Tíminn - 20.04.1971, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 20. aprfl 1971
TFMTMN
3
BÆJARBRUNI Á VOPNAFIRDI
SS—Vopnafirði, mánudag.
Bærinn Fremri Hlíð í Vopna-
firði brann á laugardagsmorg-
uninn. íbúar hússins urðu varir
við eld, milli kl. átta og hálf
níu um morguninn, og var kall-
að á slökkvilið um kl. hálf níu.
Það var komið á vettvang um
hálftíma síðar. Þá var húsið al-
elda. Unnið var að því að
slökkva eldinn í hálfan annan
tíma, en þá var allt brunnið,
sem brunnið gat. Húsið var
hlaðið einnar hæðar steinhús,
en innréttingar úr timbri.
Bóndinn á bænum er Valur
Guðmundsson, og bjó hann
þarna með konu sinni og einu
barni, en auk þeirra bjuggu
þarna foreldrar Vals, tvö yngri
börn þeirra og fósturbarn.
Fólkið varð vart við eldinn
um morguninn, um það leyti,
sem það var að fara á fætur.
Ekki er kunnugt um eldsupp-
tök. Húsið er tryggt eðlilegri
brunatryggingu, en innbú var
hins vegar mjög lágt vátryggt.
Nokkuð af innbúi bjargaðist út,
en þó er það töluvert skemmt
af reyk og vatni.
Veður var mjög leiðinlegt á
meðan á slökkvistarfinu stóð,
hvasst á norðaustan og snjó-
koma. Það hamlaði þó ekki
starfinu, enda var strax hægt að
fá nægilegt vatn til slökkvistarfs
ins. Fremri Hlíð er í um 12 km
fjarlægð frá þorpinu á Vopna-
firði.
DOKTORSVÖRN
Laugardaginn 24. apríl n.k. fer
fram doktorsvörn við verkfræði-
og raunvfsindadeild Háskóla fs-
lands. Guðmundur Pálmason verk-
fræðingur mun verja rit sitt
„Crustal Structure of Iceland
from Explosion Seismology“ fyrir
doktorsnafnbót í raunvísindum.
Prófessor Þorbjörn Sigurgeirsson
stýrir athöfninni, en andmælendur
af hálfu deildarinnar verða pró-
fessor Markus Báth frá Uppsalahá-
skóla og dr. Guðmundur E. Sig-
valdason.
Doktorsvörnin fer fram í há-
tíðasal Háskólans og hefst kl. 2
e.h. (Frá Háskóla íslands).
Slátfuþyrla af PZ-gerð.
Handrita-póststimpill
Ákveðið hefur verið að sérstak-
20 HLUTU VERÐLAUN í
„BÆNOURNIR SVARA“
Véladeild SÍS efndi nú í vetur
í annað sinn til verðlaunakeppn-
innar „Bændurnir svara“, en aðal-
tilgangurinn var að draga athygli
bænda að varahlutaþörf þeirra í
landbúnaðartæki fyrir sumarið,
og iwetja j)á til að gera varahluta
pantanir sínar hið fyrsta til að
tryggja örugga afgreiðslu í tíma.
Veitt voru 20 verðlaun til þeirra,
sem sendu inn fyrirspurnarformið
útfyllt, og voru 1. verðlaun sláttu-
þyrla PZ CM-135, og hlaut hana
Hákon Jónsson, Vaðli, Barðastr.
Aðrir sem hlutu vinninga voru:
Singer saumavél, gerð 237:
Sigtryggur Þorláksson, Svalbarði,
um Þórshöfn. Fjaðrandi traktors-
sæti: Haraldur Brynjólfsson,
Króki, Norðurárdal, Mýr. Alfa-
Laval sparkvörn: Eiríkur Bjarna-
son, Gíslagerðagerði, Vallahreppi,
pr. Egilsst. Ólafur Þór Árnason,
Þóreyjarnúpi, V.-Hún., pr.
Hvammstangi. International leik-
fangatraktor: Magnús Símonar-
son, Stóru-Fellsöxl, pr. Akranes.
International leikfangajarðýta:
Ásmundur Þórhallsson, Ormsstöð-
um, pr. Eiðar. International leik-
fangavélskófla: ívar Ketilsson,
Ytra-Fjalli, Aðaldal, pr. Húsavik.
