Tíminn - 20.04.1971, Blaðsíða 6

Tíminn - 20.04.1971, Blaðsíða 6
TIMINN ÞRIÐJUDAGUR 20. apríl 1971 ivvvii'i Titlaveitingar ný tilhögun Alþjóðaskáksambandið (FIDE) íefur nýlega tekið þá ákvörðun, að íio-kerfið svonefnda, sem kennt ;r við bandaríska prófessorinn Arpad Elo verði íramvegis lagt til ;rundvallar við veitingu titla fyrir rangur í skákmótum og eiga hinar aýju reglur að taka gildi 1. júlí n.k. íg hefi áður greint frá því hér í iættinum, hvernig Elo-kerfið er jyggt upp, en samkvæmt því er érhverjum virkum skákmanni í íeiminum gefin stig, í samræmi við 'rangur sinn í skákmótum. Styrk- leikastig skákmóts er þá fundið með því að taka mcðaltal af stiga- tölum allra keppenda í mótinu og er því ekki lengur til að dreifa því skilyrði, að svo og svo margir i.itilhafar taki þátt í skákmóti til að það geti talizt réttindamót. Það fer síðan eftir styrkleikastigi hvers skákmóts, hvaða árangur þarf að nást tfl að hann fullnægi skilyrð- um fyrir veitingu titils, og hvort skákmót yfirleitt uppfylli skilyrði fyrir veitingu titla. Það yrði of langt mál að rekja hér, hvaða að- ferðum er beitt við að finna þetta út, en í stuttu .máli má segja, að sá árangur, sem tilskilinn er, stend ur í beinu hlutfalli við styrkleika- stig mótsins og markast jafnframt af stigatölu þess einstaklings, sem í hlut á. Sá sem kemst inn á skák- stigatöflu Elos hlýtur í upphafi grunntöluna 2200 (stig) og hefur hann góða möguleika á að vinna sig fljótt upp á við, því að við út- reikninga á árangri hans er notað- ur hærri stuðull en hjá þeim, sem lengra eru á veg komnir. Gert er ráð fyrir því, að menn öðlist rétt til alþjóðlegs meistaratitils, er þeir hafa náð 2400 stiga markinu og 2500 stiga markið veitir rétt til stórmeistaratitils. Til gamans má geta þess, að fjórir íslendingar hafa náð 2400 stiga markinu, en þeir eru þessir: Friðrik Ólafsson, stórmeistari, 2580 stig. Guðmund- ur Sigurjónsson, alþjl. meistari, 2500 stig. Björn Þorsteinsson, tit- illaus, 2420 stig. Ingi R. Jóhanns- son, alþjl.meistari, 2400 stig. Samkvæmt þessu hefur Guð- mundur Sigurjónsson þegar hlotið stigatölu stórmeistara, en þar sem hinar nýju reglur öðlast ekki gildi fyrr en 1. júlí n.k. verður hann eftir þann tíma að staðfesta þessa stigatölu með árangri, sem heldur stigatölunni fyrir ofan 2500 stiga markið, til að hann hljóti stór- meistaratitil. Sama máli gegnir um Björn Þorsteinsson. Hann hefur þegar hlotið stigatölu alþjóðlegs meistara, en verður að staðfesta hana á sama hátt og Guðmundur, eftir 1. júlí n.k. Nokkrir, aðrir íslenzkir skák- menn eru á lista Elos og eru sum- ir þeirra ekki langt frá 2400 stiga markinu: stig 2380 2380 2380 2340 2310 2300 2270 3. FULLTRUAFUNDUR fflíi '“"tA”t4DSS"AMT!AK A KtUBBANNA —M#. --— 'tiíc. OiS nuú SO íiuifi ORUGGURAKSTUR verður haldinn að HÓTEL SÖGU dagana 22. og 23. apríl og hefst í HLIÐARSAL 2. hæðar hótelsins með sameiginlegum hádegisverði kl. 12.00, þar sem Ásgeir Magnús- son framkvæmdastjóri flytur ávarp. Auk venjulegra aðalfundarstarfa, samkvæmt