Tíminn - 20.04.1971, Qupperneq 2

Tíminn - 20.04.1971, Qupperneq 2
2 TfNtWsTN ÞRIÐJUDAGUR 20. aprfl 1971 Páil Líndal afhendir Steingríml Gautl Kristjánssyni verölaunin. 50 ÞÚS. KR. FYRIR BEZTU RiTGERÐINA „Leitumst við að hjálpa flótta mönnum til sjátfsbjargar" OÓ—Reykjavík, mánudag. Fundur fulltrúaráðs Sambands ísl. sveitarfélaga hófst f morgun í félagsjieimilinu á Seltjarnamesi. Stóðu fundir yfir í dag og lýkur fundarhaldinu á morgun, þriðju j dag. Páll Líndak-. formaður sam ! bandsins setti fundinn. Emil Jóns | son, félagsmálaráðherra, og Karl ; B. Guðmundsson, oddviti Seltjarn arneshrepps fluttu ávörp og síð an ræddi Páll Sigurðsson, ráðu Fiskur á Vopnafirði SS—Vppnafirði, mánudag. Brettingur landaði hér tvisvar sinnum í síðustu viku. I fyrra skipt- ið um 150 tonnum, en í síðara skiptið 50 tonnum. Mikil vinna hef- ur verið vjð vinnslu aflans, og hafa skólaböm meira að segja fengið frí til þess að vinna í fiskinum. neytisstjóri um skipan heilbrigð ismála. í tilefni 25 ára afmælis Sam- bands ísl. sveitarfélaga var efnt til ^ritgerðarsamkeppni ujtn rétt-. fndí og skyldur sveitarstjórnar- manna. Voru verðlaun fyrir beztu ritgerðina afhent í morgun. Það var Steingrímur Gautur Kristjáns son, lögfræðingur, sem hlaut verð launin, 50 þúsund krónur. Er bú- ið að prenta ritgerð hans og var henni dreift meðal fundarmanna. Steingrímur skiptir ritgerð sinni í þrjá aðalkafla. Nefnast þeir, Um sveitarstjórnarkosningar, hæfni sveitarstjórnarmanna og lausn. Skyldur og síðasti kaflinn nefnist réttindi. Á fundinum á morgun mun Sig urður Líndal, hæstaréttarritari flytja erindi um eignarétt að almenningum. Síðan verður kos ið í nefndir og nefndaálit og tillögur ræddar. SJ—Reykjavík, mánudag. Um 2.600.000 flóttamenn eru nú í heiminum, sem heyra undir Flóttamannahjálp Samcinuðu þjóðanna, en þeir þurfa ekki all- ir á hjálp að halda, sagði Sadrudd in Aga Khan, aðalframkvæmda- stjóri hennar, sem var í heim- sókn hér á landi um helgina vegna allsherjar flóttamannasöfn unarinnar á Norðurlöndum n. k. sunnudag. — Það hefur tekizt að útrýma flóttamannabúðum í Evr ópu. Og flóttamannahjálp fer ekki lengur fram með ölmusugjöfum, heldur leitast stofnunin við að hjálpa flóttamönnum til sjálfs- bjargar, reisa handa þeim skóla, sjúkrahús og útvega þeim starfs menntun. Það eru einungis flóttamenn, sem flúið hafa föðurland sitt, sem heyra undir Flóttamannahjálp SÞ, hún hefur ekki afskipti af flóttamönnum frá ísrael, sem eru um 1 milljón talsins, en önnur stofnun hefur afskipti af málnm þeirra. „íslenzka stjórnin gefur 5000 dollara á ári til Flóttamannahjálp ar SÞ“, sagði Aga Khan á fundi með fréttamönnum á sunnudag, „sem er mjög há upphæð miðað við fólksfjölda. Hljómplatan, sem Flóttamannahjálpin gefur út, hef ur einnig selzt betur hér en í nokkru öðru landi, , ef miðað rer, vio fólksfjölda. Ég er mjög þakk látur. fyrir, framlag . þjóðar. ykkar. BS—Ólafsfirði, mánudag. Hér hefur verið óslitin afla- hrota frá því um páska, en þá glæddist aflinn mjög hjá togveiði- bátunum. Allir sem vettlingi