Fréttablaðið - 02.09.2002, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 02.09.2002, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 2. september 2002 Vetrartíminn er kominn Smáralind — opið alla virka daga kl. 11:00—19:00 og einnig er opið um helgar. Skrifstofur VÍS í útibúum Landsbankans á Höfn í Hornafirði og í Ólafsvík eru opnar frá kl. 9:15— 16:00. Sími 560 5000 í þjónustuveri VÍS er opinn frá kl. 8:00—19:00 alla virka daga. Skrifstofur VÍS eru opnar frá kl. 9—17 alla virka daga í vetur. Ármúla 3 · 108 Reykjavík · Þjónustuver 560 5000 · upplysingar@vis.is · www.vis.is þar sem tryggingar snúast um fólk F í t o n / S Í A F I 0 0 5 2 3 2 FRAMBOÐ Yfirgnæfandi líkur eru taldar á að sjálfstæðismenn í Norðvesturkjördæmi efni til op- ins prófkjörs vegna röðunar á lista flokksins fyrir komandi al- þingiskosningar. Sýnt þykir að erfiðlega muni ganga að ná sam- komulagi meðal sitjandi þing- manna um skipan sæta. Að minns- ta kosti fimm sitjandi þingmenn munu gera tilkall til öruggs sætis, allt þungaviktarmenn. Þeir Vil- hjálmur Egilsson 1. þingmaður Norðurlands vestra, Einar K. Guðfinnsson, 1. þingmaður Vest- fjarðakjördæmis, Einar Oddur Kristjánsson 5. þingmaður Vest- fjarða, Sturla Böðvarsson, sam- gönguráðherra og 1. þingmaður Vesturlands og Guðjón Guð- mundsson, 4. þingmaður Vestur- lands. Þessir koma til með að bít- ast um efstu sætin, að ótöldum nýjum mönnum sem kunna að koma fram. Kjördæmisþing Sjálf- stæðisflokksins í Norðvesturkjör- dæmi verður haldið í Snæfellsbæ 28. september. Þá ræðst væntan- lega hvernig staðið verður að vali á listann.  Samskip: Sækja á Rúss- landsmarkað VIÐSKIPTI Samskip hafa keypt flutn- ingafyrirtækið Sotra Europa Transport GmbH. Kaupunum er ætlað að styrkja markaðsstöðu Samskipa í Rússlandi og víðar í samveldislöndum fyrrum Sovét- ríkjanna. Dótturfyrirtæki Sam- skipa hf. í Bremen, Samskip GmbH, sá um kaupin. Sotra hefur verið rekið með hagnaði frá stofn- un og var velta þess um 600 millj- ónir króna árið 2001. SamskipGmbH hafa, í sam- vinnu við aðrar skrifstofur Sam- skipa í Rússlandi og á meginlandi Evrópu, byggt upp öfluga flutn- ingaþjónustu til Rússlands og nið- ur í Kaspíahaf á undanförnum árum og styrkir stöðu sína enn frekar með kaupunum þar sem Sotra hefur verið einn helsti keppi- nautur Samskipa á þessu markaðs- svæði. Búist er við umtalsverðri uppbyggingu á þessu svæði á kom- andi árum, einkum í tengslum við olíuiðnað í og kringum Kaspíahaf. Eftir kaupin verða fyrirtækin sam- einuð og starfsemin rekin undir nafni Samskipa GmbH.  SAMSKIP Verða betur í stakk búin til að sinna vexti og viðhalda sterkri markaðsstöðu sinni á svæðinu eftir kaupin á Sotra Europa. ALÞINGI Átök um sætin 63 í þingsalnum eru hafin. Óvíst er hverjar afleiðingar prófkjör sjálf- stæðismanna í Norðvesturkjördæmi gætu orðið. Sjálfstæðismenn Norðvesturkjördæmi: Yfirgnæfandi líkur á opnu prófkjöri

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.