Tíminn - 11.07.1971, Blaðsíða 5
SUNNUDAGUR 11. júlí 1971
TÍMINN
17
eldborgar landsins, þegar Sel-
Þórir sá eldjötuninn eyða bæ
þeim er í Hripi hét. Þar var
bærinn, sem nú er borgin. Þessi
saga virðist hafa við að styðjast
munnmæli um eldgang þann er
myndaði yngri hluta Eldborgar-
hrauns.
Á hausti er Eldborg rjóð á
vanga, vegna hins rósrauða beiti
lyngs sem þar þekur brekkur.
Löngufjörur eru þarna ekki
allfjarri. Þangað geta konur rölt
í hægðum sínum og komizt á
einhverjar þær hreinustu og
björtustu fjörur, sem um getur
á landi hér.
En einnig þar er margt að
ugga. Áður var þjóðleið um
Löngufjörur. Ekki komust þar
allir klakklaust leiðar sinnar,
svo sem segir um för bóksölu-
manns Hólastóls. Maður þessi
týndist og þótti ekki einleikið
um hvarf hans. Þá gerði hann
vart við sig í draumi og kvað
vísu þessa:
Finndu mig falinn, halur,
fallinn er yfir mig bakki,
hvar ég var fötum flettur,
fjármunir mínir teknir.
Þarna fyrir utan er Haffjarð-
arey. 1 fyrndinni var þar kirkju
staður. Þaðan drukknaði mikill
mannfjöldi í kirkjuferð og lagð-
ist síðan kirkjan af. í kirkju-
garðinum í Haffjarðarey blása
upp bein miðaldamanna.
Þarna var Vilhjálmur Stef-
ánsson landkönnuður að rísla
fyrir áratugum.
Um fjöllin miklu, spm mynda
ægifagran hring um þetta
hverfi, mætti margt segja. —
Fyrst er að telja Snæfellsjökul
með öllum hans undrum, sönn-
um og lognum. Elliðahamar
ógnar nú aðeins auðum tóftum
yflrgefins bæjar.
Þama gnæfir Hafraféllið með
æfintýralegum seldölum, þar
sem selráðskonur trúlofuðust
huldumönnum. — Hinar bú-
sældarlegu Skyrtunnur minna
nokkuð á Keili kunningja, þótt
spengilegri séu þær után um
sig.
— Hér er Hofmannaflöt og
her er Dalsmynni mcð dans-
húsi og allskonar gleði. Austur
þaðan raðast Gerðhamrar,
merkilegt stuðlaberg, sem gleð-
ur jarðfræðisinnað fólk.
Að Rauðamel bjó forðum
móðir Arons Hjörleifssonar,
skjólstæðings Guðmundar bisk-
ups góða. — Þá erum vér
komnar aftur í Sturlungaöld.
Þarna nálægt er Aronshellir,
þar sem móðir faldi sekan son.
Þá er Rauðamelsölkelda. Þar
má drekka sódavatn fyrir ekk-
ert.
Margar eru þarna Rauðukúl-
ur, og nú sést inn í Hnappadal.
Kirkja stendur undir Kolbeins-
staðafjalli og þarnæst rís Fagra
skógarfjall. Hér eru slóðir
Grettissögu. Þarna er Grettis-
bæli sem minnir ó félagsskap
þeirra Grettis og Björns Hít-
dælakappa.
Nú tekur ástin við. Oddný
eykyndill grætur ástmann sinn
Björn. Hraundalur skýlir minn-
ingunni um síðustu ár!:.Helgjg
hinnárfögru.
Innan úr Hjtardal berast ósn
arlegir mekkir.' — Þar bránn
flest fólk inni í einu á íslandi,
allt fram á þennan dag, þegar
Magnús Einarsson Skálholts-
biskup lét þar líf sitt með 70
— 80 manns árið 1148.
Gígarnir í Barnaborgarhrauni
minna á Börnin, sem þar hurfu
endur fyrir löngu. — Ekki má
gleyma því litríka örnefni
Rauðamelsheiði. Svo kvað
Hulda:
Þar dali þrýtur í drögum
grænum
draumþögul heiðin rís.
í Kyrrðinni andar af
austurleiðum
angan frá sokkinni paradís.
Flestar þessar sögur og fullt
af ljóðabókum mun verða að
finna í hinu vandaða bókasafni
Laugagerðisskóla. Kvöldvökurn-
friyiiu iiu ^iiceiciDiiex
ar geta því orðið þrungnar minn
ingum um það líf sem hér hefir
verið lifað, allt frá Landnámi
til völvunnar í Skógamesi.
Verkefnin verða yfrið nóg,
jafnvel i rigningartíð.
Verði sólin oss hliðholl, þá
þökkum vér gjafir alls góðs. —
Gráti himinn, þá grátum vér
með fornkonum.
Lífsins krydd er bæði sætt og
og súrt. — Ekki mun heldur
vanta kryddið í matinn, því að
hinar listfengu matreiðslukon-
ur frá fyrra ári, þær Hertfís
Sigurjónsdóttir og hénnar föru-
neyti munu raða gómsætum
réttum sínum til handa orlofs-
konum, öllum til ánægju — en
þó nokkurrar freistingar þeim
sem feitlagnar cru. Þó er sú
huggun harmi gegn að allar
göngurnar á vit gamalla og
nýrra æfintýra munu vinna þar
á móti, að maður nú ekki taíi
um sundið í Kolviðarnesslaug
og vöðin yfir Haffjarðará.
Ein skemmtiferð verður far-
in meðart á orlofsdvöiinni
stendui', eitthvað vestur um
Snæfellsnesið.
Allar orlofsnefndirnar munu
veita frekari upplýsingar hver
á sínum stað. Orlof Hafnar-
fjarðar verður frá 10. ágúst til
20. ágúst.
Upplýsingar gefa Dagbjört
Sigurjónsdóttir, sími 50435.
Hulda Sigurðardóttir, sími
51622, og undirrituð, sími 50227.
Sigurveig Guðmundsdóttir.
Hafnarfirði.
Ey&ír a&mns 8 íítrum
á lOO km tíí faf na&ar
en véíín þé stœvri og
kraftmeíri
ennokkrusinnifyrr!
Vauxhall Víva kemur nú á 13 tommu felgum. Óvenju
falleg og vönduð innrétting. Tvöfalt hemiakerfi. Frá-
bærir aksturseiginleikar. Viva é'r framleidd af General
Motors, stærzta bilaframleiðanda b.eims,
Leitið nánari upplýsihga.
Plötur - harðviður - spónn
• Spónaplötur, hampplötur, Wiru-plast, harð-
plast, harðtex-
• Ramin - Abachi - Askur - Eik - Oregon pine.
Væntanlegt Brenni, Mahogni.
• SPÓNN — Eik, gullálmur, ahorn, oregonp ine,
koto, limba, fura, mahogni, wenge.
Páll Þorgeirsson & Co. Sími 34000
DISILVÉLAR
PERKINS 4203, 4ra cylindra með girkassa.
B.M.C. 3 2, 4ra cylindra með gírkassa.
Vélarnar eru fluttar inn notaðar, en eru yfirfarnar
og í góðu standi.
T. HANNESSON & CO. H.F.
Ármúla 7, Reykjavík.
Símar; 85935 — 85815
Samband ísl. samvínnujélaga
Véladeild
Ármúla 3, Rvík. sími 38900