félagslögum; verða af neðangreindum mönnum flutt erindi sem hér segir: FYRRI DAGINN: Sigurjón Sigurðsson lögreglustjóri: „UMFERÐARRÁÐ OG STARFSEMI ÞESS“. Hákon Guðmundsson yfirborgardómari: „UMGENGNISSKYLDURNAR VH) LANDH)“. Baldvin Þ. Kristjánsson félagsmálafulltrúi: „MÁLEFNI KLÚBBANNA ER MÁLS- STAÐUR ÞJÓÐARINNAR“. SEINNI DAGINN: Geir G. Bachmann bifreiðaeftirlitsmaður: „BIFREIÐAEFTIRLITIÐ ÚTI Á LANDS- BYGGÐINNI“. Jón Birgir Jónsson deildarverkfræðingur: „UMFERÐARMERKI OG VEGA- VIÐHALD". Gunnar M. Guðmundsson, hæstaréttar- lögmaður: „RÍKIR ÖNGÞVEITI í UMFERÐAR- MÁLUM Á ÍSLANDI?“ Umræður og fyrirspurnir. /y*.y. .•.••,• .y..y..y..i.,.y*.yy.y".yy.yy..,y..y. .•.•...,•.. Ilákon. Geir. Jón Kristinsson Magnús Sólmundarson, Ólafur Magnússon Freysteinn Þorbergsson Jón Torfason Benóný Benediktsson Bragi Kristjánsson, Að lokum verður birtur hér listi Elos yfir þá skákmenn, sem hæsta stigatölu höfðu í upphafi ársins 1971. Elo-stig í upphafi ársins 1971. 1. Fischer, U.S.A. 2740 2. Spassky, Sovét. 2690 3.— 4. Korchnoj, Sovét. 2660 3.— 4. Larsen, Danm. 2660 5. Petrosjan, Sovét. 2640 6.— 9. Botvinnik, Sovét. 2630 6.— 9. Geller, Sovét. 2630 6.— 9. Polugajevski, Sovét. 2630 6.— 9. Portisch, Ungv.l. 2630 10.—14. Keres, Sovét. 2620 10.—14. Smyrslov, Sovét. 2620 10.—14. Stein, Sovét. 2620 10.—14. Tal, Sovét. 2620 10.—14. Taimanov, Sovét. 2620 15. Gligoric, Júgosl. 2610 16. Bronstein, Sovét. 2600 17.—18. Hort, Tékkósl. 2590 I7-AM8. Hjibner, V.-Þýzkal. 2590 19.—24. Friðrik, ísland. 2580 'ífc.—24. Ivlcbv, '7figósl. 2580 19.—24. Gipslis, Sovét. 2580 19.—24. Kropius, Sovét. 2580 19.—24. Tukmakov, Sovét 2580 19.—24. Uhlmann, A-Þýzkal. 2580 25.—28. Balashov, Sovét. 2570 25.—28. Panno, Argent. 2570 25.—28. Sawon, Sovét. 2570 25.-28. Vasjukof, Sovét. 2570 Þættinum lýkur svo með snagg- aralegri Tal-skák, eins og þær gerast beztar. Tallinn 1971 Hv.: Nei, Sovétr. Sv.: Tal, Sovétr. Ben-Oni 1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 g6 4. Rc3 Bg7 5. Rf3 0—0 6. e4 d6 7. Bf4 a6 8. a4 Da5 9. Bd2 e6 10. Be2 exd 11. cxd He8 12. 0—0 Bg4 13. Hel Dc7 14. Dc2 Rbd7 15. Hadl IIab8 16. b3 Bxf3 17. gxf3 (Hvítur tekur á sig veikingu á kóngsvængnum til að koma í veg fyrir framrás svarta c-peðsins. Að BJORN ÞORSTEINSSON — hefur hlottS stigatöln atþjóS- legs meistara. öllu jöfnn þyrfti þetta ekki að koma að sök, en öðru máli gegnir, þegar Tal á í hlut) 17. — c4! (Engu að síður!) 18. bxc4 Re5 19. Rbl Hbc8 20. Ra3 Dd7 21. f4 Reg4 22. f3 Rxe4! 23. fxg4 Bd4f 24. Kg2 Rf2 25. Bcl Bc5 26. h3 De7! 27. Bf3 Dh4 28. Hhl Rxhl 29. Hxhl Hel 30. HxH DxH 31. h4 He8 og hvítur gafst upp. F.Ó. GUÐMUNDUR SIGURJÓNSSON — hefor hlotið stigatölu stór. meistara. Jón Birgir. Gunnar. Stjórn LKL ÖRUGGUR AKSTUR Verkstjóri - Brúarsmíöi Óskum eftir að ráða vanan verkstjóra til starfa við brúarsmíði og ræsagerð vegna hraðbrautar- framkvæmda í nágrenni Reykjavíkur. Upplýsingar í síma 81935. í S T A K íslenzkt Verktak h.f. Suðurlandsbraut 6.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.