Fréttablaðið - 08.10.2002, Blaðsíða 6
6 8. október 2002 ÞRIÐJUDAGURSPURNING DAGSINS
Flyturðu lögheimili?
„Það liggur alveg ljóst fyrir að ég kom inn í
stjórnmálin sem Hornfirðingur. Það er gert
ráð fyrir því í lögum að alþingismenn geti
haft sitt lögheimili hvort sem er á Reykja-
víkursvæðinu eða sinni heimabyggð. Ég
kaus að greiða mína skatta og skyldur þar.
Með þessari breytingu byrja ég væntanlega
að greiða útsvarið hér.“
Halldór Ásgrímsson býður sig fram í Reykjavík eftir
nær 30 ára þingsetu fyrir Austurland. Hann hefur
haft lögheimili á Höfn en löngum búið í Reykjavík.
INNLENT
HUNGURVERKFALL „Ég býst við að ég
láti ekki annað ofan í mig en vatn og
íslenskt jurtate á meðan hungur-
verkfall mitt varir,“ segir Hildur
Rúna Hauksdóttir. Hún hóf í gær
hungurverkfall til að mótmæla
virkjunaráformum Landsvirkjunar
við Kárahnjúka og Norðlingaöldu-
aveitu. Hildur segist ekki vera
hrædd við að vera án matar um
tíma „Ég ber meiri ugg í brjósti til
fyrir hönd náttúrunnar og þeirra
spjalla sem fyrirhuguð eru.“ Að
sögn Hildar er tilgangurinn með
verkfallinu að opna augu Íslendinga
fyrir þeim ósköpum sem stjórnvöld
standa fyrir á hálendinu. „Ég vona
líka að með þessu takist að ná er-
lendri athygli og hún verði vopn í
þessari baráttu.“
Hildur segir að bandaríska álfyr-
irtækið Alcoa sé samnefnari fyrir
þau auðvaldsfyrirtæki sem merg-
sjúgi fátæk ríki eins og Malawi sem
við Íslendingar söfnum fyrir með
því að ganga í hús. Alcoa stefnir að
því að reisa álver í Reyðarfirði.
„Allir peningar [fátækra ríkja] fara
í að borga vexti af lánum til slíkra
fyrirtækja og stofnanna. Þess
vegna er ekki til matur þar.“
Mótmælir spjöllum á hálendinu með því að svelta:
Vill opna auga Íslendinga
HILDUR RÚNA HAUKSDÓTTIR
Hún segir álfyrirtækið Alcoa samnefnara
auðvaldsfyrirtækja sem mergsjúgi fátæk ríki.
Utanríkisráðherra Belgíu:
Veiktist í fjár-
lagaumræðu
BRUSSEL, BELGÍU, AP Louis Michel,
utanríkisráðherra Belgíu, var
lagður inn á sjúkrahús í gær eft-
ir að hafa fengið magaverki á
meðan á löngum umræðum um
fjárlög landsins stóð. Þetta er í
annað sinn á stuttum tíma sem
Michel veikist í vinnunni, því á
NATO-ráðstefnunni sem haldin
var í Reykjavík í vor leið yfir
hann í miðri ljósmyndatöku. Þá
hafði hann fengið samskonar
verki og í gær. Veikindi ráðherr-
ans munu ekki vera alvarleg.
Michel, sem er 54 ára gamall,
hefur verið utanríkisráðherra í
þrjú ár.
RANNVEIG LILJA R. PÉTURSDÓTTIR
Ekkert hefur spurst til hennar í rúma viku.
Lögreglan í Reykjavík:
Lýsir eftir
16 ára stúlku
LÖGRELGUMÁL Lögreglan í Reykja-
vík lýsir eftir Rannveigu Lilju R.
Pétursdóttur. Rannveig sem er 16
ára gömul fór af heimili sínu þann
6. september. Hún er um 165 cm.
á hæð og grannvaxin með dökkt
hár venjulega tekið í tagl. Klæðn-
aður hennar er álitinn vera dökk-
ar buxur og hvítur anorakkur.
Rannveig gengur oft með bláan
bakpoka. Rannveig hefur látið
vita af sér öðru hvoru en ekkert
hefur heyrst til hennar í rúma
viku núna.
Þeir sem hafa einhverjar upp-
lýsingar um Rannveigu vinsam-
legast hafið samband við lögregl-
una í Reykjavík í síma 569-9013.
TVÍBURARNIR
Bræðurnir eru enn að jafna sig á spítala.
Hér sést annar þeirra fletta í gegnum
barnaævintýri.