Vönduð pennasett hlutu: Sigurjón
Valdimarsson, Glitstöðum, Mýr.,
pr. Dalsmynni. Sigurmon Hart-
mannsson, Kolkuósi, pr. Hofsós,
Bjami Alexandersson, Stakk-
hamri, pr. Borgarnes. Friðrik Jón-
asson, Helgastöðum, Reykjadal,
pr. Húsavík. Hreiðar Arnórsson,
Árbót, Aðaldal, S.-Þing., pr. Húsa-
vík. Heiðar Jóhannsson, Valbjarn-
arvöllum II., Mýr. Hannes Ingvars-
son, Ásum, A.-Hún., pr. Blöndu-
ós. Vandaða bréfahnífa hlutu:
Sigurður Lárusson, Gilsá, Breið-
dal, S.-Múl. Eiður Jónsson, Grýtu,
Eyjafirði. Arnór Benediktsson,
Hvanná, Jökuldal, pr. Egilsstaðir.
Jón Helgi Jóhannsson, Víðiholti,
Reykjahreppi, S.-Þing. Ingólfur
Bjarnason, Bollastöðum, Blöndu-
dal, S.-Þing.
Fyrstu þriggja vinninganna
munu vinningshafar geta vitjað
hjá sínu viðskiptakaupfélagi. All-
ir hinir vinningarnir munu verða
sendir í pósti til vinningshafa.
Þrátt fyrir góðar undirtektir
bænda á fyrra ári varð nú enn
víðtækari og betri árangur af
notkun fyrirspurnaformsins og
má segja að viðskipti hafi fylgt í
kjölfarið hjá nærri hverjum ein-
asta þátttakanda.
Véladeildin vill hvetja bændur
til þess að notfæra sér -á koriíándi
ári áð þánta vafafilutí’a þéssu fyr-
irspurnaföfmF' eíHs SiíéÁnilíáM^ Öjf
þeir mögulega geta. Það hefur
sýnt sig að það getur tryggt þeim
afgreiðslu í tíma á varahlutum.
Einnig hefur það sýnt sig að starfs
menn samvinnufélaganna hafa
enn betra yfirlit yfir raunhæfa
þörf fyrir búvélar meðal bænda og
hvert stefnir í þeim efnum.
Um leið þakkar Véladeildin
bændum fyrir ánægjuleg og góð
viðskipti á liðnu ári með von
um að þeir líti björtum augum til
framtíðarinnar. Bjartsýni er að
vissu marki nauðsynleg til þess að
ná góðum árangri. Að sjálfsögðu
er það markmið Sambandsins að
fyrirtæki bændanna, Sambandið,
geti veitt eins góða, örugga og
fljóta þjónustu og mögulegt er á
hverjum tíma.
ur póststimpill með áletrunininni
„Handritin komin heim“ verði í
Póststofunni í Reykjavík alla
virka daga til næstu mánaða-
móta, frá og með miðvikudegin-
um 21. apríl næstkomandi. Þeir,
sem óska geta fengið póstsending-
ar stimplaðar með honum.
Reykjavík, 19. apríl 1971.
Póst- og símamálastjórnin.
Kaffisala
Samkórs Kópavogs
Samkór Kópavogs efnir til kaffi-
sölu í Fékgsheimili Kópavogs á
sumardaginn fyrsta, með skemmti-
atriðum, sem verða: Tízkusýning
é dömu*, unglinga- og barnafatm
áfii, ’eihnig mun kvennakvintétt
^úr köériúm’ákoriimta með- söng.
Kaffisalan hefst kl. 14.30 og aftur
um kvöldið kl. 20.30. Þar sem hús-
rými er takmarkað, munu atriðin
fara fram kl. 15.15 og endurtekin
kl. 16.30, og aftur um kvöldið.
Samkórinn er nú að æfa fyrir
hinn árlega samsöng fyrir styrkt-
arfélaga sína og aðra velunnara,
sem verður 8. maí n.k.
Norænir sjúkraþjálfarar
þinga hír
Formannafundur norrænna
sjúkraþjálfara verður haldinn í
Reykjavík dagana 24. og 25. apr,l
n.k. og er það f fyrsta sinn, sem
slíkur fundur er haldinn á ís-
landi. Rætt verður m.a. um mennt
un sjúkraþjálfara, menntun kenn-
ara í sjúkraþjfilfun og menntun
aðstoðarfólks sjúkraþjálfara.
Einnig grundvöll fyrir nánara sam
starfi sjúkraþjálfara í Evrópu o.fl.
Þann 20. apríl kemur forseti Al-
þjóðasamtaka sjúkraþjálfara,
Doreen M. Moore frá Kanada, í
heimsókn til Félags fslenzkra
sjúkraþjfilfara, og mun hún einnig
sitja hinn norræna formanna-
fund til þess að kynna sér það
samstarf, sem norrænu sjúkra-
þjálfunarfélögin hafa nú haft
með sér f 3 ár.
Dalvíkurhöfn dýpkuð
HD—Dalvík, laugardag.
Dýpkunarskipið Grettir kom
hér í fyrrinótt og á nú að dýpka
hofnina hér í Dalvffc. Áætlað er
að grafa 12.400 rúmmetra og
áætlaður kostnaður er kr. 5 millj.
