Tíminn - 20.04.1971, Blaðsíða 1
1
ÁTTA MENN FÓRUST VIÐ HORNAFJARÐARÓS - BLS. 24
Bergþóruqöta. 3
SSman 19032—413909
*******
Þriðjudagur 20. apríl 1971
1
Kjörnir í miðstjórn
EB—Reykjavík, mánudag.
Eftirtaldir mcnn voru í dag
kjömir aðalmenn í miðstjórn Fram
sóknarflokksins:
Helgi Bergs, bankastjóri, Reykja-
vík (217 atkv.).
Jóhannes Elíasson, bankastjóri,
Reykjavík (209 atkv.).
Tómas Árnason, hæstaréttarlög-
maður, Kópavogi (187 atkv.).
Sigríður Thorlacius, frú, Reykja-
vík (185 atkv.).
Halldór Kristjánsson, bóndi,
Kirkjubóli (183 atkv.).
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir,
bæjarfulltrúi, Hafnarfirði (178 at-
kv.).
Andrés Kristjánsson, ritstjóri,
Kópavogi (170 atkv.).
Erlendur Einarsson, forstjóri,
Reykjavík (162 atkv.).
Jónas Jónsson, ráðunautur,
Reykjavík (161 atkv.).
Kristján Benediktsson, borgar-
fulltrúi, Reykjavík (156 atkv.).
Jón Kjartansson, forstjóri,
Reykjavík (144 atkv.).
Daníel Ágústínusson, fulltrúi,
Akranesi (135 atkv.).
Kjörnir fulltrúar ungra Fram-
sóknarmanna:
Ólafur Ragnar Grímsson, Sel-
tjarnarncsi (210 atkv.).
Baldur Óskarsson, Reykjavík
(196 atkv.).
Már Pétursson, Reykjavík (176
atkv.).
Alls kusu 332. Ógildir kjörscðlar
voru fjórir.
EB—Rcykjavík, mánudag.
Á flokksþingi Framsóknarflokks
ins í dag var unnið að afgreiðslu
mála, og ennfremur fór fram
kosning 15 aðalmanna í miðstjóm
flokksins.
Hafsteinn Þorvaldsson
Tekur sæti
Helga á
iistanum
EB—Reykjavík, mánudag.
Á fundi kjördæmisráðs Fram-
sóknarflokksins í Suðurlandskjör-
dæmi, er haldinn var í gær, var
samþykkt, að Hafsteinn Þorvalds-
son, sjúkrahúsráðsmaður á Sel-
fossi, skipaði 3. sæti á framboðs-
lista flokksins í Suðurlandskjör-
dæmi.
Á morgun, þriðjudag, lieldur
afgreiðsla mála áfram auk þess
sem kosnir verða varamenn í
miðstjórn. Er gert ráð fyrir, að
þinginu Ijúki seinni liluta morgun-
dagsins, en á miðvikudaginn verð-
ur svo aðalftindur miðstjómar.
í byrjun fundarins í dag, er
fram fór í Súinasal Hótel Sögu
mælti Halldór E. Sigurðsson fyrir
niðurstöðum flokksmálanefndar
um lög flokksins og ályktunartil-
lögum nefndarinnar. Urðu nokkr-
ar umræður um þessi efni og tóku
þátt í þeim, Úlafur Jóhannesson,
Gísli Guðmundsson, Jónatan Þór-
mundsson, Jóhannes Elíasson,
Alvar Óskarsson, Eysteinn Jóns-
son og Kristinn Finnbogason.
Voru lög flokksins og ályktunar-
tillögur síðan samþykktar mcð
framkomnum breytingartillögum.
Þá voru ályktanir atvinnumála-
nefndar teknar til umræðu. Jón
Skaftason var framsögumaöur
nefndarinnar, en auk hans tóku til
LANDINU ViRÐl SKIPT
/ 7 HEILBRICÐISUMDÆMI
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Nefnd sem skipuð var af heil-
brigðisráðlierra hefur nú skilað
tillögum og greinargerð um ný-
skipan heilbrigðismála. Það sem
nefndin leggur til, er að landinu
verði skipt í sjö heilbrigðismála
umdæmi og verði héraðslæknir
yfir hverju þcirra. Þá er lagt til
að embætti landlæknis verði lagt
niður en ráðuneytisstjóri heil-
brigðisráðuneytisins verði yfirmað
ur allra heilbrigðismála.
Gert er ráð fyrir að heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytið skipt
ist í eftirtaldar deildir: Heilsu-
gæzludeild, sjúkrahúsmáladeild,
heilbrigðisef tirlit, lyf j amáladeild,
tryggingamáladeild og áætlana-
og rannsóknardeild.
Læknishéruðin verða þessi:
Reykjavíkurhérað, tekur yfir
svæðið frá Herdísarvík að Hval-
fjarðarbotni.
Aðsetur héraðslæknis í Reykja
vík.
Vesturlandshérað, tekur yfir
svæðið frá Hvalfjarðarbotni að
Vatnsfirði á Barðaströnd.
Aðsetur hóraðslæknis í Borgar
nesi.
Vestfjarðahérað, tekur yfir svæð
ið frá Vatnsfirði á Barðaströnd að
Reykjarfirði á Ströndum. Aðset-
ur héraðslæknis á ísafirði.
Norðurlandshérað, tekur yfir
svæðið frá Reykjarfirði á Strönd
um og að Siglunesi.
Framhald á bls. 11
máls Andrés Kristjánsson, Stein-
grímur Hermannsson, Heimir
Hannesson, Bjöm Einarsson,
Daníel Ágústínusson, Böðvar
Steinþórsson, Magnús Óskarsson,
Einar Birnir, Gunnar Guðbjarts-
son, Jónas Jónsson, Vilhjálmur
Hjálmarsson, Þórður Snæbjöms-
son, Kristinn Finnbogason, fvar
ívarsson og Stefán Reykjalín.
Einkum urðu umræður trm raf-
orkumál.
Að lokinni afgreiðslu atvinnu-
málanna, mælti Jón Kjartansson
fyrir ályktunum SSlagsmátanefnd-
ar, og fyrir fendarhlé kL 19 hafði
Eggert Ólafsson tekið tS máls auk
framsögumarms, en þá voru 5 á
mælendaskrá. — Fundurtnn hófst
svo að nýju Id. 2L Fundarstjóri í
dag var Þorsteinn Sigurðsson á
Vatnsleysu.
Miklar almennar umræSur
Eins og frá var skýrt í Waðinu
á sunnudaginn, urðu fjörugar um-
ræður á fendinum á laugardaginn,
Framhald á bls. 11.
FB—Reykjavík, mánudag.
Ríkisstjórnin sendi í dag út
tilkynningu um komu Vædder-
ens, skipsins, sem flytur hand-
ritin heim, og móttökuathöfn
þá, sem fram fer er handritin
koma til Reykjavíkur:
„Svo sem skýrt hefur verið
frá, er danska eftirlitsskipið
„Vædderen“ væntanlegt til
Reykjavíkur frá Kaupmanna-
höfn miðvikudaginn 21. apríl
n. k. með Flateyjarbók og Kon
ungsbók Eddukvæða. Fer mót-
tökuathöfn fram á hafnarbakk
anum kl. 11 árdegis, og verður
útvarpað og sjónvarpað frá
henni samtímis. Það eru til-
mæli ríkisstjórnarinnar, að þar
sem því verður við komið verði
Framhald á bls. 10.
I
j
I