Tíminn - 11.07.1971, Side 7
HJNNUDAGUR 11. júlí 1971
ans. En húsið var gamalt og lé-
legt, allt úr timbri að innan og
brunahætta mikil.
Með lögum frá 1957 var Lands
bankanum skipt í tvær aðal-
deildir, Seðlabanka og Við-
skiptabanka, er hvor um sig
lutu sérstakri stjórn. Áður
hafði sá háttur verið á, að deild
irnar voru raunverulega tvær,
en með sameiginlega stjórn og
starfslið.
Við þessa breytingu þrengd
ist enn í húsakynnum, sem þeg
ar voru orðin of lítil.
Fljótlega voru ráðgerðar nýj
ar byggingar, en lítið varð úr
framkvæmdum. Stofnun nýrra
útibúa bætti nokkuð úr hús-
næðisskorti Landsbankans.
Með lögum frá 1961 var að
fullu tekið það skref að skilja
að Landsbankann og Seðlabank
ann. En bankarnir búa enn í
sambýli og hafa báðir, við aukn
ingu á starfsemi og nýjum verk
efnum, orðið að fá leiguhús-
næði utan sinna bygginga.
Árið 1964 keypti Landsbank
inn næsta hús við, þ.e. Hafn-
arstræti 10—12, hið svokallaða
Edinborgarhús, en það er um
330 fermetrar.
Fyrirhugað var að Seðlabank
inn byggði annars staðar, en
stjóm Landsbankans ákvað að
endurbyggja og endurbæta hin
eldri húsakynni og er því nú
að mestu lokið.
Nýja húsið kostar 34 millj.
Gamla Ingólfshvolshúsið var
brotið niður og byggt upp að
nýju. Hófst vinna við það í
byrjun síðasta árs. Hið nýja
liús er um 2500 m rúmm. en
heildargólfflötur þess, að með-
taldri einnar hæðar hækkun
á millibyggingu, er aðeins um
75 ferm. méiri en var í gamla
húsinu. Nýja húsið mun kosta
með húsgögnum og öllu tilheyr
andi um 34 milljónir króna.
í kjallara þess eru geymslur,
á jarðhæð lítill afgreiðslusalur,
gangur og stigahús og á 3. og
4. hæð aðsetur bankastjórnar,
fundaherbergi og annað skrif
stofuhúsnæði.
Þá hafa farið fram endurbæt
ur á Edinborgarhúsinu, það ver
ið hækkað um eina hæð, byggt
yfir sundið á milli þess og
gamla Landsbankahússins og
gerður einn samfelldur af-
greiðslusalur á milli. Við það
hefur afgreiðslurými aukizt
mikið.
í vesturenda jarðhæðar þess
er afgreiðsla Seðlabankans.
Stærð afgreiðslusalar Lands
bankans er eftir þessar breyt
ingar um 800 ferm. Það er ekki
rétt að segja að ekki standi
TÍMINN
Myndin' er úr afgreiðslusal aSalbankans, og þrátt fyrir mikil húsakynni bíður nokkuS af fól'ki, enda myndin tekin
á einum annasamasta tíma dagsins.
steinn yfir steini í gamla af-
greiðslusalnum, en hitt er sönnu
nær, að allar deildir hafa ver
ið fluttar til, af hagkvæmnis-
ástæðum. Ný afgreiðsluborð
hafa verið látin í salinn, en allt
á þetta að auka vinnuafköst og
bæta þjónustu. Reynt hefur ver
ið eftir föngum að halda blæ
og svipmóti gamla salarins, og
í því sambandi hafa m. a. ver
ið gerðar ráðstafanir til að lag
færa veggmálverk, eftir Kjar-
val og Jón Stefánsson, sem far
in eru að láta á sjS.
Þótt lítið aukist húsrými í
bankanum við uppbyggingu Ing
ólfshvols, gefst við það mögu
leiki á að bæta á ýmsan hátt
skipulag og vinnubrögð innan
stofnunarinnar.
Breytingarnar, sem gerðar
voru á húsum bankans árið
1938 teiknaði Gunnlaugur Hall
dórrsson, arkitekt. Hann hefur
ásamt Guðm. Kr. Kristinssyni
teiknað nýbygginguna og allar
breytingar, sem nú voru gerð
ar. Gústaf Pálsson, verkfræðing
ur, gerði járnateikningar, Sig-
urður Halldórsson, verkfr.,
teiknaði raflagnir og Kristján
Flygenring, verkfr., lagnir
vatns og hita. Húsgögn í ný-
bygginguna teiknaði Gunnar
Guðmundsson, arkitekt. Umsjón
og heildarstjórn verksins hefur
Jón Bergsteinsson, múrarameist
ari, annazt frá byrjun ásamt
starfsm. skipulagsd. bankans.
Trésmíðameistari við nýbygg-
inguna var Magnús Bergsteins-
son.
