Tíminn - 15.06.1971, Page 7
ÞRIÐJIÍDAGUR 15. júní 1971
Afmæliskór Kirkjukórasam-
bands íslands sendir innilegar
þakkir til allra þeirra mörgu að-
ila, scm veittu honum ógleyman-
legar viðtökur í söngferðinni til
Austur- og Norðurlandsins 5. þ.m.
Fá nöfn verða nefnd í því sam-
bandi, en efst eru í huga okkar
formaður kirkjukórasambands
Austurlands, Jón Mýrdal organisti
á Norðfirði, frú Margrét Gísladótt
ir organisti á Egilsstöðum og séra
Einar Þór Þorsteinsson sóknar-
préstur á Eiðum. — Þessir aðilar
buðu okkur velkomin með útrétt-
um höndum og hlýjum ávörpum,
einnig stýrði Jón Mýrdal söng
nokkurra kirkjukóra, sem fögnuðu
komu okkar til Austurlandsins.
Eftir velheppnaðan söng og
skörulega ræðu séra Einars í Vala-
skjálf, að ógleymdum góðum veit-
ingum, héldum við ferðinni áfram
til Akureyrar. Þar biðu okkar á
flugvellinum forma ar kirkjukóra
sambands Eyjafjarðarprófasts-
dæmis, Jakob Tryggvason, og rit-
ari þess Hafliði Guðmundsson
ásamt sóknarprestinum, séra
Þessi mynd er úr Akureyrarkirkju. Á henni eru frú Sigrún Björgvinsdóttir og Valgarður Baldvinsson bæjarritari og dóttir þeirra, séra Frank M. Hall-
dórsson, frú Sólveig Ásgeirsdóttir, Jakob Tryggvason organisti og séra Birgir Snæbjörnsson sóknarprestur.
tTm ! N N
Birgi Snæbjörnssyni. Innan stund
ar tilheyrðum við, mjög hughrifin,
innsta kjama Akureyrar í glamu-
andi sól og sumarskrúða — feg-
ursta bæ íslands.
Klukkan tíu þetta kvöld var að
baki okkar aðalerindið til Norður-
landsins, söngsveitin hafði lokið
við að flytja ýmsa þætti, ariur og
kóra, úr óratoríunni — Friður á
Jörðu — eftir Björgvin Guð-
mundsson tónskáld, með styrkri að
stoð organista kirkjunnar, Jakobs
Tryggvasonar. — Er við höfðum
lokíð við að koma okkur fyrir í
6éx skrefa tröppum framan við
grátur Matthíasarkirkju, albúin til
söngs, risu viðstaddir úr sætum og
fögnuðu nærveru okkar, kirkjukór
ar Akureyrar og Lögmannshlíðar
sungu undir stjórn og organleik
Jakobs Tryggvasonar sálminn------
Dýrð í hæstum hæðum — eftir
séra Friðrik Friðriksson með lagi
Björgvins Guðmundssonar. Að því
loknu ávarpaði Jakob okkur og
bauð afmæliskórinn velkominn til
söngs í Akureyrarkirkju.
f sönghléi flutti sóknarprestur-
inn, séra Birgir Snæbjörnsson,
ágætis erindi um kirkjusöng á ís-
landi, fyrr og nú.
Eftir dvöl okkar í Akureyrar-
kirkju þessa kvöldstund getum við
ekki gert okkur grein fyrir neinu,
sem kynni að verða ofmælt varð-
andi innri fegurð kirkjunnar, tign
hennar og helgi. Þar andar guðs-
blær í fyllsta skilningi með óvið-
jafnanlegum hljómvaka í hvelf-
Jngunum.
í lok samsnngsins ávarpaði einn
áheyrandínn söngsveitina og mælt
ist til, að 1974 kæmi hún aftur til
Norðurlandsins þeirra erinda, að
flytja kantötuna: íslands þúsund
ár — eftir Björgvin Guðmunds-
son.