Aðskildir Síamstvíburar:
Vilja helst
haldast í
hendur
ERLENT Tvíburarnir Ahmed og Mo-
hammed frá Malasíu sem skildir
voru í sundur fyrir fjórum vikum
eru að ná fullum bata eftir röð
skurðaðgerða. Piltarnir horfa nú
saman á teiknimyndir, fletta
barnabókum og taka glaðir á móti
gestum.
Þó að Ahmed og Mohammed
hafi verið fastir saman fyrstu
fjögur ár ævi sinnar er það fyrsta
sem þeir biðja um á morgnanna að
fá að haldast í hendur. Bræðurnir
voru fastir saman á mjaðmagrind-
inni, brjóstholinu og kviðarholinu.
Krónprins Sádi Arabíu bauðst til
þess að kosta aðgerðirnar. Alls tók
sólarhring að aðskilja bræðurna.
Bræðurnir, sem fæddust með
einn fót hvor, þurfa að læra að
ganga með aðstoð gervifótar á
næstu árum.
FJÁRMÁL Allt útlit er fyrir að Ísland
sé eina ríki veraldar með allsherj-
ar verðtryggingu í
fjármálakerfi sínu.
Samkvæmt upplýs-
ingum frá sérfræð-
ingum Seðlabank-
ans munu þó Bret-
ar, Nýsjálendingar,
Bandaríkjamenn
og Svíar vera með
verðtryggingu á
hluta af ríkis-
skuldabréfum sínum og nokkrar
þjóðir, sem búið hafa við óhemju
verðbólgu, hafa gripið til víðtækr-
ar verðtryggingar tímabundið.
Má þar nefna Argentínu, Ísrael,
Mexíkó og Tyrkland. Þetta séu
einu hliðstæðurnar sem hægt sé
að finna erlendis.
„Það má alls ekki gera ráð fyr-
ir því að vaxtabyrði almennings
myndi minnka þó svo verðtrygg-
ingin yrði afnumin. Vextir, sem nú
eru 10 - 12 prósent, myndu ein-
faldlega hækka sem verðtrygg-
ingunni næmi og yrðu líklega 15
prósent,“ segir Kristjón Kolbeins,
sérfræðingur hjá Seðlabanka Ís-
lands, sem telur engu að síður að
vextir hér á landi séu háir sem
skýrist af miklum vaxtamun inn-
lánsstofnanna og nýloknu of-
þensluskeiði. „Það sjáum við helst
á því að þegar verðbólgan er 3,1
prósent, eins og hún hefur verið,
þá eru dráttarvextir hátt í 20 pró-
sent. Þarna munar heilum 17 pró-
sentum,“ segir hann.
Kristjón segir þó allan saman-
burð í þessu efni varhugaverðan.
Víða vestanhafs séu neyslulán til
almennings með mjög háum vöxt-
um og kortafyrirtækin bjóði fólki
lán með gríðarlegum vöxtum.
Verðtryggingin sé ekki í eðli sínu
slæm:
„Þegar verðtryggingin var sett
á með Ólafslögum árið 1979 voru
lífeyrissjóðirnir að rýrna verulega
og allt lánakerfið á fallandi fæti.
Það var helst gamalt fólks sem
lagði peninga fyrir sem gufuðu síð-
an upp. Við slíkt var ekki hægt að
búa,“ segir Kristjón sem telur að
Íslendingar hafi í raun verið frum-
kvöðlar á því sviði að setja á verð-
tryggingu lána. Íslendingar hafi þó
kynnst verðtryggingunni áður því
hluti af íbúðarlánum var hér áður
fyrr verðtryggður með byggingar-
vísitölu.
„Kjarni málsins er sá að ef
lánakerfið á að virka þá verða
vextir að vera hærri en verðbólg-
an,“ segir Kristjón en treystir sér
ekki til að svara spurningunni
hvers vegna almennir vextir af
verðtryggðum lánum séu 10 - 12
prósent þegar verðbólgan er rétt
rúm 4 prósent: „Nei, ég myndi
ekki kalla þetta mafíuvexti. Ég
veit ekki hvaða vexti mafían tek-
ur vestanhafs,“ segir hann.
eir@frettabladid.is
Ein með allsherjar
verðtryggingu
Nokkrar þjóðir með verðtryggingu á hluta ríkisskuldabréfa. Aðrar hafa
varist óðaverðbólgu með tímabundinni verðtryggingu. Sérfræðingur í
Seðlabankanum telur ólíklegt að vaxtabyrði almennings minnkaði þó verð-
trygging yrði afnumin. Dráttarvextir 17 prósentum hærri en verðbólga.
„Nei, ég
myndi ekki
kalla þetta
mafíuvexti. Ég
veit ekki
hvaða vexti
mafían tekur
vestanhafs.“
BORGAÐ Í BANKA
Alls ekki víst að vaxtabyrði almennings
minnkaði þó verðtrygging yrði afnumin.
