Tíminn - 30.03.1971, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 30. marz 1911
VIL KAUPA IBÚS
Er kaupandi að 4—5 herbergja íbúð eða einbýl-
ishúsi í Reykjavík. Má vera í gamla hluta bæjarins.
Tiiboð sendist afgreiðslu blaðsins fyrir fimmtu-
dagskvöld, merkt „Vil selja“.
AÐALFUNDUR
DAGSBRÚNAR
EJ—Reykjavík, 'mánoidag.
Á aSalfundi Dagsbrúnar í
Reykjavtk, sem haldinn var í gær,
var samþykkt a3 kjósa 13 manna
nefnd sem vinni með stjóminni
að endurskoSun á stöðu og stefnu
félagsins í kjaramálum og al-
mennri endurskoðun á samningum
félagsins. Segir í samþykkt fund-
arins, að verkamenn, sem eru í
hópi hinna lægst launuðu í þjóð-
félaginu og þeirra, sem búa við
lengstan dagvinnutíma, hljóti nú
að stefna að 40 stunda vinnu-
viku og verulegri kauphækkun.
Á fundinum var lýst stjórnar-
kjöri, en stjómin var sjálfkjör-
in og er Eðvarð Sigurðsson áfram
formaður, Guðmundur J. Guð-
mundsson varaformaður. Halldór
Bjömsson ritari, Pétur Lárusson
gjaldkeri, Andrés Guðbrandsson
fjármálaritari og Baldur Bjama-
son og Finnbogi Þorsteinsson með
stjómendur.
Á árinu greiddi vinnudeilusjóð
ur félagsins rúmlega 3 milljónir
í verkfallsstyrki. í atvinnuleys-
isbætur voru greiddar rúmar 5
milljónir króna á móti 16.4 millj-
ónum árið áður. Úr Styrktar-
sjóði Dagsbrúnarmanna voru
greiddar rúmar 4.2 milljónir til
436 félagsmanna fyrir rúmlega 30
þúsund bótadaga. og hafði bóta-
dögum fjölgað frá árinu 1969 um
7.3%.
Á árinu fengu 99 Dagsbrúnar-
menn greidd eftirlaun samkvæmt
lögunum um greiðslu eftirlauna
til aldraðra félaga í verkalýðsfé-
lögum. og nam samanlögð greiðsla
Mannrán
Pramhald af bls. 1
sókn í öðrum umdaemum vegna
brota sömu manna þar.
Eitt innbrota þeirra, sem
framangreindar rannsóknir hafa
beinzt a'ð, er innbrot í birgða-
geymslur Kópavogskaupstaðar
snemma í febrúarmánuði sl., en
þar var stolið miklu magni af
sprengiefni. Hefur það innbrot
og þjófnaður sprengiefnisins nú
verið upplýst. Við rannsókn
þess máls hefur það komið
fram, að þjófarnir og félagar
þeirra hafi rætt um það sín á
milli að fremja innbrotið og
síðan nota sprengiefnið og nokk-
ur önnur tæki, sem einnig voru
stolin, til hertndarverka hér á
landi. Við rannsókn þessa komu
einnig fram upplýsingar um við-
ræður nokkurra sömu aðila um
að framkvæma mannrán til að
krefjast lausnargjalds fyrir,
sem nota skyldi til að standa
straum af kostnaði af þessum
fyrirhuguðu hermdarverkum.
Fréttatilkynning þessi er gef-
in út vegna upplýsingatilmæla
dagblaöa. Ekki þykir rétt að
veita frekari upplýsingar um
málið að svo stöddu,“
til þeirra rúmlega 1.4 milljónum
króna,
í yfirlýsingu fundarins uim
kjaramálin er auk áðurnefndra
atriða samþykkt mótmæli gegn
þeim árásum á samninga og samn
ingsfrelsi verkalýðsfélaganna sem
fólst í verðstöðvunarlögum rík-
isstjórnarinnar.
Þá var samþykkt stuðningsyf-
irlýsing við þingsályktunartillögu
Ólafs Jóhannessonar, Lúðvíks Jós-
efssonar og Björns Jónssonar um
útfærslu fiskveiðilögsögunnar.
Fundurinn lýsti einnig yfir
stuðningi við frumvarp Eðvarðs
Sigurðssonar og Magnúsar Kjart-
anssonar um lögfestingu 40 stunda
vinnuviku við frumvarp sömu að-
ila um kauptryggingarsjóð, og við
frumvarp Eðvarðs Sigurýss,onor ,9g
Lúðvíks Jósefssonar um að við-
‘bótarlán Húsnæðismálastjórnar til
félags verkalýðsfélagahna verði
aftur lögfest.
