Tíminn - 30.03.1971, Síða 2

Tíminn - 30.03.1971, Síða 2
I TÍMINN ÞRIÐJUDAGUR 30. marz 1971 Frá ráðstefnunni á Akureyrl um helgina. (Tímamynd Kári) Myndarleg ráðstefna framsóknar- manna um þróun ferðamálanna TK—Reykjavík. mánudag. Félagssamband framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi eystra og Framsóknarfélag Reykjavíkur geng ust fyrir ráðstefnu um ferðamál á Akureyri sl. laugardag. Um- ræðuefni ráðstefnunnar'var fram- tíðarþróun íslenzkra ferðamála og voru framsögumenn margir. Ráðstefnan hófst kl. 10.30 að Hótel Varðborg. Sigurður Jóhann esson, framkvæmdastjóri, setti ráð: stefnuna en síðan flutti Einar Ágústsson, varaformaður Fram- sóknarflokksins, ræðu. Þá flutti Birgir Þórhallsson, framkvæmda- •st.jóri erindi um ráðstefnuhald og framtíðarþróun ferðamála á íslandi. Sveinn Sæmundsson, blaðafull- trúi Flugfélagsins flutti erindi um ferðamál og umhverfisvernd. Að þessum ræðum loknum var gert matarhlé og hádegisverður snæddur á Hótel KEA í boði Vals Arnþórssonar kaupfélagsstjóra. Þar flutti Bjami Einarsson, bæjar stjóri, stutt erindi um mikilvægi ferðamála fyrir Akureyri og ná- grenni. Kl. 2 kom ráðstefnan saman að nýju í Hótel Varðborg og flutti þá Heimir Hannesson, lögfræðing- ur, erindi um skipulagsbreyting- ar og fjármálalega uppbyggingu ferðamála. Næstur flutti Sigurð 1. apríl ber ekki upp á 29. marz 1 gærmorgun fengu þeir sem fjöl- miðlum stjórna 1 hendur frétfatil- kynningu þess efnis, að nokkrir að- ilar hefðu stolið sprengiefni með það fyrir augum að stofna til hermdar- verka, fremja mannrán 'og krefjast lausnargjalds. Fréttatillkynning þessi var frá Sakadómi Kópavogs. Svo óvænt bar þessa frétt að höndum, að eflaust hafa flesfir látið sér detta í hug að kominn væri 1. apríl, en það er dagur þegar menn iðka minna alvörumálin en í annan tíma. En ekki var nú svo vel, enda ber 1. apríl ekki upp á 29. marz. Við þann ófögnuð sem um getur í fréttatilkynningunni frá Kópavogi verður því að sitja. Hugtökin hermdarverk og mannrán eru mjög framandi í okkar eyrum, þótt orðin séu það ekki í sjáífu sér, enda linnir varla þessum tvennum ur Magnússon ræðu um ferðamál og landkynningarstarfsemi og að lokum flutti Guðni Þórðarson, for stjóri, erindi um starfsemi og hlutverk ferðaskrifstofa. Að loknum þessum framsögu- erindum hófust hringborðsum- ræður og voru þær fjörugar og stóðu til kvölds. Ályktun ráð- stefnunnar var svo endanlega af- greidd í kvöldverði á Hótel KEA' og ráðstefnunni síðangisliti'ð.^afe formanni kjördæmasambands fram sóknarmanna í Nörðurlandskj’ör- dæmi eystra, Inga Tryggvasyni. Skýrði hann þá frá því að ákveð ið hefði verið að efna til annarr ar ráðstefnu um ferðamál á Norð urlandi í Hótel Reynihlíð við Mývatn í maí-má:nuði. Stjórnendur umræðna á ráð- stefnunni voru þeir Sigurður Jó- hannesson. Kristinn Finnbogason og Ingi Tryggvason. Ályktun sú, er ráðstefnan gerði er svohljóð- andi: „Ályktun ferðamálaráðstefnu Félagasambands framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi eystra Oig Framsóknarfélags Reykjavíkur, sem' haldin var á Akureyri 27. marz 1971. Ferðaþjónusta er þegar orðinn stór þáttur í atvinnulífi þjóðar- innar. Á síðastliðnu ári námu gjaldeyristekjur landsmanna