Fréttablaðið - 27.08.2002, Qupperneq 22
22 27. ágúst 2002 ÞRIÐJUDAGUR
HRÓSIÐ
Fær KSÍ fyrir leikinn við And-orra. Íslendingar sýndu og
sönnuðu að þeir eru frábærir í fót-
bolta og unnu leikinn örugglega.
Leikurinn var svo sannarlega
uppörvandi fyrir þjóðerniskennd-
ina. Við vonum að KSÍ haldi upp-
teknum hætti og sigurþyrstir fót-
boltaáhugamenn eru þegar farnir
að hlakka til komu landsliðs
Vatikansins. Það er mikilvægt
fyrir áhangendur Íslands að sjá
landsliðsmenn leika í leikjum þar
sem þeir fá bæði pláss og tíma til
að athafna sig. Það er engan veg-
inn sanngjarnt að sóknarmenn af
getu okkar manna fái aldrei frið
til að athafna sig fyrir framan
mark andstæðinganna.
FÓLK Í FRÉTTUM
Við upphaf seinni heimsstyrjald-arinnar kom til Íslands þýskur
gyðingur, Heinz Edelstein, á flótta
undan nasistum. Sonur hans, Wolf-
gang Edelstein, var tíu ára gamall
þegar hann kom til landsins og bjó
hér um árabil en fluttist síðan aftur
til Þýskalands. Nú er sonur hans,
Benjamín Edelstein, kominn til
landsins til að læra íslensku. Hann
er 19 ára gamall og hefur alltaf ver-
ið búsettur í Berlín, að undanskild-
um níu mánuðum sem hann gekk í
Hlíðaskóla í Reykjavík. Benjamín
hyggur á nám í heimspeki við Há-
skóla Íslands í vetur. „Ég kem nú
aðallega til að læra íslenskuna,“
segir Benjamín á lýtalausri ís-
lensku. „Ég get ekki skrifað hana
nógu vel eða lesið. En við pabbi töl-
uðum saman á íslensku þegar við
vorum tveir einir, og stundum þeg-
ar við vorum að tala um annað fólk,
þá var gott að geta brugðið fyrir sig
öðru tungumáli.“
Benjamín segir að dvölin á Ís-
landi leggist vel í sig, og ekkert
sérstakt sem hann saknar enn sem
komið er. „Þegar stórt er spurt
verður fátt um svör,“ segir hann
þegar hann er inntur eftir munin-
um á Berlín og Reykjavík. „Ég er
auðvitað bara búinn að vera hérna
í mánuð og finn ekki ennþá stóran
mun. Ég veit heldur ekkert hvað
ég verð hérna lengi, en ég er ekki
kominn til að vera til frambúðar.“
Benjamín segist líka eiga sitt fólk í
Þýskalandi, sem bíður eftir hon-
um. „Ég á systur þar og kærustu.
Kærastan kemur hingað í heim-
sókn í vetur.“ En lítur Benjamín á
sig sem Íslending eða Þjóðverja
eða bara hvort tveggja? „Mér
finnst ég aðallega vera þýskur,“
segir hann. „En þegar ég kem til
Íslands finnst mér ég líka vera að
koma heim.“
Benjamín Edelstein er barnabarn Heinz
Edelstein, sem kom til Íslands á stríðsárun-
um á flótta undan nasistum. Benjamín er
kominn „heim“ frá Þýskalandi og hyggst
læra heimspeki við háskólann í vetur og
bæta íslenskukunnáttuna.
Persónan
Kominn heim til að læra íslensku
FÓLK Í FRÉTTUM
Þeim fjölgar þingmönnunumsem halda úti heimasíðu. Síð-
astur til að bætast í þann hóp er
Einar K. Guð-
finnsson, þing-
maður Sjálfstæð-
isflokksins á Vest-
fjörðum, sem hef-
ur opnað vefinn
ekg.is. Í fyrsta
pistli sínum á síð-
unni segist Einar
stefna að því að
halda úti líflegum og reglulegum
skrifum um hvaðeina sem hann
hafi áhuga á að tjá sig um.
Þannig sé hægt að verða beinn
þátttakandi í tafarlausri umræðu
um mál sem höfði til sín hverju
sinni.
