Fréttablaðið - 08.10.2002, Síða 7

Fréttablaðið - 08.10.2002, Síða 7
7ÞRIÐJUDAGUR 8. október 2002 STJÓRNMÁL „Við verðum eins og all- ar aðrar þjóðir að verja okkar framleiðslutæki. Það eru allir að kljást við undirboð út um allan heim og það er tekið á því með ýmsum hætti, til dæmis með toll- um eða einhverju í þeim dúr,“ seg- ir Árni Steinar Jóhannsson, þing- maður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Hann flytur ásamt Jóni Bjarna- syni þingsályktunartillögu sem kveður á um að iðnaðarráðherra verði falið að láta gera úttekt á verðmyndun á innfluttu sementi. Í framhaldinu verði gripið til að- gerða ef í ljós kemur að um undir- boð sé að ræða. Í greinargerð með tillögunni segir að innflutningur á sementi hafi aukist á undanförn- um misserum. Sement sé flutt inn frá Danmörku en hlutdeild inn- flutts sements sé nú um 20% af heildarnotkun sements í landinu. Flutningsmenn tillögunnar segja verð innflutts sements mun lægra en í útflutningslandinu og jafnframt lægra en sementsverð í öðrum löndum sem viðkomandi aðilar flytja út til. Sementsverk- smiðjan hf. hefur kært meint und- irboð keppinauta til samkeppnis- yfirvalda. Er það mál enn óútkljáð og óvíst hvenær niðurstaða fæst. Biðtíminn geti orðið verksmiðj- unni afar dýrkeyptur. Verði ekk- ert að gert geti það stofnað rek- stri Sementsverksmiðjunnar á Akranesi í hættu og jafnvel orðið þess valdandi að reksturinn yrði lagður niður. Þar með misstu 90 manns atvinnu sína.  Vinstri hreyfingin grænt framboð: Vill vernda íslenska sementsframleiðslu Sýkna í héraðsdómi: Ók ekki yfir á rauðu DÓMSMÁL Átján ára piltur var í gær sýknaður af ákæru um að hafa ekið gegn rauðu ljósi á Geirsgötu. Tveir lögreglumenn sem sögðust hafa ekið samhliða drengnum þegar hann beygði inn Pósthússtræti stöðvuðu hann. Annar lögreglu- mannanna kvaðst fyrir dómi vera þess fullviss að pilturinn hafi ekið gegn rauðu ljósi. Hinn var í vafa. Pilturinn neitaði hins vegar stað- fastlega allri sök. Því þótti ekki vera komin fram sönnun þess að piltur- inn hafi ekið yfir á rauðu ljósi.  Heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri: Nýtt hús tek- ið í notkun til verknáms NÝBYGGING Í gær var formlega tekið í notkun nýtt og glæsilegt verknámshús heilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri og verður það einkum nýtt til starfsþjálfun- ar nemenda í hjúkrunarfræði og iðjuþjálfun. Nýbyggingin er sér- hönnuð í þeim tilgangi að þjálfa nemendur í að nýta þá þekkingu sem þeir afla sér í bóklegu námi. Líkja má húsinu við klæðskera- saumuð föt sem deildinni var gefinn kostur á að sníða eftir sín- um þörfum sagði Þórarinn J. Sig- urðsson, deildarforseti heilbrigð- isdeildar, við vígslu þess. Húsið er 315 fermetrar að flatarmáli og kostnaður við bygg- ingu þess nam um 50 milljónum króna.  Verkalýðsfélag Akraness: Hyggjast kæra kosningar STÉTTARFÉLÖG Hópur manna innan Verkalýðsfélags Akraness hyggst kæra stjórnarkosningar í félaginu til Alþýðusambands Íslands. Verið er að kjósa hluta stjórnar, vara- formann, ritara og gjaldkera þessa dagana. Hluti stjórnar situr áfram. Þeir sem hyggjast kæra kosn- inguna eru menn sem eru andvíg- ir núverandi stjórn félagsins. Þeir eru ósáttir við hvernig staðið hef- ur verið að skipulagningu kosn- ingarinnar. Telja hana brjóta í bága við lög Alþýðusambands Ís- lands.  