Tíminn - 02.06.1971, Blaðsíða 5

Tíminn - 02.06.1971, Blaðsíða 5
il nm MWVIKUDASUR S. jfiní 1971 TIMINN MEÐ MORGUN KAFFINU — Hva'ð gerir pabbi þinn? — Hann er dóraari. — Sakadómari? — Nei, knattspyrnudómari. öldru'ð piparmey: — Það er hræðilegt, hvað öllu er stolið og rænt nú á dögum. Öllu hafa þeir rænt og rupla'ð frá mér, en mig — mig sjálfa skilja þeir eftir! — Heyrðn, pafcbí. Þegar við Pétur gjftam okkur, fæ ég þá píanóið? — Hm. Jú, píanóið skaltu fá. En ég ráðlegg þér að láta Pétur ekki vita neitt mn það, fyrr en eftrr að þið erað gift. DENNI Allt í lagi, dúkurinn þolir oliu, sýrur, vatn og brcnnur . . A , . _ ekki, en hveruig endist hann DÆMALAUb I fimm ára dreng? Jæja, já, þér viljið giftast ðóttur minni, ungi maður? Þér vitið, að hún er vön að fá allt, sem hún bendir á? Já, í þetta skipti bendir hún sem sé á mig. Nöldursöm kona keypti tvö bindi handa manni sínum. Morg- uninn eftir, þegar hann kom til morgunverðar, var harrn með annað bindið. — Já, maður mátti svo sem vita það, hvein í frúnni. — Hitt hefur náttúrlega ekki verið nógu gott handa þér! Ritdómur: I bókinni er margt gott og margt nýtt. Gallinn er aðeins sá, að það góða er ekki nýtt og það nýja er ekki gott. Dýrasta fiðla heims verður til sölu hjá Sotheby i London næstu daga. Þetta er Stradivari- usarfiðla frá 1721, og verður hún sennilega seld fyrir minnst 5,3 milljónir króna, en það er það verð, sem síðasta Stradi- variusarfiðla, sem seld var, fór á. Reyndar er reiknað með að töluvert hærra verð fáist fyrir þessi fiðlu, en 5,3 milljónir verða scm sagt lágmarkið. Menn beita ýmsum brögðum til þess að vekja á sér athygli á kvikmyndahátíðunum í Cann- es. Þessi mynd er af Christinu Lindberg, sænskri stjörnu, sem við birtum raunar mynd af hér um daginn, með fráhneppta blússu. En hún gerði gott bet- ur en að hneppa frá sér blúss- unni, eins og á þessari mynd má sjá. Christina er hér að reyna rð draga athyglina að kvikmynd, — ★ — ★ — Danskurinn gerir það ekki endasleppt við klámið. Næstu daga verður opnuð í Kaup- mannahöfn sannkölluð klám- höll. Maður er nefndur Leo Madsen og er hann titla'ður „Pomo-kongen“ í dönskum fjölmiðlum. Gefur hann út fjölda blaða, framleiðir kvik- myndir og á sölubúðir, og er framleiðslan og söluvarningur- inn allt klám. Er Madsen þessi orðinn vellauðugur, enda geng- ur bissnissinn vel. Nú er liann búinn að kaupa fjögurra hæða stórhýsi við að- alverzlunargötu Kaupmanna- hafnar, Sti-ikið. Þar er verið a'ð innrétta verzlunarhúsnæði, kvikmyndasali, leiksvið og yfir- leitt allt það, sem tilheyrir klámgróandanum í Danmörku. IÞegar viðskiptavinirnir koma inn í dýrðarhöllina taka brjósta berar stúlkur á móti þeim og leiðbeina þeim um húsið. eða í þær deildir, sem hver viðskipta vinur hefur helzt áhuga á að koma í, hvort sem það er verzl un, kvkmyndasalur, þar sem J sýndar verða i hæsta máta ósið- J legar kvikmyndir, eða í leik- \ húsið. \ \ Madsen segir, að það sé tími sem hún kemur fram í og nefn- ist „Rötmánad“ á frummálinu. Christina kom svífandi af himn- um ofan á uppstigningardag og lenti í Cannes. Farartæki henn- ar var þyrla. Á jörðu niðri biðu hennar um fjörutíu Ijósmyndar- ar, sem lögðu mikla rækt við að mynda hana í bak og fyrir. Vonandi vekur kvikmyndin verð skuldaða athygli, þcgar að því kemur að sýna hana á hátíðinni. — ★ — ★ — til kominn aö klámið fái sinn rtrðulega sess í borgarlífinu. Það sé liöin sú tíð, þegar áhuga samir viðskiptavinir þurftu að kaupa varninginn í skítugu hús- næði við enn skítugri hli'ðar- götur. Ifú skartar klámhöllin innan um virðulegar verzlanir, þar sem skilti á dyrunum sýna að hirðin verzli við viðkomandi fyrii-tæki, og Heilagsandakirkj- an er skammt undan. — ★ - ★ - Aður en langt um líður verða teknar í notkun jámbrautir í Sovétríkjunum, sem fara með jafnmiklum hraða og flugvélar gera, að því er Aleksandcr Al- eksejev verkfræðingur telur. Járnbrautimar verða ekki að- cins miklu hraðskreiðari en þekkzt hefur til þessa, heldur munu þær einnig geta klifið enn meiri bratta, en verið hef- , ur um jámbrautir. — * - ★ — Næststærsta borg Sovétrikj- anna, Leningrad, sem reist er á um 100 smáeyjum í óshólmum Nevas, við Finnska flóann, færr ist stöðugt nær ströndinni. Til dæmis er nú verið að skipu- leggja nýtt íbúð'arhverfi í norð- vestanverðri borginni, og mun það rísa á nýjum uppfylling- um. Fram til ársins 1975 verða reist íbúðarhús á þessu svæði, um hálf milljón fermetrar að stærð. Til þessa hefur verið fyllt upp svæði í sjó fram, sem or um 500 hektarar að flatar- máli, og áætlanir eru til um enn meiri aukningu á þessu sviði. ★ - ★

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.