Tíminn - 11.03.1971, Side 16

Tíminn - 11.03.1971, Side 16
j S’tmmtudagur 11. marz 1971. Niðurstöður rannsókna hafrannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar: LÍTIL HÆTTA Á HAFÍS í VETUR OÓ—Reykjavík, miðvikudag. Niðurstöður rannsókna á ástandi sjávar norður í hafi í febrúar- mánuði s.l. og lega ísbrúnarinnar benda til að hafísinn verði ekki j jafn þaulsetinn gestur hér við j land það sem eftir er vetrar og í vor og undanfarin hafísár. j Ástand sjávar út af Norðurlandij er í vetur enn mildara en s.l. j vetur og eru veturnir þá orðniri tveir í röð sem boða tiltölulega; fjarlæga meginísbrún að vori fyr ir austanverðu Norðurlandi. Þetta kemur fram í fréttabréfi um hafrannsóknarleiðangur sem rannsóknarskipið Bjarni Sæmunds son kom úr s.l. mánudag. Voru athuganirnar gerðar á djúpslóð norðaustur í hafi. Gerðar voru rannsóknir á hitastigi, seltu, súr- efni og næringarsöltum á alls 50 stöðum á ýmsu dýpi. Mesta dýpi sem mælt var í þessum leiðangri var 3500 metrar, en það er mesta dýpi, sem mælt hefur verið í íslenzkum rannsókn- arleiðangri til þessa. Voru sjórann sóknirnar þar norður frá þær ítar- legustu sem gerðar hafa verið á þessum árstíma áður. Ástand sjávarins milli íslands og Jan Mayen síðla vetrar er þýðingarmikill þáttur varðandi skilning á útbreiðslu hafíss á ný- ísmyndun á hafinu norðan fs- lands. Rannsóknirnar benda greini lega til að nýísmyndun geti ekki átt sér stað á þessum slóð- um að óbreyttum aðstæðum, og þær benda einnig til að hafís ber- ist ekki með hafstraumum inn á svæðið fyrir austanverðu Norður- landi, en það er svonefndur aust- urís, á þeim slóðum, sem mestu hefur valdið um tiltölulega víðáttu mikla útbreiðslu hafíssins fyrir Norðurlandi á undanförnum hafís árum, þ.e. frá 1965 til 1969. Framhald á 14. sícAi. Drekkhlaðinn ioðnuveiðibátur í Reykjavíkurhöfn. Er báturinn bundinn við bryggju, en sjá má, að sjórinn flýtur greinilega yfir þilfarið. (Tímamynd GE) HVERFUR LODNAN VH) REYKJANES? 00—Reykjavík, miðvikudag. Síðastliðna nótt og í morgun fengu margir bátar afbragðs góðan loðnuafla við Reykja- nes. Þar var loðnan í þéttum torfum og fylltu skinin sig á 5 til 6 klukkustundum. Voru því víða löndunartafir í morg- un og í dag. Hins vegar brá svo við að fáir eða engir bátar tilkynntu, að þeir væru að koma til landsins með afla síð- ari hluta dags. Virðist því sem loðnan hafi dreifzt og dýpkað strax og hún kom vestur fyrir Reykjanes. Eru bátarnir búnir að elta loðnugönguna allt frá Meðal- landsbugt vestur með allri suð- urströndinni og að Reykjanesi. Virðist sem aflinn hafi verið æ betrj eftir því sem vestar dró. og síðustu sólarhringana hef- ur loðnan verið rétt uppi í land steinum. Ransóknarskipið Árni Frið- riksson er nú úti fyrir Suð- austuriandi og hefur fundið þar miklar loðnutorfur. Eru þær nú á svæðinu milli Hroll- augseyja og Tvískers og bár ust þær fréttir frá skipinu í dag að torfurnar virtust enn vera að stækka og þéttast, en ekkert skip er að veiðum á þessum slóðum, og verksmiðj- urnar á Austurlandi að mestu verkefnalausar, en einhverjú mun hafa verið landið á Eski- firði í dag. Fundur landeigenda ítrekar kröfur um STÖÐVUN VIRK JUN A RFR AMKVÆMD A ÞAR TIL NIDURSTÚÐUR RANNSÚKNA LIGGJA FYRIR SB—Reykjavík, miðvikudag. I endafélagi Laxár og Mývatns, sem Eftir langan fund í Landeig-1 haldinn var í Skjólbrekku í gær- TiSkynning Það tilkynnist hér með, að greinar eftir nafngreinda höf- unda verða ekki teknar til birtingar í Tímanum framveg- is, sé þeim ætlað að koma í tveimur eða fleiri dagblöðum samtímis. Þær greinar, sem þegar hafa borizt Tímanum, með birtingu í fleiri en einu dagblaði fyrir augum, mun Tíminn prenta. Þegar brtingu þeirra lýkur, verða höfundar að gera það upp við sig, hvort þeir vilja samkvæmt fyrr- greindum skilyrðum fá grein sína í Tímann eða ekki. Ritstjórar -------—--------------------------------------------^ kvöldi, hefur nú verið boðaður sáttafundur á Húsavíik á morgun. Landeiglendafundurinn var hald inn til að ræða Skilyrði þau. sem Laxárvirkjunarstjórn setti fyrir áframhaldandi