AFSLÁTTUR Í LISTASAFNIÐ Lista- safn Reykjavíkur og Flugfélag Íslands hafa undirritað sam- starfssamning, sem felur í sér að allir farþegar Flugfélagsins fá helmings afslátt af aðgangseyri í Listasafnið gegn framvísun brott- fararspjalds. VILJA VEIÐIHEIMILD Bæjarráð Hornafjarðar hefur óskað eftir heimild umhverfisráðuneytisins til þess að fella öll hreindýr sem ganga vestan Kolgrímu utan veiðitíma. Með þeim aðgerðum telur bæjarráð að verjast megi þeirri hættu að hreindýr beri bú- fjársjúkdóma inn á ósýkt svæði. AFMÆLI GERÐASKÓLA Gerðaskóli í Garði heldur upp á 130 ára af- mæli um þessar mundir. Skólinn tók til starfa 7. október árið 1872 og er með elstu barnaskólum landsins. vf.is INNLENT PARÍS, AP Maðurinn sem stakk Bertrand Delanoe, borgarstjóra í París, hefur lengi átt við geðræn vandamál að stríða. Hann segist hafa gert þetta vegna þess að hann þolir hvorki homma né stjórnmálamenn. Borgarstjórinn, sem ekki hefur farið neitt í felur með að vera samkynhneigður, var stunginn í magann aðfararnótt sunnudags. Hann gekkst undir þriggja klukkustunda langa aðgerð á sjúkrahúsi og er ekki í lífshættu. Atvikið gerðist á tónleikum í ráðhúsi borgarinnar á svonefndri „andvökunótt“, sem er menning- arnótt, sú fyrsta sem haldin er í París. Delanoe vildi ekki hafa mikla öryggisgæslu í kringum sig á menningarnóttinni til þess að andrúmsloftið þar yrði sem frjáls- legast. Eftir atvikið um helgina kvikn- aði umræða í Frakklandi um það hvort öryggisgæslu stjórnmála- manna sé ábótavant. Þetta er þrið- ja sinn á þessu ári sem vopnaður maður stekkur fram úr mann- fjölda til þess að myrða franskan stjórnmálamann. Í mars tókst byssumanni að myrða átta manns í ráðhúsinu í Nanterre skammt frá París. Nítján að auki særðust en tilræð- ismaðurinn stökk svo út um glugga og týndi þar lífinu. Á þjóðhátíðardegi Frakka 14. júlí reyndi svo maður vopnaður byssu að ráða Jacques Chirac for- seta af dögum. Hann missti marks og var handtekinn.  Árásin á borgarstjóra Parísar: Þriðja morðtilræðið á árinu HEIMSÓTTU BORGARSTJÓRANN Á SJÚKRAHÚSIÐ Francois Hollande, leiðtogi Sósíalistaflokks Frakklands, kemur ásamt eiginkonu sinni Segolene Royal af sjúkrahúsinu í París þar sem Bertrand Delanoe borgarstjóri liggur. SJÁVARÚTVEGUR Flest bendir til þess að kaup Eimskipafélagsins á Har- aldi Böðvarssyni kunni að flýta fyrir frekari samruna í greininni. Grandi hafði lengi haft augastað á Haraldi Böðvars- syni, en varð undir í baráttunni um yf- irráð. Forsvars- menn Granda hafa ekki viljað tjá sig um stöðu mála, en stöðug fundahöld voru í fyrirtækinu fyrir helgi. Sér- fræðingar sem rætt hefur verið við telja að kaup Eimskipafélagsins hafi verið þeim nokkurt áfall og þar á bæ séu menn að endurmeta stöðuna. Kaup Eimskipafélagsins komu líka á óvart á markaði. Þar var frekar búist við að Grandi myndi kaupa Harald Böðvarsson. Eignatengsl eru á milli Þor- móðs Ramma og Granda. Grandi á einnig í Hraðfrystistöð Eskifjarð- ar. Mat manna á þeirri stöðu er að ekki sé sýnilegur áhugi hjá Hrað- frystisstöð Eskifjarðar að hrófla við eignarhaldi. Þorsteinn Vilhelmsson, einn stofnenda Samherja hefur verið atkvæðamikill í fjárfestingum innan sjávarútvegsins. Meðal þeirra fyrirtækja sem hann hefur fjárfest í eru Guðmundur Run- ólfsson og Hraðfrystistöðin Gunn- vör. Sérfræðingar á markaði telja ekki ólíklegt að Grandi muni horfa til þessara fyrirtækja. Eins og staðan