Búast má við að fleiri þingmennopni vefi á komandi mánuð-
um. Slíkt gerist alltaf skömmu
fyrir kosningar. Síðan er mismun-
andi hversu vel menn halda út á
vefnum. Stefán Jón Hafstein opn-
aði heimasíðu fyrir prófkjör Sam-
fylkingar á Reykjavíkurlistann.
Síðasti pistill er frá því fyrir kosn-
ingar. Heimasíða Steinunnar Val-
dísar Óskarsdóttur fannst ekki.
Eyþór Arnalds sem fór þó aldrei
alla leið í framboð skrifar reyndar
enn á heimasíðu sína. Þau halda
því enn titlum sínum sem konung-
ur og drottning stjórnmálavefj-
anna Björn Bjarnason og Jóhanna
Sigurðardóttir.
Tuttugu umsækjendur eru umstarf framkvæmdastjóra flug-
öryggissviðs Flugmálastjórnar.
Lítill vafi þykir leika á því að
Pétur K. Maack muni hreppa
hnossið. Fyrir það fyrsta hefur
hann gegnt þessu sama starfi hjá
Flugmálastjórn síðustu árin þó
staðan hafi aldrei verið auglýst
eins og lög gera ráð fyrir. Í öðru
lagi þykir kunnugum sem skil-
yrði sem gerð eru til umsækj-
enda vera skraddarasaumuð utan
á Pétur. Samgönguráðuneytið
mun ræða við umsækjendur á
næstunni. Sagt er að ráðið verði í
stöðuna innan skamms.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að nafni
Flugleiða verður ekki breytt í Bleiku örv-
arnar þrátt fyrir stórfelld kaup Bónusfeðga
á hlutabréfum flugfélagsins.
Leiðrétting
DRUNGALEGT YFIRBRAGÐ REYKJAVÍKUR Veðrið undanfarna daga hefur ekki verið neitt til að hrópa húrra fyrir. Þungskýjað var í gær
og gekk á með skúrum. Það rétt grillti í bandarísku herskipin sem höfðust við á ytri höfninni.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/B
ILLI
AFMÆLI „Ég á ekki von á því að
vakna upp með stór, loðin eyru og
hárbrúska á óviðkunnalegum
stöðum,“ segir skáldið Sigurjón
Birgir Sigurðsson, öðru nafni
Sjón, í tilefni af fertugsafmæli
sínu í dag. Sjón segist við tímamót
sem þessi minnast æskudaga í
Breiðholtinu. „Þar lék ég mér
jöfnum höndum í nýbyggingum
og við Elliðaárnar. Ég er viss um
að taka út þroska á mörkum borg-
ar og náttúru hefur verið afskap-
lega hollt fyrir skáldið. Allur
skáldskapur fjallar nefnilega um
einhver mörk og skil, gráa svæðið
milli manns og heims.“
Sjón situr að skrifum þessa
dagana. „Ég er að setja saman litla
skáldsögu sem gerist á fjöllum og í
afdal. Hún segir frá viðureign séra
Baldurs Skuggasonar refaskyttu
við mjög brögðótta tófu. Jafnframt
frá lífi fólks í þessum afdal sem
séra Baldur þjónar. Að hafa gaman
af þjóðlegum fróðleik getur verið
enn ein vísbendingin um að maður
sér að verða fullorðinn.“
Sjón segist að auki vera að setja
saman kvikmyndahandrit úr
Morgan Kane bókunum sem hann
býst við að fari í framleiðslu hjá al-
þjóðlegu kvikmyndaveri. Auk
skrifa hefur Sjón starfað að mynd-
list og tónlist. Síðasta sýning hans
var fyrir um hálfu ári í galleríi
Helga Þorgils Friðrikssonar Gall-
erí Gangi. Þá er skemmst að minn-
ast tilnefningu sem hann og Björk
hlutu til Óskarsverðlaunanna fyrir
tónlistina í Dancer in the Dark.
