Tíminn - 02.06.1971, Síða 10
10
TÍMINN
MmviKijpftCBR a. jm
SJÖNVARPSUMRÆÐUR
Framliald af bls. 2.
J>að fram, að hann stendnr eBá
*ð gengislæWrun sem lausn í efna-
hagsmálnnum, enda telur hann
dæmin sanna, að lausn er hán
ekki og nóg er að gert að leysa
efnahagsmálin á kostnað þeirra
sem minnst mega sín.
Framsóknarflokkurinn mun
beita sér fyrir nýrri stefnu í tekju
öflun ríkissjóðs, og endurskoðnn
alls ríkiskerfisins.
Stefna Framsóknarflakksins í
landbúnaðarmálum miðast við að
verðlag landbúnaðarvara verði
ákveðið með samkomulagi bænd-
anna sjálfra og rffcisvaldsins og
stofnlánakerfið verði bætt Jxannig,
að úr framleiðslukostnaði verði
dregið og kjör bændastéttarinnar
bætt.
Við framsóknarmenn gerðum
þjóðinni grein fyrir, hvert stefndi
í efnahagsmálum hennar við síð-
ustu kosningar. Okkur var þá ekki
trúað. Ég spyr, áheyrendur góðir,
hefðuð þið kosið stjómarliðið þá,
sem það gerðuð, efjþið hefðuð vit-
að, að efndir á fyrirheitum stjóm-
arflokkanna yrðu: gengislækkanir,
atvinnuleysi, rof kaupsamninga og
verðbólga, sem hefur gert kaup-
hækkanir ykkar að engu og stefn-
ir að stöðvun atvinnuveganna,
þrátt fyrir hærra verðlag á út-
flutningsvörum en oftast áður.
Hafið þið gert ykkur grein fyrir
afleiðingunum, ef sama sagan á
eftir að endurtaka sig næsta kjör-
tímabil.
Ólafur Bjömsson, þingm. Sjálf-
stæðismanna, vissi vel, hvað hann
var að segja, þegar hann talaði
um hrollvekjuna, sem við mundi
Wasa í efnahagsmálunum, er verð-
stöðvuninni lyki. Honum er ljóst,
hvað framundan er, ef stjórnar-
flokkamir ráða áfram. Stefna
þeirra er óbreytt.
Að lokum sagði Halldór:
> Ég undirstrika að nauðsyn bar
tii að fella ríkisstjórnina 1967. —
Nú er það þjóðarnauðsyn. Staða
þjóðarinnar nú er verri en þá.
Stuðningsfólk B-listans um land
allt Fram til sóknar og sigurs:
Fyrir útfærslu landhelginnar, fyr-
ir nýrri efnahagsstefnu og bætt-
um vinnubrögðum og fyrir alhliða
umbótum og framförum.
Steingrímur Hermannsson
sagíH, að fátt hefði vakið meiri
athygli á undanfömum árum en
leit ungu kynslóðarinnar að bættu
mannlífi. Unga fólkið sæi lítinn
tilgang í innantómu lífskjara-
kapphlaupi vélamenningarinnar
og vildi bætt mannlif eftir nýjum
leiðum. í því sambandi væri mik-
ilvægast fagurt og hreint um-
hverfi, samlyndi fólksins, en þó
e.t.v. umfram ailt jöfnuður og
þjóðmálastefna, sem setur mann-
inn ofar vélinni og vill landi sínu
allt. Því miður hafi lítið sézt af
þessu undir „viðreisn“, en unga
fólkið sem nú kýs í fyrsta sinn
hefur ekkert þekkt annað. Það
hafi séð það furðulega fyrirbæri,
að yfirlýstur sósíalistaflokkur
gerist dyggasti þjónn íhaldsins í
einu og öllu.
- Það er einnig staði’eynd, sagði
Steingrímur, — að ójöfnuður hef-
ur aukizt á undanf. árum, eink-
um milli dreifbýlis og þéttbýlis.