er nú er Eimskip með yfir 40 þúsund þorskígildistonn innan sinna fyrirtækja, eða 11,4% af heildaraflamarki. Samherji er með um 35 þúsund tonn, ef gert er ráð fyrir að þeir ráði einnig hlut Síldarvinnslunnar. Ef Grandi sameinaðist Þormóði Ramma væru fyrirtækin með um 30 þús- und þorskígildistonn. Svipuð staða væri uppi ef Grandi samein- aðist Gunnvöru og Guðmundi Runólfssyni. Staða forstjóra Granda er laus. Sú staða gæti reynst þeim góð skiptimynt í væntanlegri sameiningu. Sérfræðingar á markaði segja sameiningarnar knúnar áfram af stærðarhagkvæmnissjónarmið- um. Verðmat markaðarins á sjáv- arútvegsfyrirtækjum bendi til þess að menn séu þegar byrjaðir að verðleggja hagræðingarmögu- leika í greininni. Eimskip er kom- ið upp að kvótaþakinu, en fæstir gera ráð fyrir að því verði lyft fyrir kosningar. Sérfræðingar í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja gera þó ráð fyrir að þess verði ekki mjög langt að bíða að reglur um hámarkskvóta verði rýmkað- ar. haflidi@frettabladid.is Eimskipafélagið flýtir samruna í sjávarútvegi Kaup Eimskipafélagsins á Haraldi Böðvarssyni komu markaðnum á óvart. Grandi situr eftir með sárt ennið og leitar leiða til að auka stærð- arhagkvæmni. Sérfræðingar telja þess ekki langt að bíða að kvótaþakinu verði lyft. Þó ekki fyrir kosningar. Verðmat markaðarins á sjávarútvegs- fyrirtækjum bendi til þess að menn séu þegar byrjaðir að verðleggja hagræðingar- möguleika í greininni. MISST AF LEST Grandi missti af tækifærinu á að kaupa Harald Böðvarsson. Fyrirtækið horfir nú í aðrar áttir. Líklegustu kostir Granda í stöðunni eru Þormóður Rammi, Hraðfrystihúsið Gunnvör og Guðmundur Runólfsson. JÓN BJARNASON Vill þrengri kvótatakmarkanir og aukinn yfirráðarétt einstakra byggða. Samþjöppun verði stöðvuð Þrengri mörk kvóta- hlutdeildar STJÓRNMÁL Full ástæða er til að lækka leyfilega hámarkshlut- deild einstakra útgerða í heildar- kvóta sagði Jón Bjarnason, þing- maður Vinstri-grænna, í umræð- um á Alþingi. Í ljós hefði komið að 12% kvótaþakið væri of rúmt. Hann hvatti Árna Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, því til þess að þrengja mörkin. Eimskip er komið fast að kvótaþakinu eftir að hafa keypt meirihluta í HB. Verði kvótaþak- ið lækkað þarf fyrirtækið að selja hluta útgerðar sinnar. Sjávarútvegsráðherra sagðist ekki sjá hvað kallaði á breyting- ar. Alþingi hefði séð þróunina fyrir og sett kvótahlutdeild ein- stakra fyrirtækja takmörk. „Mér virðist því að það sé engin sér- stök ástæða í dag til að leggja til breytingar.“  Pyntingarnefnd gagnrýnir Dani: Ill meðferð geðsjúkra DANMÖRK Evrópuráðið gagnrýnir geðdeildir í Danmörku fyrir illa meðferð á sjúklingum. Gagnrýn- in beinist einkum að því að sjúk- lingar séu stundum njörvaðir nið- ur í rúm allt of lengi í senn, eða allt upp í nokkrar vikur. Nefndin ræddi meðal annars við sjúkling sem var spenntur niður í rúm með ólum í sautján daga. Einnig er gagnrýnt að sjúk- lingar séu lokaðir inni of lengi í senn. Í nýrri skýrslu pyntinganefnd- ar Evrópuráðsins eru Danir hvattir til að endurskoða þessa aðferð. Það geti ekki þjónað nein- um læknisfræðilegum tilgangi að loka sjúklinga inni eða njörva þá niður í rúm um lengri tíma.  ÁRNI STEINAR JÓHANNSSON Ef um undirboð er að ræða þá verðum við að bregðast við með tollum eða öðru.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.