sáttaviðræðum. Á fundinum voru gerðar fjórar sam þykktir. Framkvæmdir við Laxá liggja enn niðri og fer eftir fund inum á morgun, hvort þær hefjast eftir helgina. Landeigendafundurinn í Skjól brekku stóS til kl. hálf þrjú í nótt og voru um 130 manns á fundinum. Eftirfarandi var sam þykikt á fundinum: „Vegna framkominna skilyrða af hálfu Laxárvirkjunarstjórnar fyrir framhaldandi sáttavióVæðum, vill almennur fundur Landeigenda félags Laxár og Mývatns, 9. marz 1971, taka fram eftirfarandi: Fund urinn samþykkir, að stjórn félags ins taki þátt í áframhaldandi við ræðum, en áskilur henni þann rétt, að leggja fram tillögur til lausnar deilunni, með því skilyrði að þær verði ræddar á sáttafund um, ásamt öðrum tillögum." Þá samþykkti fundurinn svo- hljóðandi áskorun til Alþingis og ríkisstjórnarinnar: ,,Almennur fundur í Landeig endafélagi Laxár og Mývatns, haldinn í Skjólbrekku í Mývatns- sveit, 9. marz 1971, skorar á Al- þingi og ríkisstjórn að fresta virkj unarframkvæmdum við Laxá þar til fyrir liggja niðurstöður hinna vísindalegu rannsókna, sem ákveðn Framhald á 14. síc/u Dómur í handritamálinu fyrir mánaðamótin META HANDRITIN A 1 MILLJARÐ DANSKRA KRÓNA EÐA ÞAR YFIR ÉJ—Reykjavík, miðvikudag. — Það er talið, að málflutningi fyrir Hæstarétti í handritamálinu ljúkj síðdegis á föstudag, og að dómur verði kveðinn upp í lok næstu viku og alla vega fyrir mán aðamótin, — sagði Sigurður Bjarnason, ambassador í Kaup mannahöfn, í símviðtali við Tím ann í Oag. en ntunnlegi málflutn rngurinn fyrir Hæstaretti hófst í morgun. Sigurður sagði. að þegar réttur var settur í Hæstarétti kl. 9 í morgun, hefði áheyrendasalurinn verið þéttskipaður. Voru það eink um Danir, sem áhuga hafa haft á þessu máli og meirihluti þeirra stuðningsmenn stjórnar Árnasafns í málinu, en einnig nokkrir ís- lendingar, aðallega sendiráðsmenn. Er dómsskjöl höfðu verið skráð hóf lögfræcAngur stjórnar Árna- safns málflutning sinn. Flutti hann, G. Carlsen, mál sitt til kl. 2, að fundi var frestað til kl. 9 í fyrramálið, cn þá mun hann halda málflutningi sínum áfram. Síðan mun Poul Schmith, lögfræð ingur ráðuneytisins, flytja mál sitt, og er við því búizt að málið verðj tekið til dóms á föstudag. Sigurður sagði, að dómur yrði kveðinn upp í fyrsta lagi í lok næstu viku, en alla vega fyrir mánaðamótin. 13 hæstaréttardóm- arar af 15 dæma í þessu máli. Þetta er í fjórða sinn, sem hand ritamálið kemur fyrir dómstóla í Danmörku. Fyrst var þaó’ stjórn Árnasafns, sem höfðaði mál og krafðist ógildingar á lögunum um afhendingu handritanna. Þeirrj ár- ás var hrundið í undin’étti og síðar í Hæstaréti 1966. Þá hugðist stjórn safnsins höfða annaS mál og krefjast skaðabóta, en ráðu neytið var fyrra til og höfðaði svonefnt viðurkenningarmál og krafðist þess. að ráðuneytið yrði elcki dæmt skaðabótaskylt. Vann ráðuneytið málið í undirrétti. og var málinu þá áfrýjað til Hæsta réttar. í ræðu sinni í dag sagði Carl sen m. a. að meta mætti handrit þau, sem afhenda ætti íslending um, á einn milljarð danskra króna eða meira. Fór hann ítarlega út í fræðilegar kenningar um skaða bótaskyldu við eignarnám, og taldi einsýnt að greiða þyrfti skaðabætur fyrir það eignarnám, sem hér væri um að ræða. Það hefur vakió' nokkra athygii. að formaður stjórnar Árnasafns, Westergaard-Nielsen, ritar í gær grein í Beriingske Tidende, þar sem hann lætur að því liggja, að tapi stjórn Árnasafns málinu, verði því vísað til alþjóðadóm- stólsins í Haag eða mannréttindi ‘ dómstóls Evrópu. Framsóknarkonur Félag framsókn arkvenna heldur fund að Hallveig arstöðum mið- vikudaginn 17. marz kl. 20,30. Þórarinn Þórar- inss. alþingismað ur flytur ræðu. Kosnir verða fulltrúar á flokksþing, félagskon ur athugið breyttan fundardag. Fjölmennið. — Stjórnin. Selfoss - nágrennj Framsóknarvist Síðasta spilakvöldið í þriggja kvölda keppninnj verður í Skarp héðinssalnum sunnudaginn 14. marz og hefst kl. 21. Góð verð laun og veitingar. Afhent verða heildarverðlaun fyrir keppnina. Allir velkomnir. Framsóknarfélag Selfoss.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.