Fréttablaðið - 02.09.2002, Qupperneq 24
Einhver frægasti ógæfumaður Ís-landssögunnar er Geir nokkur
sem betur er þekktur undir nafninu
Lati-Geir, en hann öðlaðist frægð og
nokkurs konar píslarvættisdauða
fyrir leti sína þar sem hann dó úr
þorsta á lækjarbakka en var of latur
til að hafa döngun í sér til að teygja
sig í lækinn og svala þorsta sínum.
SAGAN af hinum framtakslausa
Lata-Geir kom óneitanlega upp í hug-
ann í síðustu viku við að lesa frétt
um skólastjóra nokkurn í Reykjavík
sem ekki treystir sér til að dreifa
daglegum skólamáltíðum til barn-
anna í skólanum. Foreldrar barna í
skólanum vilja að börnin fái næringu
og yfirvöld bregðast myndarlega við
og niðurgreiða skólamáltíðir. En það
er ekki nóg því að skólastjórinn sér
enga leið til að koma matnum ofan í
krakkana nema skólinn fái peninga
til að ráða einhvern til að taka við
matnum og dreifa honum oftar en
þrisvar í viku.
EKKI er vitað hvort Lati-Geir sá
sem sagan greinir frá var skólamað-
ur að atvinnu áður en framkvæmda-
leysið yfirbugaði hann. En viðkom-
andi skólastjóri er sannkallaður at-
hafnamaður miðað við Lata-Geir því
að hann er reiðubúinn til að dreifa
skólamáltíðunum þrisvar í viku - en
treystir sér bara ekki í hin tvö skipt-
in nema fyrir sérstaka þóknun.
Þarna mun þó ekki vera um erfiðis-
vinnu að ræða og allrasíst ef
gríslingarnir verða sjálfir látnir
sækja matarbakkana sína. Kannski
tæki þetta tvo menn sosum eins og
tvo tíma á viku og allir á þessum 400
manna vinnustað gætu verið saddir
og sælir og þakklátir því góða kerfi
sem útvegar skólafólki hollan mat á
vægu verði.
SKÓLABÖRNIN hafa nú fengið
eftirminnilega sýnikennslu í því
hvaða væntingar sé eðlilegt og sjálf-
sagt að gera til þjóðfélagsins. Von-
andi leysist þessi vinnudeila um mat-
ardreifinguna hið allrafyrsta, en þá
gæti skólastjórinn leikið nýjan leik
gegn velferðarkerfinu sem útvegar
skólamáltíðirnar og spurt: „Hver á
að mata krakkana og mig - og hver á
að brytja matinn ofan í okkur?“ Og
svo væri upplagt að heimta að þjóð-
kirkjan sendi prest til að lesa borð-
bænina og söngstjóra til að stjórna
skólasöngnum: „Lati-Geir á lækjar-
bakka, lá þar til hann dó...“
Sérsniðið markaðsfræðinám samhliða vinnu
Opinn kynningarfundur í dag
Í boði eru tvær námsbrautir:
CIM - Advanced Certificate in Marketing - Fyrir þá sem hafa menntun eða reynslu í markaðsfræðum.
CIM - Postgraduate Diploma in Marketing - Fyrir þá sem hafa umtalsverða menntun eða reynslu á sviði markaðsfræða.
Kynning á náminu verður í Háskólanum í Reykjavík í dag, mánudag, kl. 17.15.
www.cim.co.uk • www.stjornendaskoli.is
Safran er gull matgerðarmeistarans,
verðmætasta kryddtegund heims.
Líkt og þekking er safran eftirsótt og
dýr vara á alþjóðlegum markaði.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
IR
1
83
92
08
/2
00
2
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
30% afsl.
af
útimálningu
ÚTSALA
Lati-Geir
og kerfið
Flotefni • Málning
Múrviðgerðarefni
Verkfæri og fl.
Súðarvogur 14
www.golflagnir.is
S: 5641740