Tíminn - 15.06.1971, Blaðsíða 3
r
ÞRIÐJUDAGUR 15. júní 1971
TÍMINN
3
Eitt hundrah braut-
skráðir úr HÍ
FB—Reykjavík, mánudag.
Á laugardaginn brautskráðust
100 kandidatar frá Háskóla ís-
Umboðsmannafundur
Samvinnutrygginga
Samvinnutryggingar efndu til
fundar með forstöðumönnum
nokkurra stærstu umboða sinna,
dagana 31. marz — 2. apríl s. 1.
Fundarform var með nýju sniði,
og byggðist á hringborðsumræð-
um og fyrirspurnaformi.
Ræddu umboðsmenn fyrst sam
an innbyrðis og báru saman bækur
sínar um hin ýmsu vandamál
umboðanna, svo og þau mál, sem
efst eru á baugi. Fengu þeir síðan
til viðræðu þá starfsmenn, sem
um þessi mál fjalla, og beindu
til þeirra fyrirspurnum og ábend
ingum, og voru málin rædd af
einurð og hreinskilni.
Nýjungar á sviði trygginga voru
kynntar umboðsmönnum, m. a.
iðgjöld og skilmálar hinnar nýju
sjúkra- og slysatryggingar.
Með fundum þessum er leitazt
við að auka fræðslu, koma á
nánara samstarfi, kynnast mark
aðnum og svara þörf hans.
Að loknum fundi þágu umboðs-
menn veitingar hjá framkvæmda
stjóra á heimili hans, en snæddu
síðan kvöldverð í Naustinu, ásamt
starfsmönnum, er mætt höfðu á
fundinum, og lauk þar með heim
sókn þeirra að sinni.
Umboðsmenn, sem fundinn
sátu, voru:
Frá Akranesi,
Sveinn Guðmundsson,
Frá Borgarnesi
Jón Einarsson,
Frá Grundarfirði
Jónas Gestsson
Frá Patreksfirði
Svavar Jóhannsson.
Frá ísafirði
Þorgeir Hjörleifsson.
Frá Sauðárkróki
Geirmundur Jónsson.
Frá Akureyri
Sigmundur Björnsson
Frá Húsavík
Þormóður Jónsson.
Frá Egilsstöðum
Magnús Ingólfsson.
Frá Hvolsvelli
Guðni Jóhannsson.
Frá Selfossi
Karl J. Eiríks.
Frá Keflavík
Framhald á bls. 14.
lands. Voru prófskírteini afhent í
Háskólabíói og hófst afhendingar
athöfnin kl. 2. í byrjun flutti
Magnús Már Lárusson stutta ræðu,
en síðan talaði Þorsteinn Ingólfs
son cand. juris. Þá afhentu deild
arforsetar kandidötum skírteini
þeirra. Að þessu sinni útskrifaðist
nær einn tuttugasti af nemenda
fjölda Háskólans, en reiknað er
með að í skólann bætist á næsta
hausti milli 600 og 700 nýstúdent
ar.
Að þessu sinni útskrifuðust 16
læknar, 5 tannlæknar, 2 lyfjafræð
ingar, 20 lögfræðingar, 15 við-
skiptafræðingar, 4 með cand. mag.
próf., 16 úr BA heimspekideild, 2
BA verkfræðideild og þrír erlend
ir stúdentar í íslenzku útskrifuð-
ust einnig í þetta sinn frá Há-
skóla íslands.
iTiyiium c■ i ■ u aiiiuiniiiiii ■ i lasMiiuiiunii
\ i iniamyna vc;
Svæðamót Votta Jehóva
hefst á föstudaginn
Dagana 18. til 20. júní 1971
halda Vottar Jehóva mót í félags
heimili Seltjarnarhrepps, Seltjarn
arnesi. Stef mótsins verður: „Orð
Guðs er lifandi“, og verður dag
skráin fræðandi og uppbyggjandi.
Mótið hefst á föstudaginn kl.
20:15, með því að gefið er sýnis
horn af skóla eða þjálfunardag-
skrá, sem haldin er vikulega í
öllum söfnuðum Votta Jehóva í
206 löndum. Skóli þessi liefur upp
frætt þúsundir og gefið þeim þjálf
un í ræðuflutning, frá því að hann
var stofnaður árið 1943.
