Fréttablaðið - 27.08.2002, Side 2

Fréttablaðið - 27.08.2002, Side 2
2 27. ágúst 2002 ÞRIÐJUDAGURERLENT INNLENT STJÓRNMÁL Margrét K. Sverrisdótt- ir, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, mun líklega leiða lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi nyrðra við næstu þingkosningar. Fyrir liggur að Guðjón A. Krist- jánsson mun leiða lista flokksins í norðvesturkjördæmi. „Við byggjum á því sem unnið var síðasta vor,“ segir Margrét. „Við réttum kúrsinn af. Fólk var búið að stimpla flokkinn of mikið sem kvótaflokk. Okkur tókst að minna á að þetta er ekki eins mál- efnis flokkur þó auðvitað skipti sjávarútvegsmálin miklu máli.“ Kosningaundirbúningur flokksins er að hefjast. „Við vorum með samráðsfund á laugardaginn var með kjarnafólki úr norðvestur- kjördæminu. Við gerum ráð fyrir að vera með fleiri samráðsfundi frá og með seinni hluta september. Á þessu stigi geri ég ráð fyrir því að boðið verði fram sem Frjáls- lyndi flokkurinn. Ég sé ekki ástæðu til annars. „ Stefnt er að miðstjórnarfundi 19. september og þá mun undirbúningur fara af stað með fullum krafti. Búist hefur verið við því að Margrét leiði flokkinn í öðru Reykjavíkurkjördæminu. „Ég hef fullan hug á því.“ Hún segir ekki ljóst í hvoru kjördæminu hún fari fram. Slíkt skipti ekki öllu máli. Hún hafi þó frekar litið til Reykja- víkur norður.  Hnífsstungur: Engar játningar LÖGREGLA Mennirnir tveir sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að hnífaárás á 16 ára pilt um liðna helgi hafa ekki játað sök. Þeir eru einnig grunað- ir um árás á mann um tvítugt á Menningarnótt. Fórnarlömbin í þessum tveim- ur hnífsstungumálum eru hvorugt í lífshættu. Það er þó alls ekki árásarmönnunum að þakka að piltarnir sluppu svo vel. Til dæm- is munaði aðeins millimetrum að stungið hefði verið í gegn um ós- æð unga mannsins sem stunginn var í bakið á Menningarnótt. Sá sextán ára var m. a. stunginn í síð- una.  HEIMSRÁÐSTEFNA Ýmislegt gekk á fyrsta dag heimsráðstefn- unnar sem haldin er í Jóhannesarborg. Erindrekar Sameinuðu þjóðanna í hættu: Ræningi gerði mik- inn usla JÓHANNESARBORG, SUÐUR-AFRÍKU, AP Skotið var að svissneskum erind- reka auk þess sem annar var rændur á hóteli sem þeir gistu á í tengslum við heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um sjálf- bæra þróun sem haldin er í Suður- Afríku. Að sögn yfirvalda læddist ræningi nokkur inn í hótelher- bergi eins erindrekans og stal þar veski, peningum og farsíma. Því næst fór ræninginn inn í annað herbergi þar sem hin svissneska Rosmarie Bar svaf, kveikti ljósin í herberginu og vakti hana upp. Skaut ræninginn í átt að konunni áður en hann lét sig hverfa, en hitti ekki. Suður-afrískir ráða- menn sögðust í gær miður sín yfir atburðinum og hafa aukið örygg- isgæslu á hótelinu til muna. Eng- inn hefur enn verið handtekinn vegna málsins. Hótelið sem um er að ræða er fimmtán kílómetra frá aðalfundarstað ráðstefnunnar.  Bæjarráð Reykjanesbæjarhefur vísað ósk félagsins RV-Ráðgjafar um lóð fyrir einkarekinn leikskóla til skipu- lags- og bygginganefndar Reykjanesbæjar. sudfr.is Skotfélag Íslands: Hlynnt sölubanni RJÚPUR Ívar Pálsson, varaformaður Skotveiðifélags Íslands, sagðist ekki telja rétt að stytta veiðitíma- bilið eins og Náttúrufræðistofnun hefði lagt til í tillögum sem sendar voru umhverfisráðuneytinu á fimmtudaginn. Stofnunin lagði einnig til að sölubann yrði sett á rjúpuna. „Ef nauðsynlega þarf að grípa til aðgerða þá erum við hlynntir því að fyrst verði prófað að setja á sölu- bann,“ sagði Ívar. „Um 10% veiði- manna eru að skjóta um 50% af rjúpunni. Veiðiálagið myndi því væntanlega minnka verulega ef sölubann yrði sett á.