Fréttablaðið - 08.10.2002, Qupperneq 1
bls. 8
KÖRFUBOLTI
Spennandi mót
framundan
bls. 10
ÞRIÐJUDAGUR
bls. 16
195. tölublað – 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Þriðjudagurinn 8. október 2002
Tónlist 16
Leikhús 16
Myndlist 16
Bíó 14
Íþróttir 10
Sjónvarp 20
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
Matmálstímar og
borgarmyndun
ERINDI Eggert Þór Bernharðsson
flytur erindi í hádegisfyrirlestra-
röð Sagnfræðingafélags Íslands í
samstarfi við Borgarfræðasetur í
Norræna húsinu. Erindið nefnir
hann Matmálstímar og borgar-
myndun og hefst það klukkan
12.05.
Nefndir á fundum
ALÞINGI Sjávarútvegsnefnd, félags-
málanefnd, fjárlaganefnd og sam-
göngunefnd funda fyrir hádegi í
dag.
Stuttar sögur
UPPLESTUR Gabi Schaffner segir
stuttar japanskar sögur í Gallerí
Hlemmi klukkan 20.00
Sjálfsmynd
og líkamsdýrkun
FUNDUR Fræðslunefnd Náttúrulækn-
ingafélags Íslands efnir til mál-
þings á Hótel Loftleiðum. Á mál-
þinginu, sem hefst klukkan 20.00,
verður meðal annars fjallað um
hreyfingu, ábyrgð foreldra og
skóla, mataræði, sjálfsmynd og lík-
amsdýrkun. Aðgangseyrir er 600
krónur.
ÍSRAEL
Flugskeytum
skotið á hóp manna
BÆKUR
Norðanstúlka
segir frá
STJÓRNMÁL „Peningar og völd eru
hreyfiafl hlutanna. Þar sem ég á
enga peninga valdi ég stjórnmál-
in,“ segir Jón Baldvin Hannibals-
son í viðtali við bandaríska tímarit-
ið The Washington Diplomat.
Blaðamaður tímaritsins fylgdi Jóni
Baldvin og Bryndísi Schram til Ís-
lands í sumar.
„Að ferðast með þeim liggur
einhvers staðar á milli þess að vera
í för með forsetaframbjóðanda á
sigurleið eða frægum dægurhetj-
um,“ segir blaðamaðurinn og undr-
ast að þau hjón geti hvergi farið
um heimaland sitt án þess að fólk
vilji heilsa þeim með handbandi og
ræða málin. Og hann þarf svo sem
ekki að vera hissa enda búinn að
lýsa Jóni Baldvin sem einum
mælskasta, gáfaðasta og virtasta
sendiherra erlends ríkis í Was-
hington. Er þó af ýmsu að taka í
þeim efnum þar í borg.
„Ég var byltingarsinni í stóli
fjármálaráðherra....og óvinsælasti
stjórnmálamaður landsins. En nú
virðist þjóðin sakna mín,“ segir
Jón Baldvin í tímaritsgreininni og
greinarhöfundur er ekki í miklum
vafa um að íslenski sendiherrann
hyggi á endurkomu í íslensk
stjórnmál. Gamli flokkurinn hans
eigi undir högg að sækja og flokks-
menn vilji kalla hann til forystu á
ný. Það verða kosningar í maí.
Í tímaritsgreininni er rætt við
Atla Heimi Sveinsson tónskáld
sem lýsir Jóni Baldvin sem áhrifa-
mesta stjórnmálamanni þjóðarinn-
ar. Atli Heimir segist ekki skilja
hvers vegna Jón Baldvin dró sig í
hlé. Og eftir Ragnari Arnalds er
þetta haft: „Hann hætti í stjórn-
málum of snemma. Það er alveg
ljóst að Jón Baldvin er einn af
þeim bestu.“
Bryndís Schram á lokaorðin í
greininni: „Nú förum við til Finn-
lands og að því loknu er rétt að
draga sig í hlé úr utanríkisþjónust-
unni. Þá kannski býður Jón sig
fram aftur,“ segir Bryndís.
eir@frettabladid.is
Tímaritið The Washington Diplomat:
Boðar endurkomu Jóns Baldvins
TÍSKA
Bakar tertu
fyrir synina
SÍÐA 22
SÍÐA 19
Sló í
gegn
AFMÆLI
REYKJAVÍK Hægur vindur og
úrkomulítið.
Hiti 6 til 11 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 5-10 Skýjað 8
Akureyri 5-10 Rigning 9
Egilsstaðir 5-10 Rigning 11
Vestmannaeyjar 5-10 Skýjað 10
+
+
+
+
VEÐRIÐ Í DAG
➜
➜
➜
➜
SÖKK Í NAUTHÓLSVÍK Eikarbáturinn situr nú á botninum í Nauthólsvík en stýrishúsið nær upp úr sjónum.