Á meðan íslenzka þjóðin var fá-
tæk, og ekki voru aðrar kröfur
gerðar en að hafa til hnífs og
skeiðar, voru byggðir vegir og
skólar um land allt, þá var bilið
milli dreifbýlis og þéttbýlis lítið
og raunar yfirleilt dreifbýlinu í
vil. Nú hefur þjóðinni vaxið
mjög fiskur um hrygg og við telj-
um okkur velferðarríki, en stað-
reyndin er hins vegar sú, að í
flestum grundvallaratriðum vel-
ferðarríkisins er dreifbýlið sem
annars eða þriðja flokks þjóð-
félag. Svo er á sviði læknaþjón-
ustu og samgangna, en hvergi
samt augljósara en á sviði mennt
unar. Foreldrar úti um land þurfa
að greiða tugi þúsunda umfram
foreldra í dreifbýlinu með hverju
bami Sínu til að senda það f fjar
læga skóla, jafnvel á skyldunáms-
stiginu, og þessi kostnaður eykst
stórkostlega f framhaldsskólun-
um. Það er því engin furða, að
þessi aðstöðumunur hefur dregið
fjölda fólks úr dreifbýlinu til
þéttbýlisins, því hver vill meina
bami sínu að fá þá menntun,
sem er svo nauðsynleg hverjum
þegni f nútímaþjóðfélagi.
Staðreyndin er sú, að það á að
vera sjálfsögð skylda okkar allra
í velferðarríki að tryggja öllum
þegnum landsins jafnan aðgang
að grundvallaratriðum velferðar-
þjóðfélagsins. Þetta verður hins
vegar aldrei gert undir „við-
reisn“, það sýnir reynsla undan-
farinna 12—13 ára. Eina leiðin til
að þetta verði gert, er að taka
upp stefnu samvinnu og samlynd-
is byggða á félagshyggju.
Torskiiin hlýtur einnig að vera
unga fólkinu steína stjórnarflokk
anna í landhelgismálinu. Varla
verður séð, að þar ráði „íslandi
allt“, þótt þetta sé stærsta sjálf-
stæðismál þjóðarinnar í dag.
Stjórnarflokkarnir leyfa sér að
efast um það, að þörf fyrir út-
færsju sé enn fyrir hendi, og á
undanhaldi sínu leggja þeir ríka
áherzlu á að flækja málið' >fyrir
þjóðinni. Meginkjarni þessa máls
er þó ofur einfaldur. Um það er
raunar eingöngu spurt, hvort við
íslendingar ætlum að færa út fisk
veiðilögsöguna fyrir hafréttarráð-
stefnuna þrátt fyrir þá staðreynd,
að stórveldin hafa öll lýst yfir
þeim ásetningi sínum, að fá þar
lögbundna 12 sjómílna fiskveiði-
lögsögu. Ég fyrir mitt leyti segi
alls ekki. Ég tel það meiri
áhættu en svo, að þorandi sé að
taka hana, og ef til vill mesta
glapræði, sem við höfum gert, ef
við blðum með útfærsluna þar til
eftir hafréttarráðstefnuna.
Steingrímur sagði, að um þetta
mál væri fyrst og fremst kosið
13. júní, og hvers vegna ekki, því
um hvað á að kjósa ef ekki
stærsta mál þjóðarinnar hverju
sinni?
Að lokum sagði Steingrímur, að
stjórnarflokkarnir notuðu það
mikið í slagorðabaráttu sinni, að
stefna okkar framsóknarmanna
sé opin í báða enda. — Já, stefna
okkar er opin. Stefna okkar er
ekki lokuð af erlendum kreddum
og ismum eins og stefnur hinna
flokkanna. Við viljum hlusta á
rödd þjóðarinnar, rödd unga
fólksins, og móta okkar stefnu
með tilliti til þarfa þjóðarinnar
hverju sinni. Við erum sann-
færðir um það, að íslendingar
geta búið ágætu lífi og fallegu
mannlífi í þessu góða landi okk-
ar, ef við byggjum á skapandi ein-
staklingum og ‘skipulagshyggju.
