Fréttablaðið - 02.09.2002, Side 16

Fréttablaðið - 02.09.2002, Side 16
16 2. september 2002 MÁNUDAGURÁ HVAÐA TÍMUM LIFUM VIÐ? BÆKUR MÁNUDAGURINN 2. SEPTEMBER FJÖLSKYLDUREKSTUR Feðgarnir Guð- mundur Árnason og Sæbjörn Guðmundsson reka saman tann- læknastofu í einu elsta húsi Reykjavíkur, Þingholtsstræti 11. Guðmundur leigði sér aðstöðu í húsinu árið 1959 af þáverandi eiganda Lárusi B. Lúðvíkssyni. Eftir að keypt húsið árið 1976 hafa umtalsverðar umbætur verið gerðar á þessu merka húsi og fékk Guðmundur viðurkenn- ingu Reykjavíkurborgar árið 1999 fyrir þær umbætur. „Helgi Helgason, snikkari og tónskáld byggði húsið árið 1870. Hann var afburðarsmiður sem bæði hannaði og byggði mörg hús í bænum. Það sem einkenndi þau voru vindskeið á göflum en Helgi var sá fyrsti sem innleiddi þau. Til þess að koma húsinu í upprunalegt horf var stuðst við gamla ljósmynd sem tekin var af Sigfúsi Eymundssyni árið 1885. Bárujárnið sem sett hafði verið á húsið, stuttu eftir að myndin var tekin, var rifið í burtu og þess í stað settar viðarplötur. Það eina sem vantar í dag eru flatsúlur framan á húsið en þær verður að sérsmíða,“ segir Guðmundur. Feðgarnir segja afar ánægjulegt að vinna í þessu gamla húsi og eru sammála um að viðskipta- vinir þeirra hafi orð á því að góð- ur andi ríkti í húsinu. Guðmundur útskrifaðist sem tannlæknir árið 1958. „Ég ætlaði alltaf í læknanám en komst fljót- lega að því að það væri lengri leið. Ég var komin með konu og börn, 23 ára gamall, og má segja að hagkvæmnin hafi ráðið.“ Sæbjörn, sem lauk námi árið 1987, segir föður hvorki hafa latt sig né hvatt til að stunda tann- lækningar. Um tilviljun hafi ver- ið að ræða. Skólafélagi hans hafi þrábeðið hann um að koma með sér og hann því slegið til. „Ég byrjaði strax að vinna hjá pabba. Okkur hefur alltaf samið ágæt- lega og því var engin ástæða til að fara annað.“ Guðmundur tók undir þetta og segir þá ekki ein- ungis deild með sér starfinu heldur golfinu. Sæbjörn segist hafa gengið að miklum fróðleik hjá föður sín- um. „Vissulega gat ég uppfrætt hann um það nýjasta sem ég hafði verið að læra en á móti kom hann með úrlausnir. Það væri ekkert annað en hroki að útiloka þessi gömlu gildu sem vissulega standast tímans tönn, ef svo má að orði komast.“ kolbrun@frettabladid.is Gömlu gildin standast tímans tönn Tannlæknarnir og feðgarnir Guðmundur Árnason og Sæbjörn Guðmundsson starfa saman í einu elsta húsi Reykjavíkur, Þingholtsstræti 11. GUÐMUNDUR ÁRNASON OG SÆBJÖRN GUÐMUNDSSON Helgi Helgason var ekki einungis hagleikssmiður heldur og þekkt tónskáld. Eitt þekkt- ari laga hans er Öxar við ána. Hann stofnaði sennilega fyrstu hljómsveit landsins sem kallaðist Lúðrablástrarfélag Reykjavíkur. Mætti leiða getum að því að hann hafi stofnað hljómsveitina í húsi sínu í Þingholtstræti 11. Inga Birgisdóttir, tannsmiður Mér finnst við lifa á góðum tímum. Viltu spara Tíma og peninga Láttu okkur um járnin Komdu með teikningarnar Við forvinnum járnið lykkjur, bita og súlur Vottaðar mottur 5,6,7mm 550 3600 TÓNLEIKAR UNM (Ung Nordisk Musik) hátíðin hefst í 54. skipti í kvöld í Iðnó. Berglind Tómasdótt- ir, einn aðstandenda hátíðarinnar, segir samtökin hafa verið stofnuð 1946 og að Norðurlöndin fimm séu aðstandenda þeirra. Megintil- gangur samtakanna sé að efla samskipti ungra tónskálda á Norðurlöndum. „Á hverju kvöldi verða einhverjar uppákomur. Flytjendur tónlistarinnar eru að- allega ungir hljóðfæraleikara en einnig koma fram góðir gestir, Poing frá Noregi og Nordlys frá Danmörku. Einnig verða tónleik- ar með Caput og Sinfóníuhljóm- sveit Íslands.“ UNM hátíðin er haldin árlega til skiptis á Norðurlöndunum fimm. Síðast var hún haldin á Ís- landi árið 1997. Á UNM hátíðinni eru flutt verk ungra norrænna tónskálda en þau eru valin í und- ankeppni í hverju landi fyrir sig. Opnunartónleikar verða sem fyrr segir í Iðnó kl. 20.30 í kvöld. Flutt verða verk eftir Stefan Thorsson sem kemur frá Svíþjóð, Timothy Page frá Finnlandi, Peter Due frá Danmörku og Kristján Guðjónsson frá Íslandi. Nánari upplýsingar um það sem er að gerast á hátíðinni má finna á vefslóðinni www.musik.is/unm2002.  