Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.09.2002, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 02.09.2002, Qupperneq 6
STJÓRNMÁL Umræður um flutning verkefna á sviði matvælaeftirlits frá landbúnaðar- og umhverfis- ráðuneytum til sjávarútvegsráðu- neytis hafa legið niðri í allt sumar. Hugmyndir um sameiginlega yf- irstjórn matvælaeftirlits í einu ráðuneyti voru ræddar síðasta vor. Enn sem kom- ið er hefur engin niðurstaða fengist í málið. Eitt af því sem flækir málið er að matvælaeftirlit er veigamikill þáttur í starfi landbúnað- arráðuneytisins. Viðmælandi blaðs- ins sagði að þetta væri í raun spurning um hvort landbúnaðar- ráðuneytið lifði af. Ef matvæla- eftirlitið væri tekið frá ráðuneyt- inu þyrftu önnur verkefni að koma í staðinn til að ráðuneytið gæti staðið undir nafni. Því væri í raun rökrétt að horfa á stjórnar- ráðið í heild sinni ef menn ætluðu að ráðast í svo miklar breytingar. Þá væri hægt að sameina ráðu- neyti í stað þess að skilja eitt ráðuneyti eftir sínu veikara. Auk matvælaeftirlitsins hafa verið hugmyndir um að flytja stjórn fiskeldisins frá landbúnað- arráðuneyti til sjávarútvegsráðu- neytis. Hvorugur flutningurinn er líklegur til að hljóma vel í eyrum þeirra í landbúnaðarráðuneytinu sem við það yrði hálfgerður dvergur í samanburði við hin ráðuneytin, kæmi ekkert á móti. Í nágrannalöndum er matvæla- eftirlit á verksviði eins ráðuneytis en ekki þriggja eins og hér er. Breytingin yrði því til samræmis við það sem víða er. Í sumar mun hafa verið rætt nokkuð við sveitarfélög um fyrir- komulag matvælaeftirlits í tengslum við flutning verkefna innan stjórnsýslunnar. Viðmæl- andi blaðsins úr stjórnkerfinu kvaðst ekki þora að fullyrða hver niðurstaðan yrði. Hann sagði að ef af því yrði að samkomulag næðist um að færa verkefnin milli ráðu- neytanna yrði það væntanlega gert þannig að gildistaka breyt- inganna yrði tengd kosningum á næsta ári. brynjolfur@frettabladid.is 6 2. september 2002 MÁNUDAGURSPURNING DAGSINS Hverjir verða Íslandsmeistarar í fótbolta? Fylkir, en ég held með Þrótti. Hörður Sturluson VIÐSKIPTI ERLENDAR VÍSITÖLUR Dow Jones 8.663,5 -0,1% Nsdaq 1314,8 -1,6% FTSE 4227,3 +0,4% DAX 3.712,9 +1,4% Nikkei 9.619,3 0,0% S&P 916,1 -0,2% Viðmælandi blaðsins sagði að þetta væri í raun spurning um hvort landbúnaðar- ráðuneytið lifði af. Við bjóðum fyrsta flokks viðgerðir fyrir allar tegundir bifreiða á svipstundu. Engar tímapantanir. Komdu núna! • Dekk • Rafgeymar • Smurning • Bremsur • Þurrkublöð • Perur • Rúðuvökvi ÞETTA GERUM VIÐ! REYKJAVÍK • AKUREYRI A B X / S ÍA VIÐSKIPTI Flaga hf. hefur gert sam- komulag um kaup á bandaríska fyrirtækinu Medcare Diagnostics og er stefnt að undirritun endan- legs kaupsamnings á næstu dög- um. að því er segir í fréttatilkynn- ingu frá Flögu hf. Medcare, sem starfar á sama markaði sérhæfir sig í gerð hugbúnaðar og tækja til svefnrannsókna. Kaupverðið er um 1.400 milljónir króna. Með kaupunum verður Flaga hf. stærs- ta fyrirtækið á sviði hugbúnaðar og tækja til svefnrannsókna í heiminum en Medcare hefur ver- ið einn helsti keppinautur fyrir- tækisins. Flaga áformar að sameina rekstur félaganna undir nafni Medcare. Starfsmenn félagsins verða um 100 talsins. Höfuðstöðv- ar fyrirtækisins verða í Reykja- vík, en félagið verður einnig með skrifstofur í Buffalo, New York, þar sem meðal annars fer fram markaðs- og sölustarfsemi, og í Amsterdam þar sem fram fer rannsóknar- og þróunarvinna.  111,4 milljóna króna hagnaðurvar á rekstri Kaupfélags Hér- aðsbúa fyrstu sex mánuði ársins. 