Fréttablaðið - 02.09.2002, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 02.09.2002, Blaðsíða 11
FRAMBOÐ Kjördæmisráð Vinstri- hreyfingarinnar - græns fram- boðs í norðvesturkjördæmi ákvað á fundi sínum um helgina að stillt yrði upp á framboðslista flokksins í kjördæminu fyrir næstu kosningar. Uppstillingar- nefnd var kosin á fundinum. Henni er ætlað að gera tillögu um lista sem lagður skal fyrir kjördæmisþing. Hildur Trausta- dóttir, formaður kjördæmisráðs, segist gera ráð fyrir að kjör- dæmisþingið verði haldið í nóv- ember. Jón Bjarnason, þingmaður flokksins á Norðurlandi vestra, lýsti því yfir á fundinum að hann gæfi kost á sér til að leiða list- ann.  MÁNUDAGUR 2. september 2002 PRÓFADEILD - ÖLDUNGADEILD Grunnskólastig: (danska, enska, íslenska, stærðfræði) Grunnnám. Samsvarar 8. og 9. bekk grunnskóla. Ætl- að þeim sem ekki hafa lokið grunnskólaprófi eða vilja upprifjun frá grunni. Fornám. Samsvarar 10. bekk grunnskóla. Ætlað þeim sem ekki hafa náð tilskildum árangri í 10. bekk. Upp- rifjun og undirbúningur fyrir nám á framhaldsskóla- stigi. Framhaldsskólastig: Sjúkraliða-,nudd- og félagsliðanám. Almennur kjarni fyrstu tveggja ára framhaldsskóla og sérgreinar á heilbrigðissviði. Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla og hefst 9. septem- ber. Skólagjöld miðast við kennslustundafjölda og er hald- ið í lágmarki. Ýmis fög einnig kennd í fjarnámi. INNRITUN Í PRÓFADEILD fer fram 28. ágúst til 6. september kl. 9 - 19 í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1. FRÍSTUNDANÁM INNRITUN Í FRÍSTUNDANÁM fer fram 11. - 17. september Kennsla hefst 23. september ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA Innritun hefst 18. september og kennsla hefst 30. september Stöðupróf 20. september kl. 17 og 18 og 21. septem- ber kl. 13 og 14 HAUST 2002 Upplýsingar í síma 551 2992. Fax: 562 9408. Netfang: nfr@namsflokkar.is http://www.namsflokkar.is KABÚL, AFGANISTAN, AP Sendinefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna mun rannsaka meintar fjöldagrafir í norðurhluta Afganistan með að- stoð herforingja úr Norðurbanda- laginu. Talsmaður SÞ segir að nefndin muni hitta þrjá herfor- ingja úr bandalaginu sem hafa boðið fram aðstoð sína. Talið er að um 200 Talibanar hafi kafnað í flutningagámi sem verið var að flytja þá í eftir að þeir gáfust upp í árásum Bandaríkjanna og Norð- urbandalagsins í fyrra. SÞ hafa verið gagnrýnd fyrir vinnubrögð sín þar sem einn herforingjanna, sem boðið hefur fram aðstoð sína, hefur verið sakaður um að eiga að- ild að fjöldamorðunum. Hann neit- ar hins vegar ásökunum og segir tölur um mannfall ýktar. Óvíst er hvenær nefndin hefur rannsókn sína og ekki var gefið upp hverjir myndu eiga aðild að henni. Ríkis- stjórn Afganistan sagðist í síðasta mánuði ætla að hefja rannsókn á málinu. Hún hefur þó lítil völd utan Kabúl. Í norðurhluta landsins fara herforingjar úr Norður- bandalaginu með völdin.  Rannsókn á fjöldagröfum í Afganistan: Nefnd á vegum Sameinuðu þjóð- anna gagnrýnd Norðvesturkjördæmi: VG stillir upp JÓN BJARNASON Gaf kost á sér til að leiða listann.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.