Loks samþykkti fundurinn
„áskorun til forustumanna verka-
lýðshreyfingarinnar um aö greiðsl-
ur úr almannatrygginigum og líf-
eyrissjóðum verði ekki iægri en
nemur dagvinnukaupi á lægsta
taxta Dagsbrúnar," og lýst var
yfir „samúð með frelsisbaráttu
þjóðanna í Indó-Kína og árásar-
stríð Bandaríkjanna þar fordæmt",
jafnframt því sem skorað var „á
alla íslenzka hernámsandstæðinga
að slaka hvergi á í baráttu sinni
fyrir brottför Bandaríkjahers af
íslandi og úrsögn íslands úr
Nato.“
Frá AKþingi
Framhald af bls. 6
sem fæstir eru í hópi láglauna
fólks, sérstök skattfríðindi.
Þá má benda á, að skattfrelsi
hlutabréfaarðs hlýtur að ýta undir
óeðlilcga fjölgun smárra hlutafé-
laga. Á þetta er bent í áðurnefndu
bréfi forustumanna atvinnurek-
cndasamtakanna til fjárhagsnefnd
ar Nd. Þar segir, að umrædd fríð-
indi mundu að líkindum þrýsta
einstaklingsrekstrinum að mestu
yfir í smáhlutafélög.
Það cr skoðun undirritaðs minni
hluta fjárhagsnefndar, að skatta-
löggjöfin sé nú komin í það horf,
að ekki megi lengur draga að
endurskoða hana í heild. Sú end-
urskoðun eigi að ná til allra álaga,
scm atvinnufyrirtæki eða einstak-
lingar grciða til ríkis, sveitarfé-
laga, almannatrygginga og ann-
arra opinberra aðila. Það mun
gera þessa endurskoðun enn crfið
ari, ef einstakir þættir skattalag-
anna, eins og hór er gert, verða
teknir út úr og afgreiddir sér-
staklcga. Sú breyting, sem stefnt
sé að með þessu frumvarpi, á svo
enn minni rétt á sér, þegar þess
er gætt, að hún hlýtur að di-aga
úr c:g‘n fjármyndun hjá fyrirtækj
TÍMINN
um. Síðast en ekki sízt, er svo
að nefna það, að þessi breyting
er mjög ranglát gagnvart láglauna
fólki, sem á að búa áfram við
stórfalsaða skattvísitölu.
í samræmi við þctta leggja
undirritaðir til, að frv. veröi af-
greitt með svohljóðandi
RÖKSTUDDRI DAGSKRÁ
Neöri deild Alþingis telur
nauösynlegt, að fram fari hið
allra fyrsta heildarendurskoð
un á öllum lögboðnum álög-
um, hvort heldur þau renna
til ríkisins, sveitarfélaga,
stofnana eða sjóða, og álítur
því óeðlilegt, að einstakir tak-
markaðir þættir skattamál-
anna, eins og tekju- og eignar
skattur fyrirtækja, séu teknir
til afgreiðslu, fyrr en þeirri
endurskoðun er lokið, og tek-
ur því fyrir næsta mál á dag-
skrá.
Arður af hlutahréfum
Framhald af bls. 1
hags. Samkvæmt frv. Framsóknar
manna um fyrningarnar, skal jafn
an miða þær við endurkaups-
verð.“
Á þingfréttasíðu blaðsins, er
nefndarálit Þórarins Þórarinsson-
ar og Vilhjálms Hjálmarssonar
— fulltrúa Framsóknarflokksins í
fjárliagsnefnd, birt í heild.
Heimsækja forsetann
i Framhald af bls 1
inn þeirra, var fyrst og fremst sú,
að hann ritaði þeim persónulegt
bréf á fullkomlega réttri sænsku.
Hans Forslund var boðið til Is-
lands. Hann fór þangað í vetur til
þess að kanna möguleikana á að
allur bekkurinn kæmi í heimsókn
þangað. I Reykjavík hitti hann for-
setann, sem tók honum vel, og
sagði, að börnin væru öll velkocnin
í heimsókn til Bessastaða.
Fræðslustjóri Reykjavikur, Jón-
as B. Jónsson, tryggði húsaskjól
fyrir Hállsta-börnin, og Hans Fors-
lund reyndi einnig að ná samning-
um við veitingahús og sérleyfis-
hafa og ganga frá öðrum atriðum
varðandi heimsóknina.
Hann segir:
„Samt sem áður leit þetta ekki
sérlega vel út, þegar vi® fórum að
reikna út ferðakostnaðinn í I-Iállsta.