Björgúlfur landaði hér 140 tonn
um á þriðjudaginn og í dag er
verið að landa 110—120 tonnum
úr Björgvin.
Flóttafólk 71
25. apríl
Fyrir hegina opnaSi FerSaskrifstofa Zoega nýtt afgreiSsluhúsnæSi f Hafnarstræti 5 í Reykjavík, og er þaS bæSi
rúmgott og smekklega innréttaS og margt þar í gömlum síl. FerSaskrifsofa Zoöga hyggst nú stórauka þjónustu
viS íslendinga, sem vilja ferSast utan, og einnig er í undirbúningi stóraukinn ferSamannastraumur tH landsins á
vegum ferSaskrifstofunnar, sem hefur umboS fyrlr hina heimsþekktu ferSaskrifstofu Cooks í London. A8 venju
mun Zoega taka á mótl mörgum farþegum af skemmtlferSaskipum I sumar, og mun þa6 fyrsta koma óvenju
snemma. Myndin er úr nýja afgreiSslusalnum í Hafnarstræti 5. (Tímamynd GE)
HBmnrDE
f STUTTU MÁLI
oo
o
Nýtt prósentuembætti
Það er upplýst, að þrátt fyr-
ir játningar ráðherra um það,
að þeir telji „prósentukerfið“
í launagreiðslum til embættis-
manna ríkisins ekki ná nokk-
urri átt, þá er samt svo, cins
og svo mörg dæmi sanna, að
þeir hafa eitt á orði en
gera annað á borði. Dæmið um
það er „brúttóþóknun" fríhafn-
arstjórans á Keflavíkurflug-
velli. í því máli vísar Magnús
Jónsson frá sér til utanríkisráð-
herrans. Um þetta mál sagði
Magnús á Alþingi síðasta dag
þingsins:
.....það hafa orðið nokkrir
árekstrar milli fjármálaráðu-
neytisins og utanríkisráðuneyt-
isins um samning, sem gerður
var við fríhafnarstjórann á
IKeflavíkurflugvelli um sér*
staka brúttóþóknun af sölu frí-
hafnarinnar. Ríkisendurskoðun-
in komst að raun um þetta og
vakti athygli ráðuncytisins á
þessu og 10. júní í fyrra var
utanríkisráðuneytinu ritað um
það og bent á, að þessar
greiðslur væru inntar af hendi
án allrar heimildar og án sam-
ráðs við fjármálaráðuneytið og
það teldi mjög óheppilegt og
skapa hættulegt fordæmi, að
slíkar greiðslur ættu sér stað,
þar sem þær ættu sér ekki for-
dæmi annars staðar, og var
þcss vcgna óskað eftir því, að
þessum samningi yrði sagt upp,
a. m. k. þannig, að eðlilegar
launagreiðslur gætu átt sér
stað frá því að nýju kjarasamn
ingarnir tækju gildi þann 1.
júlí. Ríkisendurskoðandi ítrek-
aði svo þetta í bréfi til fríhafn-
arstjórans, scm svaraði þvf til,
að athugasemd ríkisendurskoð-
unar væri marklaus þar sem
hann tæki fyrirmæli sfn frá
utanríkisráðherra. Ég hefi hins
vcgar rætt þetta mál einriig
persónulega við utanríkisráð-
herra og hann hefur tjáð mér,
að hann muni takr málið til
sérstakrar meðferðar og vænti
ég, að það leysist á þann já-
kvæða hátt, að þessar þóknan-
ir falli niður frá þeim tíma,
sem fríhafnarstjórinn tekur að
taka laun samkvæmt hinum
nýju kjarasamningum a. m. k.“.
Saqði sia úr flokks-
stiórn Alþýðu-
flokksins
Dr. Gunnlaugur Þórðarson
hefur nú sagf sig úr flokks-
stjórn Alþýðuflokksins til að
mótmæla afstöðu Alþýðuflokks
ins í landhelgismálinu. Þegar
landhelgisráðstefnan 1958 stóð
yfir í Genf, birtist eftirfarandi
frétt í Morgunblaðinu:
„Genf. 25. apríl. — Að und-
anförnu hefur sendinefndum
hér á Genfarráðstefnunni bor-
izt frönsk þýðing á bók dr.
Gunnlaugs Þórðarsonar um
landhelgi fslands frá höfundi,
og hefur hún vakið nokkra at-
hygli, sérstaklega krafan, sem
þar er borin fram um 50 mflna
fiskveiðilandhelgi.
Komið hefur í ljós, að þetta
hefur spillt fyrir málstað fs-
lands í landhelgismálinu með
al þcirra þjóða, sem cru vin-
Franíhald á bls. 10.
——1^——BBEmVIM.aWH