Tíminn - 15.06.1971, Blaðsíða 1
— ÞriSjudagur 15. júní 1971
kæ!i-
skápar
131 tbl.
ALLT FYRIR
BOLTAÍÞRÓTTIR
SportvSruverzlun
ÍMOÓLFS ÓSKARSSONAR >
Klapparstíg 44 - Sími 11783.
55. árg.
Hannibalistar og Alþýðu-
bandalagið sigurvegarar
Úrslit þingkosninganna á sunnudaginn urðu þau, að
stjómarflokkamir báðir biðu mikinn ósigur, misstu sam-
tals fjóra þingmenn. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1927,
að íslenzk ríkisstjórn bíður ósigur í kosningum. í sam-
ræmi við þessi úrslit kosninganna hefur ríkisstjórnin
þegar beðizt lausnar. Jóhann Hafstein forsætisráðherra
gekk á fund forseta 1 gær og tilkynnti honum lausnar-
beiðni stjórnarinnar.
Alþýðuflokkurinn fékk 11.020
atkvæði og sex þingmenn, en
tapaði þrem. Flokkurinn tapaði
þessum þrem þingmönnum í
Reykjavík, á Vestfjörðum og í
Norðurlandskjördætmi vestra.
þingmenn þeir sem féllu, eru þeir
Birgir Finnsson og Bragi Sigurjóns
son.
Framsóknarflokkurinn fékk 26.
641 atkvæði og fékk 17 þingmenn,
tapaði manni í Norðurlandskjör-
dæmi vestra, en enginn af þing
mönnum flokksins féll í þessum
kosningum.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 38.
169 atkvæði og 22 þingmenn, tap
aði einum í Norðurlandskjördæmi
eystra, en enginn af þingmönnum
Frá talningu í Austurbæjarskólan um.
flokksins féll í þessum kosningum.
Samtök frjálslyndra og vinstri
manna fengu samtals 9.445 atk.
í sjö kjördæmum, og komu þcir
5 mönnum að.
Alþýðubandalagið fékk 18.055
atkvæði og 10 þingmenn, en það
er sama þingmanna tala og því
var reiknuð í kosningunum 1967,
þrátt fyrir að Hannibal, Björn
og Karl séu hlaupnir úr vistinni.
Breytingar í kjördæmum
í Reykjavík urðu þær breyting
ar að Magnús Torfi Ólafsson fram
bjóðandi Samtaka frjálslyndra
felldi 2. mann Alþýðuflokksins, en
Eggert G. Þorsteinsson kemst að
sem uppbótarþingmaður, og enn-
fremur verða þau Svava Jakobs
dóttir (Alþbl.), Bjarni Guðnason
(Samtökin) og Ellert B. Schram
(Sjálfst.) uppbótarþingmenn og
verða þingmenn Reykjavíkur þá
alls 16. Þrjú þau síðastnefndu eru
öll ný á þingi.
í Reykjancskjördæmi urðu eng
ar breytingar á þingmannatölu
flokkanna, en uppbótarþingm. úr
Reykjaneskjördæmi verða Stefán
Gunnlaugsson (Alþfl.), sem nú
tekur sæti í fyrsta skipti á þingi,
Geir Gunnarsson (Alþ.bandal.)
og Ólafur G. Einarsson (Sjálfst.
Heildarúrsiitin urðu sem hér segir:
Atkvæði Þingm. Atk.hlutfall
Alþýðuflokkur 11.020 (15.059) 6 (9) 10.5% (15.7)
Framsóknarflokkur 26.641 (27.029) 17 (18) 25.3% (28.1)
Sjálfstæðisfl. 38.169 (36.036) 22 (23) 36.2% (37.5)
Samtök frjálslyndra og vinstri manna 9.445 5 9.0%
Alþýðubandalag 18.055 (16.923) 10 (10) 17.2% (17.6)
Framboðsflokkur 2.109 0 2%
Alls voru 120.340 manns á kjörskrá og af þeim kusu 106.771
eSa 88.7%.
fl.) sem einnig er nýr á þingi.
Þingmenn úr Reykjanesi verða því
8 talsins.
í Vesturlandskjördæmi komst
Jónas Árnason (Alþýðubandal.)
að sem kjördæmakosinn, og felldi
,Benedikt Gröndal (Alþfl.), en
Benedikt kemst á þing sem upp-
bótarþingmaður.
Framhald á bls. 2.
Jóhann sagði
af sér í gær
KJ—Reykjavík, mánudag.
í dag gekk Jóhann Hafstein for-
sætisráðherra á fund forseta fs-
lands, og baðst lausnar fyrir sig
og ráðuneyti sitt, þar sem stjóm
arflokkarnir misstu meirihluta
sinn í kosningunum á sunnudag-
inn.
Á morgun klukkan hálf tólf
verður haldinn ríkisráðsfundur,
og þar verður lausnarbeiðni
Jóhanns Hafstein staðfest. Forseti
mun síðan fela Jóhanni að gegna
áfram störfum forsætisráðherra,
þar til ný ríkisstjórn verður mynd
uð.
Ólafur Jóhannesson, formaður Framsóknarflokksins:
Stjdrnarandstæðingar kanni stjdrnarmyndun
KJ—Reykjavík, mánudag.
— Ég tel að það sé rökrétt af-
leiðing af úrslitum kosning-
anna, að stjórnarandstæðingar
athugi um það, hvort grund-
völlur sé fyrir stjórnarmynd-
un þeirra, sagði Ólafur Jó-
hannesson formaður Framsókn
arflokksins í Sjónvarpinu í
kvöld, þegar Ieiðtogar flokk-
anna ræddn um úrslit kosn-
inganna, og hvað sé framundan
varðandi stjórnarmyndun.
Um kosningaúrslitin sagði
Ólafur ’óhannesson m.a.:
— Kosningaúrslitin eru ekki
eins hagstæð Framsóknar-
flokknum og ég hefði búizt við.
Tel ég enga ástæðu til að leyna
því, að það eru mér nokkur
vonbrigði. Hins vegar er ekki
hægt að tala um neitt wru-
legt tap í þessum kosningum,
og þegar maður lítur á kosn-
ingarnar í heild, má segja að
Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur komi út með
nokkuð svipaða stöðu að því
leyti að hvor um sig tapar
einu þingsæti, og báðir tapa
örlitlu af hlutfallslegu at-
kvæðamagni.
Það, sem er athyglisvert, er
auðvitað hinn stóri sigur Sam-
taka frjálslyndra og vinstri
manna og svo hins vegar hið
mikla tap Alþýðuflokksins. Þá
má líka segja að vinningur sé
hjá Alþýðubandalaginu, en þó
eru þeir með sömu þingmanna
tölu og við síðustu Alþing-
iskosningar.
Síðar í þættinum í Sjónvarp-
inu var rætt um væntanlega
stjórnarmyndun, og þá sagði
Olafur Jóhannesson:
— Ég álít að það sé rökrétt
afleiðing af þessum úrslitum,
að samstarf hefjist á milli
stjórnarandstæðinga, og þeir
athugi það, hvort ekki er grund
völlur fyrir stjói-narmyndun
þeirra, og þá ekki hvað sízt
með tilliti til landhelgismáls-
Framhald á bls. 2.