BERKLAR Nýlega greindist starfs-
maður á sjúkrahúsi á höfuðborg-
arsvæðinu með berkla og þurfti
að fara í einangrun um tíma. Sig-
urður Guðmundsson landlæknir
staðfestir það en vill ekki greina
fá hver viðkomandi sé eða hvar
hann starfi. „Í okkar augum er
ekki um stóra frétt að ræða. Það
koma upp nokkur tilfelli á hverju
ári þar sem menn greinast með
berkla. Í þeim tilfellum sem um
smitandi berkla er að ræða þarf
að greina þá frá öðrum en það fer
alveg eftir því við hvaða aðstæður
viðkomandi býr. Í þessu tiltekna
tilfelli þurfti að einangra mann-
eskjuna en það fer eftir ýmsu hve
lengi sú einangrun varir,“ segir
Sigurður.“
Hann segir að sem betur fer
séu berklar fátíðir en þegar svona
tilfelli komi upp sé nauðsynlegt að
gæta fyllstu varúðar. „Berklar
eru þess eðlis að sjúkdómurinn
getur farið úr böndunum og þá
orðið hættulegur. Ýmsir fylgi-
kvillar geta líka gert vart við sig.
Því tökum við á þeim tilfellum
upp koma og gerum viðeigandi
ráðstafanir.“ Sigurður minnist
þess ekki að sjúkdómurinn hafi
valdið dauða allra síðustu ár.
Hann telur að átta til níu ár séu
síðan það gerðist síðast.
Starfsmaður á sjúkrahúsi:
Í einangrun
vegna berklasmits
FREMUR FÁTÍTT
Það gerist sem betur fer sjaldan að berklar
valdi dauðsfalli að sögn landlæknis.
BRUNI Í NÓATÚNI Eldur kom upp
í íbúð við Nóatún aðfaranótt
mánudags. Eldurinn var í eldhúsi
og var hann fljótlega slökktur en
mikill reykur myndaðist. Tals-
verðar skemmdir urðu í íbúðinni.
FLASKA Í HÖFUÐIÐ Flösku var
kastað niður af fimmtu hæð íbúð-
arhúss við Dúfnahóla aðfaranótt
sunnudagsins og lenti hún á höfði
manns. Maðurinn missti ekki
meðvitund en mikið blæddi úr
djúpum skurði á höfði mannsins.
Hann var fluttur með sjúkrabíl á
slysadeild. Upplýst er hver
kastaði flöskunni.
INNBROT Í FELLAHVERFI Brotist
var inn í íbúð í Fellahverfi á
sunnudagsmorgun. Hafði þjófur-
inn á brott með tölvu, dvd-spil-
ara, magnara, sjónvarp, mynd-
band og fleira.
Skýrsla Ríkis-
endurskoðunar:
Útgáfudag-
ur ekki
ákveðinn
EINKAVÆÐING Ekki er ennþá búið að
ákveða hvenær skýrsla Ríkisend-
urskoðunar um sölu ríkisbank-
anna kemur út. Skýrslan var langt
komin í lok síðustu
viku. Sigurður
Þórðarson Ríkis-
endurskoðandi seg-
ir útgáfudag ekki
hafa verið ákveð-
inn. Ekkert fæst
uppgefið hjá Ríkis-
endurskoðun um
efni skýrslunnar. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins munu
fjölmörg atriði í vinnu einkavæð-
ingarnefndar vera gagnrýnd í
skýrslunni. Skýrslan var unnin
fyrir forsætisráðuneytið og mun
berast þangað, áður en aðrir fá að
berja hana augum.
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 87.06 0.76%
Sterlingspund 136.1 0.43%
Dönsk króna 11.47 0.01%
Evra 85.21 -0.01%
Gengisvístala krónu 129,02 0,40%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 227
Velta 4.117 m
ICEX-15 1.298 -0,22%
Mestu viðskipti
Eimskipafélag Íslands hf. 31.051.475
Íslandsbanki hf. 19.922.361
Samherji hf. 13.480.000
Mesta hækkun
Íslenska járnblendifélagið hf. 50,00%
SR-Mjöl hf. 2,94%
Marel hf. 1,65%
Mesta lækkun
Síldarvinnslan hf. -7,76%
Þróunarfélag Íslands hf. -6,67%
Eignarhaldsfélagið Alþýðub. hf. -2,87%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 7547,6 0,30%
Nsdaq*: 1137,1 -0,30%
FTSE: 3780,9 -0,90%
DAX: 2679,3 -1,30%
Nikkei: 8688 -3,80%
S&P*: 800,6 -2,20%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00