HEILBRIGÐISMÁL Hallgrímur Boga-
son, formaður stjórnar Heilbrigð-
isstofnunar Suðurnesja, vonar að
starf hefjist í
hluta annarrar
hæðar nýju D-
álmu sjúkrahúss-
ins fyrir lok árs-
ins. Á hæðinni á
að vera öldrunar-
deild sem taka
átti í notkun á
miðju þessu ári. Það hefur ekki
reynst unnt vegna fjárhagsvanda
stofnunarinnar.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
fékk 30 milljónir króna á fjárlög-
um ársins í ár vegna reksturs ann-
arrar hæðar D-álmu. Þetta kemur
meðal annars fram í fjárlaga-
frumvarpi fyrir næsta ár. Þar er
einnig ranglega sagt að starfsemi
sé þegar hafin í öldrunardeildinni.
Hallgrímur Bogason segir að þar
sem sá rekstur sé
enn ekki hafinn
renni þetta fé inn í
annan rekstur
s j ú k r a h ú s s i n s .
„Þetta er einfald-
lega aukið fé til
stofnunarinnar í
heild,“ telur hann.
Í Fréttablaðinu í
gær var haft eftir
Jóhanni Geirdal,
bæjarfulltrúa Sam-
fylkingar í Reykja-
nesbæ, að stjórnar-
menn í HSS hefðu
afsakað seinkun á
opnun öldrunar-
deildarinnar með
því að ekki hafi
fengist starfsfólk. Heilbrigðis-
ráðuneytið segði hins vegar að
ástæðan væri rekstrarhalli. „Þetta
er allt saman rétt. Það var ekki
hægt að fá fólk til
starfa þegar það
var reynt í vor. Það
er líka satt að við
erum í peninga-
vandræðum eins og
fleiri heilbrigðis-
stofnanir og það
flýtir ekki fyrir
málinu,“ segir
Hallgrímur.
Að sögn Hall-
gríms er rekstrar-
halli HSS ekki
vegna tiltekinna af-
markaðra þátta.
„En auðvitað er það
ekki í lagi ef rekst-
urinn er ekki innan
fjárheimilda,“ seg-
ir hann.
Í fjárlagafrumvarpi fyrir
næsta ár er gert ráð fyrir 30 millj-
óna króna aukaframlagi vegna
annarrar hæðar D-álmunnar, eins
og í ár. Ekki hefur verið ákveðið
hvað verður gert við þriðju og
efstu hæð D-álmunnar. Hallgrím-
ur segir að það verði varla ákveð-
ið fyrr en reynsla er fengin af rek-
stri öldrunardeildarinnar á hæð-
inni fyrir neðan.
Fyrir stuttu lét framkvæmda-
stjóri HSS af störfum samkvæmt
samkomulagi við heilbrigðisráðu-
neytið. Sagt er að það tengist
rekstrarvanda HSS. „Það er ekki
beinlínis þannig þó það sé eflaust
eitthvað samtvinnað. Þetta er ein-
faldlega eilífur barningur við það
að láta enda ná saman. Fjármagn-
ið er takmarkað og spurningin
snýst um það hvað eigi að hafa
forgang,“ segir Hallgrímur.
Nýr framkvæmdastjóri hefur
ekki verið ráðinn en starfið hefur
verið auglýst.
gar@frettabladid.is
Tugmilljónir í rekstur
tómrar sjúkradeildar
Formaður stjórnar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja segir stefnt að því að hefja starfsemi í hluta
nýrrar öldrunardeildar áður en árið er á enda. Stofnuninni voru eyrnamerktar 30 milljónir
króna á fjárlögum þessa árs. Formaðurinn segir féð renna til annars reksturs.
Í nýju fjárlaga-
frumvarpi er
ranglega sagt að
starfsemi sé
hafin á nýrri
öldrunardeild.
Nauthólsvík:
Mannlaus
bátur sökk
SJÓSLYS Mannlaus bátur sökk í
Nauthólsvíkinni um hádegisbilið í
gærdag. Hjálparsveit skáta í
Kópavogi og Björgunarsveitin
Ársæll á Seltjarnarnesi voru kall-
aðir út um eittleytið en fengu ekk-
ert að gert þegar komið var á
staðinn. Var báturinn þá nánast
kominn á kaf. Hann situr nú á
botninum en stýrishúsið nær upp
úr sjónum. Ekki er vitað hvers
vegna báturinn sökk.
Báturinn er 36 tonna eikarbát-
ur. Hann hét áður Ólafur GK og
var smíðaður í Danmörku árið
1945.
REYKJANESBÆR
„Þetta er einfaldlega eilífur barningur
við það að láta enda ná saman,“
segir Hallgrímur Bogason, formaður
stjórnar Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja.
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 71,1% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í SEPTEMBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
september 2002
15%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
þriðjudögum?
51%
75%