Fréttablaðið - 02.09.2002, Page 14

Fréttablaðið - 02.09.2002, Page 14
14 2. september 2002 MÁNUDAGUR FRÉTTIR AF FÓLKI Svo virðist sem leikarinn BradPitt hafi safnað síðu skeggi, sem hann hefur skartað mánuð- um saman, til ein- skis. Pitt safnaði skegginu fyrir leik sinn í mynd- inni „The Founta- in“, sem átti að verða næsta leik- stjórnarverkefni Darren Aronof- sky (Requiem for a dream), en dró sig á dögunum úr verkefninu. Framleiðsla myndarinnar hefur verið í stöð- ugu uppnámi síðustu mánuði og fékk leikarinn einfaldlega nóg, gekk reiður af tökustað í miðjum klíðum og sagði starfi sínu lausu. Útlit er því fyrir að myndin verði aldrei kláruð. Leikkonan Winona Ryder, semvar kærð á dögunum fyrir búðarhnupl, íhugar nú lýsa sig seka. Talsmenn hennar segja að ef hún geri svo sé það gert til að forðast fangelsisvist. Ef svo fer er líklegt að stúlkan verði látin vinna nokkra daga fyrir samfé- lagið. Ryder reynir nú allt hvað hún getur að forðast það að mál hennar komi fyrir dómsstóla enda myndi fjölmiðlafárið út af málinu líklegast ná hámarki ef svo færi. Madonna og eiginmaður henn-ar, leikstjórinn Guy Ritchie, deila nú mikið um endir kvik- myndarinnar „Swept Away“ sem hann leik- stýrir og leikur aðalhlutverkið í. Myndin er ástar- saga tveggja ólík- legra elskenda sem finna ástina þegar þau verða strandaglópar á eyðieyju. Hjúin geta ekki komist að samkomulagi um það hvort ást- arsamband aðal- persónanna haldi áfram eftir að dvöl þeirra á eyj- unni lýkur. Madonna segir „já“ en Guy „nei“. Það verður gaman að sjá hvort þeirra gengur í buxunum á heim- ilinu. Sú gáta ætti að ráðast þeg- ar kemur í ljós hvernig myndin endar á frumsýningardaginn í mars á næsta ári. TÓNLIST Nafn væntanlegrar breið- skífu Sigur Rósar lifir einangr- uðu lífi á prenti. Að segja nafnið „( )“ upphátt er ómögulegt. Lögin á nýju plötunni verða 8 talsins og ber ekkert þeirra nafn. Í bæk- lingnum sem fylgir í umslaginu verða tólf auðar síður og vonast liðsmenn sveitarinnar til þess að kaupendur leiti í sinn eiginn hug- myndabrunn til að fylla upp í eyð- urnar. Það er því hægt að tala um fyrsta gagnvirka plötuumslag tónlistarsögunnar. „Fólk á að hlusta á lögin og skrifa niður þá texta sem það heyrir,“ útskýrir Jón Þór Birgis- son söngvari Sigur Rósar. Lögin eru öll sungin á „vonlensku“, sér- hönnuðu tungumáli Jónsa sem styðst við hljóð en ekki orð. Menn heyra því væntanlega mismun- andi hluti. „Já, eða teikna myndir. Ágætis Byrjun var á íslensku og það var gaman að fylgjast með viðbrögðum útlendinga við tungumálinu. Margir skildu text- anna á sinn hátt. Sumir bjuggu til sögur úr sínu lífi og umhverfi. Það er mjög skemmtilegt að fá svoleiðis viðbrögð. Þar kviknaði hugmyndin.“ Framan á umslaginu verður mynd en upplýsingar um laga- heiti og upptökur er hvergi að finna. Þau vinnuheiti sem aðdá- endur kannast við af tónleikum, svo sem „Dauðalagið“ og „Popp- lagið“, voru látin víkja fyrir nafn- leysinu. „Við erum svo að vonast til þess að þegar fólk er búið að skri- fa texta sína í bæklinginn að það fari á heimasíðuna okkar og skri- fi textana þar. Þar verður forrit sem getur valið út þau orð sem oftast eru notuð. Það verður svo texti laganna.“ Plötunni er skipt í helminga. Á þeim fyrri verða nýrri lagasmíð- ar og slá rúmlega tveggja ára gömul lög smiðshöggið. Síðasta tónleikaferðalag Sigur Rósar var liðsmönnum erfitt. Lögin á Ágætis Byrjun voru mörg hver orðin nokkurra ára gömul þegar platan kom út. Því var það þeim ekki mikið gleðiefni að leika sum þeirra aftur og aft- ur, kvöld eftir kvöld. „Við ætlum að reyna að af- greiða þessa plötu á skömmum tíma. Við förum í stutt tónleika- ferðalag í október og annað mán- aðarlangt í nóvember. Síðan verða smá ferðalög í janúar og febrúar. Eftir það segjum við „stopp“. Við lærðum mjög mikið af því að gera þessa plötu og erum byrjaðir að semja ný lög. Við ætlum að leyfa þeim aðeins að meltast og svo taka þau upp eins fljótt og mögulegt er,“ segir Jónsi að lokum. biggi@frettabladid.is THE SWEETEST THING kl. 8 og 10 MINORITY REPORT kl. 8 og 10 MEN IN BLACK 2 kl. 8 STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 4 og 6 STÚART LITLI 2 m/ens. tali kl. 4 og 6 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15 