Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.09.2002, Qupperneq 23

Fréttablaðið - 02.09.2002, Qupperneq 23
23MÁNUDAGUR 2. september 2002 SJÓNHVERFINGAR Sjónhverfinga- maðurinn Criss Angel eyddi 24 tímum í tanki, á stærð við síma- klefa, sem fylltur var vatni á Time Square torginu í New York. Þegar hann var laus úr prísund- inni þakkaði hann fjölskyldu sinni fyrir og leið út af. Hann var flutt- ur með hraði á næsta spítala þar sem var hugað að honum. Angel skreið ofan í tankinn áður en aðstoðarmenn hans fylltu upp með vatni og drógu svört tjöld fyrir. Vegfarendur gátu fyl- gst með athæfinu í gegnum sjón- varpsskjái. „Ég lenti í smá vandræðum um nóttina. Mér varð alltof heitt og ég hélt að það myndi líða yfir mig,“ sagði Angel þegar hann var búinn að jafna sig.  BJÖRK JAKOBSDÓTTIR Í HLUTVERKI SÍNU Það eru mikil átök að vera eini leikarinn á sviðinu allan tímann. Sellofón til Evrópu og Norðurlanda: Heimildaverk um útivinn- andi konur LEIKHÚS Björk Jakobsdóttir leik- kona hefur gert samning um sýn- ingarrétt á einþáttungi sínum, Sellofón til Evrópu og Norður- landanna. Sellofón var frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu í vor undir leikstjórn Ágústu Skúla- dóttur, en tekið upp að nýju nú um miðjan ágúst. Að sögn Bjarkar hefur verið húsfyllir síðan sýn- ingar hófust og er þegar uppselt út september. Björk segist hafa skrifað leik- ritið í mars á þessu ári en lengi gengið með hugmyndina. „Þetta er heimildarverk um útivinnandi konur og ég tileinka þeim það. Flestar ættu að geta séð sjálfar sig í því.“ Hún segist ekki vita hvenær sýningar á verkinu hefj- ast erlendis en langar til að fylgja því sjálf eftir. „Ég vonast til að það verði sem fyrst en ég veit ekki enn hvar það verður fyrst sýnt.“  Á KAFI Sjónvarpsvélar vörpuðu myndum af Criss Angel á meðan hann var á kafi í 24 tíma. Sjónhverfingarmaðurinn Criss Angel: Á kafi í 24 tíma Viltu verða skipstjóri? Námskeið til 30 rúml./65 brúttótonna skipstjórnarréttinda hefst 4. sept. Ekki missa af þessu námskeiði. Siglingaskólinn Sími 898 0599 og 588 3092

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.