“ Ívar sagði að félagsmenn Skot- félagsins hefðu ítrekað verið hvatt- ir til þess að veiða í hófi. Félagið vildi alls ekki að bæði yrði sett á sölubann og veiðitíminn styttur.  RJÚPUR Engar rjúpur verða í kjöt- borðum verslana landsins um jól- in ef tillögur Náttúrufræðistofn- unar, sem sendar voru umhverfis- ráðuneytinu fyrir síðustu helgi, ná fram að ganga. Vegna mikillar fækkunar í rjúpnastofnunin und- anfarin ár leggur stofnunin til að sölubann verði sett á rjúpur og veiðitíminn skertur verulega. Rjúpan hefur verið sett á válista. Siv Friðleifsdóttir umhverfis- ráðherra sagði að tillögurnar hefðu verið sendar til ráðgjafa- nefndar um villt dýr. Nefndin myndi fara yfir tillögurnar og skoða alla fleti málsins og hvern- ig bregðast eigi við. Hún sagðist vænta þess að fá niðurstöður nefndarinnar um miðjan septem- ber og þá yrði tekin ákvörðun í málinu. „Það er auðvitað áhyggjuefni hvað rjúpnastofninn er í mikilli lægð,“ sagði Siv. „Það er því afar líklegt að gripið verði til ein- hverra aðgerða en á þessari stun- du er ekki hægt að segja ná- kvæmlega til hvaða aðgerða.“ Gögn Náttúrufræðistofnunar sýna að fækkun rjúpunnar á völd- um talningarsvæðum árabilið 1981-2002 nemur um 66% yfir tímabilið eða um 6% á ári. Sam- kvæmt þessum niðurstöðum og alþjóðlegum viðmiðum hefur hún því verið sett á válista og er hún í flokki með stofnum sem taldir eru vera í yfirvofandi hættu. Ólafur Nielsen, fuglafræðing- ur hjá Náttúrufræðistofnun, sagði að lagt væri til að veiðitím- inn yrði styttur verulega og að- eins veitt í nóvember. Venjulega hefst veiði 15. október og er veitt fram til 22. desember. Ólafur sagði að rjúpan væri ekki að deyja út heldur yrði um fyrir- byggjandi aðgerðir að ræða. Hann sagði erfitt að segja ná- kvæmlega hvað stofninn væri stór, en líklega teldi hann á bilinu 400 til 600 þúsund rjúpur. Fyrir fáeinum áratugum hefði stofninn mælst í milljónum. Að sögn Ólafs er rjúpan þýð- ingarmikil í vistkerfinu, en fálk- inn byggir afkomu sína alfarið á henni. Fálkastofninn, sem er á vá- lista, telur um 300 til 400 pör. Ólafur sagði að fálkastofninn á Íslandi væri sá stærsti í Evrópu og því bæru Íslendingar mikla ábyrgð gagnvart honum. trausti@frettabladid.is SÖLUBANN Á RJÚPUR Ef tillögur Náttúrufræðistofnunar ná fram að ganga verða engar rjúpur í kjötborðum versl- ana fyrir jólin. Svokallaðir magnveiðimenn, sem taldir eru um 500, skjóta milli 50 og 60 þúsund rjúpur árlega til að selja verslunum og veitingahúsum. DÓMSMÁL Maður, sem dæmdur var í 17 ára fangelsi fyrir morð í upp- hafi níunda áratugarins, hefur verið dæmdur í Hæstarétti til að sæta gæsluvarðhaldi til 10. sept- ember vegna margendurtekinna auðgunarbrota. Maðurinn var látinn laus til reynslu í júní árið 2001. Þá átti hann eftir að afplána tæp sex ár af dómi sínum. Þegar hafa verið þingfest mál á hendur manninum þar sem hon- um voru gefin að sök þrettán brot sem framin voru frá nóvember 2001 til apríl 2002. Meðal brot- anna eru skjalafals og margvísleg