geta valdið hafa verið kvaddir til vinnu, og unnið hefur verið alla daga til klukkan ellefu að kvöldi, til að bjarga hinum dýrmæta feng undan skemmdum. Á laugardaginn var tveimur efstu bekkjunum í Gagnfræða- sem ég tel mjög mikils virði, ein- mitt þar sem vandamál flóttafólks hljóta að vera ykkur fremur fjar læg. Þess vegna heimsæki ég ís- land fyrst Norðurlandanna í til- efni af söfnuninni á sunnudag." Aga Khan drap einnig á að það hefði verið mikið átak þegar hér hefðu safnazt 60 þús. dollarar í allsherjarsöfuninni 1966. Það fé hefði verið notað til aðstoðar flóttamönnum í Tíbet og Senegal. í söfuninni á Norðurlöndum á sunnudaginn munu um 420.000 sjálfboðaliðar fara á öll heimili £ Iöndunum fimm, en þau eru talin um sjö og hálf miljón og íbúarnir samtals um 20 milljónir. Söfnun þessi er ekki gerð að frumkvæði Flóttamannahjálpar SÞ heldur aðila í löndunum sjálf um. Hér stendur Flóttamannaráð íslands fyrir söfnuninni. Söfnun araðilar geta sjálfir ákveðið til hvaða verkefna söfnunarfénu skuli varið, en samkomulag hef- ur orðið um að verja hluta þess til eins sameiginlegs átaks. Fyrir valinu varð aðstoð við flóttamenn í Súdan og Eþíópíu og verða m. a byggðir þar skólar og starfs þjálfunarstöðvar. Sem dæmi um það gagn, sem af söfuninni má verða, er að 40.000 dollarar nægja til að reisa skóla í Afríku með 6 kennslustof um, sem notuð er af 50 nemend um hver, og til að reka þennan sama skóla fyrir 300 nemendur í skólanum gefið frí í því skyni að leggja hjálparhönd að verki við að vinna úr aflanum og tókst þvf að mestu að vinna úr þessu, með því að vinna allan sunnudaginn. Snemma í vikunni lönduðu Stígandi 86 smálestum og Sigur- björg 106 lestum. Og á laugardag- inn landaði Guðbjörg 54 tonnum, Ólafur bekkur 80 og Hersir 25 lest um, en báturinn er 35 lesta, keypt Framhald á bls. 10. tvö ár, eða þangað til stjórnvöld eru fær um að taka við. Allar framkvæmdir Flóttamanna hjálpar SÞ eru vandlega skipu lagðar og gerðar í samráði við ríkisstjórnir viðkomandi landa. Þess er gætt að flóttamennirnir einangrist ekki í sér hverfum eða landssvæðum og hafa íbúar land anna ekki síður afnot af skólum þeim, sjúkrahúsum og stófnun- um, sem byggðar eru á vegum hennar. Nákvæmt eftirlit er með því hvernig aðstoðarfé er varið, og hafa fulltrúar gefenda farið í heimsóknir til landa, þar sem flóttamannahjálp hefur verið veitt og kynnt sér árangurinn. Á blaðamannafundinum á sunnu dag sagði Aga Khan, að þótt hann væri bjartsýnismaður sæi hann varla útlit fyrir að flóttamanna vandamálin vséru senn úr sögunni, alltaf kæmu upp ný vandamál ein- hvers staðar í heiminum. Aga Khan tekur ekki laun fyr ir störf sín í þágu Flóttamanna hjálpar SÞ, heldur er þeim varið í þágu flóttafólks. Hann kostar einnig öll ferðalög sín sjálfur, en hann hefur brennandi áhuga á málefnum flóttamanna, og hefur starfað að þeim frá 1959. Sabrubbin Aga Khan Robert Ellsworth ambassador talar á fundi Samtaka um vestræna samvinnu Mikill fiskur berst nú til Ólafsfjarðar Nýtt félagsheimili var vígt í Vestmannaeyjum