Ferðin kostar rúmlega 500 krónur
sænskar (um 8000 ísl.) á hvern
nemanda. Ódýrari flugferð með
leiguvél, sem við höfðum loforð
fyrir, virðist úr sögunni.“
Nú er allt gert til þess að koma
sjöttubekkingum í Hállsta í
draumaferðina. Nemendur reyna
allt til fjáröflunar, svo sem að
halda basar, selja happdrættis-
miða og fleira.
Ef allt gengur samkvæmt áætl-
un, er ætlunin að í ágúst fái for-
seti íslands að heilsa upp á hina
ungu gesti sína.“
Lokunarfími
Framhalo af bls i
nýju. Tillögur nefndarinnar eru
í megindráttum þær, að lokun-
artíminn verði framvegis ákveð-
inn kl. 6 e. h. alla daga ncma
þriðjudaga og föstudaga, en þá
verði heimilt að hafa verzlanir
opnar til kl. 10 e. h.
Taldar eru likur á því, að
Kaupmannasamtökin og aðrir
aðilar muni sameinast um tillög-
ur nefndarinnar, en þær hafa
þegar fengið jákvæðar undir-
tektir, þar scm slíkt hefur verið
kannað.
íþróttir
Framhald af bls 9
Kristni Jörundssyni. og Einari
Gunnarssyni, ÍBK báðum vikið af
leikvelli eftir smá ,,HANASLAG“.
Á Akranesi var leikinn fyrsti
leikurinn í „litlu bikarkeppninni“
og voru það heimamenn og Hafn-
firðingar ,sem léku. Úrslitin þar
urðu þau sömu og í Keflavík 5:0,
og skoruðu Skagamenn öll mörk-
in. Var einniig 2:0 í hálfleik í þeim
leik. Björn Lárusson, skoraði
„hat-trick“ eins og Kristinn Jör-
undsson, með Fram. En Eyleifur
og Andrés skoruðu hin tvö mörk
in.
„Landsliðið" lék á sunndaginn
æfingaleik við Breiðablik. Lauk
þeim leik með sigri „landsliðs-
ins“ 2:0. og voru bæði mörkin
skoruð í fyrri hálfleik. Það fyrra
Ingvar Elísson, Val úr vítaspyrnu
og það síðara Ingi Björn Alberts-
son Val.
A.m.k. einn æfingaieikur í knatt
spyrnu fór fram um helgina. Val-
ur og KR léku og lauk leiknum
með sigri Vals 5:1.
Þriðjudagsgrein
Framhald af bls. 7.
skýrt liefir verið frá í blöðuan
og útvarpi.
Nýlega barst frétt um það,
að Reyðarfjörður væri aftur við
urkenndur sem aðalinnflutnings-
höfn, en áður höfðu aðrir iantls
fjórðungar fengið sínar leiðrétt-
ingar. Undanfari þeirrar ákvörð-
unar virðist vera eitthvað á
þessa leið:
Mögnuð óánægja viðskipta-
vina og umboðsmanna er tjáð
með ýmsum hætti. Mótmæli
ýmissa stærri samtaka í héraði,
s. s. Kjördæmissamþands Fram-
sóknarmanna, sem fyrst hreyfði
málinu á aðalfundi sínum, og
Sambands sveitarfélaga í Av.st-
urlandskjördæmi, sem hefir unn
ið að málinu síðan í sumar. End-
urteknar fyrirspurnir og tillögu
gerð í. Alþingi níi í vetur. Skrif
í blöðum og glöggar upplýsing-
ar í útvarpserindi um einstaka
þætti.
Þróun vöruflutninga á sjó á
árunum 1962-’68 talar skýru
máli um takmarkaðan skilning
núverandi valdliafa á aðstöðu
landsbyggðarinnar. En síðustu
viðijurðir sýna hins vegar hvern
ig samt sem áður er hægt að
glæða skilninginn í þeim her-
búðum, ef hart er að gengið,
ekki sízt rétt fyrir kosningarn-
ar. En þótt fengizt hafi viður-
kenndar fleiri innflutningshafn-
ir, þá skortir mikið á að dreif-
býlið hafi endurheimt stöðu
sína frá 1962, að jiví er varðar
vöruflutninga á sjó. Væri það
þó öllum fyrir beztu og verður
enn að fylgja þessu máli fast
eftir.
Eins og hér hefir verið drep-
ið á, hafa f jölmörg landsbyggð- i
ar- eða jafnvægistnál verið til
skoðunar og aðgerða á opinber-
um vettvangi að undanförnu.
Einnig ýmis önnur mál., sem
eru í eðli sínu fremur lijóðmál
en sérmál byggðarlaga, þótt bau
séu jafnvægisaukandi, svo sem
aðeerðir í samgöngumálum og
stuðningur við einstaka hætti
í landbúnaði, sjávarútvegi osf
iðnaði. Verða þau ekki gerð að
umtalsefni í þessu greinarkorni.
