með sér á næt-
urklúbb í Las Vegas. Það var
frú Presley heldur illa við,
sagði hún blöðunum. Tom er
hins vegar alveg sama um
svona smámuni, hann er á
sama mælikv*rða og F.rank
Sinatra, hvað snertir laun og
sölu á plötum. Hann er vænt-
anlegur til Kaupmannahafnar
bráðlega og þá hefur hann með
sér undirleikara sína, eða að
minnsta kosti hluta af þeim —
32 menn!
- * - ★ —
Britt Ekland, sænska leik-
konan, sem einu sinni var gift
Peter Sellers, skrifaöi nýlcga
brezka kvikmyndaframleiðanda-
sambandinu bréf, þar sem hún
kvartaði sáran yfir, að ekki
væru neraa sárafáar kvikmynd-
ir til, sem hún þyrði að fara og
sjá með dóttur sinni, Victoriu,
sem er fjögurra ára. Þær verði
bara að láta sér nægja að fara
í dýragarðinn, en það sé ekki
skemmtilegt til lcngdar. Von-
andi veitir kvikmyndaframleið-
— ★ — ★ —
endasambandið orðum hennar
athygli, því mæður um allan
heim eiga við þetta vandamál
að stríða.
— ★ — ★ —
Margrét prinsessa og Snow-
don lávarður eru nýkomin heim
úr fríi á Bermuda, þar sem þau
voru í sól og sjó í heilan mrn-
uð. Þau fóru frá Englandi þeg-
ar orðrómurinn um lávarðinn og
Jaqueline Rufus Isaacs stóð
sem hæst. Orðrómurinn varð
til eftir að þau höfðu gert þau
mistök að láta mynda sig saman
í veizlu og svo lá lávarðurinn á
sjúkrahúsi um jólin og þá heim
sótti Jaqueline hann. Síðan
hefur enginn séð neitt meira til
þeirra saman og foreldrar henn-
ar segja, að hún sé góð vinkona
beggja þeirra hjóna og hafi
lengi verið.
Orðrómurinn sagði m.a., að
Tony hefði látið leggja sig inn
á sjúkrahúsið til a@ sleppa við
að vera með Margréti um jólin.
Enginn vissi hvað raunverulega
var að honum og það gerði sög-
una enn sennilegri. Sannleik-
urinn er sá, að Tony var með
gyllinæð, og hefur þjáðst af
henni í mörg ár. Nú er líklega
loksins komið í ljós, að allar
sÖgurnar um framhjáhalds
hans með Jaqucline eru upp-
spuni einn.
Gamla konan er Asta Nielsen
og litla stúlkan heitir Pusle
Helmuth. Þær voru elzta og
yngsta lcikkonan á málverka-
sýningu nokkuriri, sem efnt var
til í Danmörku nýlega. Asta
Nielsen var stjarna, þegar
þöglu myndirnar voru upp á
sitt bezta, en Pusle hefur leik-
ið i ótal barnamyndum og er
þcgar orðin mikil stjarna, að-
eins átta ára.