auðgunarbrot. Á þessu tímabili komst hann yfir verðmæti að and- virði um 2.350.000 krónur sam- kvæmt ákærunni. Aðalmeðferð í máli mannsins hófst 20. ágúst. Henni lauk ekki vegna fjarveru nokkurra vitna sem nauðsynlegt þótti að kæmu fyrir dóminn. Málinu verður hald- ið áfram 3. september. Maðurinn hefur játað fjölda brota sem framin voru frá því skömmu eftir að hann fékk reynslulausn og flest það sem honum er gefið að sök. Hann hef- ur lengi átt við alvarlegan fíkni- efnavanda að stríða. Brotin voru framin til að fjármagna fíkniefna- kaup. Maðurinn ber sjálfur að hann hafi haldið sér frá áfengi og fíkniefnum síðustu fjóra mánuð- ina  HÆSTIRÉTTUR ÍSLANDS Hæstiréttur tekur undir með héraðsdómi sem telur líklegt að morðingi á reynslulausn muni halda áfram auðgunarbrotum gangi hann laus. Dæmdur morðingi fjármagnar fíkniefnaneyslu með glæpum: Morðingi á reynslulausn kærður fyrir svik og pretti Engar rjúpur í versl- unum fyrir jólin? Náttúrufræðistofnun hefur lagt til að sölubann verði sett á rjúpur og veiðitíminn skertur. Umhverfisráðherra segir líklegt að gripið verði til einhverra aðgerða. Ákvörðunar að vænta um miðjan september. Fálk- inn byggir afkomu sína alfarið á rjúpunni. UM 150 ÞÚSUND RJÚPUR VEIDDAR Á HVERJU ÁRI Frá því veiðikortakerfið var tekið upp árið 1995 hefur meðalveiðin verið um 148 þúsund rjúpur á ári og hafa rúm- lega 5.000 veiðimenn tekið þátt í veið- unum. Samkvæmt veiðiskýrslum dreifist aflinn mjög misjafnlega á milli veiði- manna, en um 10% þeirra hafa að jafn- aði verið með um helming aflans. Svo- kallaðir magnveiðimenn, sem taldir eru um 500, skjóta milli 50 og 60 þúsund rjúpur árlega til að selja verslunum og veitingahúsum. KYNSLÓÐASKIPTI Í FRJÁLSLYNDA FLOKKNUM Sverrir Hermannsson mun ekki sækjast eftir endurkjöri. Margrét K. Sverrisdóttir mun leiða flokkinn í öðru Reykjavíkurkjördæminu. Frjálslyndi flokkurinn undirbýr framboð: Margrét leiðir í Reykjavík norður Ísraelar kveðast hafa handtekiðeinn þeirra leiðtoga Hamas sem þeir hafa lagt hvað mesta áherslu á að koma höndum yfir. Sá heitir Jamal Abu al-Hayja og er grunað- ur um að eiga þátt í undirbúningi margra sjálfsmorðsárása. Andre Kolingba, hershöfðingi,hefur verið dæmdur til dauða fyrir þátt sinni í misheppnuðu valdaráni í Mið-Afríkulýðveldinu á síðasta ári. Kolingba var ekki við- staddur réttarhöldin. Hann flúði eftir valdaránstilraunina. Ekki er vitað hvar hann er niðurkominn. Nawaz Sharif, fyrrum forsætis-ráðherra Pakistans hefur gefið kost á sér í væntanlegum þing- kosningum í landinu. Hann hefur verið dæmdur ókjörgengur vegna spillingarmála. ALLT FAST Enn er deilt um verðið á Arcadia. Stærstu eigendur fyrirtækisins vilja fá að minnsta kosti 400 pens fyrir hlutinn. Kaupin á Arcadia: Rose er fastur fyrir VIÐSKIPTI Stuart Rose stjórnarfor- maður Arcadia hvikar hvergi varðandi verðmiðann á Arcadia. Rose hefur umboð stjórnar fé- lagsins til að hafna öllum tilboð- um undir 400 pensum á hlutinn. Rose sagði í viðtali við Financial Times að staðan nú sé ekkert til að naga neglurnar yfir. Hann hefur efasemdir um að hugur fylgi máli hjá Philip Green og Baugi. Um fyrra tilboð Baugs segir Rose að ekki hafi verið um tilboð að ræða, heldur samtal. Hann segist ekki munu grípa andann á lofti þótt til- boðið fari yfir 400 pens. 

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.