FRUMVARP
FP UWSÓKNARMANNA
Á öndverðu bingi, bví er nú
situr, fluttu framsóknarmeun
enn á nv frumvarp sitt um
„Bygeðainfnvægisstofnun ríkis-
ins og r 'ðstafanir til að sluðla
að verndun og eflingu lands-
bvggða og koma í veg fyrir
lana“.
eyðingu lífvænlegra byggðar-
Með þessu frumvarpi er
stefnt að því að koma á fót
sjálfstæðri og skipulagðri starf-
semi til frambúðar, Byggðajafn-
vægisstofnun, sem hafi það fjár-
framlag við að styðjast, að veru-
legs árangurs megi væuta af
störfum hennar.
Byggðajafnvægisstofnuninni
er ætlað að framkvæma rann-
sóknir og gera tillögur í áætl-
unarformi um framkvæmdir og
fjármagnsnotkun um lengri eða
skemmri tíma yfirleitt svo ár-
um skiptir. Er henni ætlað að
hafa náið samstarf við héraðs-
stjórnir (hreppsnefndir, bæjar-
stjórnir, sýslunefndir og sam-
bönd sveitarfélaga).
Gert er ráð fyrir, að héraðs-
stjórnir geti skipað svæðisnefnd
ir, er taki að sér gerð svæðis-
áætlana og framkvæmd þeirra.
Stofnunin veitir viðbótarlán
til atvinnuuppbyggingar, í sum-
um tilvikum vaxtalaus, og getur
einnig veitt bein framlög. Hún
hefur einnig heimild til að veita
sveitarfélögum viðbótarlán til
að koma upp íbúðarhiisnæði,
þar sem skortur á hæfum íbúð-
um hindrar eðlilegan vöxt
byggðar. )
Veita má sem framlag allt
að 2 ára vexti af bráðabirgða-
lánum, sem aflað er til fram-
kvæmda og eiga að endurgreið-
ast af opinberu framlagi. Einn-
ig má veita slík bráðabirgða-
lán vaxtalaus, ef sérstaklega
stendur á, enda séu þau ekki
fáanleg á annan hátt.
Heimilt er Byggðajafnvægis-
nefnd að gerast fyrir hönd sjóðs
ins meðeigandi í atvinnufyrir-
tæki, sem hún telur nauðsyn-
legt. Ákvörðun um það verður
ekki aftur tckin nema með at-
kvæðum 5 stjómarmanna af
sjö. Sama gildir, þegar veitt
eru óafturkræf framlög.
Nefndin skal kvödd ráða um
staðarval, þegar komið er upp
atvinnufyrirtækjum með fjár-
hagslegum stuðningi ríkisvalds-
ins.
Ákvæði til hráðabirgða mæl-
ir svo fyrir, að Byggðajafnvæg-
isnefnd skuli þegar eftir gildis-
töku laganna gera bráðabirgða-
áætlanir um aðkallandi fram-
kvæmdir og uppbyggingu at-
vinnuvega í þeim byggðarlög-
um. sem yfirvofandi hætta er
á að fari í eyði, að dómi nefnd-
arinnar, enda séu þar vel við-
unandi atvinnurekstrarskilyrði.
Til framkvæmda slíkum bráða-
birgðaáætlunum er heimilt að
veita framlög, eftir því sem nán-
ar er þar fyrir mælt.
Meginbreytingarnar, sem frv.
þetta felur í sér. miðað við
gildandi lagaákvæði, eru eink-
um þrenns konar.
Byggðaiafnvægisstofnunin
ska’ þafa með böndum áætíuna
gerð og skipulagningu og eiga
frum.kvæði að aðscrðum, þar
sem bess er talin þörf.
Hún skal taka upp ákveðið
samstarf við héraðsstjórnarað-
ila um undirbúning og fram-
kvæmdir.
Tryggt er til frambúðar stór-
aukið fé til starfseminnar.
í fljótu bragði kann mönnum
að finnast sem hér sé helzt til
mikið í lagt. En við athugun
sést strax, að svo er ekki. Sker
þar úr hinn stóri hlutur ýmissa
striálbýlissvæði f gjaldeyris-
öflun og annarri verðmætaskön-
un í þjóðarbúskapnum. — hitt
eigi síður, að nýting alls land«-
ins og hafsins umhverfis bað
er einn snarasti þátturinn í bar.
áttu bióðarinnar fyrir sjálf-
stæð' fclands og íslenzkri menn-
ingu. En ef bvggð skal haldast
vítt um land. vcrður að tryggia
sambærileg lífskjör án tillits
til búsetu.
Vilhjálmur Hjálmarsson