Fréttablaðið - 27.08.2002, Side 7

Fréttablaðið - 27.08.2002, Side 7
ÞRIÐJUDAGUR 27. ágúst 2002 ALMANNATRYGGINGAR „Þetta þýðir að stærstur hluti bótaþega heldur óskertum bótum þar sem viðmiðunin er hækkuð. Menn fá meira í vasann. Þetta hefur ekki áhrif á ríkissjóð, hvorki til hækkunar né lækkunar,“ segir Jón Sæmundur Sig- urjónsson, hagfræðingur hjá Heilbrigðis- og trygg- ingaráðuneyti. Heilbrigðisráðherra, hefur ákveðið að frítekjumörk almanna- trygginga hækki um 8,9% um næstu mánaða- mót. Þetta þýðir að tekjuviðmiðun bóta, sem Tryggingastofnun ríkisins greiðir, hækkar sem þessu nemur. Í stað tekna ársins 2000 verð- ur miðað við tekjur síð- asta árs. Þá hækka við- miðunarfjárhæðir um stofnanaþjónustu fyrir aldraða einnig um 8,9% um mán- aðamót.  TRYGGINGASTOFNUN Tekjuviðmið bóta hækk- ar um 8,9% um mán- aðamót. Hækkunin er í takt við launaþróun síð- asta árs. Frítekjumörk almannatrygginga: 8,9% hækkun um mánaðamót RÍKISÚTVARPIÐ Útvarpsráð gengur að líkindum frá ráðningu for- stöðumanns fréttasviðs Ríkisút- varpsins í dag. Átta manns sóttu um starfið en um er að ræða nýtt starf yfir sameiginlegu frétta- sviði Útvarps og Sjónvarps. Þeir sem sóttu um eru Arnar Páll Hauksson fréttaritari, Ágúst Karl Ágústsson kerfisfræðingur, Bogi Ágústsson, fréttastjóri Sjónvarpsins, Gísli Þór Gunnars- son sálfræðingur, Jón Ásgeir Sig- urðsson útvarpsmaður, Kjartan Emil Sigurðsson stjórnmálafræð- ingur, Sigurður Ómarsson mark- aðsfræðingur og Þórhallur Birgir Jósepsson fréttamaður. Útvarps- ráð þingar á ný í dag eftir nokk- urt hlé og er talið nær öruggt að Bogi Ágústsson, fréttastjóri Sjónvarpsins, verði skipaður í stöðuna.  RÍKISÚTVARPIÐ Væntanlega ráðið í nýja yfirmannsstöðu hjá RÚV í dag. Þar með eru fréttastjórarnir þrír. Yfirmaður fréttasviðs RÚV: Bogi líklega ráðinn í dag FRAMBOÐ „Minn hugur stefnir til áframhaldandi þingmennsku, verði þess óskað,“ segir Árni Steinar Jóhannsson, þingmaður Vinstri grænna í Norðurlands- kjördæmi eystra. Hann segir líklegast að hann taki sæti á lista flokksins í nýju Norðausturkjördæmi. „Hins vegar hafa menn rætt það hvort ég flytji mig í Norðvest- urkjördæmið eða Suðurkjördæm- ið. Þetta eru bollaleggingar í fjöl- miðlum og engin slík ákvörðun liggur fyrir af minni hálfu. Ég á frekar von á að valnefndir í hver- ju kjördæmi sjái um uppstillingu á lista frekar en að efnt verði til prófkjöra,“ segir Árni Steinar Jó- hannsson. Einkavæðing, velferðarmál og samkeppnismál munu að mati Árna verða meðal kosningamál- anna. Kjördæmabreytingarnar leggjast ekki vel í hann, enda nýtt Norðausturkjördæmi býsna víð- feðmt, 700 kílómetra ferðalag þarf til að komast endanna á milli. „Ég held að betra hefði verið að gera landið allt að einu kjör- dæmi. En þetta varð niðurstaðan,“ segir Árni Steinar.  ÁRNI STEINAR JÓHANNSSON Hefði verið betra að gera landið allt að einu kjördæmi í stað þeirra breytinga sem gerðar voru á kjördæmaskipan. Árni Steinar Jóhannsson: Ekki framboð í öðru kjördæmi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.