Lokunartíminn
Framhald af bls. 1.
ar og aörir slíkir söluslaðir vera
algerlega aðgreindir frá vcrzlun-
um eða birgðageymslum verzl-
ana. Er það á valdi borgar-
ráðs að ákveða að sala á slíkum
stöðum megi eingöngu fara íram
um söluop. Sérstakur listi yfír
vörutegundir sem selja má á slík-
um stöðum, skal gefinn út af borg
arráði í samráði við kaupmanna-
samtökin.
Verði tillaga þessi samþykkt,
þýðir það að verzlanir þær, sem
hafa haft kvöld- og helgarsölu
verða að hætta henni, nema á
þirðjudögum og föstudögum, þeg-
ar heimilt verður að hafa opið til
tíu á kvöldin. Gildir sá fram-
lengdi timi fyrir allar smásölu-
verzlanir, en ekki aðeins mat-
vöruverzlanir.
Cesar sökk
Framhald af bls. 1.
um hádegisbil í gær. Maraði skip-
ið þá í kafi, og var haldið áfram
að draga þar til það sökk, um
miðnætti í gærkvöldi.
Hjálmar R. Bárðarson, siglinga-
málastjóri, sagði Tímanum í dag,
85 „björgunarmenn“ hefðu lofað að
sökkva skipinu • ekki nær en að
minnsta kosti 100 sjómílur frá
landinu, sem er olíumengunarlög-
saga. Það er að segja þegar um
er að ræða, að setja olíu í sjó
með vilja, t. d. hreinsun á tönk-
um og því um líkt. Til er alþjóða-
samþykkt frá 1954, sem breytt var
1962, og nær eingöngu til olíu
frá skipum, sem sett er í sjóinn,
en ekki vegna slysa. Hins vegar er
til önnur samþykkt, sem ekki
hefur tekið gildi ennþá, er hún
frá árinu 1969. Felur sú samþykkt,
í sér takmarkanir við mengun úti
á hafsvæðum, utan landhelgi eða
fiskveiðilögsögu. Sagði Iljálmar,
ð hann hefði farið fram á við Land
helgisgæzluna, að skip fylgdist
með ferðum leiðangursins, sem
kom sér vel, því hann fór sem fór.
Norðmennirnir segjast hafa ver-
ið með dælu um borð í togaranum
til að losa þann sjó, sem kom í
hann á siglingunni, en annað hvort
virðist lekinn hafa aukizt eitthvað,
eða dælan bilað. Fór að síga á
ógæfuhliðina strax og komið var
á 70 til 80 metra dýpi, eða á grunn
miðum. Var þá tekið það ráð, sagði
Hjálmar, að sigla til hafs. Sökk tog
arinn á 210 metra dýpi í Víkuráli,
og er það skömminni til skárra en
ef togarinn hefði sokkið á grynnra
vatni. En í Víkuráli er togsvæði,
og þar hafa nýlega fundizt góð
rækjumið.
Siglingamálastjóri sagði, að
spuming væri hvort íslend-
ingar ættu kröfu á skaðabótum,
vegna olíumengunar frá togaran-
um. Að sjálfsögðu er hugmyndin
að þetta mál verði rannsakað og
ákvörðun tekin að þeirri rannsókn
lokinni, hvað gert verður. Rætt
hefur verið um skaðabætur vegna
æðarvarpsins í Djúpi, og svo er
eftir að vita hvaða kröfur hægt
er að gera vegna mengunarhættu
á veiðisvæðinu. Togarinn sökk
utan fiskveiðilögsögunnar, en inn-
an þeirrar lögsögu, sem við telj-
um okkur hafa vegna mengunar
sjávar, en það er vegna þeirrar
mengunar, sem verður að vilja
viðkomandi aðila, og þá er eftir
að meta hvort þetta er gert með
vilja, eða hvort togarinn hefur
sokkið vegna slysni.
Ef olíutankar skipsins hafa ekki
sprungið strax af þýstingi, getur
tekið nokkurn tíma að járnið tær
ist svo að olían fljóti út um allan
sjó.