135,7 milljónir fengust fyrir sölu eignum. Gert er ráð fyrir að hagnaður verði á rekstri félags- ins á árinu þegar sölutekjur hafa verið dregnar frá. Þorsteinn Már Baldvinsson hef-ur sagt sig úr bankaráði Ís- landsbanka. Afsögnin kemur í kjölfar þess að hann seldi allt hlutafé sitt í bankanum. Tap á starfsemi Stáltaks á fyrrihelmingi ársins nam 40,6 milljónum króna. Eigið fé fyrir- tækisins nam 134,4 milljónum króna í lok júní. Hraðfrystistöð Þórshafnar hef-ur selt allt hlutafé sitt í SÍF. Hluturinn sem nam 8,6 milljón- um króna að nafnvirði var seldur á genginu 4,05. Hagnaður FiskiðjusamlagsHúsavíkur fyrstu sex mánuði ársins nam 55,9 milljónum króna fyrir afskriftir. Á sama tíma á síðasta ári nam hagnaður félags- ins 405,4 milljónum króna. Sparisjóður Vestmannaeyjahagnaðist um 25,9 milljónir króna að reiknuðum sköttum á fyrri hluta ársins. 367,9 milljóna króna tap varð árekstri Líftæknisjóðsins MP- BIO fyrri hluta ársins. DERA GHAZI KHAN, PAKISTAN, AP Dóm- stólar í Pakistan hafa dæmt sex menn til dauða eftir að þeir nauðguðu konu til að refsa fjöl- skyldu hennar. Átta menn voru sýknaðir. Fjórir hinna dæmdu tóku þátt í nauðguninni en hinir tveir voru meðlimir í ættbálka- ráði sem skipaði fyrir um verkn- aðinn þann 22. júní síðast liðinn í þorpinu Meerwala. Hinir sýknuðu voru einnig meðlimir í ráðinu. Meðlimir ættbálkaráðsins skipaði fyrir um að stúlkunni skyldi nauðgað þar sem bróðir hennar hafði átt í ástarsambandi við stúlku úr ætt þeirra. Fórnarlamb- ið var ekki viðstatt dómsúrskurð- inn en fjölskyldumeðlimir hennar söfnuðust saman fyrir utan rétt- arsalinn og var gætt af lögreglu. Alþjóðlegir mannréttindahóp- ar og fjölmiðlar hafa fylgst náið með málinu. Mannréttindahópar hafa gagnrýnt yfirvöld í Pakistan fyrir að leyfa ættbálkaráðum að dæma í slíkum málum og kveða upp jafn ógeðfellda dóma.  FÓRNARLAMBIÐ Fórnarlamb nauðgunarinnar, til vinstri, situr hér ásamt móður sinni. Mennirnir sem nauðguðu henni hafa verið dæmdir til dauða. Málið hefur vakið mik- inn óhug. Dómur kveðinn upp í óhugnanlegu máli í Pakistan: Sex menn dæmdir til dauða fyrir nauðgun Svefnrannsóknir: Flaga sameinast helsta keppinauti sínum LAUGAVEGUR 53B „Húsið kjörið fyrir veitingastað,“ segir einn þeirra sem hyggst opna þar veitingahús ef öll leyfi fást. Íbúar við Laugaveg: Geta alltaf átt von á veitingahúsi nærri sér SKIPULAGSMÁL „Ég vil bara undir- strika það að það hefur ekki verið lyft hamri í þessu húsnæði fyrir okkar tilstilli og mun ekki vera gert fyrr en öll leyfi liggja fyrir,“ segir Hannes Halldórsson, einn þeirra sem hyggja á opnun veit- ingarstaðar við Laugarveg 53. Fram hefur komið að íbúar húss- ins mótmæla að þarna verið veit- ingastaður. Hannes segir að arki- tekt hússins hafi gefið þær upp- lýsingar að á annar hæð eigi að vera verslunarrekstur samkvæmt teikningum og því um virðisauka- húsnæði að ræða. „Sótt hefur ver- ið um leyfi til byggingar- og skipulagsnefndar en þeirra skil- yrði fyrir leyfi er að séð verði fyr- ir sérstakri einangrun í loft og brunavörn fylgi ákveðnum kröf- um.“ Hannes segir að einkennilegt að íbúar skuli vera að mótmæla því það sé ekki hægt að búast við því að ekki sé veitingarekstur eða viðlíka starfsemi við Laugaveg- inn. „Það vita það allir sem kaupa við Laugaveginn að þar má alltaf búast við að verði einhver at- vinnustarfsemi og veitingahús er eitt af því.“  SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ Ef hugmyndir um að sameina matvælaeftirlit undir einu ráðuneyti ganga eftir aukast verkefni sjávarútvegsráðuneytisins mjög. Engar umræður hafa verið á ráðuneytisstigi um flutning matvælaeftir- lits í eitt ráðuneyti. Landbúnaðarráðuneytið er sagt í tilvistarkreppu, verði veigamikill þáttur í starfi þess flutt til sjávarútvegsráðuneytis. Flutningur mat- vælaeftirlits strand

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.