UNM-BANDIÐ Tónleikar verða á hverju kvöldi 2. til 6. september kl. 20.30 og lokatónleikar verða í Skál- holti laugardaginn 7. september kl. 17. Ung Nordisk Musik: Samskipti ungra tónskálda efld FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI FUNDIR 20.00 Aglow Reykjavík, kristileg samtök kvenna halda mánaðarlegan fund sinn í kvöld í Templarasalnum að Stangarhyl 4 í Reykjavík. Sigrún Ásta Kristinsdóttir formaður Aglow Reykjavík talar. Stúlkur úr Kefas sjá um lofgjörðina. Allar konur eru velkomnar. Þátttöku- gjald er 600 krónur. 20.00 Kynningarfundur Samfylkingar- innar um Evrópumálefni. Fund- urinn verður haldinn í Þinghóli, Hamraborg 11. Svanfríður Jónas- dóttir alþingismaður kynnir Evr- ópuúttekt Samfylkingarinnar og síðan verða umræður og fyrir- spurnir. FÉLAGSSTARF 13.30 Félagsvist hjá Félagi eldri borg- ara í Hafnarfirði, Hraunseli , Flatahrauni 3. TÓNLEIKAR 20.30 UNM (Ung Nordisk Musik) í Iðnó. MYNDLIST Harpa Rún Ólafsdóttir sýnir í Gallerí Tukt, Hinu Húsinu . Harpa er nýnemi í Listaháskólanum og er þetta fyrsta einkasýning hennar. Sýningin stendur til 15 september. Rebekka Gunnarsdóttir sýnir í Sjó- minjasafni Íslands, Vesturgötu 8, Hafn- arfirði. Rebekka sýnir vatnslitamyndir og glerverk. Sýningin stendur til 8. septem- ber og er opin alla daga frá kl. 13-17 á opnunartíma safnsins. Afmælissýning Myndhöggvarafélag Ís- lands stendur yfir í Listasafni Reykja- víkur, Hafnarhúsi. Fjórtán myndhöggv- arar sýna. Sýningin stendur til 6. októ- ber. Englar Alheimsins: Komin út á ensku BÆKUR Bók Einars Má Guð- mundsson Englar Alheimsins er komin út á ensku hjá Máli og menningu í þýðingu Bernard Scudder frá árinu 1995 og heitir á ensku „Angels of the Univer- se“. Einar fékk Norrænu bók- menntaverðlaunin fyrir Engla alheimsins 1995 og bókin hefur verið þýdd á fleiri tungumál en nokkur önnur íslensk bók seinni ára. Aðalpersónan, Páll, segir sögu sína frá vöggu til grafar og lýsir því hvernig skuggi geð- veikinnar leggst yfir líf hans þegar æskuárunum sleppir. Kápumynd gerði Björg Vil- hjálmsdóttir og á kápu má sjá hluta af höggmyndinni Farar- heill eftir Borghildi Óskarsdótt- ur.  HÖNNUN Þorbjörgu Þórðardóttur veflistakonu hefur verið boðið að sýna á alþjóðlegum textílbiennal í Pólandi, II International Artistic Linen Cloth Biennale Krosno 2002. Markmið sýningarinnar er að endurvekja hörinn til listsköp- unar. Þorbjörg sýnir þrjú verk unnin úr íslenskum hör sem var ræktaður undir Eyjafjöllum. Við hæfi þykir að staðsetja biennalinn í Pólandi þar sem hör hefur verið ræktaður í gegnum aldirnar og verið aðal undirstaða í vefnaði þjóðarinnar allt frá strigapokum, upp í hágæða damask (rósavefnað). Sýningin, sem er farandsýning, opnaði síð- astliðinn föstudag í Museum of Art and Crafts í Krosno, hún verður einnig sett upp í Úkraínu, Slóvakíu og Ungverjalandi.  Þorbjörg Þórðardóttir: Sýnir hör í Póllandi EITT VERKA ÞORBJARGAR Markmið sýningarinnar er að endurvekja hörinn til listsköpunar. Mál og menning hefur sent frásér þrjár kiljur, Óvinafagn- að eftir Einar Kárason, Alkemist- ann eftir Paulo Coelho og Brosmilda manninn eftir Henn- ing Mankell. Óvinafagnaður segir af Þórði kakala sem situr að sum- bli í Noregi árið 1238 þegar hann fær þær fréttir að faðir hans og bróðir, hafi verið felldir á Örlygs- stöðum. Í Alkemistanum segir af piltinum Santíago sem hætti á prestaskóla og gerðist hjarð- sveinn. Thor Vilhjálmsson þýddi. Saga Brosmilda mannsins hefst á því þegar Gustaf Thorstensson lögmaður er einn á ferð í bíl sín- um seint um kvöld og sér mann á veginum, reyrðan niður í stól.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.