Engin tilraun var gerð til að
taka olíuna úr togaranum meðan
hann lá inni í ísafjarðarhöfn. Eig
endur hans segja, að ekki hafi
fengizt neinn kaupandi að brota-
járninu, en ísl. aðilum mun
ekki hafa verið boðinn togarinn
til kaups. Tímanum er kunnugt
um að ísfirðingar fóru fram á að
kaupa vélai-, ljóskastara og sitt-
livað fleira af tækjabúnaði skips
ins, en þeim óskum var ekki sinnt.
Settar voru smá dælur um borð
í Cesar, og sögðu kunnugir menn
á ísafirði, að hann kændst aldrei
langt út á haf með þeim búnaðl,
og voru sannspáir þar mn. En það
er eftir öðru í sambandi við þetta
strand og björgun, að þeir sem
bezt þekkja til, hafa aldrei verið
spurðir ráða eða þeirra aðstoðar
leitað.
4 víðavangi
Framhald af bls. 3.
fram. En eins og ég sagði
áðan, held ég, að fólkið f
landinn sé orðið hnndleitt á
þessari ríkisstjórn, ®g vildi
gjarnan breyta til. Þá er
Framsóknarflokkurinn stærsta
heildin, sem hægt er að snúa
sér til. Hitt er allt margklof-
ið, og enginn veit hvar það
lendir. Ef Framsóknarflokkur-
inn verður ekki það afl, sem
getur tekið forustuna í nýjum
stjórnarháttum, verða það
ekki aðrir, sem gera það.“ TK
Kínverjar
Framhald af bls. 7.
um mikilvægustu ákvörðunum
nú orðið.“
ÞRÁTT fýrir það, sem áður
er sagt, fer ekki framhjá nein-
um, sem til alþýðulýðveldis-
ins í Kfna kemur, að ný kyn-
slóð er komin fram á sjónar-
sviðið. Gamalt fólk kann enn
að vera óánægt með kerfisbind-
inguna, litleysið, jafnræðið,
samræminguna, skort á and-
legu frelsi og sifelldan og linnu
lausan áróður. En hin nýja kyn-
slóð hefir ekki komizt í kynni
við neitt annað og tekur þessu
öllu sem sjálfsögðum hlut.
Framgjarnir unglingar hafa
einhver ráð með að komast á-
fram og ná frama í hinu nýja
kerfi. Ferðamaðurinn þykist þó
komast að raun um, að fram-
gimi, að minnsta kosti efna-
hagsleg framagirni, sé miklu
áhrifaminna og óvirkara afl
meðal þeirra, sem aðhyllast
kommúnisma Maos, en í hinum
vestrænu samfélögum.
Sífelldar hópsamræður, gagn
rýni og sjálfsögun er samofið
hinu kínverska kerfi. Þetta
veldur nokkrum áhrifum hinna
getuminni og daufari á sér-
drægni og mikilmennskuhneigð
og dregur því úr framagirni.
íþróttir
Framhald af bls. 8.
Haukur Jóhannsson, Akureyri, 79,7
Hafsteinn Sigurðss., ísaf., 80,2
Árni Óðinsson, Akureyri, 80,6
f sviginu voru farnar tvær ferð
ir, og var þar hörku spennandi
keppni eins og í stórsviginu. Ámi
Óðinsson hafði beztan tíma eftir
fyrri umferðina, en í siðari um-
ferðinni náði Haukur Jóhannsson
mjög góðum tíma og náði þar með
1. sæti.
Fimm fyrstu menn í sviginu
urðu þessir:
Haukur Jóhannsson, Akureyri, 76,3
Árni Óðinsson, Akureyri, 76,7
Hafsteinn Sigurðsson, ísaf., 77,8
Björn Haraldsson, Húsav., 78,5
Ingi Óðinsson, Akureyri, 78,6
f Alpatvíkeppni (samanlagt svig
og stórsvig) varð Haukur Jóhanns
son sigurvegari. Annar varð Árni
Óðinsson, þriðji Björn Haraldsson,
fjórði Hafsteinn Sigurðsson og
fimmti Ingi Óðinsson, en hann er
tvíburabróðir Árna.
Að mótinu loknu fór fram að
vanda knattspyrnukeppni milli
heimamnnna og utanbæjarmanna,
og lauk þeim leik með sigri heima
mannaj 1:0.