Ekki síður er vert að minnast á lag
hans Luftgítar sem virðist ætla að
verða ódauðlegt. „Lagið er þannig
að eftir því sem maður sér æsku-
árin í meiri hillingum því meiri
orku getur maður sett í luftgítar-
inn sem í raun er zen karlmanns-
ins. Ég er ekki frá því að limaburð-
urinn verði fegurri í luftgítar með
árunum.“
Sjón segist ætla að reiða fram
kökur og brauð handa gestum og
gangandi á afmælisdaginn. „Ég
mun njóta þess að vera miðpunkt-
ur alls. Þá er ekki úr vegi að ég
taki luftgítar, svona rétt til að
minna á hver ég var,“ segir Sjón að
lokum.
kolbrun@frettabladid.is
SJÓN
Draumur Sjón er að komast í afmælisferð til Skotlands til að borða mýs. „Ég var að
frétta það að Skotar borðuðu mýs og ég hef þetta eftir virðulegum Englendingi.“
Meiri orka sett
í luftgítarinn
Skáldið Sjón fagnar 40 ára afmæli sínu í dag. Hann býst við að taka
luftgítar fyrir fjölskylduna, svona rétt til að minna á hver hann var.
AFMÆLI
BENJAMÍN EDELSTEIN
Legggur rækt við íslensk-
una þrátt fyrir að hafa
aldrei búið á landinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
TÍMAMÓT
JARÐAFARIR
13.30 Hilmar Ásmundsson pípulagn-
ingarmaður, fyrrverandi starfs-
maður Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur, Vogatungu 49, verður jarð-
sunginn frá Kópavogskirkju.
13.30 Gunnlaug Kristjánsdóttir verður
jarðsungin frá Fossvogskapellu.
15.00 Björg Gunnlaugsdóttir frá Mó-
gilsá, verður jarðsungin frá Selja-
kirkju.
AFMÆLI
Sveinbjörn I. Baldvinsson rithöfundur
er 45 ára í dag.
Ástráður Haraldsson lögfræðingur er
41 árs í dag.
Sigurjón B. Sigurðsson (Sjón) skáld er
40 ára í dag.
Brynhildur Þórarinsdóttir ritstjóri er 32
ára í dag.
Sigurbjörg Þrastardóttir blaðamaður
og skáld er 29 ára í dag.
Hraun rann í kringum kirkj-una í Reykjahlíð í Mývatns-
sveit og síðan út í Mývatn árið
1729. Þá gaus í Leirhnúksgígum
en Mývatnseldar hófust árið 1724
og stóðu með hléum fram í sept-
ember árið 1729.
Menntamálaráðherra lagðibann við því árið 1952 að
auglýsingar um dansleiki yrðu
birtar í Ríkisútvarpinu. Tilgang-
urinn var að hindra að leynivín-
salar vissu um fyrirhugaðar sam-
komur. Bannið „náði aldrei til-
gangi sínum og var til aðhláturs
eins,“ segir í bókinni Útvarp
Reykjavík. Það var formlega af-
numið árið 1959.
Lögreglan á Stanstead-flugvellií Bretlandi handtók sjö Íraka
sem höfðu rænt flugvél frá Súd-
an með 199 farþega innanborðs.
Þetta var árið 1996 og flugræn-
ingjarnir vildu fá pólitískt hæli í
Bretlandi.
SAGA DAGSINS
27. ÁGÚST
Nýi kennarinn vildi nota sál-fræðina sem hann hafði lært í
Kennaraháskólanum. Hann stóð
fyrir framan bekkinn sinn og
sagði: „Ég ætla að biðja alla sem
telja sig vera vitlausa að standa
upp.“
Dágóða stund gerðist ekkert en
svo stóð Siggi litli á fætur.
„Finnst þér þú vera vitlaus
Siggi minn?,“ spurði kennarinn.
„Nei, nei, mér fannst bara svo
óþægilegt að sjá þig standa þarna
aleinan.“
Menn gera sér ýmislegt tildundurs yfir sumarið. Und-
anfarið hafa feðginin Sverrir
Hermannsson og Margrét K.
Sverrisdóttir rennt fyrir fisk á
duggu sinni á Vestfjörðum.
Kannski við hæfi miðað við áher-
slu Frjálslynda flokksins á sjáv-
arútvegsmál og stjórn fiskveiða.
Þau kveðast þó passa að veiða
ekki meira en rétt í soðið. Eiga þá
væntanlega ekki á hættu að fá
eftirlitsaðila á eftir sér í of mikl-
um mæli.