Sýnd kl. 4, 4.30, 5.30 og 6.30 kl. 8 og 10LILO OG STITCH kl. 6, 8 og 10MAÐUR EINS OG ÉG ABOUT A BOY kl. 6 THE MOTHMAN... kl. 10.20 LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 6 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15 Sýnd kl. 8 og 10.20 VILLTI FOLINN m/ísl. tali kl. 4 VIT410 LILO OG STITCH kl. 4, 6, 8 og 10.10 VIT430 LILO OG STITCH ísl. tali kl. 3.45 og 6 VIT429 MAÐUR EINS OG ÉG 6, 8 og 10.10 VIT422 FRÍÐA OG DÝRIÐ m/ísl. tali kl. 4 VIT418 EIGHT LEGGED FREAKS 8 og 10.10 VIT417 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 VIT 426 Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 VIT 427 Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 VIT 428 Fyrsta gagnvirka plötuumslagið Sigur Rós gefur út þriðju breiðskífu sína, „( )“, þann 28. október. Á meðan tónlistaráhugamenn bíða með skjálfta í hnjánum, og fiðring í tánum, berast fregnir af undarlegu umslagi og að ekkert laganna beri nafn. Verð aðeins: 350. -kr. STUTTMYND KVIKMYNDIR Tvær íslenskar bíó- myndir hafa verið valdar í „Contemporary World Cinema“, aðaldagskrá 27. alþjóðlegu kvik- myndahátíðarinnar í Toronto í Kanada. Þetta eru Fálkar í leik- stjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar og Hafið í leikstjórn Baltasars Kor- máks. Verða þar heimsfrumsýn- ingar beggja myndanna en þær verða frumsýndar á Íslandi í sept- ember. Toronto-hátíðin sem stendur yfir 5.-14. september er ein mikil- vægasta kvikmyndahátíð heims. Ríkir mikil samkeppni framleið- enda og leikstjóra um að fá þar heimsfrumsýningar verka sinna. Á hátíðinni verða að þessu sinni ein- nig heimsfrumsýningar á nýjustu bíómyndum Joels Schumacher, Neil Jordan, Jim Sheridan, Danièle Thompson, Patrice Leconte og fleiri heimsþekktra leikstjóra.  Kvikmyndahátíð í Toronto: Tvær íslenskar kvikmyndir valdar HAFIÐ Hélène de Fougerolles og Hilmir Snær Guðnason. FÁLKAR Margrét Vilhjálmsdóttir lætur fálkann fljúga. TÍSKA Á UMHVERFISRÁÐSTEFNU Hér sést fyrirsæta sýna fatnað er gerður er úr endurunnu efni í tilefni Umhverfisráð- stefnunnar sem fer fram í Jóhannesarborg þessa dagana. Mikið hefur verið um listalíf í Cape Town og Jóhannesarborg síðustu daga þar sem listamenn nýta sér óspart tækifærið til þess að sýna hugarsmíðar sínar. Mikill fjöldi ferðamanna er viðstadd- ur umhverfisráðstefnuna í Suður-Afríku. Fötin sem hér sjást eru gerð úr drykkjar- dollum, geisladiskahulstrum og öðrum endurvinnanlegum efnum. BATMAN Ætli Blaki gamli muni taka lög af „Bat out of Hell“-plötunni hans Meat Loaf? Tim Burton gerir söngleik: Batman á Broadway SÖNGLEIKUR Leikstjórinn Tim Burton hefur ákveðið að setja upp söngleik sem byggður er á ævin- týrum Batmans. Hetjan á þar, þrátt fyrir að taka líklegast lagið, að viðhalda þeirri dökku ímynd sem hann gaf henni í myndum sín- um „Batman“ og „Batman Ret- urns“. Með þessu vonast Burton til að bjarga sögupersónunni frá því hallæri sem hún lenti í eftir hina hræðilegu mynd leikstjórans Joel Schumacher „Batman & Robin“ frá árinu 1997. Áætlað er að söngleikurinn verði frumsýndur árið 2005 og er Burton víst búinn að hanna sviðs- mynd og hin ýmsu fjöldadansat- riði. Búist er við því að helstu sögupersónurnar, að Blaka gamla undanskyldum, verði Jókerinn, Kattarkonan og Poison Ivy. Þessa dagana er Burton að und- irbúa tökur á næstu mynd sinni. Hún á að heita „Big Fish“ og fjall- ar um mann sem snýr aftur til heimabæjar síns til að vera við hlið föður síns á dánarbeði hans. Mað- urinn ákveður að rannsaka sann- leiksgildi lygilegra sagna sem fað- ir hans sagði honum stöðugt af sjálfum sér á uppeldisárum hans. Í rannsókn sinni fer sonurinn svo að sjá föður sinn í nýju ljósi. Það verður stórleikarinn Ewan McGregor sem fer með hlutverk sonarins og Albert Finney leikur föðurinn.  SIGUR RÓS Sú staðreynd að ekkert laganna á nýju plötunni ber nafn á lík- legast eftir að skapa vandræði útvarpsmanna. Jónsi hefur þó ekki miklar áhyggjur af því. „Það verður einmitt gaman að sjá hvernig þeir fara af því. Þeir hljóta að finna sínar aðferðir,“ seg- ir hann og hlær léttilega. Jónsi segir sveitina ætla að reyna að halda útgáfutónleika hér á landi í lok október.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.