Robert Ellsworth, ambassador, sem er fastafulltrúi Bandaríkjanna hjá Atlantshafsbandalaginu, talar á fundi, sem Samtök um vestræna samvinnu og Varðberg halda í Leikhúskjallaranum laugardaginn 24. aprfl. Fundurinn er fyrir fé- lagsmenn og gesti þeirar. Húsið verður opnað kl. 12 á hádegi. ROBERT ELLSWORTH Fyrirlestur sinn nefnir Ells- worth: Hafið sem tengir: Atlants hafsbandalagið á áttunda áratugn um. Ræðumaður mun svara fyrir spurnum að erindi sínu loknu og taka þátt í umræðum fundar- manna. Robert Ellsworth er fæddur í Kansas árið 1926. Eftir að hafa verið í bandaríska flotanum í síð ari heimsstyrjöldinni og Kóreu- stríðinu hóf hann nám £ vélaverk fræði við Kansas-háskóla og lauk þvi með bachelor-gráðu S£ðan hóf hann nám i lögfræði við Ríkishá- skólann i Michigan og lauk þv£ með doktorsprófi. Hann sat £ fulltrúadeild banda rfska þjóðþingsins frá 1961 til 1967 (fyrir Kansas) og átti meðal annars sæti i hinni sameiginlegu efnahagsmálanefnd fulltrúadeild arinnar og öldungadeildarinnar. Hann er meðhöfundur að riti um endurbætur á alþjóðlegum gjald eyrismálum. í ársbyrjun 1969 var hann skip aður aðstoðarmaður Bandaríkja- forseta, en síðan 21. mai 1969 hefur hann verið fastafulltrúi Bandaríkjanna hjá NATO. KJ—Reykjavik, laugardag. í kvöld verður vígt nýtt félags heimili í Vestmannaeyjum, mikið Ávísanafalsanir Hinn 16. þ. m. fór fram skyndi- könnun innstæðulausra tékka á veg um ávísanaskiptadeildar Seðla- banka íslands. Könnunin náði til Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnar- fjarðar og Reykjanessvæðisins. Fram komu 549 innstæðulausir tékkar að fjárhæð samtals 9.045. 000 krónur. Miðað við veltu dags- ins hjá ávísanaskiptadeildinni, sem var óvenju há, eða 1.006 miilj. króna, var hlutfall innstæðulausra tékka 0,89%, og er það óhagstæð- ara en verið hefur í undanförnum skyndikönnunum. hús, sem hefur verið lengi í smíð um. Stendur húsið við Heiðarveg á móti Hótel H.B. Vígsla hússins fer fram með því að Leikfélag Vestmannaeyja sýnir Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson. Með tilkomu þessa félagsheimilis, sem Vestmanna- eyjakaupstaður á, batnar mjög öll aðstaða fyrir hin ýmsu félög í bænum, sem hafa verið í húsnæðis hraki fram til þessa.' Bærinn keypti húsið fokhelt, og lét innrétta það, en upphaflega byggðu templarar húsið. f kjallara hússins mun fara fram allskonar félagsstarfsemi, á miðhæðinni verður Leikfélagið .neð starfsemi sína og á efstu hæð inni liafa ungtemplarar húsrými, auk þess sem tónlistarskólinn og myndlistarskólinn £ Eyjum eru þar til húsa. SÆMDIR ORÐUM Forseti íslands hefur í dag sæmt eftirtalda íslendinga heiðursmerki hinnar íslenzku fálkaorðu: Prófessor Einar Ólaf Sveinsson, stórriddarakrossi með stjörnu, fyr ir embættisstörf. Bjarna M. Gíslason, rithöfund, stórriddarakrossi fyrir störf í þágu íslands. Reykjavík, 17. apríl 1971 Forseti íslands hefir í dag sæmt Jóhann Hafstein forsætisráðherra stórkrossi hinnar íslenzku fálka- orðu. Reykjavík, 14. apríl 1971.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.