Með hinum gagngeru endur-
bótum, sem gerðar hafa verið
á húsakynnum Landsbankans á
undanförnum mánuðum, hef
ur húsið gjörbreytt um svip að
innan, þótt sami blærinn hald
ist yfir salnum í gamla húsinu.
Bankasyórnin_ fer_nú af gamla
gangimuu, þau sem-Kjaj'val hef_
ur málað miklar veggmyndir,
og margur hefur átt leið um.
Flytur bankastjórnin á 3ju
og 4ðu hæð 1 nýja húsinu, og
verður aðalinngangur þangað
úr Hafnarstræti, en eftir sem
áður verður aðalinngangur í
bankann úr Austurstræti, en
líka hægt að fara í afgreiðslu
salinn Hafnarstrætismegin.
Skrifstofur bankastjóranna
eru á sénstökum gangi á fjórðu
hæð, og eru skrifstofur þeirra
mjög bjartar, o? veggir ljósir
— og ekki klæddir harðviði.
Borð og hillur eru úr dökkum
viði, — þó ekki palisander —
en veggir klæddir ljósu vegg-
fóðri.
Á næstu hæð fyrir neðan er
svo fundaherbengi bankaráðs,
og þar er heilmikið hringlaga
fundarborð fyrir 15 manns, og
hefur eitthvað verið rætt um
(Tímamynd G.E.)
hátt verð á því manna á meðal,
en að því er bankastjórar sögðu
blaðamönnum, þá kostaði borð
ið 340 þúsund krónur.
Þótt bankinn væri lítill fyrst
í stað, óx honum fiskur um
hrygg, hægt og bítandi og vöxt
ur bankans tók mikinn kipp
upp úr 1920, en þá sneri hann
sér að því í æ ríkari mæli að
efla sjávarútveginn, og koma
undir hann fótunum.
Hægfara vöxtur fýrst
Á seihnl árum hefur orðið
mikill vöxtur í bankanum, jafn
framt því sem hann veitir nú
meiri þjónustu en áður. Jókst
afgreiðsluf jöldi í bankanum um
16,5% 1970 miðað við árið á
undan, og urðu afgreiðslur ár
ið 1970 þá alls 4,2 milljónir.
Er þá átt við bókfærð fylgi-
J.9
skjöl, en erfitt er að telja við-
skiptamennina. Árið 1970 voru
keyptir eða framlengdir 118
þúsund víxlar í bankanum, og
á degi hverjum taka bankastjór
arnir á móti 70 — 90 manns
nú orðið. í árslok 1970 var inni
standandi sparifé 4,1 milljarð
ur á veltilánareikningum stóðu
inni 1,5 milljarður. Árið 1966
var rafreiknir tekinn í notkun
í bankanum, og síðan hefur
smátt og smátt verið unnið að
þv£ að láta hann vinna æ fjöl
þættari verkefni fyrir bankann.
Bankaráð og útibú
Baldvin Jónsson hrl. er for-
maður bankaráðs Landsbanka
íslands, og með honum í ráð
inu eru: Matthías Á. Matthíe-
sen alþingismaður sem er vara
formaður, Einar Olgeirsson fyrr
verandi alþingismaður, Kristj-
án G. Gíslason stórkaupmaður
og Kristinn Finnbogason fram
kvæmdastjóri.
Endurskoðendur eru Baldur
Óskarsson og Ragnar Jónsson.
Landsbankinn rekur sjö úti-
bú í Reykjavík, og auk þess úti
bú á eftirtöldum stöðum úti á
landi: Akranesi, Akureyri, Eski
firði, Húsavík, Hvoisvelli, ísa-
firði og Selfossi. Innan skamms
verður svo opnað útibú á Höfn
í Hornafirði.
Mosaikmynd eftir Nínu
f tilefni af þessum merku
tímamótum í sögu Landsbank
ans, var í gær afhjúpuð mosaik
mynd eftir Ninu Tryggvadótt-
ur, Hafnarstrætismegin í aðal
afgreiðslusal bankans. Sýnir
myndin Egil Skallagrímsson
taka við gullbaug af spjótsoddi
Aðalsteins Englandskonungs,
eftir að bróðir hefur lát
ið Iífið í eldi. Verk þetta var
sett upp á vegg salarins fyrir
tveim árum, og er síðasta verk
listakonunnar. Hefur það verið
sveipað dúki hingað til, en
mun á mánudaginn blasa við
starfsfólki og viðskiptamönnum
bankans.
K.J.
Þetta er nýbygging Landsbrr.kans, og þarna á horninu á tveim efstu
sitt. Fjær er svo Edinborgarhúsjð, sem Seðlabankinn hefur til afnota.
Við þetta borð hafa vfxlarnir verið keyptir fram til þessa. Myndln er tekin
í gömlu fundarstofu bankastjóranna, þar sem margar og miklar peninga
ákvarðanir hafa verið tekna á undanförnum 57 árum. F. v. Gunnlaugur
aðstoðarbankastjóri, Helgi Bergs og Jónas Haralz (Tímamynd G.E.)