af þáttum glæpastarfseminnar erlendis. Þar skortir heldur ekki réttliætingar á slíkum verknaði, vegna þess að jafnan fylgir frásögnum af slíku eins konar greinargerð um réttlætis- kennd og siðferðistilfinningu þeirra sem hermdarverkin og mannránin fremja. Ofbeldishópamir hafa á sér pólitískt snið, og í stkjóli þess er óbeint látið að því liggja að hermdar- verk og mannrán séu liður í póli- tískri baráttu, og því talin réttlætan- leg undir vissum kringumstæðum. íslendingar hafa lönfium státað af því að vera vopnlaus þjóð. Við höf- um einnig fagnað nánara sambandi við umheiminn og margt af honum lært, sem orðið hefur til góðs. En umheimurinn er vopnaður, og um- heimurinn stnnir sínum hermdar- verkum og mannránum. Nú er það einnig að lærast. Komið hefur á dng inn að steli menn af þessari vopn- erlendum ferðamönnum nær 1 milljarð íslenzkra króna. Heildarhlutur ferðamála í þjóð- arbúskapnum er þó miklú stærri, ef allt er tekið orneð. Ráðstefnan bendir á, að með skipulögðum vinnubrögðum má gera þessa atvinnugrein að enn stærri og arðmeiri þætti, í at- vinnulífinu, og nýta þannig þau miklu gæði, sem landið býr yfir á þessu sviði.-Til'þeas að svo megi verða telur ráðstefnan þetta nauð synlegast: 1. Heildaráætlun verði gerð um framtíðarþróun íslenzkra ferðamála. Verði sú áætlun grundvölluð á nauðsynlegum rannsóknum og undirbúningi, enda verði hún gerð í tengsl um við aðra þætti atvinnu- lífs. 2. Ferðaþjónusta verði mikil- vægur þáttur í landshluta- áætlunum um uppbyggingu atvinnulífs. 3. Nauðsynlegt er að endur- skipuleggja yfirstjórn ferða- mála. Ferðamálaráð með nýrri skipan og víðtækari verði sjálfstæður fram- kvæmdaraðili með öflugum fjárráðum. 4. Ferðamálasjóður verði marg- faldaður og honum tryggðar lausu og stríðslausu þjóð sprengi- efni, þá er það til þess að geta unnið hermdarverk og framið mannrán. OfbeldisgleSln I samtimanum Helzta skemmtiefnið í samtímanum er byggt á ofbeldi. Skemmtiiðnaður- inn hefur komið þessu þannig fyrir, til að sv'ara upp á stöðugt vaxandi kröfur um athygli, að allur sigur og endalók kvikmyndar eða frásagnar þykir ómerkilegur nema sá sem tap- ar sé drepinn. Og það er staðreynd í lygiveröld skemmtiiðnaðarins, að sprengiefni og byssukúlur eru sigur- tækin. Engir yfirburðir mannsins sjálfs standast þessi sigurtæki. Og grófgerð lygin virðist í augum skemmtunarmanna ekki vera nógu sannfærandi haldi sá sem tapar lífi slnu. Hljómfall þessarar heimsku Iætur svo vel í eyrum, að ekki er nóg með að byssukúlan og prengiefn- ið færi lygurunum hundruð mil'ljóna í arð á ári hverju, heldur vilja ýmsir fara að taka til höndunum í veröld raunveruleikans. Það er þá, sem lólk heidur að kominn sé 1. apríl. Svarthöfði fastar tekjur í sanngjörnu hlutfalli við þátt ferðamál- anna í þjóðarbúskapnum á hverjum tíma. 5. Innlendar peningastofnanir viðurkenni í verki hinn vax- andi þátt ferðaþjónustu við öflun þjóðartekna. 6. Leitað verði samvinnu við alþjóðlegar lánastofnanir um uppbyggingu íslenzkra ferða- mála. 7. Athugað verði við íslenzku ' flugfélögin hvort ekki sé tfmabært að taka upp fram- haldsfargjöld með verulegum afslætti til og frá landshlut- um þegar seldir eru farmið- ar landa milli. 