Tíminn - 11.07.1971, Side 1

Tíminn - 11.07.1971, Side 1
BLAÐ II — Sunnudagur Tl. júl'í T97l Burt Bacharach er oft kall- aður „prinsinn“ í heimi banda- rískrar tónlistar af léttara tag- inu. Hann er einna yngstur tón skálda þar af sinni kynslóð, eldri eru menn eins og Irving Berlin, Gershwin og Cole Porter. Burt Bacharach er ekki aðeins hæfileikamikill og auðugur, heldur eiiinig viðkunn anlegur og frjálslegur í fasi. Semur fyrir alla Leyndardómurinn bak við vinsældir laga Bacharachs, segja sumir að liggi í því, að þegar hann byrjaði að semja, ákvað hann að þverbrjóta allar reglur. Fyrsta skilyrðið var, að „maðurinn á götunni" hefði ánægju af laginu. En það er nú samt svo, aö þótt lög Bac- harachs hafi orðið geysivinsæl meðal almennings, þá eru þau nokkuð erfið að raula eða blístra, nema fyrir æfða söngv- ara. — Kannski ætlaði ég ekki beint að brjóta reglurnar, segir Bacharach, — en að minnsta kosti að gleyma þeim, þegar ég samdi. Ég hef sífellt í huga, að ég ræð aðeins yfir tveim mínútum, þeim tíma, sem tek- nr að spila eina plötu. Og þá nota ég hverja sekúndu eins og hægt er. Ráðlegging mín til þeirra sem hlusta er þessi: — Slappið vel af og hlustið með öllum líkamanum. Eitt er það, sem hefur haft mikla þýðingu fyrir frama Bacharachs, en það er hin fal- lega kona hans, leikkonan Angie Dickinson. Blaðamenn hafa eytt mörgum dálkum í að lýsa henni. Fótleggir hennar voru einu sinni tryggðir fyrir milljónir króna. Hún er falleg, tilfinningarík og umfram allt, lífleg og kát. — Ég er komin yfir þrítugt, segir hún — og ég reyni ekki að leyna því, að það eru komn ar nokkrar hrukkur. Þetta er mjög virðingarvert, þegar um er að ræða stað eins og Hollywood. Það kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. þegar fréttist, að þau Burt og Angie ætluðu að gifta sig. Eftir því, sem vinir þeirra vissu bezt, þekkt- ust þau varla. — Við hittumst í veizlu og urðum strax ástfangin, segir Angie. — Auðvitað talaði hann bara um tónlist og skáldskap, en ég naut hvers orðs. Daginn eftir hringdi hann svo og sagð ist ekki hafa getað sofið vegna tilhugsunarinnar um mig. Þrem mánuðum síðar fórum við til Las Vegas og giftum okkur og höfum síðan verið á stöðugu ferðalagi um heiminn. Þessa stundina búa þau í Beverley Hills, en það er bara leiguhús- næði. Burt segist vera svo óþolinmóður, að hann geti ekki beðið, meðan verið sé að byggja hús. Vildi „á toppinn" Úti í garðinum leikur Nikki sér. Hún er miðpunktur fjöl- skyldunnar. Dóttirin var svo veikburða, þegar hún fæddist, að hún var orðin ,ársgömul þegar séð varð, að liún''m'ýridi Þaú giftú Slg rétt eftlr að þau kynntust, og nú eru þau ein hamingjusömustu hjón í Hollywood. Aðdáendur hans eru á öllum aldri og tónlist hans er þekkt um allan heim. í fyrra fékk hann Oscarsverðlaunin fyrir lagið „Rain- drops keep fallin,u. Hann hefur samið um 200 vinsæl lög. Hver er eiginlega Burt Bacharach og hver er lykillinn að velgengni hans? spjara sig. Þau Burt og Angie hafa ekki enn átt fleiri börn. En aftur að tónlistinni. — Ég hef alltaf vitað, að ég hefði hæfileika, segir Burt. — En það kostar geysilega vinnu, að komast á toppinn, en þangað ætlaði ég mér alltaf að komast. Eiginlega er það móður hans að þakka, að hann er það sem hann er. Hún lét hann læra á píanó og síðan lærði hann á Óaðskiljanlogur þríhyrningur: Hal ur lítið úr lögunum. Davis, Dionne Warvick og Burt Bacharach. Án samstarfs þeirra, verð- selló. f þrjú ár nam hann Mass íska tónlistarfræði P'Montreal. Burt hafði ætlað sér að semja alvarlega tónlist, en sú ætlan hans fór út um þúfur, meðan hann var í herþjónustu. Tónskáld alls heimsins — Það sem varð til þess, að ég fór að semja, var að ég fékk að sjá lögin, sem skrifuð voru fyrir Ames-bræður, segir Burt. — Mér fannst þau svo einföld, að ekki væri vandi, að skrtfa ■ fimm, sex svona á dag. En það er bara ekki mjög auðvelt að skrifa einfalt lag. Ég vann á hverjum degi í tíu mánuði, án þess að gefa út eitt einasta lag. Frá 1958 til 1961, löngu áður en Bacharach varð frægur, var hann stjómandi og skrifaði lög fyrir Marlene Dietrich. Um hana segir hann: — Hún er ein af stórkostlegustu konum, sem ég hef kynnst. í fyrsti sinn, sem ég hitti hana, spilaði ég eitt af lögunum mínum, „Warm and tender“ fyrir hana. Hún hljóp í símann og hringdi til Frank Sinatra, sem hafði engan áhuga. — Heimskulegt af þér, sagði Marlene, — því þú átt sjálfur eftir að biðja hann að semja fyrir þig. Þar hafði hún rétt fyrir sér. Eftir vel heppnaða tónleika í London, sagði Marlene: — Ég elska Burt Bacharach. Hann er kennari minn, gagnrýnandi, stjórnandi og hjálparkokkur, og ég vildi óska, að ég gæti sagt, að hann væri tónskáld mitt, en það er ekki satt. Hann er tónskáld alls heimsins. Að vera tónskáld alls heims ins hefur gert Burt auðugan mann. — Fyrir mig þýða pen- ingar, að ég get unnið það sem Framhald á bls. 22. BURT BACHARACH -TÖNSKÁLD ÁRATUGSINS

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.