Eftir samsönginn sátum við hóf
að Hótel KEA í boði bæjarstjórn-
ar Akureyrar. Þar ávarpaði okkur
fulltrúi bæjarstjórnar, Valgarður
Baldvinsson bæjarritari. Hann
þakkaði söngsveitinni fyrir flutn-
ing óratoríunnar — Friður á
Jörðu — og bauð okkur hjartan-
lega velkomin til Akureyrar. —
Að Hótel KEA sátum við allt að
miðnætti og neyttum gómsætra
veitinga og hlýddum á ræður og
skemmtileg tilsvör. Þax*na ríkti
gleði og hið ágætasta samkomu-
lag söngfélaga og gestgjafa. —
Vinarkveðja barst okkur frá
vígslubiskupinum, séra Pétri Sig-
urgeirssyni, en hann var fjarver-
andi í embættisei-indum utan
Akureyrar.
Næsta dag hlýddum við á guðs
þjónustu í Akureyrai’kirkju. Þar
predikaði séra Bh'ank M. Halldórs-
son sóknarprestur í Nessókn í
Reykjavík, en séra Birgir Snæ-
björnsson þjónaði fyrir altari.
Kirkjan var þéttsetin áheyrend-
um. J— Eftir' hádegið var okkur
ekið af gestgjöfum okkar um Akur
eyrarbte “ög ýmsir' merkisstídðir
skoðaðii’, svo sem Nonnahúsið,
Byggðai'safnið og Minjasafn
Bjöi'gvins Guðmundssonar tón-
skálds.
Að kvöldi þessa sunnudags
klukkan sex kvöddum við öll inni-
lega þá séi'a Birgi, Jakob
Hafliða Guðmundsson svo
segja við flugvélarvænginn.Nokkr-
um augnablikum síðar vorum viö,
söngfélagar og flugáhöfn — nær
átta tugum — svífandi á SEXU
Flugfélags íslands fjöllum ofar í
himinblánxa fagurtæiTi lind rne'ð
ágætustu minningar frá AKUR-
og
að I EYRI og, EGÍLSSTÖÐUM. ,
Séra GuSmundur Ól. Ólafsson, frú lngibjörg Hannesdóttir, Margrét Gísladóttlr organisti, Sigríður og Jón Mýrdal, frú SigríSur Zóphaníasdóttir og
séra Einar Þ, Þorsteinsson sóknarprestur.
Sumarbúðir í Þrándheimi
Kópavogskaupstað stendur til boða að senda 2
stúlkur og 2 pilta, 11 og 12 ára í sumarbúðir til
Þrándheims, dagana 11. júlí til 8. ágúst n.k. Farar-
stjóri verður með hópnum. Kópavogskaupstaður
greiðir hluta fargjalda. Umsóknir ber að senda
bæjarritara eigi síðar en 18. júní n.k.
Kópavogi, 14. júní 1971.
Bæjarstjóri.
VINNA VIÐ
FATAPRESSUN
Óskum að ráða karlmann eða kvenmann til starfa
við fatapressun.
Upplýsingar í verksmiðjunni milli kl. 3 og 5.
Fatavorksmiðjarx Gefjun, Snorrabraut 56.
HEFI TIL SÖLU
Hefi til sölu ódýr transistorútvörp, segulbandstæki, stereo-
plötuspilara, cásettur, segulbandsspólur. Einnig notaða raf-
magnsgítara, gítarmagnara og harmonikur. Skipti oft
möguleg. Póstsendi. F. Björnsson, Bergþórugötu 2, sími
23889, eftir kl. 13 og laugardaga kl. 10—16.
/ið kaupum stitna »ólningarhæfa NYLONHIáöLBARÐA,
i verði, sem hér segir:
BARÐINN H.F.
Ármúla 7, Reykjavík, sími 30501
flestar stærðir kr. 200,00
leppadekk:
600—650 — 250,00
700—750 — 300,00
Vörubíladekk:
825X20 — 800,00
900X20 — 1000,00
1000X20 — 1200,00
1100X20 1400,00
30501