8. Efla þarf hverskonar ferða- þjónustu í sveitum landsins og skipuleggja ferðaþjón- ustu á bændabýlum. 9. Stofnuð verði ferðamálafó- lög í einstökum landshlut- um, þar sem hagsmuna og áhugaaðilar taki höndum sam an um skipulagningu ogf efl- ingu ferðamála og bætt nýt- ing þeirrar aðstöðu, scm fyr- ir hendi er. Að lokum vill ráðstefan á Akur- eyri benda á þá miklu möguleika, sem fyrir hendi eru í þessum lands hluta os landinu sem heild til stóraukinnar ferðaþjónustu fyrir erlenda sem innlenda ferðamenn“. Dagsbrún gefur 200 þúsund kr. EJ—Reykjavík, mánudag. Verkamannafélagið Dagsbrún í Reykjavík samþykkti á aðalfundi sínum í gær að í tilefni af 10 ára afmæli Styrktarsjóðs Dagsbrúnar- manna, sem er á þessu ári, færi sjóðurinn Hjartavernd og Krabba- meinsfélagi íslands 100 þúsund krónur hvoru félagi að gjöf sem þakklætisvott fyrir gott heilsu- gæzlustarf þeirra samtaka. Athugasemd Þórhallur Halldórsson, fram- kvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits- ins, hefur beðið blaðið að taka fram vegna fréttar í sunnudags- blaðinu, að einn maður starfi við eftirlit með íbúðarhúsnæði í borginni, tveir við eftirlit með verksmiðjum og vinnustöðum og þrír við matvælaeftirlit. en af þeim sé einn við nám erlendis. Er þessu hér með komið á fram- færi. C"»"—I Sunna kynnir vortízkuna á Hótel Sögu SB- Reykjavík, mánudag. „Vortízkuhátíðin 1971“ nefn- ist hátíð, sem Ferðaskrifstofan Sunna gengst fyrir á Hótel Sögu á fimmtudagskvöldið. Til gangurinn er að sýna íslending um það nýjasta úr tízkuheim- inum. Fötin eru sýnishorn, fengin að láni frá London, París og Róm og skartgripir frá Beirut og Mallorca. Meðal fatanna er forláta svartur minkapels, sem metin er á eina milljón íslenzkra króna og er hann lánaður frá Sagamink í Kaupmannahöfn. Fatnaðurinn er af ýmsu tagi, allt frá strandfatnaði upp í íburðarmikla samkvæmiskjóla. Að sjálfsögðu eru stuttbuxur mikilsráðandi, og allir kjólar í midi eða maxi. En sjón er sögu ríkari og á fimmtudags- kvöldið gefst þeim, sem hug hafa á að kynnast vortízkunni 1971, tækifæri til að sjá alla \ dýrðina. Forsala aðgöngumiða er á morgun, þriðjudag, og verða tekin frá borð um leið. Miðinn kostar 950 krónur og er matur innifalinn í verðinu. Hver að- göngumiði er númeraður og er happdrættisvinningur kvöldsins Parísarferð og gefst vinnings- hafa 'færi á að heimsækja tízkuhús Diors í París og skoða sig þar um. Ennfremur verða skemmtiatriði á hátíðinni. — Kynnir er Guðni Þórðarson,. forstjóri Sunnu. Litli drengurinn fannst drukknaður FB-Reykjavík, mánudag. Litli drengurinn frá Njarðvík, Njörður Garðarsson, sem týndist í síðustu viku, fannst drukknaður við hafnargarðinn í Njarðvíkum á sunnudaginn. Drengsins hafði verið leitað mjög nákvæmlega, fjörur gengnar, og jafnvel kafað í höfninni, en hjól hans fannst á hafnarbakkanum, eins og frá hef ur verið skýrt. Á sunnudaginn hófst svo aftur leit í höfninni í Njarðvík, og fundu þá kafarar lík litla drengsins. Skákkeppnín Svart: Taflfélag Akureyrari Jóhann Snorrason og Margeir Steingrimssoa V fl O Cl 3 d ft H ABCDBFGB Hviti l'aflfélag Kevkjavfkuri Gnnnai Gunnarsson og Trausti Björnsson. Samið um jafntefli

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.