Laugardaginn 19. júní kl. 14.00
verður einn af meiriháttar við-
burðum mótsins, en það er skírn
in. Eftir skírnarræðu munu skírn-
þegar láta skírast og sýna þannig
cpinberlega að þeir óska að gera
vilja Guðs og kunngera ríki hans.
í fyrra létu 164.193 skírast um
allan heim.
Á mótinu verður mötuneyti,
Barnaskóla Ólafs-
fjarðar slitið
BS—Ólafsfirði.
Barnaskóla Ólafsf jarðar var
slitið 28. maí s. 1. að viðstöddu
Framhald á bls. 14.
sem sér mótsgestum fyrir fæði. í
því vinna sjálfboðaliðar og munu
aðrir sjálfboðaliðar vinna að upp
byggingu mótsins svo og ræstingu
og flutningum.
Sunnudaginn kl. 15.00 er svo
hámark mótsins, en þá verður
fluttur hinn opinberi fyrirlestur,
sem er nefndur: „Hver sigrar heim
inn á þessum áratug?“ Öllum er
heiniill aðga'ngur að mótinu.
Dregið í málverka-
happdrætti Stakks
Björgunarsveitin Stakkur, Kefla
vík—Njarðvík, stóð um sjómanna
helgina fyrir sýningu í Keflavík á
málverkum eftir Eggert Guð-
mundsson listmálara. Aðsókn var
ágæt og seldust 25 myndir af 40
sem á sýningunni voru. Mynda
skrár voru númeraðar, og var í
lok sýningar dregið eitt númer út
úr seldum skrám. Upp kom n r.
149. Eigandi þeirrar skrár er vin-
samlega beðinn að vitja vinnings
ins til Björns Stefánssonar hjá
Iðnaðarmannafélagi Suðurnesja,
Tjarnargötu 3, Keflavík. Vinning
ur er gullfallegt málverk af öldn
um sjómanni eftir Eggert Guð-
mundsson.
Nýlega afhenti forseti Kiwanisklúbbsins Heklu í Reykjavík Styrktarfélagi
iamaðra og fatlaSra lækningatækið Ultraterm 608/21450, með tilheyrandi
útbúnaði. Þessi mynd var tekin er tækið var afhent. Færir stjórn félagsins
gefendunum þakkir fyrir gjöfina.
■
•V: ••••■wiýXi-íjw ••y.xf
'íííííííSSí
Lögregluliðið tvöfald-
að en lítið um að vera
OÓ—Reykjavík, mánudag.
Frá sjónarmiði lögreglunnar í
Reykjavík hafa kosningar aldrei
gengið betur en s.l. sunnudag.
Guðmundur Hermannsson, yfirlög
regluþjónn, sagði Tímanum, að
dreifing kjörstaðanna og góða
veðrið ættu sinn þátt í því. Bíla-
umferð var ekki mikil og má það
sjálfsagt þakka veðurblíðunni, því
margir kjósendur gengu á kjör-
stað, og hve kjörstaðir voru marg
ir, því tiltölul. stutt var að fara
fyrir flesta kjósendur á kjörstað
sinn.
Vegna kosninganna var auka-
vakt lögreglumanna að störfum
frá því kjörfundur hófst og þar
til honum lauk. Voru um 70 lög-
reglumenn að störfum í höfuð-
staðnum. Einnig þurfti að bæta
við mannskap í umferðardeild lög-
reglunnar. Strax og kjörfundi lauk
voru þeir lögregluþjónar, sem
voru við kjördeildirnar, leystir frá
störfum, en fimm lögreglumenn
voru viðstaddir í leikfimisal
Austurbæjarskólans, meðan at-
kvæði voru talin.
Guðmundur sagði, að kjörsókn
hefði verið nokkuð jöfn allan dag-
inn og því ekki komið til umferðar
tafa cða neinna þeirra erfiðleika,
sem stundnm fylgja kjördegi.
ÖUflJÖN Styrkársson
HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR
AUSTURSTRÆTl 6 S>MI IS3S4